Þjóðviljinn - 28.04.1982, Síða 16
PIÚDVIUINN
Miðvikudagur 28. april 1982.
Miklar áhyggjur j
af atvinnuleysi |
á Noróurlöndum: j
j Fjölsóttir j
| fundir
— Rætt við
Guðrúnu
Helgadóttur
— Það er ekkert sér-
lega upplifgandi að
ferðast um Noreg, Svi-
þjóð og Danmörku
þessa stundina. Hvar-
vetna sem maður
kemur hafa menn
miklar áhyggjur af at-
vinnuleysi einkum
meðal ungs fólks, og
það er hálfgert von-
leysi ríkjandi þegar
rætt er um framtiðar-
horfur. Þetta kom
einkar skýrt fram i
samtölum á höfuð-
borgarráöstefnu Norð-
urlanda i Osló, sagði
Guðrún Helgadóttir
borgarfulltrúi m.a. er
Þjóðviljinn ræddi við
hána.
— Hin árlega höfuðborgar-
ráðstefna sem nokkrir
borgarfulltrúar Reykjavikur
söttu i Osló var annars
ánægjuleg samkoma og mót-
tökur Norömanna höföing-
legar. Við áttum þess m.a.
kost að fara i skoðunarferð
um verkamannahverfi i Osló
og kynnast tilraunum
borgaryfirvalda til þess að
bregðast við húsnæöisvand-
ræðum sem þareru hrikaleg.
Ég er hrædd um að Reykvik-
ingum dugöi ekki að leita
fyrirmynda i húsnæöismál-
um til Oslóborgar, þvi að svo
slæmt var ástandið á leigu-
húsnæði sem þar er notað að
ekkert sem hér þekkist
kemst nærri þvi að jafnast á
við þaö.
— Við Sigurjón Pétursson
héldum eftir höfuðborgar-
ráðstefnuna i fundarferðalag
á vegum Aiþýöubandalags-
ins og tókst það ákaflega vel.
Fundir okkar Sigurjóns I
Osló, Gautaborg, Lundi,
Stokkhólmi og Uppsölum
voru fjölsóttir og stóöu sumir
á fjórðu klukkustund með
fjörugum umræöum. Eitt-
hvað hafði hinsvegar farið
úrskeiðis i Kaupmannahöfn
og þar var heldur fámennt.
— A fundunum sem ég var
á lagði ég mig fram um að
kynna námsmönnum og
öðrum þær breytingar sem
gerðar hafa verið á kosn-
ingalögum og svaraði spurn-
ingum um alit milli himins
og jarðar. Þarna kom fram
ekki siöur áhugi á lands- og
þingmálum heldur en
borgarmálum, og hvarvetna
iögðu námsmenn áherslu á
að námslánafrumvarpið
fengi afgreiðslu á þessu
þingi. Greinilegt var aö eitt
heista áhyggjuefnið eru hús-
næðismálin hér heima og
hvernig til tekst að leysa þau
aö loknu námi eða dvöl er-
lendis. En mér þótti sérstak-
lega vænt um það á fund-
inum kom fram mikill áhugi
á þeirri skipulagsvinnu sem
unnin hefur verið i Reykja-
vik á kjörtimabilinu og
ýmislegt fagfólk sem er við
nám og störf á Norður-
löndum lét vel af skipulags-
stefnu borgarstjórnar. — ekh
Aðalslmi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga.
Utan þess tima er hægt aö ná I blaöamenn og aðra starfsmenn
hlaðsins I þessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot
8x285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt aö ná i af-
greiöslu blaðsins I sima 81663. Blaðaprent hefur sima 81348 og
eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld.
