Þjóðviljinn - 23.03.1982, Síða 9

Þjóðviljinn - 23.03.1982, Síða 9
Þriöjudagur 23. mars 1982. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 Kísilmálmverksmiðj an: Getum sjálfir byggt upp orkufrekan iðnað segir Finnbogi Jónsson í iðnaðarráðuneytinu „Aö minu mati er at- hyglisverðast við þessa rannsókn á arðsemi kísil- málmverksmiðju á Reyð- arfirði, sú staðreynd að við islendingar getum sjálfir annast athuganir og upp- byggingu orkufreks iðnað- ar ef viljinn er fyrir hendi", sagði Finnborgi Jónsson deildarstjóri í iðnaðarráðuneytinu í sam- tali við blaðið. Finnoogi var formaður verkefnis- stjórnar um kísilmálm- verksmiðju, sem skilaði áliti sínu fyrir nokkru. Meginniöurstaða verkefnis- stjórnar er að kisilmálmfram- leiösla á Reyöarfirði veröi aröbær og þjóöhagslega hagkvæm. Aætl- að er aö stofnkostnaöur 25 þúsund tonna verksmiöju sé um 747 milljónir króna og framleiöslu- verömæti á ári geti orðiö um 345 milljónir króna. Reiknaö er meö að 130 manns starfi viö þessa verksmiöju ef af verður. Við spurðum Finnboga út frá1 hvaða orkuverði hafi veriö gengið i hagkvæmnisútreikningum: „I okkar áætlun þá er gert ráö fyrir aö orkuveröið sé rúmlega 17 aurar á kilóvattstundina að meö- altali á 20 ára timabili og jafn- framt reiknað með fullri verö- tryggingu. Þess má geta aö heild- arraforkunotkun yröi 345 giga- vattstundir á ári, en það þýöir aö orkusala til verksmiöjunnar yrði til jafnaöar tæplega 60 milljónir króna á ári.” 1 niðurstöðum verkefnisstjórn- ar kemur og fram aö árlegar gjaldeyristekjur af þessari kisil- málmverksmiðju á Austfjörðum komi til meö aö nema um 220 milljónum króna á ári. Oft hefur veriö varað viö stór- iðnaði á Austfjöröum sakir við- kvæmra náttúruskilyröa þar. Við spuröum Finnboga hvort tekið hafi veriö fullt tillit til náttúru- hátta i athugun verkefnisstjórn- ar. „Við fjölluöum aö sjálfsögöu um mengunarvarnir og bentum sérstaklega á aö meö öllum til- tækum ráöum skuli komiö i veg fyrir mengun af völdum verk- smiöjunnar. Hreinsitæki eins og Finnbogi Jónsson: lslendingar eru fullfærir um aö annast athug- un og uppbyggingu orkufrek^ iönaöar. þau sem eru á verksmiöjunni i Grundartanga verða skilyröi fyr- ir starfsrækslu verksmiöjunnar fyrir austan. Þá verður mjög fylgst með öllum nýjungum á þessu sviöi og þess gætt i hvivetna aö fyllstu varnir séu um hönd haföar”. Viö spuröum Finnboga Jónsson hverjar hafi verið megintillögur verkefnisstjórnar varðandi næstu skref i málinu: „I stuttu máli lögðum viö til aö ráðist veröi i gerð 25—30 þúsund tonna kisilmálmverksmiðju á Reyðarfirði. Viö leggjum i þvi sambandi til að aflaö verði strax lagaheimildar um stofnun hluta- félags er annist byggingu og rekstur verksmiðjunnar. Okkar álit er þaö aö ef strax veröi hafist handa eigi kisilmálmverksmiðja á Reyðarfirði aö geta tekið til starfa 1. april 1985. Okkar áætlan- ir miöast viö að islenskum aöilum veröi falin flest störf viö byggingu verksmiðjunnar, enda kom fram á fundi meö iönaöarmönnum og verktökum á Austurlandi nú um helgina, aö þeir teljast til þess al- búnir aö taka slik verkefni aö sér”. „Okkur telst til i verkefnis- stjórn að erlend eignaraðild aö is- lenskri kisilmálmverksmiðju sé alls ekki nauðsynleg. Viö tslend- ingar ættum vel aö geta annast sjálfir alla fjármögnun, mark- aðsleit og hráefnaöflun án þess að leita aðstoöar útlendinga”, sagði Finnbogi Jónsson deildar