Þjóðviljinn - 23.03.1982, Síða 2

Þjóðviljinn - 23.03.1982, Síða 2
viðtalið Rætt við Tryggva Jakobsson landfræðing Ferðamál í brenni- depli á ráðstefnu Landverndar á fimmtudaginn Ráðstefna um ferða- mál verður haldin að frumkvæði Landverndar, Félags leiðsögumanna og Landverndarfélags (slands á Hótel Loft- leiðum á f immtudaginn. Einn af aðstandendum ráðstefnunnar er Tryggvi Jakopsson landfræð- ingur: Aðalumræðuefniö á þessari ráðstefnu verður það misræmi sem ríkir á milli þess fjármagns og kapps sem lagt er i land- kynningu og aðdrátt ferða- manna annars vegar og upp- byggingu ferðastaða hins vegar. Meöal annars verður fjallaö um það, að hve miklu leyti það sé i hlutverki Náttúruverndarráðs að sjá um þjónustu fyrir ferða- menn og hvernig eigi að fjár- magna kostnað við viðhald og eftirlit ferðamannastaða. — Við leggjum mikla áherslu á að þeir mörgu aðilar. sem þessi mál heyra undir. komi saman til þess að ræöa málin, en þar má m.a. nefna ýmsa náttúrverndaraðila, feröaskrif- stofur, landkynningaraðila, sveitarstjórnir og ýmsar rlkis- stofnanir eins og Vegagerðina, Landmælingar, Ferðamálaráð o.s.frv. — Er ferðamönnum ekki I of rikum mæli beint á sömu staö- ina? — Jú, okkur finnst aö of mikið hafi veriö gert af þvi að beina fólki upp á hálendiö á meðan margir áhugaverðir staðir á láglendi eru látnir ónýttir, þótt mun auöveldara væri að leysa vandann þar. — Hefur ferðamannastraum- urinn leitt einhvers staöar til varanlegra landskemmda? — Ég held að óhætt sé aö full- yrða, að slikt hafi gerst I Land- mannalaugum, Langadal I Þórsmörk og e.t.v. I Herðu- breiðarlildum. — Hefur þú unniö við ferða- mannaþjónustu? — Já ég hef veriö landvörður i Herðubreiðarlindum og i þjóö- garðinum I Skaftafelli — Hvað komu margir I Skaftafell I fyrrasumar? Það voru skráöir um 17 þús. gistinætur frá 20. mái fram I miöjan september. Þar við bætist mikill fjöldi daggesta, sem mætti ætla að hafi verið um 10 þúsund. í Skaftafelli eru all- góöar aðstæður til að taka á móti þessum fjölda, þótt enn sé margt ógert vegna siminnkandi tekna Náttúruverndarráðs á undanförnum árum. — Eru þjóðgarðarnir nýttir sem skyldi? — Okkur finnst að þeir mögu- leikar sem eru fyrir hendi til fræöslustarfs I þjóðgöröunum séu illa nýttir. Þaö er i rauninni furðulegt, að það skuli fyrst og fremst vera erlendir skólahópar sem koma I námsferðir i islenska þjóðgarða. Það ætti að nýta þjóðgarösverðina I mun rikari mæli til leiðsagnar og fræöslu en gert hefur veriö. Ráðstefnan á fimmtudaginn er haldin að frumkvæði landverndar, Landvarðafélags Islands og Félags leiðsögu- manna og hefst kl. 9.30 um morguninn að Hótel Loftleiðum. Ráðstefnan er opin öllum áhugamönnum, en þar verða flutt 6 erindi sérfróðra manna auk þess sem hópstarf og al- mennar umræður fara fram. Drekatré Dracaena er fjölskrúðug ætt plantna, sem likjast pálmum. Safinn úr drekatrénu hefur veriðnotaður til litunar og gefur rauðan lit. Drekatréð þarf nokkuð góða birtu en þolir illa beina sól. Þarf reglulega vökv-, un, en gætið þess að láta mold- ina þorna á milli. Þarf minni vökvun á veturna. Gefið Drekatrénu áburð á sumrin. Ég skil ekki til hvers er verið að hafa karlmenn með I ballett. Þeir gera ekki annað en lyfta ungum stúlkum tii þess eins að setja þær niður aftur. ■ Þetta póstkort af bandarisku forsetahjónunum nauðasköll- ’óttum kom út I heimalandi þeirra ekki alls fyrir löngu. Aletrunin sem fylgir er oröa- leikur með ,,cut” sem þýöir bæði niðurskuröur (hér t.d. niöurskurður á fjárlögum) og svo hárskurður. Snjallastur áróðurs- manna Kannski hefur enginn höfðingi verið snjallari áróðursmaður en Ramses annar, Faraó i Egypta- landi. Hann tapaði mikilli orrustu, við Hittita árið 1294 fyrir Krist viðiKadesh. Faraóinn létþetta ekki á sig fá og reisti mikinn minnisvarða um þennan: „Sigur” sem hann kallaði svo. Bragöið tókst — minnismerkið stóð, Hittltar dóu út og sagn- fræöingar viðurkenndu sigurinn — allt þar til fyrir skemmstu að fornleifafræðingum tókst að fletta ofan af 3300 ára gömlum lygum Ramsesar! Öldungar á flakki y o J <■* & Myndasaga eftir í \ EMIL & HALLGRÍM \ J < Q i-4 O PL, VALDIÐ TIL FbLksws Jæja já'. A þá valdiö að lenda I ruslinu með appelsinubörki, papplrsdrasli og fitublettum?

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.