Þjóðviljinn - 24.09.1981, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 24.09.1981, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 24. september 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA li iþróttirg íþróttir@ íþróttir k|3*ikur o§ n WAl KtW Boltinn á ieibinni i netib, eftir þrumuskot Péturs Ormslev. Ljésm.: —gel. islenska landslibib i knatt- spyrnu vann það frábæra afrek i gærkvöldi aö gera jafntefii viö afbragösliö Tékka. Úrslitin „Liðið var frábært” ,,Eg er ekki búinn aö spila ■ marga iandsleiki, en þetta er I örugglega sá besti sem ég I hef leikiö”, sagöi Guðmund- | ur Baldursson sem hreinlega ■ lokaöi islenska markinu i I leiknum og sýndi stórgóöan I leik. „Þetta er biiið að vera al- ■ veg frábært. Landsliðshóp- I urinn hefur náð vel saman. Þetta var frábær hópur. Ég hafði ekkert að gera ■ allan fyrri helming fyrra I hálfleiks, en siðan þyngdu Tékkarnir sóknina. Ég komst i stuð strax i ■ byrjun leiksins, en ég átti I ekki möguleika þegar þeir I skoruðu. Hann hitti boltann | alveg pottþétt og það var • ekkert við þvi að gera. Anægður með úrslitin? „Ég get ekki sagt annað, | en að ég sé sáttur við þessi ■ úrslit, Tékkarnir sóttu ansi I stift á okkur i siðari hálf- I leik”. — lg. I „Spáði 1:1” j ,,Ég var búinn aö spá I þessum úrslitum, 1-1 þaö var ■ það sem ég bjóst viö,” sagöi I Asgeii' Sigurvinsson. „Við fengum 1 stig og ég | held við getum vel unaö viö ■ það. Tékkar sóttu stift undir I lokin og þetta voru sann- I gjörn úrslit þótt Tékkarnir J hafi veriö nokkuð áberandi I betri i lokin. Verður þú með á móti Wal- ■ es? „Ég býst við þvi aö ég fái I fri og geti leikið með á móti I Wales. Þaö er ekki gott að * segja hvaða möguleika við ! eigum á móti þeim á Utivelli, I þeir eru ekki miklir. Hvemig fannstu jrig I þess- • um leik? ■ „Ekki nógu vel, ég er að koma úr tveggja mánaöa meiðslum og eralls ekki orö- inn nógu góður ennþá. Hins vegar eru strákarnir hérna heima orönir mjög góöir og við náðum allir vel saman í leiknum. Það gerði út um Ur- slitin”. — lg. Frábært afrek ísland - Tékkó urðu 1:1 og reyndar hékk jafn- teflið á bláþræöi fyrir Tékkana, þvi þegar aðeins 13 mínútur voru eftir af leiknum var staðan 1:0, tslendingum i hag. islenska liðið lék af mikilliskynsemi allan leik- iim, frábær barátta i vörninni ásamt stórkostlcgri frammistööu Guömundar Baldurssonar geröi þeiman árangur aö veruleika. t sex leikjum i 3. riðli undanrása HM hafa tslendingar nælt sér i fimm stig og er vist óhætt aö segja, að i dag sé hægt að taka islenska knattspyrnu alvarlega. Auövitað blandaöist engum hug- ur um þaö, sem horöi á leikinn i gærkvöldi, aö Tékkarnir voru á flcstum sviðum fremri okkar möunum, einkum var þetta áber- audi isiðari hálfleik, þegar mest- ur partur leiksins fór bókstaflega fram iiman vitateigs tslendinga. Samleikur Tékkanna og vel- heppnaðar leikfléttur settu islenska liðið oft i mikinn vanda. Góður fyrri hálfleikur íslendingar fengu sannkallaða óskabyrjun, því þegar á fjórðu minUtu lá boltinn i markinu