Þjóðviljinn - 23.03.1982, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 23.03.1982, Qupperneq 4
'4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJÍNN Þriöjudagur 23. mars 1982. UOWIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýds- hreyflngar og þjódfrelsis (Jtgefandi: Otgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann. Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson. Fréttastjóri: Þórunn Siguröardóttir. Umsjónarmaöur sunnudagsblaös: Guðjón Friðriksson. Auglýsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttir. Afgreiöslustjóri: Filip W. Franksson. Blaöamenn: Auöur Styrkársdóttir, Helgi Óla Maanús H. Gislason, Olafur Gislason, óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Sveinn Kristinsson, Valþór Hlöðversson. iþróttalréttaritari: Viðir Sigurösson. Ctlit og hönnun: Andrea Jónsdóttir Guðjón Sveinbjörnsson. Ljósmyndir:Einar Karisson, Gunnar Elisson. Ilandrita- og prófarkalestur: Elias Mar, Trausti Einarsson. Auglýsingar: Hildur Kagnars, Sigriöur H. Sigurbjörnsdóttir. Skrifstofa: Guörún Guðvaröardóttir, Jóhannes Harðarson. Afgreiösla: Bára Siguröardóttir, Kristin Pétursdóttir. Símavarsla: Sigriður Kristjánsdóttir, Sæunn óladóttir. Húsmóöir: Bergljót Guðjónsdóttir. Bílstjóri: Sigrún Báröardóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmundsson. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. Utkeyrsla. afgreiösla og auglýsingar: Síöumúla 6, Keykjavik, simi 81333 Prenlun: Blaöaprent hf. Máske ræður þú úrslitum f sveitarstjórnarkosningum þeim sem fram fara eftir tvo mánuði verður tekist á um hin margvíslegu og mikilvægu málefni sveitarfélaganna. En auk þess munu þessar kosningar væntanlega hafa óvenju mikla þýðingu fyrir almenna stjórnmálaþróun í landinu, og þróun kjaramála alveg sérstaklega. Einni viku fyrir kjördag verða ' kjarasamningar almennu verkalýðsfélaganna lausir. öllum er kunn- ugtað í þeim viðræðum um kjarasamninga, sem hóf- ust í síðustu viku liggja fyrir gagnstæðar kröfur. Verkalýðsfélögin hafa lagt fram kröfur um nokkrar kjarabætur, ekki síst örugga verðtryggingu almennra launa, en Vinnuveitendasambandið hefur hins vegar lagt fram af sinni hálfu kröfur um verulega kjara- skerðingu, m.a. um að verðbætur á laun verði ekki greiddar nema að hálfu á næsta samningstímabili. Verði samningum ekki lokið fyrir 22. maí, þá eru það úrslit sveitarstjórnarkosninganna, sem munu hafa áhrif á vígstöðuna við samningaborð verkalýðs- félaganna. Fagni pólitískir bandamenn Vinnuveit- endasambandsins sigri í sveitarstjórnarkonsingun- ^um, þá hefur vígstaða verkalýðsfélaganna veikst að sama skapi. Þá hafa menn notað atkvæðaseðilinn til að biðja um kjaraskerðingu. Verði úrslit sveitar- stjórnarkosninganna hins vegar á annan veg, og póli- tískir bandamenn verkalýðshreyf ingarinnar verði þar ótvíræðir sigurvegarar, þá hefur kröfum Vinnuveit- endasambandsins um meiriháttar niðurskurð verð- bóta á laun þar með verið vísað rækilega heim til föð- urhusanna. Þá er einnig Ijóst, að úrslit sveitarstjórnarkosn- inganna munu hafa veruleg áhrif á alia stöðu og lífslíkur ríkisstjórnarinnar. I þessum efnum er það árangur Alþýðubandalagsins annars vegar og flokks- eigendafélagsins í Sjálfstæðisflokknum hins veqar sem langméstu máli skiptir. Sigur Alþýðubandalags- ins í sveitarstjórnarkosningunum treystir ríkisstjórn- ina í sessi, en sigur stjórnarandstæðinga felur í sér kröfu um nýja ríkisstjórn undir þeirra forystu og þá væntanlega án þátttöku Alþýðubandalagsins. Mestu máli skiptir niðurstaða borgarstjórnar- kosninganna í Reykjavík. Þar tókst fyrir fjórum árum að hnekkja flokkslegu einveldi Sjálfstæðis- flokksins, sem staðið hafði nær hálfa öld. Það var mikill