Þjóðviljinn - 25.09.1981, Blaðsíða 3
Fóstudagur 25. september 1981 ÞJóÐVILJINN — SÍÐA 3
Einn fjölmennasti fundur í Kópavogi
Mótmælir afhendingu
Þinghólaskóla til MK
Hagstæð
Ákveöiö hefur nú veriö að verö
á heilum dilkakjötsskrokkum
skuli vera kr. 40,55 kg. Er þá miö-
að viö 1. verðfl. og af skrokkum
ósundurteknum.
1 sláturtiðinni geta allir keypt
ófryst dilkakjöt á lægra verði. t
sláturhúsum er kjötið selt á kr.
37,05 kg, en hjá smásölum á að
vera hægt að fá ósundurtekna
skrokka ófrysta á kr. 38,96 kg. og
er þá miðaö við 1. verðflokk.
Heilslátur með sviðnum og sög-
uðum haus kostar nú kr. 39,08. Er
þá miðað við að með fylgi 1 kg. af
mör og að varan sé afgreidd i
ódýrum umbúðum.
— mhg.
Fundurinn um skólamál i Kópavogi sem haldinn var I fyrrakvöld var fjölsóttur. Meirihlutinn samþykkti
aö ekki ætti aö leggja Þinghólsskólann undir Menntaskóla. — Ljósm.: eik.
Könnun Verðlags-
stofnunar
Munur
á vöru-
verði allt
að 26%
Könnun Verðlagsstofnunar á
vöruVerði I verslunum i
Breiðholts, Fossvogs- og
Bústaðahverfi, sem gerð var 14.
sept. siðastliöinn, leiddi i ljós
talsverðan mun á verðlagi.
Könnuninnáði til 17verslana,
82 vörutegundir voru athug-
aðar, en i niðurstöðum er greint
frá 51 tegund vara sem til voru i
allflestum búðunum. Einni
verslun var sleppt úr niður-
stöðunum, þar sem hún hafði á
boðstólum innan við helming
þess varnings sem kannaður
var.
Niðurstöðurnar sýna að ódýr-
asta verslunin á svæðinu er
Hagkaup, en hin dýrasta
verslun Ásgeirs i Efstalandi. Ef
þær 19 vörutegundir sem feng-
ust i öllum verslununum hefðu
verið keyptar þar sem verðið
var hagkvæmast kostuðu þær
219,60 kr. en þar sem verðið var
hæst 235,45 kr., eða 11% meira.
Ef hins vegar er kannað verðiö
á þeim 51 vörutegund, sem
viðast hvar fengust, kemur i ljós
að ódýrastar verða þær 512,38
kr., en 646,90 dýrastar. Mismun-
urinn nemur 26,3%.
Þessi könnun sýnir, að ef
aðgát er höfð má spara talsvert
með hagkvæmum innkaupum.
Samkvæmt þeim skýringum
sem Verðlagsstofnun gefur eru
orsakir verðmismunarins eink-
um: mismunandi aldur birgða,
mismunandi nýting á heimilaðri
álagningu, mismunandi þjón-
usta og einnig að i nokkrum
tilvikum var verð hærra en
leyfilegt er, en þvi hefur verið
kippt i liðinn.
A meðfylgjandi töflu geta
lesendur borið saman verð mis-
munandi vara. Meðalverð er 100
og siðan reiknað út frá þvi,
hvort verslanirnar eru undir
eða yfir meðallagi.
