Þjóðviljinn - 07.11.1981, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 07.11.1981, Blaðsíða 12
Helgin 7.—8. nóvember 1981 Helgin 7.-8. nóvember 1981 ÞJóÐVILJINN — SIÐA 13 Forseti Islands spjallar við blaðamann og Ijósmyndara Þjóðviljans um reisu sína Forseti islands tók sig til og kastaði blómsveig til barnanna, sem léku I Kardimommubænum. Hér sést kransinn á fljúgandi ferð. Þetta uppá- tæki mæltist vel fyrir — einkum meðal barnanna, sem urðu himiniifandi — (Ljósm. gel) Exi Ingólfs Arnarsonar og fleiri fornar gersemar. Það er dýrt að vera Sænskir blað'amenn fengu kennslustund hjá forsetanum um skaut- fátækur! bdninginn. — (Ljósm. gel). „Ja hérna, Gunnar. Náð- irðu svona dæmalaust fal - legri mynd af þessum augnablikum. Þetta var meðal þó nokkurra stunda, að„maður" hitti „mann". Þannig var síðdegisstund- in, þegar þroskaheftu börnin sýndu okkur Karde- mommubæinn." Gunnar Elissson, ljósmyndari Þjóðviljans, fylgdi forseta Is- lands, Vigdisi Finnbogadóttur, á ferð hennar um Noreg og Sviþjóð, en óhætt er að segja að sú ferð hafi aukiö sæmd hennar og þjóð- arinnar allrar um leið. Við Gunn- ar fengum aö tefja hinn önnum kafna forseta eina morgunstund i vikunni i þeim tilgangi að rifja upp ferðina og skoða ljósmyndir. Skautbúningurinn Gunnar dregur upp úr pússi sinu mynd af forsetanum i skaut- búningi og biður hana að segja, hvað sé þarna að gerast. prinsessa höfðum nærri gleymt stað og stund og vorum komnar nokkuðlangt i burtu, kallaði hann i tækiö sitt og aö okkur renndi bill sem kom okkur til byggða. Siðan var sest að borðum og Marta litla Louisa sat hjá okkur og spjallaði. Þetta fannst mér afar skemmti- legt — gott og eðlilegt i samskipt- um manna.” „Svíadrottning" Nú, hér erum við Sylvia Svia- drottning á göngu. Ekki man ég um hvað við vorum að skrafa þessa stund, en við vorum að sjálfsögðu til skiptis fjarskalega skynsamar um lifiö og tilveruna. Sylvia drottning er undurfalleg kona. (Nú kinkar Gunnar ljós- myndari kröftuglega kolli til samþykkis, enda tekið mikinn fjölda mynda af þeirri tignarkonu I feröinni). Hún er einnig mjög ljúf i viðmóti og frá henni stafar mikil mannleg hlýja. Þar fer kona mér að skapi.” ,,Og hér erum viö Bertil prins, föðurbróðir Sviakonungs, hágáf- aður og gagnmenntaöur maöur. Kona hans, Lillian prinsessa, og völd né Þjóöminja safniö (þ.e.a.s. rikiö sem fjármagnar það) teldu sig hafa þá fjármuni, sem þyrfti tilað varöveita gripina.Upphæðin sem hér um ræðir er 75 þúsund is- lenskar krónur. Þaö er dýrt að vera fátækur.” Gunnar kveðsteiga ljósmynd af gripunum I sýningarskápnum og hér fá lesendur Þjóöviljans að lita þá augum. Kannski kemst ein- hver skriður á málið. Vonandi. Aöbúa... En hvernig fannst forseta ts- lands að ferðast um og búa meðal konungborinna? „Mér er sagt, að ferðin hafi tek- ist einstaklega vel.” Vigdis Finn- bogadóttir brosir eins og henni einni er lagið. ,,Ég get ekki neitað þvi, að mér þótti kynlegt að vakna allt i einu við tifandi 18. aldar klukkur og horfa i litrlka gullspegla. íburðurinn i höllunum var eins og i ævintýrunum. Stund- um gat