Þjóðviljinn - 17.04.1982, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 17.04.1982, Blaðsíða 19
Helgin 17,—18. aprll 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19 Ja> her er eventyrets vinterland med bakker, snö og sol fra f jell til strand Her har vintersportens vugge státt i dette landet i rödt, hvidt og blátt. Blessaöir NorBmennirnir, þeir láta ekki að sér hæöa fremur en fyrri daginn. Þegar ég rakst á kveðskapinn hér að ofan i dag- blaði fyrir nokkru fannst mér sem gamli Is- lenski ungmennafélagsandinn svifi yfir vötnunum. Nei, ekki alveg rétt, hér var ein- ungis einhver framsóknarmaðurinn norsk- ur að yrkja dýrðaróð til ættlandsins i tilefni Heimsmeistarakeppninnar á skiðum, sem herjaði fyrir skömmu. Hafi söngelskir landar áhuga þá ku lagið vera eitthvað á þessa leið: Bam, bam, bam, bam, bam- bam-bambam, bam, bam... Þetta var guðlast Heimsmeistarakeppnin. Að óreyndu hefði ég aldrei getað trúað þvi aö heilt þjóð- félag hreinlega snérist við vegna Iþróttaat- burðar, en sú varð sannarlega raunin á hér i Noregi. Strax i nóvember I fyrra byrjuðu dagblööin „niðurtalninguna”, 108 dagar til VM, 107 dagar til VM.... Enginn mundi hvað margir dagar voru til jóla, en allir voru með það á hreinu hve margir dagar væru til VM. Við vorum i fyrstu ákveðin i að láta djöf- ulganginn ekkert á okkur fá, en fengum ekki að gert. Innan tiðar voru gönguskfði á alla fjölskylduna komin i hús. Auðvitað voru allir af vilja geröir viö að leiðbeina byrjendunum: „Ekki nota stafi strax.... reynið að ná góðum og jöfnum takti... frá- spyrnan á aö vera kröftug.” Ég hélt að áburöurinn undir skiðin yrði til litilla traf- ala; bara aö sulla einhverju gumsi undir... „Guð minn almáttugur, hvað gerirðu drengur? Ertu með grænt undir i aðeins 3 stiga frosti?” Þetta var guðlast. t alvöru talaö, þá er skiðaáhuginn hér I Noregi nánast óhugnanlegur. „Nú, nú, ferðu ekki nema einu sinni I viku á skiöi???” Þannig hljóöaöi spurning sem ég fékk frá kunningja minum norskum eigi alls fyrir löngu. Og ég sem hélt mig kominn með bakteriuna. Ef til vill var kunninginn i hópi þeirra sem ösluðu á gönguskiöunum á sentimetersþykkum snjó siöastliðið haust. Hver veit. Oslóarpistill frá Ingólfi Hannessyni Nú, nú 100% mæting Við hjónin búum að Kringsjá, sem er i jaðri helsta útivistarsvæöis Oslóarbúa, Nordmarka. Um helgar er straumur göngugarpa hingað, göngugarpa sem eru á ferðu ekki nema einu sinni í viku á skíði? aldrinum 5 til 95 ára. Mjög margir leggja leiö sina til Ulleválseter, skiðaskála i um 5 km vegalengd frá Kringsjá. Fyrsta ferð okkar þangaö uppeftir var um miðjan jan- úarmánuö siöastliðinn. Þær tóku hressilega i lærvöðvana brekkurnar og áður en varði var kallað: „Ó, ó... smápása, takk fyrir.” Það sem e.t.v. fyrst og fremst lá bakvið þessa ósk var fremur óæskileg þróun göng- unnar, a.m.k. að mati minu, gamla skiöa- göngukennarans i Blaðinu Okkar. Gamlar konurog smábörn voru farin að gera meira en að hanga i okkur, þau voru farin að bruna framúr. Þetta var sko ekki hægt, Matthias. I rauninni viröist skiðaáhugi fólki hér i landi i blóö borinn; jafnvel hjá komm- unum i uppeldisfélagsfræðinni i háskólan- um var mætingin i skiðaferðina 100 prósent. Það þætti nú hálfundarlegt i samsvarandi hópum á Klakanum. Sáuði hvernig við tókum Danina? Strax i byrjun febrúarmánaðar var aug- lýsingaflóðið vegna Heimsmeistarakeppn- innar orðiö yfirþyrmandi, WM-úr, WM-pizza, WM-bfll, WM-klósettpappir og WM-steikarpönnur. Þeir láta ekki að sér hæöa kaupmennirnir i Osló. Þaö er vist best að sleppa verðinu á þessum stórmerkilegu hlutum. Ég má til með að geta þess að ein- um finnsku blaðamannanna var ráölagt að senda svohljóöandi skeyti til blaösins sins: Sendið meiri peninga — STOPP — notið fréttastofu NTB - STOPP. Kollega hans, bandariskum Jeist ekki meira en svo á þessar WM merkingar á öllum hlutum og þóttist hann þó ýmsu vanur. Honum varð að orði að Vegagerð Oslóborgar væri „official WM-maker of streetholes” Og svo hófust herlegheitin. „Sástu hvern- ig við tókum gulliö”, var hið fyrsta sem fóstrurnar sögðu við mig þegar viö Harpa Maria mættum á barnaheimilið. Þær voru meö öll úrslit á hreinu. Frá ööru barna- heimili hér i grenndinni frétti ég að einn starfsmannanna hafi tekið með sér ferða- sjónvarp i vinnuna. Þessum linnulausa áróöri og rembingi varö aö svara og eftir 30 km. gönguna sagði ég við liðið á barna- heimilinu: „Sáuði hvernig viö tókum Dan- ina?” Mér fannst það illa gert að ég skyldi fá heljarmikla hláturgusu i staðinn. Börnin fengu að upplifa Heimsmeistara- keppnina á all-skemmtilegan hátt. Ekkert þeirra þurfti að borga sig inná herlegheitin og fyrir þau yngstu i öllu landinu var hald- inn sérstakur WM-dagur. 1 Holmenkollen mættu um 5 þúsund börn ásamt foreldrum og allir fengu verðlaunapening fyrir aö ganga hálfanannan kilómetra. Sannarlega framtak til fyrirmyndar. I þessum efnum getum við Islendingar mikið af norskum lært. Heimsmeistarakeppninni lauk siðan sið- asta sunnudag i febrúar í þoku og slyddu. Svo mikil var þokan að hvorki áhorfendur né dómarar sáu stökkvarana þegar þeir brunuðu fram af pallinum. Hinir 60 þúsund áhorfendur létu það ekkert á sig fá, sungu og dönsuðu og hrópuðu heia, heia þegar þeir fréttu af þvi að þeirra menn voru lentir heilu og höldnu. Vonandi æfa þær ekki i laumi Framsóknarmaöurinn okkar sló ekki af og söng hástöfum (þiö muniö eftir laginu: Bam, bam, bam, bam, bambam-bambam, bam, bam): Vi hilser alle, hver en kvinne, mann i edel kappestrid for folk og land. Og WM-dagene sem gryr má bli vinterens eventyr. Jæja, ætli það sé ekki best aö koma sér af stað. Ég er nefnilega staöráöinn i þvi þetta sinniö að bruna framúr gömlu frúnum á tréskiöunum. Vonandi hafa þær ekki æft sig i laumi á meöan Heimsmeistarakeppninni st<JÖ- Osló, mars 1982, lngólfur Hannesson. Margur er knár þótt hann sé smár

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.