hjá Tékkum. Eftir harðar atlögur að marki Tékka fengu íslendingar hornspyrnu frá hægri. AsgeirSig- urvinsson sendi vel fyrir markiö og við harðan atgang Arnórs Guðjohnsen, greip tékkneski markvörðurinn til þess ráðs, að slá boltann Ut, frákastiö barst fyrir fætur Péturs Ormslev sem þrumaöi i markið, 1:0! Segja má að leikur íslenska liðsins hafiaðnokkru leyti mótast af þessu fyrsta marki, Tékkum var gefinn lausari taumur. Þó brá fyrir skemmtilegum sóknarlot- um. Atli var ekki langt frá þvi að skora,en var aðþrengdur og náði ekki til boltans. Janus átti fast skot sem góöur tékkneskur markvöröur, Stanislav Seman varöi vel. Tékkarnir voru þó svo sannarlega ekki án tækifæra, sér- staklega var Hehoda, sóknarleik- maðurinn hættulegi, erfiður og undir lok fyrri hálfleiks var stanslaus pressa á islenska markið. A 33. minútu ver Guðmundur hörkuskot frá Nehoda og fimm minútum siðar fær Jan Kozak boltann i opnu færi við endamörkin, en spyrnir fram- hjá, ogþegar þrjár mfnútur eru i leikhlé ver Guömundur snilldar- lega frá Nehoda, missir boltann frá sér,en nær aö gripa hann rétt áður en Berger kemst i færi. Staðan i háifleik, 1:0, nokkuð sem menn voru hæstánægðir með. Magnús Bergs fer út af Seinni hálfleik byrjuðu Islend- ingar með látum og strax á 2. minútu munaði engu að Sævar Jónsson næði að skora. Atli fram- lengdi fyrirgjöf frá vinstri kanti, með þvi að skalla til Sævars, sem skallaði áfram, en tékkneski markvörðurinn náði að verja á stórglæsilegan hátt. Eftir þvi sem á leið hertu Tékkarnir pressuna og skapaðist hætta við islenska markið i nær hverri sóknarlotu. Ekki bætti Ur skák, aö MagnUs Bergs þurfti að yfirgefa völlinn vegna meiðsla og Arnór Guöjohnsen átti stór- góöan leik i gærkvöldi. Ljósm.: — gel. Sigurður Lárusson kom inná i hans staö. Hann náði ekki að komast i takt við leikinn, sem e.t.v. vonlegt er. Snilldarmarkvarsla Guðmundar Það var islenska liöinu til happs að Guðmundur komst i hreint banastuð eftir þvi' sem sóknarþungi Tékka jókst. Einkum var hann laginn við að verja frá Nehoda, jafnvel ótnl- legustuskot.Markiðlá þóiloftinu og á 32. minUtu jafna Tékkar. Vörnin opnast illilega og skyndi- lega eru tveir Tékkar dauðafriir, Jan Kozak sá um það aö skora, hnitmiðað skot hans i hægra hornið átti Guðmundur enga möguleika á að verja. Eftir markið var eins og um spennuslökun yrði að ræða. Tékkarnir hægðu á sér og Islend- ingar áttu nokkra góða spretti, en þó hættulausa að mestu. Þegar hinn ágæti skoski dómari, Hope, flautaðileikinn af, fögnuðu áhorf- endur ákaft, þvi jafntefli gegn þessu sterka liði er ekki litið af- rek, jafnvel þó leikið sé á heima- velli. Skora Ásgeir! Að öllum öörum ólöstuðum var þáttum Guðmundar i markinu stærstur, þvilika markvörslu hef- ur hann aldrei sýnt áður. Janus Guðlaugsson átti góðan dag, eink- um lék hann vel i fyrri hálfleik. örn óskarsson i vörninni er ekkert lamb að leika sér við, þvi voru Tékkarnir fljótir aö komast aö. Hann hefur sjaldan veriö betri. Arnór Guðjohnsen átti af- bragðs góðan