Þjóðviljinn - 17.07.1982, Síða 13
Helgin 17,—18. júli 1982 ÞJ.ÓÐVILJINN — StÐA 25
Hjónabandið
Hann var laginn við að
skella skuldinni af öllu,
sem aflaga fór, á konu
sína. En svo kom að því,
að hann missti niður
brauðið og smjörið fór í
teppið.
Konan beið með öndina í
hálsinum. Hvernig skyldi
hann bregðast við?
„Þér var nær kona",
þrumaði hann, ,,að
smyrja brauðið vitlausu
megin!"
Spítalalif
„Hérna færðu næringar-
mikla máltíð", sagði
hjúkrunarkonan og rétti
sjúklingnum bakka með
gulrótarstöppu, sem
varla fyllti eina mat-
skeið.
„Þakka þér fyrir", sagði
sjúklingurinn. „Eftir
matinn máttu svo lána
mér f rímerki. Ég gæti vel
hugsað mér að lesa eitt-
hvað undir svefninn".
Það munaði mjóu
Hann hljóp sem fætur
toguðu niður eftir bryggj-
unni í áttina að Akraborg-
inni, sem var dágóðan
spöl frá bryggjunni.
Hann tók undir sig stökk
og sveif í fallegum boga
uns hann rétt náði að
grípa um borðstokkinn.
Og þar ríghélt hann sér,
meðan nokkrir menn úr
áhöfninni þustu að til
hala hann innfyrir.
„Ég náði! Ég rétt náði!"
hrópaði hann, móður og
másandi.
„Það var nú gott" sagði
einn úr áhöfninni. „Ann-
ars hefði verið miklu auð-
veldara fyrir þig að
ganga bara upp land-
ganginn. Við erum að
leggja að".
Afgreióum
einangrunar
olast a Stór
Reykjavikur<
svœdió frá
mánudegi
föstudags.
Afhendum
voruna á
byggingarst
vióskipta (
mönnum aó
kostnaóar
lausu.
Hagkvœmt ver
og greiósJuskil
máíar vió ftestra
hœfi.
einangrunar
^Hplastio
framTeiðskfvorur
prpueinangrun
“Sog skruf butar
Borgarncsi j »jm< »a nto
' kvokl 09 hctgammi 93 7355
Tilboð óskast i jarðvinnu undirstöður og
neðstu plötu ásamt tilheyrandi lögnum
fyrir þriðja áfanga Snælandsskóla i Kópa-
vogi.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu bæjar-
verkfræðings Fannborg 2, gegn 500 kr.
skilatryggingu. Tilboðum skal skila á
sama stað þriðjudaginn 3. ágúst fyrir kl.
11, og verða þá opnuð að viðstöddum bjóð-
endum.
Bæjarverkfræðingur
Keflavik
B æ j arverkst j óri
Staða bæjarverkstjóra i Keflavik er laus
til umsóknar. Laun samkvæmt kjara-
samningum SPKB. Umsóknir sendist
undirrituðum fyrir 15. ágúst næstkom-
andi.
Bæjarstjórinn i Keflavik
Hafnargötu 12
Sumarferð
Alþýðubandalagsins i Kópavogi dagana
17. og 18. júli
Fariö verður laugardaginn 17. júli n.k. klukkan 8 aö
morgni frá Þinghól Hamraborg 11 og komið heim um kl.
21.00 á sunnudagskvöld.
Farið er inn á Haukadal um Haukadalsheiði og inn á nýja
Linuveginn, sem liggur sunnar Langjökuls og norðan Þór-
ólfsfells, Hlöðufells og Skjaldbreiðar, niður á botn Skorra-
dals i Borgarfirði.
Tjaldað á laugardag við Fagradalsfjall og farnar skoðun-
arferöir um nágrennið eftir þvi sem þátttakendur treysta
sér til.
A sunnudag verður svo ekið vestur yfir Skjaldbreiðar-
hraun og ýmsir áhugaverðir staðir skoðaðir og komið
niður i botn Skorradals, ekið niður með Skorradalsvatni,
yfir Dragháls og niður Svinadal og svo venjulega leið i bæ-
inn.
Fargjald verður 225.- fyrir fullorðna og 125.- fyrir börn
undir 12 ára aldri og öryrkja. Þátttakendur hafi með sér
tjald.svefnpoka og nesti. Farmiðar verða seldir i Þinghól,
Hamraborg 11, 3. hæð miðvikudaginn 14. og fimmtudag-
inn 15. júli frá kl. 17.00 til 18.00 og 20.00 til 22.00, simi
41746. Farmiðapantanir og upplýsingar hjá Lovisu, s.
41279 og Þórunni, S. 41962. öllum heimil þátttaka!
Alþýðubandalagið i Kópavogi
Innkaupastjórar og súkkulaðisölumenn
Söludeikl Nóa og Sirius
veröuropin i allt sumart
Þótt verksmiðjur okkar verði lokaðar um tíma vegna sumarleyfa starfsfólks
þarf enginn að óttast sælgætisskort. Við höfum komið okkur upp stórum
og bragðgóðum lager af öllum helstu tegundunum og söludeildin á Suður-
landsbraut 4 verður opin í allt sumar.- Síminn er 28400
Opið
ALLAN
4
UREYRLL
STÆRSTA BIFREIÐASTÖÐ BORGA^