Þjóðviljinn - 01.12.1981, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 01.12.1981, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN' Þriöjudagur í. desember 1981 Orkubú Suðurnesja þingsjá Lagt hefur veriö fram á sam- einuöu þingi frumvarp um Orku- bú Suöurnesja. Þar segir aö al- þingi feli rikisstjóminni aö skipa fimm manna nefnd til aö semja frumvarp til laga um Orkubú Suðurnesja. Nefndin skal skipuö fulltrúum frá Hitaveitu Suöur- nesja, Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum og frá iönaöarráöu- neytinu. Iönaöarráöherra skal skipa formann nefndarinnar. Gert er ráð fyrir að nefndin leggi frumvarp fyrir næsta reglulegt alþingi. Flutningsmenn þessarar tillögu eru þeir Reyknesingarnir Jó- hann Einvarðsson, ólafur G. Ein- arsson, Matthias Á. Mabhiesen, Salome Þorkelsdóttir, Geir Gunn- arsson og Kjartan Jóhannsson. — óg Forseti eggjar þingmenn til dáða Kvöldfundir framundan Forseti neðri deildar alþingis lét I upphafi fundar I gær þung orö falla um rýr afköst nefnda þings- ins. Sagði hann, að ekkert mál hefði borist deildinni frá nefndum einsog þó væri venja þegar svo langt væri liðið að jólaleyfi þings- ins. Beindi hann sérstaklega orðum aö ri'kisstjórninni um aö heröa gang þeirra mála sem hún vildi að yrðu afgreidd fyrir jdl. 1 gærvarenginn fundur hjá efri deild þarsem Helgi Seljan er í for- sæti, en deildin hefur þegar hreinsað upp þau mál sem þar voru á dagskrá. Að afloknum fundineðrideildar var svo fundur á sameinuðu alþingi. Klukkan fjögur var þeim fundi frestað til klukkan sex. Gert er ráð fyrir að fram að jólaleyfi verði fundir haldnir oftsinnis fram i skamm- degisrökkrið. — óg' Sjálfsforræði sveitarfélaga Þess sjást glöggt merki að kratar hafa ekki miklu ööru að sinna um þessar mundir en þing- inu sjálfu. Þeir eru mjög afkasta- miklir i þingstörfum — ef miöaö er við fjöld mála sem þeir leggja fram — að ekki sé minnst á það hve oft þeir taka til máls. t gær var lagt fram frumvarp um aukið sjálfforræði sveitarfé- laga frá þingflokki Alþýðuflokks- ins, Karvel Pálmason og fleiri lögðu fram frumvarp til laga um breytingu á greiðslu orlofsfjár. Sænska sendiráðið hefur flutt skrifstofur sinar i ný húsakynni að Lágmúla 7, fjórðu hæð. Nýtt simanúm- er 8 20 22 Blaðberar óskast strax! Sólvallagata — Hávallagata UOBUUINN Siðumúla 6 s. 81333. Skrifstofustarf Stúdent af viðskiptasviði óskast til fjöl- breyttra skrifstofustarfa. Framtiðarstarf. Starfsreynsla i skrifstofustörfum gæti komið i stað stúdentsprófs. Umsóknir, sem greini aldur, menntun og fyrri störf sendist til: „Lifeyrissjóður” Pósthólf 645 121 Reykjavik löfnun kostnaöar við hús- hitun Sighvatur Björgvinsson og fleiri hafa lagt fram lagafrum- varp um breytingu á lögum um tekju- og eignaskatt. Tillagan gengur út á það, að samkvæmt frumvarpinu væri einstaklingum heimilt að draga frá skattskyld- um tekjum allan orkukostnað vegna húshitunar tileigin nota að frátöldum oliustyrk. Þetta ersem sagt frumvarp sem á að ganga i þá átt að jafna orkukostnað vegna ibúöarhusnæðis viðs vegar um land iö. — óg SKRIFSTOFA SSf Ríkisspítalanna Hjúkrunarfræðingar athugið Námskeið fyrir hjúkrunarfræðinga verður haldið á Kleppsspítala þann 1. mars n.k. og stendur það i 4 vikur. Aðalnámsefni verður geðhjúkrun, geðsjúkdómafræði og sálarfræði. Námskeiðið hentar vel þeim, sem ekki hafa starfað, svo nokkru nemi, við geðhjúkrun áður, en