Þjóðviljinn - 24.12.1981, Page 16
WÐVIUINN
Fimmtudagur 24. desember 1981
Aðalsfmi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Áðalsími Kvöldsími Helgarsími afgreiðslu 81663
Utan þess tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfsmenn bla&sins í þessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot
81285, ljósmyndir 81257. Lauyardaga kl. 9-12 er hægt að ná i af- greiðslu blaðsins i slma 81663 Bla&aprent hefur slma 81348 og eru bla&amenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348
Mikil aukning
brjóstakrabba
Allsherjar-
leit að
brjósta-
krabba?
A undanförnum árum
hefur tíðni krabbameins
yfirleitt farið lækkandi hér
á landi með þeirri undan-
tekningu þó að tfðni
brjóstakrabba hefur vaxið
hröðum skrefum. Er það
ástæða þess að ákveðið
hefur verið að kanna
möguleika á allsherjarleit
að brjóstakrabbameini á
landinu öllu, en sem kunn-
ugt er hef ur leit að krabba-
meini í leghálsi borið mjög
góðan árangur á undan-
förnum árum.
Allsherjarleit
Heilbrig&isráðherra hefur
nýlega falið landlæknisembættinu
aö kanna möguleika á slikri alls-
herjarleit en hugmyndin hefur
verið til umræðu i nokkurn tima
milli embættisins og Krabba-
meinsfélags Islands. A fjárlögum
1982 er veitt 70 þúsund krónum i
þessu skyni. Olafur ólafsson
landlæknir, sagði i samtali við
Þjóðviljann i gær að ef farið yrði
út i allsherjarleit yrði um stór-
virki að ræða sem kosta myndi
mikiö fé. Fara þyrfti um allt land
með sérstaklega útbúna leitarbila
og skoða um 40 þúsund konur.
„Aöur en farið yrði i svo mikla
aðgerð verða menn aö vera vissir
um aö leitin veröi árangursrik og
að beitt verði bestu leitaraðferð-
um,” sagði Ólafur.
Arið 1973 var i hópskoðunum
Krabbameinsfélags Islands hafin
leit að brjóstakrabbameini með
þreifingu. Hafa um 12 þúsund
konur verið skoðaöar á þann hátt
og fullur fjórðungur þeirra hefur
siöan verið sendur i nákvæmari
rannsókn með röntgenmyndatöku
eða stungusýni. Ólafur sagði að
þetta starf hefði tvimælalaust
borið árangur, en spurning væri
hvort ekki mætti bæta hann með
öðrum aðferðum. Hann sagði að
erlendis heföu menn verið að
prófa sig áfram i þessum efnum,
m.a. með röntgen- og hitamynda-
tökum og virtust röntgenmynda-
tökurnar gefa besta raun.
Nefnd skipuö
Nefnd hefur verið skipuð til að
kanna þessi mál og eiga sæti i
henni auk landlæknis fulltrúar frá
Krabbameinsfélagi Islands,
Landspitalanum, heilbrigöisráöi
Reykjavikur, og Hagsýslustofn-
un. Þá mun Baldur Sigfússon,
röntgenlæknir i Malmö vinna
fyrir nefndina.
Fyrsti fundur hennar var s.l.
mánudag og sagðist Ólafur búast
við að næsta ár yrði notaö til að
safna gögnum um árangur leitar
að brjóstakrabbameini hér
heima og erlepdis en að þvi búnu
yrði tekin ákVörðun um næsta
skref. „Við verðum að vera vissir
um að það fari nær ekkert fram-
hjá slikri allsherjarleit ef út i
hana verður farið”, sagði Ólafur.
„Annars myndi hún einungis
vekja falska öryggiskennd. Vax-
andi tiöni brjóstakrabbameins
hér á landi krefst hins vegar að-
gerða og það er verkefni nefndar-
innar að huga að þeim.”
Ólafur Ólafsson
Kallar á
fyrirbyggj-
andi aðgeröir
segir Ólafur
Ólafsson,
landlœknir
—AI
Osliunx öllutir
samxntmumönnum og öörum
lcmdsraönnum qlcöílcqra iólcu
/ /V , á* V V
avs oq jrtoar.
^ SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA