Þjóðviljinn - 24.09.1981, Blaðsíða 5
;Fimmtudagur 24. september 1981 ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 5
STJÓRNMÁLAÁSTANDIÐ í BRETLANDI:
Miðjubandalagið
komið á fæturna
Samkomulagiö i Verkamannaflokknum i augum bresks teiknara: Þaö
eru þeir Heaiey og Tony Benn sem eru aö slást.
Innri
erjur
lama
gömlu
flokkana
Atök um varaformannskjör i
Verkamannaflokknum breska,
sem efnir til landsfundar um
næstu helgi , sem og nýjar
hreinsanir i stjórn Thatchers eru
likleg talin til aö veikja enn stööu
gömlu flokkanna tveggja meöal
kjósenda og þar eftir auka mögu-
ieika hins nýja miöjubandalags
sem sagt er frá annarsstaöar á
siöunni.
Siðustu skoðanakannanir benda
til þess, aö Verkamannaflokkur-
inn hafi fylgi 31,5% kjósenda en
Ihaldsflokkurinn sé kominn niður
i 28%.
A landsfundi Verkamanna-
flokksins takast þeir á Dennis
Healey úr hægri armi og foringi
vinstrisinna, Tony Benn. Tony
Benn hefur átt vaxandi fylgi að
fagna að undanförnu — meðal
annars samþykkt þing TUC.
breska alþýðusambandsins á
dögunum ályktanir um úrsögn úr
Efnahagsbandalaginu og einhliða
kjarnorkuafvopnun Breta, sem er
mjög i hans anda. Þeir Healey
eru nú taldir standa nokkuð jafnt
að vigi.
Óttinn við Tony Benn
Callaghan, fyrrum formaður
Verkamannaflokksins og aðrir
hægrimenn hafa miklar áhyggjur
af hugsanlegu kjöri Tony Benns
— telja að með svo róttækan
mann i forystu muni miðjukjós-
endur hrökklast frá Verka-
mannaflokknum yfir á miðju, ef
þá flokkurinn ekki klofnar aftur.
Vinstrimenn svara þvi til gal-
vaskir, að það kunni góðri lukku
að stýra að geta boðið breskum
almenningi upp á ómengaðri só-
sialistaviðhorf en þeir hafi lengi
átt kost á.
Michael Foot, sem kosinn var
formaður flokksins i fyrra — og
framhald á siðu 14
í fyrri viku gerðust
þau tiðindi, að landsþing
Frjálslynda flokksins
breska samþykkti að
ganga i kosningabanda-
lag við hinn nýja Sósial-
demókrataflokk, sem
hópur þingmanna úr
Verkamannafldtknum
stofnaðii mótmæfaskyni
við vinstriþróun i
flokknum. Þetta banda-
lag gæti nú búist við um
39% atkvæða og þar með
hefði það skotið báðum
gömlu flokkunum aftur
fyrir sig.
Breskt flokkakerfi yrði allt
annað, vegna þess að hið nýja
bandalag hefur skuldbundið sig
til að neyta valdastööu til að af-
nema það einmenningskjör-
dæmakerfi sem hefur tryggt
Ihaldsflokkunum og Verka-
mannaflokknum „valdaeinok-
un”. Frjálslyndir hafa lengi bar-
ist fyrir hlutfallskosningum i
landinu, enda hefur einmennings-
kjördæmafyrirkomulagið komið
hart niður á þeim áratugum sam-
an. Þeir hafa stundum fengiöhátt
1 timmtung atkvæða en aðeins
örfá þingsæti.
Núerhinsvegar svokomið, eins
og einn helsti foringi Sósialdemó-
krata, Shirley Williams, fyrrum
menntamálaráðherra, komst að
orði i ávarpi til þings Frjáls-
lyndra, að hið nýja bandalag á
góða möguleika á hverju þing-
sæti, hvort sem þaö er nú i hönd-
um Ihaldsflokksins eöa Verka-
mannaf lokksins.
Það rikti mikill fögnuður yfir
samkomulaginu á þingi Frjáls-
lyndra, sem fór fram I Llandudno
iWales,kjördæmiLloyd Georges,
sem var siöasti stórhöfðingi
Frjálslyndra i breskum stjórn-
málum. En þó er ekki allt sem
sýnist: Flokkarnir tveir eiga eftir
að koma sér saman um þá efna-
hagsstefnu sem þeir geti staðiö að
saman. Þeir eru t.d. ekki sam-
mála um afskipti rikisstjórnar af
k jarasamningum verkalýðs-
félaga.
Þá hefur allhávaðasamur
minnihlutahópur i Frjálslynda
framhald á siðu 14
Opið til kl. 8,
föstudag
hádegis,
laugardag
Vörumarkaðurinn hf.
[ Armúla 1Á sími 86111.
STORMARKAÐSVERÐ
Rauð amerisk epli, 1 kg..........................Kr. 8,50
Ameriskt Cornflakes 500 gr....................... ,, 12,95
Amerískt Cornflakes 227 gr......................... 9,25
Haframjöl2kg..................................... ,, 19,90
Rússneskt hunang 450 gr.......................... ,, 13,35
Kraft tómatsósa 400 gr........................... ,, 6,25
Leni eldhúsrúllur 2 i pk......................... ,, 9,85
Leni WC pappir 8 st. i pakka..................... ,, 23,55
Ananasbitar 1/1 dós................................ 15,60
Rússnesk plómusulta 450 gr....................... ,, 6,30
Ameriskur aspargus 411 gr.......................... 13,25
Co op grænar baunir 1/4 dós, 1/2 dós og 1/1 dós á grunnverði.
Opið til kl. 22 föstudaga og
hádegis laugardaga
STÓRMARKAÐURINN
SKEMMUVEGI 4A KÓPAVOGI
markad'urinn
markadurinn
Reyktrúllupylsa ...........kr.verð 26.00kr.
Söltuð rúllupylsa ......... kr.verö 23.00 kr.
Hvalkjöt .................. kg.verð 26.00 kr.
Hrefnukjöt ................ kg.verð 27.00 kr.
Dilkalifur ................ kg.verð 40.30 kr.
Dilka hjörtu .............. kg.verð 26.70 kr.
Dilka nýru ................ kg.verð 26.70 kr.
Dilka mör ................. kg.verð 6.40 kr.
Slagvef ja með beikoni...... 21.00 kr.
Kjuklingar, 4. stk. í poka .. kg.verð 49.50 kr.
Kjúklingar ................ kg.verð 54.00 kr.
Skankasteik ............... kg.verð 48.90 kr.
Slög ...................... kg.verð 10.50 kr.
Niðursagaðir lamba
frampartar.................Jcg.verð 31.80 kr.
Saltkjöt .................. kg.verð 38.95 kr.
Hangikjöt allt á gamla verðinu
Lambakjöt allt á gamla verðinu
5 slátur í kassa úr Borgarnesi
Verö á kassa 235.00 kr.
AFÖSTUDÖGUM
er opið til kl. 22 í matvörumarkaði, ráfdeild og
fatadeild.
Allar aðrar deildir opnar til kl. 19. Aðra daga
til kl. 18.
A FIMMTUDÖGUM
eru allar deildir opnar til kl. 22.
J||
/A A A A A A * v
Jón Loftsson hf.
i-l
IU‘ "!'»-• ifnV
Hringbraut 121 Simi 10600