pólitískur atburður. Samstarf þriggja flokka um stjórn borgarinnar á því kjörtímabili, sem nú er að Ijúka, hef ur gengið vel og glundroðinn verið allur hjá Sjálfstæðisf lokknum. Fyrsta spurning til kjósenda f Reykjavík nú er sú, hvort þeir vilji á nýjan leik kalla yfir sig pólitískt al- ræði flokkseigendaklíku Geirs Hallgrímssonar. I borgarstjórnarkosningunum 1978 voru það 52 atkvæði Alþýðubandalagsins, sem réðu úrslitum um fall íhaldsins. Aðeins 52 atkvæði. Hefðu þessir 52 kjós- endur setið heima, eða kastað atkvæðum sínum á aðra, þá hefði Sjálfstæðisflokkurinn haldið sínum meirihluta svo sem löngum fyrr. ( komandi borgarstjórnarkosningum mun valið einnig standa milli Alþýðubandalagsins og Sjálf- stæðisf lokksins. Þar getur eitt atkvæði á skökkum eða réttum stað ráðið úrslitum. — k. Öruggi í flugmálum Við íslendingar erum háðari f lugsamgöngum en flestar aðrar þjóðir. Á laugardaginn var lá við meiri- háttar slysi í innanlandsf luginu, en með farsæili nauð- lendingu tókst að bjarga 25 mannslíf um úr hættu. Full ástæða er til að þakka þeim f lugstjórnarmönnum sem þar stóðu að verki. Atburðir sem þessi ættu hinsvegar að minna okkur rækilega á, hve mikils er vant um öryggisbúnað á f lestum f lugvöllum okkar vftt um landið. Þar skortir m.a. víðast öryggissvæði utan við sjálfar flugbraut- irnar, en einmitt vöntun á slíku öryggissvæði hindraði nauðlendingu á (safirði á laugardaginn var. Stjórnmálaflokkarnir ættu nú þegar að taka höndum saman um stórátak í því skyni að byggja upp flugvellina og auka þar allan öryggisbúnað. — k. Happdrættis- þjóöfélagið Siðustu mánuði hefur hann gengiö á með bingóum, happdrætti, ferðaskrifstofu- vinningum, bilum og svo framvegis i islensku þjóölifi. Auglýsingastriðið flóir út fyrir alla bakka, svo mörg- um liggur viö drukknun i auglýsingaflóðinu. 1 harðn- andi samkeppni verða að- ferðirnar við að koma vör- unni á framfæri við neyt- endur æ afkáralegri. Þeir eru allt.af að reyna aö finna „frumlegri” aöferð en sam- keppnisaðilinn. A dögunum fréttum viö af manni sem hlaut hálfa ferð I vinning á ferðaskrifstofukvöldi, þ.e. hann hlaut i vinning ferð frá staö til staðar á ítaliu. Sá böggull fylgdi sumsé að hann varö að kaupa sér ferö til ítaliu til að geta notiö vinn- ingsins. Svo margir bilar eru nú vinningar i allslags happ- drætti að saman mundu nægja til aö starfrækja leigu- bilastöö. 1 þessu æði öllu sprettur neyslusamfélagiö fram i öllu veldi með remö- laöe og sinnepi. Thor Vil- hjálmsson rithöfundur tekur þaö nýjasta fyrir úr þessum heimi auglýsinga og happ- drátta: Kjöthlussur / hroöáti „Nú hefur Sunddeild Ár- manns komið úr kafi til aö taka upp nýja siði undir her- ópinu: Burt með hnffapörin! Þar er teprulausu fólki stefnt saman til þess að keppa og fylgjast meö þegar barist er til verðlauna i hroöáti. Sá sem fer siðlausast aö þvi aö troða i sig brauðsnúö- um með kjöthlussu lauk og tómatlöðri á milli sem hafa einhvern veginn i skirn hlotiö nafnið góöborgari hvort sem ber að taka þaö symbólskt eöa bókstaflega, sá fær heila bifreiö fyrir athæfið; jap- anska, Suzuki”. Meö strókinn afturúr sér „Af hverju góöborgari? Frakkar tala um að épater les bourgeoises, ganga fram af borgurunum. Skyldi það standa til? Er þetta einhver byltingarhreyfing að hvetja til dáða? Það verður félegt að horfa upp á sigurvegar- ann löðrandi I ketchup setj- ast upp i bifreiðina meö fing- urna og lófang, og kannski allt upp undir olnboga útbiað i sinnepi remúlaði steik- ingarfitu, hráum og steiktum lauk, með bráðina geltandi i maganum, og þeysast af stað meö strókinn aftan úr sér”. (Helgarsyrpa Thors Vil- hjálmssonar i Þjóðviljanum um helgina). klippt Aðfylgjast meö Siöastliönar tvær vikur eöa