leik, en langtimum saman varð hann að kljást einn við 3—4 Tékka. Asgeirs þáttur Sigurvinssonar varö heldur minni en menn reiknuðu með — eða réttara sagt, kröföust aö yrði. Hann var óvenju litið i boltanum, en margar sendingar hans í fyrri hálfleik voru gullfallegar. Kröfur manna til þessa besta knatt- spyrnumanns okkar eru gifur- legar og heldur er þaö langt geng- Staðan Sovétmenn unnu Tyrki 4:0 i 3. riðli undanrása HM i knattspyrnu i gærkvöldi. Staöan i 3. riöli er á þessi: Tékkóslv. ...6 4 11 14:3 9 Wales...6 4 1 1 10:2 9 Sovétr..4 3 1 0 11:1 7 lsland..7 2 1 4 8:19 5 Tyrkland .... 7 0 0 7 1:19 0 V-Þjóðverjar möluðu Finna Karl Heinz Humenigge var á skotskónum i gærkvöldi, þegar V-Þýskaland vann 7:1 stórsigur yfir Finnum I Bochum. Rumenigge skoraði þrivegis I leiknum og félagi hans I liöi Bayern Munchen, Paul Breitner skoraöi tvi- vegis. Klaus Fischer og Walter Dremler skoruöu svo sitt markiö hvor. Hannu Tur- unen skoraöi I fyrri hálflcik fyrir Finna, en staöan i leik- hléi var 2:1. ið að hrópa i hvert sinn, þegar hann fær boltann, kannski ekki kominn fram yfir miðju: Skora Asgeir! Auk þess má benda á, að það er litiö rUm fyrir miklar kúnstir þegar leikurinn fer lang- timum saman á vallarhelmingi tslands. Allt islenska liðið barðist vel og á hrós skilið fyrir vel unnið verk. Tékkneska liðið skipuðu engir aukvisar, leikni einstakra leik- manna var undraverö. Nehoda var þó þeirra hættulegastur og skar sig Ur. Ahorfendur voru u.þ.b. 9 þúsund. — hól. / „Anægður en þreyttur” ,,Ég er mjög ánægður meö þessi úrslit, og ég cr líka dauðþreyttur,” sagöi Viöar Halldórsson aö leikslokum. „Annars er það versta viö þessi Urslit, að það eru ekki einungisTékkarnir sem hafa misst af feröinni á úrslitin i Heimsm eistarakeppninni, heldur erum við lika bUnir að tapa þeim möguleika”, skaut Sævar Jónsson inni. Þeir félagar voru sam- mála um aö gotthafi verið að eiga við framlinu Tékkana. „Þeir skiptu litið um stööur, og notuðu litiö stungur. Hins vegar spiluðu þeir mikiö þri- hyrning, og voru fljótir á sprettinum”. „Þetta var baráttuleikur og við erum ánægðir með þetta stig sem viö fengum.” -lg- / „Ahorfendur hvöttu vel” « „Tékkarnir voru ansi létt leikandi og ég get þvi ekki verið annaö en ánægöur meö islenska liöiö i leiknum”, sagöi Guöni Kjartansson landsliösþjálfari. Hvemig lýst þér á leikinn við Wales? „Efvið náum aö sýna jafn- góðan baráttuleik og i kvöld og i síðustu landsleikjum, þá kviði ég ekki fyrir þeim leik. Sigur i tveimur siðustu leikjum og jafntefli nú. Er allt að smella saman hjá landsliöinu? „Ég veit ekki hvað ég á aö segja. Það voru 6 atvinnu- menn meö okkur i kvöld, en leikmennirnir náði saman eins og i siðustu leikjum og börðust vel. Það skiptir kannski mestu. Ég vil Iika koma þvi á framfæri að ég var mjög ánægöur meö þátt áhorfenda i leiknum. Þeir hvöttu okkur vel og strák- arnir finna vel fyrir þvi I leiknum þegar vel er staðið á bak við þá”, sagöi Guðni Kjartansson. — Ig.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.