ég ekki varist þeirri hugsun, að gott væri aö eiga heima þó ekki væri nema örlitið brot af þessum auði — svosem „Þarna er ég liklegast aö reyna að útskýra skautbúninginn fyrir sænskum blaðamönnum. Búning- in saumaði móðir min og hún skatteraði hann sjálf. Beltiö er frá föðurömmu minni, prestfrú Magdalenu Jónasdóttur i Sauð- lauksdal i Rauðasandshreppi. Það smiðaði óþekktur smiður við Breiðafjörð um miöja siðustu öld. Koffrið — þaö er silfurspöngin. Nei, það er ekki von þú áttir þig á þessu. Þú ert ung og þessi þjóðar- hefð er fyrir þér eitthvað sem við búum með 17. júni, en það skaðar ekki, að þú kunnir skil á skaut- búningnum.” Og forseti Islands hlær. „En koffriö, það er sumsé einnig úr fjölskyldu minni.” „Skautbúningurinn er skart- búningur og ákaflega fallegur. Hann sómir sér einstaklega vel innan um hvaða drottningarklæði sem er.” Sonja krónprinsessa Nú tinir Gunnar fram á borðið ljósmyndir af forsetanum meö konungbornu fólki: forsetinn meö Sonju, krónprinsessu Noregs, for- setinn með prinsinum Bertil og forsetinn með Sylviu drottningu Svia. Greinilega hefur Gunnar smellt af á réttum andartökum: hér eru engir ljósmyndarar i aug- sýn, engir lifveröir, enginn mann- fjöldi — aðeins forseti Islands i einkasamræðum viö konungboriö fólk. „Þarna þakka ég Sonju krón- prinsessu fyrir gjafir, sem hún færöi dóttur minni frá börnunum sinum, Mörtu Louisu og Hákoni. Við erum að kveðjast á flugvellin- um, og þá færði hún mér þetta: tvö lítil og ljúf glerdýr og með þeim fylgdi kort frá börnunum.” Forsetinn hallar sér aftur á bak og horfir út i fjarskann. „Þegar ég núna skoða þessar myndir finn ég hversu dagsstund, sem viö Sonja krónprinsessa áttum sam- an, var rik. Hún bauð mér til há- degisverðar á meðan svo átti að heita að við ættum báðar „fri”, og viö vorum aöeins tvær saman. — A undan fórum við i langa fjall- göngu og töluðum saman eins og tvær mannverur tala best. I hum- átt á eftir okkur gekk ungur mað- ur með talstöövartæki. Hann átti að gæta forsetans af tslandi — að ekkert illt kæmi fyrir. Hann hefði getað verið piltur úr fjölbrauta- skólanum I minni sveit. Hann var orðinn eins og góöur vinur — allt- af einhvers staöar meö kimni i augum hvar sem farið var. Þegar sýnt var, að viö Sonja krón- þau eru mitt fólk hann náöu ekki saman fyrr en seint um sföir. Prinsessan er meðal indælustu kvenna sem ég hef kynnst.” Næst bendir Gunnar forset- anum á mynd, þar sem hún faðm- ar að sér konu, sem er henni greinilega kærkomin. „Þetta er æskuvinkona min, Anna Larsson I Uppsölum”, segir forsetinn. „Hún var sendikennari i sænsku hér i nokkur ár — kom fyrst ’52 eöa ’53 og bjóð heima hjá foreldrum minum,” „Þá vorum viö ungar stúlkur á lslandi hættar að hneigja okkur eins og á dansiböllum i gamla daga, en það tiðkaðist þá enn i Sviþjóð og tlðkast reyndar enn i dag. Þetta kunni pápi minn, pró- fessorinn upp á gamla visu, svo skemmtilega i gamla timanum, að meta. Við Anna Larsson erum miklar vinkonur siðan.” Exi Ingólfs „Eitt er gott að benda á, sem ég veit ekki til að hafi komið fram i blööum á tslandi. A