Þjóðviljinn - 24.12.1981, Síða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 24. desember 1981
útTarp»sjonvarp
Betlehemstjarna
Sigríður Ella á sunnudag
A sunnudaginn kl. 20.40 kemur Sigriöur Elia Magnúsdóttir i sjón-
varpssal og syngur nokkur lög f yrir áhorfendur. Egill Friðleifsson
tekur hana einnig tali.
Jóladag
TT kl. 20.15
2. jóladag
TF kl. 21.05
Börn nátt-
úrunnar
Sjötti þátturinn úr mynda-
flokknum Stikiuriumsjá Ómars
Ragnarssonar veröuráskjánum
á föstudagskvöld kl. 20.15. Þetta
er siðari þátturinn af tveimur,
þar sem stiklaö er um vestustu
nes landsins, og heitir þessi:
„Börn náttúrunnar.”
1 þætti þessúm liggur leiðin
yfir Rauðasand og Látrabjarg
vestur i Selárdal, þar sem
margt er með ævintýralegum
blæ. Byggingar og listaverk
Samúels Jónssonar eiga engan
sinn lika hér á landi, eins og
meðfylgjandi mynd ber með
sér. A sundi á firðinum er
stúlka, sem kallast á við dýr
sjávarins, og á Uppsölum hefur
einbúinn Gisli Gislason búið
áratugum saman án nútíma
þæginda, svo sem rafmagns,
fjölmiðla og heyvinnuvéla.
Kusk á
hvítflibbann
2. jóladag
kl. 22.50
Mynd eftir
Peckinpah
A annan dag jóla, sýnir
sjónvarpið stórgóða kvikmynd,
sem nefnist „Sagan af Cabie
Hogue” (The Ballad of Cable
Hogue). Hún er bandarisk og
gerð árið 1970.
I kynningu sjónvarpsins
stendur aðþetta sé bandariskur
vestri,og þá dettur manni einna
helst i hug léleg afþreyingar-
mynd. Látið þetta þó ekki
blekkja ykkur — hér er á ferð-
inni mynd leikstýrð af Sam
Peckinpah, hvorki meira né
minna. Margir munu efiaust
kannast við myndina ,,Stra-
wdogs”, sem hér var sýnd fyrir
nokkrum árum. óneitanlega
var það góð mynd, „eina
fastiska leistaverkið, sem gert
hefur verið” er haft eftir ein-
hverjum listgagnrýnanda er-
lendis. Skoðanir Peckinpahs
falla ekki öllum i geð, satt er
það, en maðurinn gerir góðar
myndir.
- bein útsending
Aðfangadagur
kl. 21.00
Sjónvarpiö hafði áformaö að
taka viö beinni sendingu um
Betlehemsstjörnuna á aðfanga-
dag. Af þessari útsendingu
getur ekki oröið af óviðráðan-
legum orsökum — einhvers mis-
skilnings gætti um bókun is-
lenska sjónvarpsins hjá gervi-
hnettinum. Sjónvarpsmenn
segjast ætla að halda málinu
opnu fram að hádegi aðfanga-
dags, en eru vonlitlir um að fá
þennan tima.
Vegna þessa breytist dag-
skráin (99,99% likur) sem hér
segir:
Kl. 21:00 Jól I landinu helga.
Endursýnd dagskrá um ferð
kirkjukórs Akraness til Israels
jólin 1977. Tilefni fararinnar var
boð frá Israel um að syngja við
hátiðahöld jólanæturinnar
ásamt 10 öðrum kórum viðs
vegar að. Kórnum er fylgt um
söguslóðir Biblíunnar, þaðan til
Rómar og ferðinni lýkur I kirkj-
unni á Akranesi.
Söngstjóri kórsins var Haukur
Guðlaugsson, einsöngvarar
Guðrún Tómasdóttir og Frið-
björn G. Jónsson, undirleik
annaðist Friða Lárusdóttir,
raddþjálfun Guðmunda Elias-
dóttir, lesarar eru þau Þórey J-
onsdóttir og séra Björn Jónsson.
Stjórn upptöku: Tage Ammen-
drup.
Kl. 21.35: ,,Syng, barna-
hjörð”. Kór Oldutúnsskóla i
Hafnarfirði syngur átta kristi-
leg lög undir stjórn Egils Frið-
leifssonar. Stjórn upptöku:
Viðar Vikingsson.
Kl. 21.50: Hlé til kl. 22.15, en
þá hefst sameiginleg dagskrá
sjónvarps og útvarps.
Aðfangadag kl. 22.15
Sameiginleg dagskrá
t kvöld verður sameiginleg
útsending i útvarpi og sjón-
varpi, eins og verið hefur
nokkur undanfarin ár. útsend-
ingin hefst kl. 22.15.
Biskup Islands, herra Pétur
Sigurgeirsson, prédikar og
þjónar fyrir altari.
Dómkórinn syngur undir
stjórn Marteins H. Friðriks-
sonar.
Guðný Guðmundsdóttir og
Helga Ingólfsdóttir leika einleik
á fiðlu og sembal.
Samkvæmt sögunni fæddist Jesús á þessum stað I Betiehem, þar sem Fæðingarkirkja frelsarans
stendur nú. Kirkjan var fyrst byggð þarna árið 330 e.Kr..
Jólastundin okkar á jóiadag
verður hin vandaðasta eins og
ætið. Hún hefst kl. 18.00.
Séra Halldór Gunnarsson,
sóknarprestur I Holti, ræðir við
börn um jólin, barnakór Tón-
listarskóla Rangæinga syngur,
Ömar Ragnarsson bregður á
leik og leiknir verða stuttir leik-
þættir. Jólaskemmtun verður I
sjónvarpssal — og óvæntur
gestur kemur I heimsókn.
Meðfylgjandi mynd var tekin
við upptöku Jólastundarinnar.
Kusk á hvítflibbann heitir
sjónvarpsleikrit eftir Davið
Oddsson, sem sýnt verður á
annan dag jóla. Efnisþráðurinn
er á þessa leið:
Eirkikur er ungur og fram-
sækinn maður I góðri stöðu. At-
vikin haga þvi svo, aö á hann
fellur grunur um eiturlyfja-
brask, og hann verður að sæta
gæsluvarðhaldsvist á meðan
málið er rannsakað. Leikritið
lýsir tilraunum hans til þess að
ljúga sig út úr þessu óþægilega fjölskyldu hans og samverka-
máli I upphafi, og viðbrögðum manna, þegar i' óefni er komið.