■^n
Fossvogs- og Bústaðahverfi. Ásgeir, Efstal. Áskjör Borgar- kjör Bustaóa- búðin Grensás- kjör Hagkaup KRON Tunguv. ss Háleitis- braut
Hveiti 5 lbs. 95,9 90,7 99,3 96,2 105,2 88,3 105,2 105,2
Salt 1 kg. 101,9 101,9 101,9 77,9 101,9 91,3 112,5 101,9
Vanilludropar 157,1 97,1 94,3 128,6 94,3 85,7 102,9 94,3
Vanillubúóingur 90 gr. 98,5 110,8 63,1 110,8 96,9 100,0 96,9 98,5
Lyftiduft 45o gr. 102,8 102,8 102,8 89,9 102,8 92,7 92,3 102,8
Kaffi 25o gr. 100,0 100,0 100,0 100,0 100,0 100,0 100,0 100,0
Mjólkurkex 4oo gr. 102,1 102,1 102,1 102,1 102,1 92,1 102,6 102,1
Gr. baunir 1/2 dós 103,3 . 103,3 103,3 103,3 103,3 92,8 96,1 103,3
Rauðkál 1/2 dós 100,9 100,9 100,9 100,9 100,9 90,6 100,9 100,9
Fiskbúðingur 1/1 dós 101,0 101,0 101,0 102,4 103,4 92,0 101,2 101,0
Fiskbollur 1/1 dós 131,3 98,0 98,0 98,0 100,3 89,3 98,0 98,0
. Maiskom 1/2 dós 101,0 101,0 101,0 101,0 101,0 90,9 101,0 101,0
Bl. ávaxtasulta 7oo gr. 100,8 100,8 100,8 100,8 100,8 99,2 100,8 100,8
Majones 25o ml. 101,3 101,3 96,1 101,3 101,3 91,4 101,3 102,0
Egg 1 kg. 102,1 99,6 92,3 102,1 102,1 94,5 104,5 102,1
Sardinur lo6 gr. 100,7 100,7 100,7 100,7 100,7 9.1,0 100,7 101,4
Mýkingarefni 1 ltr. 93,3 101,2 101,2 101,2 101,2 90,9 101,6 101,2
Hreingerningarl 1,2 ltr. 101,0 101,0 101,0 101,0 101,0 90,7 101,0 101,0
Sápa 9o gr. 101,4 97,2 95,8 101,4 98,6 100,0 98,6 97,2
Meóalvisitala 103,0 100,1 98,5 100,1 101,7 92,8 101,3 101,3
Samtals veró. 235,45 228,90 225,10 228,85 232,40 212,20 231,55 231,65
Breiðholtshverfi. Ásgeir Breiö- Hóla- Kjöt KRON ss Straum- Val-
Tinda- seli holts- kjör garóur og Fiskur Eddu- felli Ióu- felli nes. garöur.
Hveiti 5 lbs. 99,3 105,2 97,6 99,0 105,2 98,6 100,3 111,0
Salt 1 kg. 94,2 99,0 94,2 101,9 112,5 100,0 100,0 104,8
Vanilludropar 94,3 94,3 94,3 94,3 94,3 94,3 85,7 80,0
Vanillubúðingur 90 gr. 98,5 110,8 101,5 98,5 96,9 110,8 107,7 110,8
Lyftiduft 45o gr. 102,8 102,8 102,8 102,8 102,8 102,8 100,4 92,3
Kaffi 25o gr. 100,0 100,0 98.8 100,0 100,0 100,0 100,0 100,0
Mjólkurkex 4oo gr. 102,1 102,1 101,1 102,1 102,1 92,6 100,0 92,6
Gr. baunir 1/2 dós 103,3 95,4 100,7 103,3 103,3 84,9 104,6 98,0
Rauðkál 1/2 dós 100,9 100,9 100,9 100,4 100,9 100,9 98,7 100,0
' Fiskbúðingur 1/1 dós 92,7 101,0 101,0 101,0 101,0 92,7 101,0 105,1
Fiskbollur 1/1 dós 98,0 98,0 98,0 98,0 98,0 98,0 98,0 101,7
Maiskom 1/2 dós 101,0 101,0 99,6 101,0 101,0 101,0 99,0 100,3
Bl. ávaxtasulta 7oo gr. 100,8 100,8 100,8 100,8 100,8 100,8 100,8 90,9
Majones 25o ml. 101,3 101,3 94,7 102,0 101,3 102,0 100,0 100,7
Egg 1 kg. 102,1 104,5 96,0 94,8 97,2 94,8 102,1 109,4
Sardinur lo6 gr. 100,7 100,7 100,7 100,7 100,7 100,7 98,6 100,0
Mýkingarefni 1 ltr. 101,2 101,2 100,8 101,2 101,2 101,2 101,2 101,2
Hreingemingarl 1,2 ltr. 101,0 101,0 92,8 101,0 101,0 101,0 101,0 101,0
Sápa 9o gr. 101,4 105,6 91,5 102,8 100,0 101,4 101,4 108,4
Meðalvísitala |l 01,1 101,7 98,4 99,7 100,7 98,0 100,5 102,1
Samtals verö., 228,75 232,50 225,05 227,85 230,15 224,10 229,85 233,30
Hér aö ofan má sjá samanburð á þeim 19 vörutegundum sesn til voru í öllum verslunum. Þar er verðið
borið saman á þann hátt, að meðalverð hverrar vörutequndar er sett sem 100 og verðin í hverri verslun
reiknuð út i hlutfalli við það. 1 neðsta dálknum má sjá hvað þessar 19 vörutegundir kosta samanlagt
i hverri verslun og i dálkinum fyrir ofan eru þessi verð borin saman á sama hátt og áður, þ.e. meðal-
vp>ró er sett sen 100.