Vikingasýn- ingunni i Stokkhólmi var útbúinn vegna tsiandsheimsóknarinnar sérstakur sýningarskápur, sem haföi að geyma þá muni, sem fundust viö Aöalstræti, þegar leit- aö var uppruna Reykjavikur fyrir nokkrum árum. Meðal þessara gripa var forn exi, sem allt eins gæti veriðexi Ingólfs Arnarsonar. Þegar búið er aö grafa slika hluti úr jörðu geta þeir orðiö loftbólum að bráð, og þvi fylgir einatt mikill kostnaöur að varðveita dýrgripi fortiðarinnar. Þessa gripi verð- um viö að fá heim. Forráðamaöur safnsins sagði hins vegar, aö hvorki borgaryfir- eins og I eitt borgarleikhús.” Og forsetinn brosir enn. „Þó má aldrei gleyma þvi, aö þarna er veriö að varðveita ómet- anlega listmuni fortiðar og það er útaf fyrir sig ákaflega kostnaöar- samt.” Vmisleg mál En'var dagskráin ekki stff? Jjú, vissulega var hún þaö, en sem betur fer er ekki svona mikið umleikis á hverjum degi. Það gerist svo margt skemmtilegt, aö maöur gleymir sér. Leikmaður- inn lætur auðvitað ekki tæla sig til að fara að syngja I sjónvarps- þætti, eins og ég gerði með leikur- unum I „Kardemommubænum” nema vegna þess, að stundin sem er aö liða hefur svo mikiö gildi. Þessi þáttur i norska sjónvarpinu átti að styðja landssöfnun fyrir börn i vanþróuðum löndum. Ég haföi sjálf óskað eftir þvi að sjá leiksýninguna og fór með börnun- um á eftir upp i sjónvarpssal til þess aö styðja gott málefni, og var þaö bæöi ljúft og skylt. Þenn- an sama dag söfnuðust I Noregi um 80 milljónir norskra króna. Vissulega mikil upphæð.” Ekki í kotvísað Nú snýr forsetinn sér að Gunn- ari. „Þegar ég nú hef farið þrisv- ar sinnum fyrir hönd tslands i op- inberar heimsóknir til annarra landa, þykir mér heldur miður, að ekki skuli vera leyft aö taka myndir i þeim veislum, sem gest urinn af tslandi heldur gestgjöf- um. I öll þrjú skiptin hafa þar vakið mikla athygli listamennirn- ir okkar, sem ég hef fengið til liðs við mig til að standa sem best að gestrisni tslands.” Það kemur i ljós, að i Dan- merkurferö forsetans komu fram i veislu forseta tslands þau ólöf Haröardóttir og Gisli Magnússon. 1 Noregi fékk forsetinn Sigriði EIlu Magnúsdóttur til Oslóar frá Lundúnum og Jónas Ingimundar- son, pianóleikara, til liös við sig og I Sviþjóð Einar Jóhannesson, klarinettleikara, og Þorkel Sigur- björnsson, tónskáld. Auk þess sá Ingvar Jónasson, fiölumeistari okkar tslendinga i Sviþjóð um tónlist i veislunni i Sviþjóð. Tón- listamennirnir okkar fóru þarna á kostum með islenska tónlist og þótti i veislum forsetans ekki I kot vísað. Framhald á bls. 14 Hér eru börnin, sem forsetinn hitti fyrir á æfingu með útvarpssinfóniunni i Stokkhólmi. „Þau voru svo þjálfuð, að þau iitu ekkieinu sinni við, þegar við gengum inn. En um ieið og ég kastaði á þau kveðju, litu þau upp sem einn maður og brostu svo elskuiega.” (Ljósm. gel) Uppsala-Edda hafði mikil áhrif á forseta tslands. „Eitt af merkustu augnabiikum lifs mins að fá að fletta henni”, sagði forsetinn. — (Ljósm. gel) Einkar vel virðist hér fara á með forsetanum og prins Bertil. — (Ljósm. gel)

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.