Þjóðviljinn - 14.11.1981, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 14.11.1981, Blaðsíða 12
OJOÐVIUINNI AbaUImi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag tii föstudags. Ut*n þess tlma er hægt aö na 1 blaöamenn og aöra starfsmenn blaösins I þessum slmum: Ritstjórn 81382,81482 og 81527, umbrot Aðalsími Kvöldsími Helgarsími afgreiðslu 81663 Helgin 14.— 15. nóvember 1981 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt aö ná i af- greiöslu blaösins i sima 81663. Blaöaprent hefur sfma 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 lífiö blómstrar Hópurinn stillir sér upp yfir Hkkistunni. t fremri röö eru Guömundur Ólafsson, Helga Jónsdóttir og Bjarni Ingvarsson. t efri röö Þórhallur Sigurösson leikstjóri, Bjarni Hermannsson, Jón Þórisson leiktjalda- máiari, Borgar Garöarsson og Arnar Jónsson. Ljósm.: eik Alþýðuleikhúsið með leikrit eftir Joe Orton Leikhúslífiö í Reykjavík er komið i fullan gang og varla líður svo vika að ekki sé frumsýnt nýtt leikrit. Blaðamaður og Ijósmynd- ari Þjóðviljans áttu leið niður í Aiþýðuleikhús á þriðjudaginn var, og þá var þar mikið um að vera. Leikarar stóðu með máln- ingarpensla, hamra og smergel og voru greinilega að leggja síðustu hönd á nýja leikmynd. Þetta var snyrtileg stofa,en á miðju gólfi trónaði kolsvört lík- kista. Þórhallur Sigurðs- son sat við leikstjóraborðið. Viö læddumst aö honum og spuröum hvaö væri um aö vera. Hann tjáöi okkur ljúflega aö veriö væri aö setja á sviö frægt, breskt leikrit sem nefnist Loot á frum- málinu en Illur fengur i islenskri þýðingu Sverris Hólmarssonar. Þaö er eftir Joe Orton og var kos- iö besta leikritið sem fram kom i London á þvi herrans ári 1966. Þetta var annaö leikrit höfundar i fullri lengd, en sumariö eftir var hann myrtur, kornungur, aöeins 34 ára gamall. Við innum Þórhall nánar. eftir moröinu og hann tjáir okkar aö náungi aö nafni Kenneth Halli- well, sambýlismaöur Ortons og náinn vinur, hafi slegiö hann meö Frumsýnt í nœstu víku hamri i höfuöið. Þeir höföu búiö saman um langa hriö og deilt súru meö sætu. Meðan fyrsta leikrit Ortons, Entertaining Mr. Sloane, hlaut frábærar viðtökur og allt fór siöan aö ganga i haginn fyrir honum misheppnaðist vinin- um allt. Endaöi siöan sambúö þeirra á þessu afbrýöismoröi. — Hvaö geturöu sagt mér fleira um Joe Orton? — Þó aö ferill hans væri stuttur voru margir farnir aö kaila hann Oscar Wilde nútimans fyrir orö- snilli og stilbrögö. Aöur en hann var myrtur var hann á fullu spani, búinn aö ljúka viö þriöja leikritiö og vann aö kvikmynda- handriti fyrir Bitlana. Fariö var aö sýna verk hans vlöa um lönd, vestan hafs og austan. — Um hvaö fjalla verk hans? — Hann ræöst á margs konar hræsni sem viögengst I samfélag- inu svo sem valdiö sem misjafn- lega gáfuöum mönnum er faliö og hvernig þeir beita þvl. Einnig trú- arhræsni. Hann tekur ýmis „tabú” fyrir, svo sem dauðann, á mjög svo skemmcilegan hátt. Leikritin hneyksluöu margan góöborgarann. Þess má geta til gamans aö hann svaraöi oft sjálf-' ur vandlætingarfullum lesenda- bréfum I blööunum undir dulnefni ög sendi llka sjálfur bréf undir kerlingarheitinu Edna Wel- thorpe. Hún var ákaflega púri- tönsk og var brjáluð út i leikrit Ortons og heimtaöi aö þau yröu bönnuö. — Er þetta fyrsta verk hans sem sýnt er hér á landi? — Nei, Menntaskólinn viö Sund sýndi leikþátt eftir hann fyrir nokkrum árum er nefnist Erping- hambúðirnar. Einnig voru fyrir löngu slöan sýnd tvö stutt, bresk leikrit I sjónvarpinu eftir hann. — Og um hvað fjallar svo Illur fengur? — Leikritið byrjar á þvi aö viröulegur kaþólikki er aö kveöja nýlátna konu sina. Rétt eftir aö kistan hefur veriö borin út kemur maöur I frakka og meö hatt og segistvera frá Vatnsveitunni. Aö- ur en varir er þessi maöur búinn aö skrúfa fyrir vatniö og taka slmann úr sambandi. Siöan kem- ur röö dúndrandi skemmtilegra atburöa sem ekki er rétt aö rekja hér. — Og aö lokum. Hverjir leika? — Leikendur eru sex, þau Arn- ar Jónsson, Bjarni Ingvarsson, Bjarni Steingrlmsson, Borgar Garöarsson, Guömundur Ólafs- son og Helga Jónsdóttir. Þaö var svo Jón Þórisson sem geröi leik- myndina. Frumsýning veröur sunnudag- inn 22. nóvember. — GFr Hjúkrunarkonan yfirheyrö af manninum frá Vatnsveitunni. Helga Jónsdóttir og Arnar Jónsson i hlutverkum sinum. Ljósm.: eik 1 Alþýöuleikhúsinu er allt unniö I hópvinnu. Hér eru leikarar og fleiri aö mála og smlöa leiktjöldin. Ljósm.: eik Byggingarfélag verkainanna, Reykjavík Aðalfundur félagsins verður haldinn i Hótel Heklu, Rauðarárstig 18, fimmtudaginn 19. nóv- ember 1981, kl. 20.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Félagsstjórnin. " Hringdu þá í okkur fyrramálið eða næstu morgna milli kl. 9-1 2 í síma 91-14340 Við borgum símtalið Miöunar stöóvar Friðrik A.Jónsson hf. Skipholci 7 • Box 362 • 121 Reykjavik

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.