Þjóðviljinn - 28.11.1981, Page 5
• Blikkiðjan
** ...
Asgaröi 7, Garöabæ
Önnumst bakrennusmiöi og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíöi.
Gerum fött verAtilboA.
SIMI 53468
Helgin 28.— 29. nóvember 1981. ÞJÓÐVILJINN —
bókmenntir
biija
dóttir
skrifar
f
Bílbeltin ||UMFERÐAR
hafa bjargað
: J
Foreldravandamál
Andrés Indriöason:
Polli er ekkert blávatn.
MM 1981.
Fyrsta skáldsaga Andrésar
Indriðasonar, Lyklabarn (1979),
lofaði góðu og þau loforð eru vel
efnd i nýútkominni bók hans,
Polli er ekkert blávatn. Þetta er
islensk saga hið ytra sem hið
innra, gerist i Reykjavik um
þessar mundir og fjallar um
kaldastriðsárabörnin og þeirra
börn á þann hátt sem kemur okk-
ur öllum við.
Pollier lOára og foreldrar hans
eru um þritugt. Þau eru fólkið
sem komst til vits og ára á upp-
gangstimum i efnahagsmálum og
trúir ekki öðru en allt gangi þeim
i haginn áfram ef þau spili rétt.
Þau eru alþýðufólk, hún hár-
greiðslukona, hann ófaglærður
leigubilstjóri, og litii von til að
þau komist ofarlega I goggunar-
röðinni með þvi áframhaldi, en
þaulifa i þeirri blekkingu og horf-
ast ekki i augu við veruleika sinn.
Frekar flýja þau veruleikann,
mamma til Spánar, pabbi ofan i
flöskuna.
Þegar sagan hefst er það þó
Polli sem er á flótta. Hann hefur
tekið þá örlagariku ákvörðun að
strjúka að heiman einn dag til að
reyna að kenna foreldrum sinum
að hætta að rifast stöðugt á sinn
mannskemmandi hátt. Honum
tekst betur en hann vonaði að
vera lengi lengi að heiman en
þegar hann kemur heim um siðir
hefur enginn tekið eftir fjarveru
hans. Mamma hefur loksins gert
alvöru úr þeirri hótun sinni að
fara að heiman með Systu litlu,
pabbi er einn og of upptekinn af
eigin vanda til að taka tillit til
drengsins.
Hverjir taka
ábyrgðina?
Eíns og i Lyklabarni vill Andrés
Indriðason sýna i þessari sögu
hvað fullorðnir eru tillitslausir
gagnvart börnum. Þeir eru hinir
eiginlegu óvitar eins og segir i
öðru góðu verki, börnin eru á-
byrgðarfullir þjóðfélagsþegnar i
samanburði við fullorðna fólkið.
Polli gerir allt sem hann getur i
sögu sinni til að koma pabba sin-
um á réttan kjöl og foreldrum sin-
um i eina sæng og sýnir bæði nær-
gætni og kænsku i þeim tilraun-
um. En þær koma ekki að haldi
vegna þess að foreldrarnir hafa
ekki þroska til að taka á sig á-
byrgð á eigin lifi, hvað þá börnum
og heimili.
Foreldrar Polla, Einar og
Tobba, eru vel gerðar persónur
og mun betur rættar i islensku
samfélagi en foreldrar Disu i
Lyklabarni. Á unglingsárum voru
þau bæði hamingjunnar börn,
dugleg i iþróttum, vinsæl út á við
og vemduð I einkalifinu. Auðvitað
búast þau við að lifið haldi áfram
að leika við þau, en leigubilstjóri
og hárgreiðslukona geta ekki lif-
að munaðarlifi nema til komi
aukatekjur:
Maður verður að hafa allar
klær úti til þess að geta lifáð.
Það gera lfka allir. Hver ein-
asti kjaftur i þessu þjóðfélagi
er með eitthvað auka. Og það
erekki alltheiðarlegt sem fólk
tekur sér fyrir hendur. Er ein-
hver munur á þvi að smygla
eða svikjaundan skatti? (23-4)
Einar selur viðskiptavinum
sinum smyglað áfengi fyrir Geira
Pé, vélstjóra, og þaðan fær hann
peninga fyrir lúxús. Kona hans
vill lúxúsinn en þolir ekki við-
skiptin né viðskiptamátann. Tog-
streitan slitur hana sundur og til
að safna pörtunum saman fer hún
að heiman. Og skilur eldra barn-
ið, Polla, eftir hjá manni sinum,
vitandi þó um óreiðuna á honum.