Aðalsímí
81333
Kvöldsími
81348
Helgarsími
afgreiðslu
81663
Heimilisþjónustan í Reykjavík:
Um 500 konur sinna
1260 heimilum aldraðra
Rætt við Jónínu Pétursdóttur
Þessa dagana stendur
yfir í Reykjavik nám-
skeið i heimaþjónustu,
sem haldið er á vegum
Sambands íslenskra
sveitarfélaga og
Öldrunarráðs Islands
fyrir fólk frá þeim
sveitarfélögum á lands-
byggðinni, sem eru að
hefja skipulega
heimilisþjónustu.
Að þvi tilefni tókum
við Jóninu Pétursdóttur
tali, en hún er forstöðu-
kona heimilisþjónust-
unnariReykjavik:
— Skipulögð heimahjúkrun
fyrir aldraða hefur veriö starf-
rækt hér i Reykjavik frá 1970 og
hefur farið ört vaxandi, sem sést
af þvi að þá fengu 141 heimili
þjónustu ená siöasta ári nutu 1260
heimili aldraðra þessarar
þjónustu, segir Jónina.
— Alls starfa hjá okkur um 500
manns, en starfsigildi eru 220.
Uppistaðan i starfsliði okkar eru
konur á aldrinum 50-70 ára og svo
ungt námsfólk en i þeim hópi eru
m.a. 8-10 karlmenn.
— Hvernig greiðir fólk fyrir
þessa þjónustu?
Þeir sem aðeins lifa af ellilif-
eyri og tekjutryggingu fá ókeypis
þjónustu.enaðrir þurfa að greiða
hálft timakaup Sóknar eða um 20
kr á klukkustund. Mismunurinn
er greiddur af borginni.
— t hverju er heimilishjálpin
fólgin?
— Miðað er við að hver heim-
sókn sé 4 klst., en aðstoðin felst
oft i ræstingu, matargerð, útrétt-
ingum og öðru er viðkemur
heimilishaldi. Heimilishjálpin
miðar að þvi að gera fólki kleift
að dvelja lengur heima hjá sér í
sinu eigin umhverfi. Við störfum i
samvinnu við Öldrunardeildina I
Hátúni og Heimahjúkrun Heilsu-
verndarstöðvarinnar i Reykja-
vik, og við bæði komum sjúkling-
um á framfæri við öldrunardeild-
ina og tökum á móti sjúklingum
frá þeim, þannig að læknarnir
geta fylgst með útskrifuðum
sjúklingum i gegnum okkur.
Annars finnst okkur að enn sé
gamalt fólk oft útskrifað af
sjúkrahúsunum áður en það er
raunverulega fært um að fara
heim, þótt öldrunardeildin i Há-
túni hafi verið mikil framför.
— Er krafist sérstaks undir-
búnings fyrir starf aö heimilisaö-
stoð?
— Það er ekki skylda, en þeir
sem starfa að heimilisaöstoð eiga
þess kost að fara á námskeið hjá
Sókn, sem veitir konunum meira
öryggi i starfi og gefur þeim rétt
til launauppbótar.
— Er heimilishjáipin eingöngu
fyrir aldraða?
— Nei, viö sinnum lika fötluðu
fólki, öryrkjum og öðrum sem
þurfa á daglegri þjónustu að
halda, en okkur vantar fólk til
þess aö sinna ræstingum þar sem
komið er t.d. einu sinni I viku.
Viö sinnum öldruðum, fötluðum, öryrkjum og öðrum sem á aðstoð
þurfa aö halda, segir Jónina Pétursdóttir.
Verðlagning og sölumeðferð félagslegra íbúða:
Húsnæðísstofnun
tekur alfaríð við
Húsnæðisstofnun
rikisins hefur verið falið
að annast matsgerð á
félagslegum ibúðum og
yfirstjórn á sölumeðferð
þeirra hjá sveitarfélög-
um, auk þess sem réttur
ibúðareigenda hefur
verið enn frekar tryggð-
ur með ákvæði um yfir-
mat ef málsaðilar una
ekki úrskurði mats-
nefndar húsnæðisstofn-
unar.
Þessi ákvæði er að
finna í reglugerð sem
félagsmálaráðherra
hefur nýlega gefið út um
breytingar á matsgerð
félagslegra íbúða.
