Þjóðviljinn - 24.12.1981, Side 6

Þjóðviljinn - 24.12.1981, Side 6
6 'SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 24. desember 1981 I Minnisvarðar eða Flateyri við önundarfjörð í siðastliðinni viku leit Guðvarður Kjartansson hrepps- nefndarmaöur á Flateyri hér inn til Þjóðviljans og þótti blaðamanni bera vel i veiði að spyrja hann frétta að vestan. — Ert þú i einhverjum opin- berum erindum hér I borginni að þessu sinni, Guðvaröur. — Jú, fyrst og fremst er ég það nú. Við skruppum hingað suður, þrir hreppsnefndarmenn frá Flateyri, til þess aö raeða hér við ráðamenn og ýta á eftir fram- kvæmdum við viss áhuga- og hagsmunamál okkar Flateyr- inga. Sundlaugar - bygging — Og hvaða mál eru það, sem þið eruð aö reyna að þoka áfram að þessu sinni? — Þau eru einkum tvö. Er þá fyrst að nefna sundlaugarbygg- inguna, sem nú er búin aö standa yfir i fimm ár og reyndar er þetta hiö sjötta siðan byrjað var á verkinu. Við höfðum spurnir af þvi, aö fjárveitingarbeiðni ráðuneytisins væri alltof lág miðað við það að verkinu yrði lokið á næsta ári. Til þess hefðum við þurft að fá kr. 60D þús. og þó raunar nokkru meira, ef ljúka ætti byggingunni að fullu og öllu. Ráðuneytið gerði upphaflega tillögu um að veittár yrðu til byggingarinnar nú 242 þús. kr. og fannst okkur að skorið væri nokkuö við nögl, en svo fréttum við að sú upphæð hefði veriö lækkuö niður i 202 þús. kr. Þetta þýddi auðvitað að sáralltið mundi þokast I áttina og með sama áframhaldi mætti þykja gott ef sundlaugarbyggingin yrði full- búin átta árum eftir aö verkiö var hafið. En samkvæmt upphaflegri áætlun átti ekki aðeins sundlaug- inni að vera lokið þá, heldur að byggingu Iþróttahúss. Okkur telst svo til, aö ekki muni vera eftir nema svo sem tveggja mánaða vinna við sundlaugina til þess að taka megi hana i notkun og sýnist fráleitt, þegar svo langt er komið, að láta verkiö stranda á peninga- leysi. Sundlaugin ibyggingu. Böðvar Gisiason, útiverkstjóri hjá sveitarfélaginu, til v. og Magnús Benedikts- son.húsasmiðameistari, tilh. bera saman bækurnar. Mynd: —-svkr. Steinsteypt ker með laugar- bökkum, pfpulögnum og hreinsi- útbúnaði 550 þús. kr. Kanall utan um pipur 220 þús. kr. Gólfefni á neðri hæð 210 þús. kr. Hitatúba 120 þús. kr. Einangrunar- klæðining I loft á sundlaug 130 þús. kr. Innihurðir 139 þús. kr. Otihurðir og ýmsir smærri liðir 220 þús. kr. Samtals gerir þetta 1569 þús. kr. og þar af er hlutur rikisins 50% eða 786,5 þús. kr. Nöturleg málsmeðferð Við könnun okkar á málinu i menntamálaráöuneytinu virðist svo sem 40% kjarnabyggingar- innar, sem i eiga að vera búnings- aðstaða og böð, hafi á einhverju stigi verið þurrkuð út i ráöuneyt- — Hafið þið fengiö einhverju um þokaö I þessari för? — Við áttum fund með mennta- málaráðherra, yfirmanni bygg- ingadeildar ráðuneytisins, iþróttafulltrúa og fjármála- ráöherra og þar kom fram mikill áhugi á að leysa þetta mál. Við teljum okkur hafa ástæðu til að vænta þess, að þótt ekki veröi viö fjárlagagerð nú, þá finnist, upp úr áramótunum, þau úrræöi sem nægja til þess að viö Flateyringar