Sambúð feðganna gengur stirt
þótt Polli sé fullur af samstarfs-
vilja og ástúð.Einar er linur og á-
hrifagjarn, og þvi miður hefur
hann valið að verða handbendi
Geira Pé fremur en konu sinnar.
Það val er á góðri leið með hann
til glöturiar, en þó er hann enginn
svartipétur. Eins og margir á-
hrifagjarnir menn getur hann
verið mjúkur og aðlaðandi.
Tobba.móðir Polla, er sterkari
persóna en maður hennar og hef-
ur enst betur en hann, en einnig
hún er barn sins tima, afurð sins
samfélags. HUn vill njóta lifsins,
fá mikið fyrir litið, og hún gefur
litið fyrir skyldur og ábyrgð. Hún
var snemma bundin heima og nú
langar hana til að vera aftur ung
og daðra og djamma. Lifsviðhorf
foreldranna beggja koma verst
oiður á Polla, sem helst þyrfti að
vera sinn eiginn afi við þessar
kringumstæður.
Skóli/heimili
Skólinn er eini staðurinn þar
sem PoDi fær að vera jafnaldri
sjálfs sin, þar er tillit tekið til
lians og hann fær að þroskast á
sinum hraða. Aðvísu veröa einn-
ig átök þar, en þá á Polli i höggi
við jafningja sina og hefur yfirsýn
vfir aðstæður. Þau átök gefa hon-
um sjálfstraust. Polli er líka svo
heppinnað hafa kennara sem ýtir
undir sjálfstæða hugsun og sköp-
unarþörf nemenda sinna.
Skólinn myndar andstæðu við
heimiliö i sögu Polla, sterka og
nokkuð sannfærandi. Höfundur er
augsýnilega hlynntur barnasam-
félaginu sem þar þrifst sem mót-
vægi við lokaða kjamafjölskyld-
una þar sem gengið er á rétt
barnanna og þörfum þeirra illa
sinnt. I skólanum eru þau meðal
jafningja og geta beitt sinum eig-
in rökum og aðferðum til að jafna
deilur — samanber frábæra senu
þar sem Eva, bekkjarsystir
Polla, rýfur þagnarmUrinn utan
um heimilisvanda Polla og Polli
jafnar sakirnar með þvi að troða
snjó inn á hana. Eftír það geta
þau orðið vinir, þau standa jain-
fætis.
Andrés Indriöason
En Polli getur aldrei staðið
jafnfætis foreldrum sinum. Þau
svikja hann og sýna honum ó-
hreinlyndi, og það er erfitt að sjá
að hann hafi nokkuð gott til þeirra
að sækja.
Afstaða höfundar til fjölskyld-
unnar i' þessari sögu er skýr og
neikvæð og þó eru foreldrar Polla
langt frá þvi vondar manneskjur.
Ég held að Andrés sé að biðja um
meiri sjálfsákvörðunarrétt barna
á þeirni forsendu að sú kynslóð
sem nú er að taka við sé ófær um
að bera ábyrgð á börnum. Þau
geti það betur sjálf, og þá meö
hjálp skólans ef hann stendur sig I
stykkinu.
Sagan um Polla er skemmti-
lega skrifuð og gaman að sjá mál-
far i samtölum taka miö af raun-
verulegu tali persónanna en ekki
reglum um hreint mál og óhreint.
Þótt alvara og drungi hvili yfir
þeim köflum sumum sem gerast
heima er létt yfir skólaköfhinum
og hæfilega napurt háð i frásögn-
um af Geira Pé, ömmu og DUddu
frænku sem gerir söguna fjöl-
breytilega að tóntegundum. Frá-
gangur er góður.
Ösk j uhlíðarskóli
óskar eftir dvalarheimilum fyrir unglinga
frá janúar byrjun til mai loka 1982. Upp-
lýsingar um greiðslur og annað fyrir-
komulag i sima 23040
GOODWYEAR
GEFUR e'RETTA GRIPIÐ
VEYRAR
Goodyear snjóhjólbarðar eru
hannaöir til þess ad gefa
hámarks grip og rásfestu
í snjóþyngslum og hálku
vetrarins
Þú ert öruggur á Goodyear
FULLKOMIN
H JÓLB ARÐ AÞJÓN USTA
Tölvustýrð jafnvægisstilling
Laugavegi 170-172 Sími 21240
PRISMA