Samkvæmt fyrri reglugerð
skipaöi ráðherra tvo matsmenn
til þess aö reikna út og meta til
verðs allar ibúðir sem koma til
endursölu i verkamannabústöð-
um um allt land. Jafnframt var
þessum matsmönnum falið að
móta starfsreglur um fram-
kvæmd þessara mála. öllum
stjórnum verkamannabústaða I
landinu var einnig skrifað og þær
beðnar um athugasemdir og til-
lögur um breytingar á starfsregl-
unum.
þvi hefur verið lagt fram frum-
varp á alþingi um breytingar á
þeim greinum laganna um
félagslegar ibúðir sem fjalla um
verðlagningu og matsgeröir.
Með þessum ráðstöfunum,
setningu reglugerðarinnar og
starfsreglum sem húsnæðismál-
stjórn hefur samþykkt, telur
félagsmálaráðuneytið að tryggt
hafi veriö eftir þvi sem unnt er,
traust skipulag þessara mála.
Húsnæöisstjórn hefur þegar
skipað starfshóp til að annast
þessi matsgerðarverkefni sem i
eiga sæti þeir: Skúli Sigurðsson
lögfræðingur, Halldór Backman
og Guömundur Gunnarsson.
Tveir þeirra fyrstnefndu voru
áður i matsnefnd félagslegra i-
búða.
Með þessari nýskipun hefur
Húsnæðisstofnun alfarið tekið við
framkvæmd á verðlagningu
félagslegra ibúða og yfirstjórn á
sölumeðferð þeirra hjá sveitar-
félögum. —lg.
Á námskeiðinu i heimilisþjón-
ustu, sem haldið er i Sjúkraliða-
skólanum verða flutt fjölmörg
erindi sérfróðra manna auk þess
sem þátttakendur kynna sér sér-
staklega þjónustu við aldraða i
Reykjavik.
Athygli skal vakin á þvi að i
opnu blaðsins i dag er sagt frá
heimahjúkrun i Reykjavik og
farið i sjúkravitjun. ólg.
! Bankar stööva
lánveitingar út á
skreið:
! Miklar
I birgðir
og sölu-
tregða
Afurðalánabankar hafa
stöövað lánveitingar út á
skreið, enda hefur Seðla-
bankinn ákveðið að fella nið-
ur endurkaup á afurðalánum
vegna skreiðar. Frestur til
veðsetningar á skreið, sem
framleidd hefur verið eða
verður til næstu mánaða-
móta rennur út mánudaginn
3. mai n.k.
1 frétt frá Seðlabankanum,
Landsbankanum, Útvegs-
bankanum og Samvinnu-
bankanum segir að ákvörðun
um stöðvun á lánveitingum
út af skreið sé tilkomin
vegna mikilla birgða I land-
inu og fyrirsjáanlegrar
tregðu eða stöðvunar á
skreiðarsölu til Nigeriu um
lengri tima. en þar hefur
aðal skreiðarmarkaðurinn
verið. —ekh
I
Draupnir VE-550:
Var ad
ólögleg
um
veidum
Gæsluflugvélin TF-Rán
stóö mótorbátinn Draupni
VE-550, að meintum ólögleg-
um togveiðum undan Bakka-
fjöru siðdegis s.l. föstudag.
Málið var tekiö fyrir hjá
bæjarfógetanum i Vest-
mannaeyjum á laugardag-
inn og viðurkenndi skipstjóri
Draupnis brot sitt, en dómur
hefur ekki enn verið kveðinn
upp.
Gæslumenn á TF-Rán
mældu Draupni mest 0,5 sjó-
milur fyrir innan fiskveiöi-
mörkin út af Bakkafjöru.
Skipherra i þessu gæsluflugi
var Hálfdán Henrýsson,
flugstjóri Björn Jdnsson og
flugmaður Benóný Asgrims-
son. —lg-