Þjóðviljinn - 01.12.1981, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 01.12.1981, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 1. desember 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5 Þjóóviljinn í heimsókn hjá fjölskyldu Andreis Sakharof í Boston Andrei Sakharof og Elena Bonner; siðan þá hefur heilsu hans mjög hrakað, sagði Efrem Jankelevitsj... Laglegur ungur maður, mjög þreytulegur og áhyggjufullur. Hann sat við og setti saman svör við spurningum bandariskrar ilt- varpsstöðvar. Magur hans, Efrem, gekk um gólf og gaf hon- um heilræði, aðkomumaður af Islandi var með undarlega sjálf- sögðum hætti tekinn í samráð um orðalag, þvi útvarpsstöðin skammtaði naumt timann. Þessi fjölskylda hafði margt reynt, þvi að Tatjana og Efrem urðu fyrir margvislegri áreitni og ofsóknum af hálfu KGB meðan þau enn bjuggu i Moskvu — þau gátu t.a.m. alls ekki treyst þvi að börn þeirra ung yrðu latin i friði. Þau voru vitanlega mjög áhyggjufull sem fyrr segir, — gátu búist við hinu versta, og ekki bætti það úr skák að þau vissu ekki hvort og fædd i fangelsi á dögum keisara- stjörnarinnar, þvi foreldrar hennar voru byltingarsinnar. Hún lenti svo eftir byltingu i fanga- búðum hjá Stalin, sat þar i sautján ár — þar missti hún einnig mann sinn. Hvað um S.þ.? Efrem Jankelevitsj spurði mig hvort nokkuð væri að frétta frá Sameinuðu þjóðunum, en ég var staddur i Bandarikjunum vegna þriggja vikna setu á þingi þeirra. Ég sgði honum frá tillögu frá Italiu og fleiri rikjum, sem var til umræðu i þriðju nefnd, þar sem ég sat. Hún var um það, að auka vægi mannréttindamála á vett- vangi Sameinuðu þjóðanna. Meðal annars með þvi að stofna „Eg vil ekki að neinum sé haldið í gíslingu mm vegna” Daginn sem Andrei Sakharof, hinn kunni sovéski eðlisfræðingur og andófsmaður, byrjaði hungur- verkfall i útlegð sinni i borginni Gorki ásamt konu sinni Elenu Bonner, heimsótti ég f jölskyldu þeirra i Boston — Tatjönu Jankelevitsj, stjúpdóttur Sakharofs, mann hennar Efremog bróður hennar Alexei. Þau voru mjög áhyggjufull yfir þvi, að hungurverkfallið gæti riðið Sakharof að fullu. Þau höfðu einnig þungar áhyggjur af þvi, að þau Andrei og Elena væru alein i Gorki og svo til ógjörningur að fá fregnir af þeim. Einnmaðuri Gorki, sagði Efrem, hefur getað heimsótt þau, en fyrir skömmu var hann kallaður fyrir leynilögregluna, KGB, og hann varaður við þvi að láta sjá sig nálægt ibúð þeirra hjóna eftir að hungurverkfallið hæfist. Þetta má þvi miður túlka á þá leið að KGB ætli að láta atburði þróast á þann veg að lif tengda- föður mins er i beinnihættu. Hann efndi siðast til hungurverkfalls þegar Nixon var i heimsókn i Moskvu árið 1974 og stóð það i sex daga. Þá var mjög af honum dregið og heilsu hans hefur hrakað m jög siðan. örlög Lisu Alexéevu Tatjana sýndi mér afrit af opnu bréfi Sakharofs til kollega sinna, sem hann hafði skrifað áður en hungurverkfallið hófst. Þar legg- ur Sakharof höfuðáherslu á það, að það sé honum óbærilegt að unnusta stjúpsonar hans sé haldið i gislingu vegna hans, honum finnist það óbærilegt að aðrir lendi i erfiðleikum vegna þess að sovesk yfirvöld vilji