hefðu áhuga á að starfa á þessu sviði. Umsóknir þurfa að hafa borist fyrir 15. febrúar n.k. — Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri Kleppsspitalans i sima 3 81 60. Fyrirspumlr á þingi I Lagöar hafa veriö fram fyrirspurnir á alþingi. önnur frá Árna Gunnarssyni til forsætisráðherra um rannsóknir og viðvörunar- kerfi i Mývatnssveit. Hin til iönaðarráðherra um raforkuverð til fjarvarmaveitna frá Eiði Guðnasyni. -óg Heimild til að undirrita heildar- lausn á Jan Mayen-deUunni Lögö hefur verið fyrir alþingi þingsályktunartillaga um heim- ild fyrir rlkisstjórnina aö staöfesta samkomulag milli islands og Noregs um landgrunnið á svæðinu milli islands og Jan Mayen. Eins og kunnugt er var samkomulagiö undirritað af utanrikis- ráðherrum rikjanna i Osló 22,október. Samkomulagið tekur gildi þegar tilkynnt veröur um staðfestingu beggja landanna. Ef það verður staðfest er komin heildarlausn á deilu íslendinga við Norðmenn um lögsögu á Jan Mayen-svæöinu sem staðið hefur undanfarin ár. — óg 3% í vasa burgeisans Friðrik Sophusson og Albert Guðmundsson hafa lagt fram lagafrumvarp i anda Flokksins um að hvarvetna sem atvinnu- rekendum sé skylt aö innheimta opinber gjöld skuli þeir fá „þóknun” fyrir innheimtuna sem nemi 3% af upphæð innheimtra gjalda. — óg Starfslaun íþróttamanna A alþingi hefur verið lögö fram þingsályktunartillaga um að fela menntamálaráöherra að skipa þriggja manna nefnd til þess að semja frumvarp til laga um starfslaun iþróttamanna. Flutn- ingsmenn þessarar tillögu eru úr öllum þingflokkum: Jóhann Einvarðsson, Friðrik Sophusson, Helgi Seljan og Arni Gunnars- son. —óg Afnám söluskatts á gróðabiöðum Þeir tengdamenn um Engeyjarætt Halldór Blöndal og Vil- mundur Gylfason hafa lagt fram lagafrumvarp um að öll blöö lika þau sem gefin eru út i ágóðaskyni verði undanþegin sölu- skatti. 1 eldri lögum er nefnilega tekiö fram aö þau blöð sem gefin eru beinlinis út i ágóöaskyni skuli greiða söluskatt einsog önnur fyrirtæki sama markmiðs. — óg Þrír þingmenn vilja nýjabrum — Matjurtir frá öðrum löndum Friðrik Sophusson Steinþór Gestsson og Albert Guðmundsson hafa lagt fram frumvarp um breytingu á lögum um framleiöslu- ráð landbúnaðarins, verðskráningu o.s.frv. 1 greinargerð með tillögunni segja flutningsmenn m.a. aðfrumvarpið miði að bvi af „einokunarákvæði um sölu á matjurta- og gróðurhúsafram- leiöslu verði numin úr lögum”. Tekjuskattur félagsheimila 1 gær mælti Alexander Stefáns- son fyrir lagafrumvarpi um að tekju og eignaskattur félli niöur af félagsheimilum. Ragnar Arn- alds bentiá að I lögum væri getið um aö félagsheimili sem rekin væru eingöngu til almennings- heilla væru undanþegin gjöldun- um. Félagsheimili væru yfirleitt ekki rekin f gróöaskyni, þvi rétt að skoða málið á þingi þannig að vafilékiekki á þvi hverjir ættu aö bera þcssi gjöld og hverjir ekki. Ingvar Gíslason tók i sama streng og sagði að sumir skatt- stjórar túlkuðu lögin þannig, að það ættiað leggja á félagsheimili gjöldþó ekki hafiveriö gert áður. Það væri því einboðið að fara i saumana á þessu máli á löggjaf- arsamkomunni. Friörik Sophus- sonmælti einnig með frumvarp- inu. — óg Unglingaheimili rihisins Kópavogsbraut 17 óskar eftir að ráða uppeldisfulltrúa frá og með 1. jan. 1982. Umsóknarfrestur til 8. desember. Upplýsingar gefnar i s. 42900 og 41721.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.