stjóri i iðnaðarráöuneytinu aö lokum. Árni Hjartarson skrifar: Orkustofnun og Helguvíkurmálið t deilum þeim sem risiö hafa út af Helguvikurmálinu hefur Orku- stofnun töluvert komiö viö sögu. Almenna verkfræöistofan, sem er einn af verktökum bandariska sjóhersins, fól stofnuninni aö taka aö sér jaröfræöilegar rannsóknir á Helguvlkursvæöinu til undir- búnings aö hinni miklu elds- neytisbirgöastöö hersins. Illu heilli var Orkustofnun reiöubúin til aö taka rannsóknirnar aö sér og undirritaöi verksamninga þar aö lútandi, þrátt fyrir hina viö- kvæmu pólitisku stööu, umdeildu lagalegu hliöarog óverjandi siö- feröisgrundvallar málsins. Innan Orkustofnunar eru auö- vitað skiptar skoöanir um þetta mál en mér er ekki örgrannt um aö drjúgur hluti starfsmannanna þar sé andvigur þvi, aö stofnunin láti þvæla sér út I rannsóknir fyrir erlenda hernaöarpótintáta. Eitt er lika ljóst, aö rannsóknir sem þessar eru utan viö lagalega skil- greindan verkahring Orku- stofnunar. Verksviö hennar er I orkumálum landsins og rann- sóknir varðandi hagnýt jaröefni. Tækjabúnaöur og starfskraftur stofnunarinnar hefur aö sönnu oröið til þess, aö hún hefur I seinni tiö fariö aö taka aö sér ýmiskonar jaröfræöirannsóknir hliöstæöar þeim, sem fariö er fram á i Helguvik. 1 þeim tilfellum hefur hún I vaxandi mæli tekið upp starfshætti verktakafyrirtækis- ins. t þessum efnum hefur Orku- stofnun fengiö aö hafa frjálsar hendur eins og rétt er og skyn- samlegt svo lengi sem stofnunin heldur þessari starfsemi sinni innan hóflegs ramma. Þegar hins vegar sýnir sig aö hún hefur þröng sérfræöingaviömið og pen- ingasjónarmið aö leiöarljósi og metur aö jöfnu vinnu fyrir islenska aöila og bandariska her- foringja, er full ástæöa til aö gripið sé I taumana. Þaö geröi iönaöarráöherra; vel sé honum fyrir þaö. Iönaöarráöherra hefur bent á, aö augljósir formgallar hafi verið á verksamningnum milli Al- mennu verkfræöistofunnar og Orkustofnunar, þar sem þessi tvö islensku fyrirtæki sömdu um dollaragreiðslur sin á milli. Þótt þetta sé léttvægt atriöi málsins bregöur þaö nokkurri birtu á þaö hernámshugarfar sem rlkir. Meginatriöi þessa máls eru ein- föld og skýr. A siðustu árum hefur vigbúnaðarkapphlaupiö veriö hert að mun. Bandarisi herinn hefur komist aö þvi, aö staöa hans á meginlandi Evrópu er ekki eins trygg og hann hugði. Friöar- hreyfingar álfunnar hafa sannaö honum þaö. Hann hefur þvi lagt aukna áherslu á flotauppbygging- una á Atlantshafi. Liöur i þeirri uppbyggingu eru hugmyndir hersins um flotahöfn og stóra eldsneytisbirgöastöð I Keflavik. Gull og grænir skógar eru i boöi og ómælt hermangsfé, ef fallist veröur á þessar áætlanir. Allir fá sinn skerf: Keflavik, Geröar, Al- menna verkfræöistofan, Haf- rannsóknarstofnun, Orkustofnun o.s.frv. Greiöslur eru I dollurum. Sérfræöingum og visinda- mönnum hefur oft veriö legið á hálsifyrir aö þeir láti mannfjand- samleg öfl nota sig til illra verka. Þaö er fullkomlega eölilegt aö þeim sé hallmæltfyrir þetta og öll getum viö fordæmt þá visinda- menn sem láta hafa sig út I aö þróa „eiturvopn, sýkla og atóm- sprengjur og allt þetta fina.” Ótil- neyddir eiga menn ekki aö láta etja sér út i slik skitverk; ótil- neydd á Orkustofnun ekki aö láta hafa sig út i rannsóknir I þágu hernaöarafla. Þau verk eiga aörir aö vinna. Þaö er misskilningur að halda, aö Helguvikuráætlanirnar séu lausn á