getum fariö að synda i okkar langþráðu sundlaug á vori kom- anda. Smábátahöfnin — Hvert er svo hitt málið, sem þið Flateyringar berið einkum fyrir brjósti? — Það er gerö smábátahafnar- Guðvarður Kjartansson: „Þær undirtektir hafa þó erindi okkar fengið að við förum engan veginn vonlausir til baka”. Mynd: — gel. handa við hafnargerðina. Tókst það, sem gert var ágætlega, og reyndist auk heldur svo ódýrt, að það lánaöist að leggja 100 metra Úr öskunni í eldinn En ekki er öll sagan sögö. Það er ekki einsta að þaö verk, sem búið er að vinna, komi að engu gagni á meöan þvi er ekki að fullu lokið heldur segja mér sjómenn og útgerðarmenn, — og mega gerst um vita, — aö eins og skilið er nú við þessa framkvæmd, sé höfnin stórum hættulegri skipum en hún var áöur. Enda hefur það skeð I haust að bátar, um 80 lestir aö stærö, hafa oröið að flýja höfnina vegna ókyrrðar. Þeim var þar engan veginn óhætt. Hvað mun þá um minni báta? Það hlýt- ur þvi aö vera algjör lágmarks krafa okkar Flateyringa aö þannig sé frá höfninni gengið, aö hún sé ekki hættulegri bátum en hún var þó áöur. — Og hverju fenguö þið áorkað til úrbóta i þessum efnum? — Þessi mál eru nú hjá Vestf jaröaþingmönnum og fjárveitinganefnd. Þeim aðilum á að vera fullljóst orðið hvaö þarna er I húfi og við viljum leyfa okkur að vona að þeir leysi úr þessu vandamáli, hvort sem það verður i formi beinna fjárveitinga eöa með öðrum hætti. — Þið fariö þá ánægðari heim en þið komuð? þaö vel og verið svo ódýrt að nú sé nóg komið I bili! Svona „visindi” eigum við Flateyringar nú erfitt með að skilja. Og á sama tima og frá þessu verki er hlaupið I miðjum kliðum þá eru fjárveit- ingar til annarra hafnar- framkvæmda á Vestfjörðum hækkaðar um 100—500% samkvæmt hafnaáætlun, auk þess sem ný verkefni eru tekin þar inn, en hálfloknu verki ýtt út af þvi að það er svo ódýrt! — Hvað vantar mikiö á að grjótvarnargarðinum sé lokið? — Þaö eru nú einir 60 metrar. Sundurliðun kostnaðar Ef við bútum verkið niður i einstaka kostnaðarliði þá lita þeir þannig út, samkvæmt okkar áætlun: inu. Þar I liggur munurinn á þvi, sem við teljum okkur þurfa til þess að koma sundlauginni upp og þeirri upphæð, sem ráðuneytið gerir tillögu um. Við þetta getum við auðvitað ekki sætt okkur og finnst þessi málsmeðferö sannast að segja harla nöturleg. innar. Þaö hefur vægast sagt gengið I miklum brösum fyrir okkur með aö halda þvl verki inni á hafnaráætlun. Þráfaldlega hefur það hent að þessari hafnar- gerð er ýtt til hliðar og önnur verkefni tekin framfyrir. Síðastliðiö sumar var svo hafist lengri grjótvarnargarð en ráð var fyrir gert að fjárveitingin entist til. En þá gerist það furðulega: Frekari framkvæmdir við höfnina eru þurrkaöar út af fjárlögum fyrir árið 1982 á þeim forsendum, að verkiö hafi gengiö — Já, þaö gerum við. Það kem- ur þó sjálfsagt ekki til með aö sjást fyrr en á næsta ári hver árangur þessarar farar okkar hefur oröið. En þær undirtektir hafa þó erindi okkar fengiö, að viö förum engan veginn vonlausir til baka. — mhg.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.