Vöruverð 116 verslunum I Breiöholts-, Fossvogs- og Bústaöahverfi
/,Til að unnt sé að koma
upp samræmdum fram-
haldsskóla hér í Kópavogi,
þarf einkum þrennt: áhuga,
samstarf og skipulagn-
ingu. Við þurfum að létta á
ásókn í Menntaskólann
með því að byggja strax
yfir samræmdan fram-
haldsskóla; en að leysa
þessi mál á kostnað grunn-
skólanemenda er einfald-
lega útilokað mál. Slíka
lausn leyfum við aldrei",
sagði Guðjón Jónsson, for-
maður Foreldrafélags
Þinghólsskóla á einum
fjölmennasta fundi, sem
haldinn hef ur verið í Kópa-
vogi,i fyrrakvöld.
Þar var fjallað um framkomna
tillögu um að flytja Mennta-
skólann i Kópavogi i húsnæði
Þinghólsskóla, sem aftur leiðir til
þess að nemendur þar þyrftu að
leita út fyrir sitt skólahverfi.
Fundurinn samþykkti tillögu
þar sem afhendingu
Þinghólsskóla undir Mennta-
skólann er harðlega mótmælt
„þar sem slikt skerðir stórlega
starfsaöstöðu grunnskólans og
framtiðarþróun”. Ennfremur
segir i tillögunni, sem þorri hinna
350 — 400 fundarmanna
samþykkti: „Jafnframt styöur
fundurinn framkomna tillögu i
skólanefnd um að bæjarstjórn
hlutist til um að stofnaöur verði
fjölbrautaskóli i Kópavogi.
Einnig að bæjarstjórn taki upp
viðræður við menntamála-
ráðuneyti um að MK verði hluti af
Fjölbrautaskólanum i Kópavogi
ásamt framhaldsdeildum Vig-
hólaskóla og Þinghólsskóla. Þá
leggur fundurinn áherslu á að nú
þegar verði leitað eftir húsnæði
undir verknámsbrautir fjöl-
brautaskóla. — Loks að þegar
verði hafist handa um aö byggja
yfir umræddan fjölbrautaskóla.”
Auk Guðjóns Jónssonar, héldu
framsöguræður þau Sigriður
Olafsdóttir, formaður foreldra-
félags Kársnesskóla og Ólafur
Jens Pétursson, kennari. Lagði
Ólafur rika áherslu á að skólayf-
irvöld I Kópavogi yrðu aö taka
höndum saman um að sinna þeim
hluta nemenda sem kysu fram-
haldsnám i verkmenntun. Þeir
nemendur hefðu hingað til orðið
út undan og þurft að sækja nám
sitt út fyrir bæjarmörkin.
Alþýðubandalagiö i Kópavogi
hefur lengi leitað samstöðu i
þessu máli á breiðum grundvelli.
Talsveröur ágreiningur virðist
vera með meirihlutaflokkunum i
bæjarstjórn, þar sem fram-
sóknarmenn hafa viljað knýja
fram lausn á kostnaö grunnskóla-
nemenda. —v.
/
Utvarps-
lögin endur-
skoðuð
Menntamálaráðherra hefur
skipað nefnd til þess að endur-
skoða útvarpslög nr. 19/1971.
1 nefndinni eiga sæti: Andrés
Björnsson útvarpsstjóri og Vil-
hjálmur Hjálmarsson, formaöur
útvarpsráðs. Rikisstjórnin hefur
tilnefnt i nefndina þá Ólaf R.
Einarsson menntaskólakennara,
Kristján J. Gunnarsson fræslu-
stjóra og Markús A. Einarsson,
veðurfræðing. Ellert B. Schram
ritstjóri hefur verið tilnefndur af
þingflokki Sjálfstæöisflokksins og
Benedikt Grcndal alþingismaður
af þingflokki Alþýðuflokksins.
Formaður nefndarinnar hefur
veriö skipaður Markús A.
Einarsson.