einhverju mengunar- vandamálum. Mengun á vatns- bólasvæöi Njarövikinga stafar af saltmengun vegna ofdælingar en ekki af ollu og vatnsbólin verður liklega aö leggja niöur fyrr en siöar. Þár aö auki mun oliudæling frá Helgvikurstööinni upp á Völl ekki siöur ógna vatnsbólum Kefl- vikinga en oliutankarnir i Njarö- vik hafa veriö ógnun viö bágborin vatnsbólin þar. Orkustofnun Arni Hjartarson getur þvi ekki atsakao sig meö þvi aö hún sé aö leysa megnunar- vanda þeirra á Suöurnesjum, þaö er barnalegt yfirvarp. Nú hafa þau tiöindi gerst aö bandariski flotinn hefur beöiö Orkustofnun aö hefja fyrir- hugaðar rannsóknir og boranir i Helguvik aö bragöi. Ég skora á orkumálastjóra, stjórn Orku stofnunar og iönaöarráöherra aö standa saman um aö hafna þessari beiðni. Mér og fjöl mörgum félögum minum á Orku- stofnun hryllir viö þeirri her- naöaruppbyggingu sem nú fer fram um viöa veröld og viö viljum ekki aö okkur eöa okkar stofnun veröi þvælt til þátttöku i henni. Ef nú veröur oröiö viö óskum bandariska hersins, hvers megum viö Orkustofnunarmenn vænta næst, hverju mun þá Orku málastjóri, stjórn Orkustofnunar og iönaöarráöherra svara beiöni um jarðfræöirannsóknir vegna undirbúnings aö neöanjarðar- hvelfingum á Miönesheiöi fyrir atomsprengjur og kjarnorkueld- flaugar? Þessarar spurningar hefur veriö varpaö fram innan Orkustofnunar og hér er hún itrekuð. Viö biöum svars. Arni Hjartarson. Dorothee Fiirstenberg. Hlutverka- skipti í Óperunni Dagana 26.—28. mars fer þýska óperusöngkonan Dorothee Furstenberg með hlutverk Saffi, sem hingað til hefur leikið um radd- bönd ölafar Kolbrúnar Harðardóttur, með eftir- minnilegum hætti. Dorothee Furstenberg fæddist i Westfalen i Þýskalandi. Hún nam óperu- og konsertsöng viö Tónlist- arháskólann I Berlin og Mozarteum i Salsburg. Kennari hennar var Elisabet GrOmmer. Hún starfaöi fyrst viö óperurnar i Giessen og Hannover og siöar viö Gartnerplatzleikhúsiö i Munchen. Hún hefur sungið i óperettum I Berlin, Hamborg og Sviss. Enn- fremur á tónlistarhátiðinni I Mör- bich i Austurriki, viö Theater an der Wien og viö Þjóöaróperuna i Vin. Ariö 1979 fór hún I mikla söng- för með Þjoðaróperunni til Japan og söng þá hlutverk Rósalindu i Leöurblökunni eftir Strauss. Einnig hefur hún komið fram I sjónvarpi og sungiö ljóö inn á hljómplötur. Af helstu hlutverkum hennar i óperum og óperettum má nefna: Pamina, Micaela, Mrs. Fluth I Kátu konunum i Windsor, Rósa- linda, Káta ekkjan, Marisza greifafrú og Sigaunabaróninn. Astæðan til brottfarar ölafar Kolbrúnar frá Öperunni um sinn er væntanleg söngför hennar til Bandarikjanna. —mhg Brúðuleikhúshátíðin Síðasta sýning Albrecht Roser Brúðuleikhúshátiðin sem var opnuð á laugardaginn af forseta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur, er nú í fullum gangi og hefur að- sókn verið sérlega góð. Er það ekki síst fyrir tilverkn- að hinna erlendu gesta, enda eru nokkrir þeirra á heimsmælikvarða í list sinni. 1 dag veröa tvær sýningar. Leikflokkurinn Theatre du Fust sýnir i fyrsta sinn, en þeir koma hingaö til lands meö Söguna um Melampus. Sýning þeirra hefst kl. 17 i sal 3, en um kvöldiö þ.e. kl. 20.30 heldur Albrecht Roser slna siöustu sýningu. Þar er á efnis- skránni Gústaf og félagar hans. Astæöa er til að vekja athygli á þvi að sýning Roser er bönnuö börnum innan 15 ára. —hól

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.