svo hefur mikið veriö að gerast i herstöðvamálinu. Varla hefur sá dagur liðið að ekki hafi dregið til einhverra tiðinda. Helguvikurmáliö hefur hertekið siður dagblaða og fátt hefur meir verið rætt manna á milli en einmitt þetta mál. Amriski herinn og málsvarar her- stöðvarinnar hafa hvergi dregiö af sér við málafylgju og eftir- rekstur til að koma málinu i höfn, visi að flotahöfn i Helgu- vik. En einmitt vegna þess hve tiöindin hafa gerst hratt hafa herstöðvaandstæðingar og Al- þýðubandalagið þurft aö hafa snarar hendur og taka taktískar ákvaröanir ótt og titt. Atburöir þessara vikna hafa krafist þess af almenningi og sérstaklega herstöðvaandstæðingum að leggja sig i lima við þaö einfald- lega að fylgjast með málinu frá degi til dags. Kjartan Jóhannsson. Gengur ekki hnifurinn á milli Alþýðu- flokksins og Sjálfstæöisflokks- ins i mikilvægum málum þessa dagana. Olögin skipta engu máli Meöal þeirra sem fylgst hafa af athygli með þessu máli er stjórnarandstaðan þótt máliö sjálft veki ekki sérstakan áhuga hennar. Ágreiningurinn innan rikisstjórnarinnar hefur oröiö Sjálfstæðisflokki og Alþýðu- flokki tilefni til aöfarar að rikis- stjórninni sem náði hápunkti sinum I umræðum utan dag- skrár á Alþingi i siöustu viku. Margt var býsna athyglisvert i þeirri umræðu. Astæða er til að benda á að ekki gekk hnifurinn á milli gömlu viðreisnarflokk- anna i þessu máli frekar en öðr- um mikilvægum uppá siðkastið. Lýstu þeir einum rómi fylgi sinu við aðgerðir utanrikisráðherra i Helguvikurmálinu, — og var þeim góðu mönnum ekkitiörætt um lög og reglur, sóma alþingis, lýðræðisleg vinnubrögö og eðli- legan gang mála að þessu sinni. Góöu heilli ráða áhangendur bolabragða ekki feröinni á vett- vangi rikisstjórnar. Það á eftir að fjalla oftar um Helguvikur- máliö þar, einsog Gunnar Thoroddsen upplýsti i áður- nefndum umræðum. Óvinsælasti pólitikus landsins. Óvinsælasti pólitikus landsins t umræðunum á alþingi og i morgunútvarpinu i gærmorgun lýsti Geir Hallgrimsson þvi mörgum orðum hversu Alþýðu- bandalagiö væri hræsnisfullt I þessu máli. Alþýðubandalagið væri að reyna að telja her- stöövaandstæöingum trú um, að flokkurinn hefði áhuga á þvi að þeirra mál næðu fram að ganga. Þvi væri moldviðri þyrlað upp vegna framkvæmdanna i Helguvik, til að opna leið til að yfirgefa rikisstjörnina. Þetta gerðist einmitt nú, vegna þess að fylgið færi rýrnandi við Al- þýöubandalagiö og skoðana- kannanir bentu til þess að flokkurinn tapaði miklu fylgi viö sveitarstjórnarkosningarnar. Fyrir nú utan hversu for- manninum eralltieinu umhugað um málstað herstöðvaandstæö- inga, þá er ástæða til að benda á hversu skyndilega hann er far- inn aö lita skoðanakannanir al- varlegum augum. Ef skoðana- kannanir benda til fylgistaps Alþýöubandalagsins þá hljóta þær aö gefa rétta visbendingu samkvæmt honum. Máske hann liti vinsældarkosningu siðdegis- blaðsins jafn alvarlegum aug- um; hann var nefnilega kosinn óvinsælasti stjórnmálamaöur landsins þar fyrir skömmu. Pólitískur ágreiningur Um herstöðvamálið er djúp- stæður pólitiskur ágreiningur utan sem innan rikisstjórnar. Fólk er einfaldlega ólikrar lif- sýnar i þessu máli. Fylgjendur auöhringa og herstöðva eiga enga samleið með Alþýðu- bandalaginu. Þaö eru sömu pólitisku hagsmunir sem liggja að baki auknum umsvifum bandariska hersins og auknum \ umsvifum erlendra auðhringa hér á landi. Það eru líka sömu talsmenn sem þeir hafa I is- lensku þjóðlifi, auðhringurinn sem við stöndum i baráttu við og bandaríski herinn. Her- stöðvaandstæðingar og tals- menn Islenskra yfirráöa yfir landinu og atvinnulifinu þurfa nú aö treysta með sér fylkingar. —ög og skoriö

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.