refsa honum fyrir afskipti hans af mannrétt- indamálum. Það er vegna þessarar ungu konu, Lisu Alexéévu, sem Sakh- arof og kona hans hafa farið i hungurverkfall. A sinum tima var Lisa rekin úr háskóla fyrir sam- band sitt við Alexei, stjúpson Sak- harofs, og hefur allar götur siðan verið mikil hjálparhella fjöl- skyldunni. Alexei var neyddur til að flytjast úr landi fyrir röskum þrem árum. Siðan þá hefur fjölskyldan reynt mikið til að fá leyfi fyrir þvi að Lisa fái einnig að fara úr landi, en án árangurs. Meðal annars hefur Alexei gengið að eiga Lisu i einu þeirra fylkja i Bandarikjunum sem viðurkenna hjúskap, sem stofnaö er til með aðstoð staðgengils, vegna þess að öðrum makanum er af einhverj- um ástæðum ekki mögulegt að vera á vettvangi. Sakharof segir i (p Frá borgarlækni Að gefnu tilefni skal tekið fram, að af la þarf leyf is heilbrigðisráðs. til þess að setja á stofn eða reka hárgreiðslustofu, rakarastofu, sól- baðsstof u, eða hvers konar aðrar snyrtistof ur. Skilyrði til þess, að slík fyrirtæki verði leyfð eru m.a., að húsakynni séu björt og rúmgóð, með nægjanlegri loftræstingu og upphitun. Ennfremur mega þau ekki vera í beinu sam- bandi við óskyldan atvinnurekstur eða íbúð, sbr. ákvæði Heilbrigðisreglugerðar frá 8. febrúar 1972. Reykjavík, 25. september 1981, Heilbrigðisráð Reykjavíkurborgar. Stýrimannafélag íslands; 1 heldur fund að Borgartúni 18 miðvikudag- inn 2. des. kl. 20.30. Fundarefni nýgerður kjarasamningur. Stjórnin bréfi sinu, að þetta sé enn ein staðfesting á þvi að Lisa og Alexei vilji ekkert fremur en eiga framtið saman — og hann vitnar til Helsinkisáttmálans og ýmissa annarra skjala um það, að Sovét- rikin séu skuldbundin til að virða þennan vilja þeirra og leyfa Lisu að flytja úr landi. En þeirri mála- leitan hefur verið synjað hvað eftir annað — þessvegna hefur Sakharof nú gripið til örþrifa- ráða. Æðruleysi Alexeo er nú stúdent við Brandeisháskólann i Boston. hvænar hægt yrði að fá fregnir af þeim Andrei og Elenu. En það var um leiðyfir þeim sá styrkur sem samheldni og æðruleysi gefa. Viðsátum i eldhúsinu og drukk- um te, á borðinu voru nokkur blöð með ókennilegum táknum: Efrem Jankelevitsj hafði verið að gefa kornungum syni sinum, Matvei, lexiu i inngangsbálki stærðfræðinnar. Einstaklega hlý- legur piltur Matvei og vildi hverj- um gesti taka sem gömlum vini. Þar við borðið sat lika langamma hans, Rúf Grigorévna, tengda- móðir Sakharofs. Sú kona er um nirætt, grönn eins og fugl og mætti frá mörgu segja. Rúf er sérstakt embætti umboösmanns um mannréttindamál, sem væntanlega gæti tekið fyrir ákveðin mál. Efrem þótti þetta heldur góð tiðindi. Þvi miður fór svo nokkrum dögum siðar, að þessi tillaga um mannréttindafulltrúa var útþynnt svo að til stórskaða var. En meira um það siðar. Þegar þetta er skrifað er ekki annað vitað um hungurverkfall Sakharofs, en að þvi haldi áfram — og að heilsu hans hraki stöðugt. Ég minni á lokaorð i bréfi hans til erlendra kollega: „Ég treysti á aðstoð ykkar”. — áb. ★VERÐ AÐEINS ca Kr. 70.700 “ RYÐVÖRN ★ Suðurlandsbraut 14 - Sími 38-600

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.