Þjóðviljinn - 17.07.1982, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 17.07.1982, Blaðsíða 20
WÐVIUINN Helgin 17.-18. júli 1982 nafn vikunnar Björn Dag- bjartsson „Ég hef ekki séð þessa kæru og get þar af leiðandi ekki tjáð mig um hana efnis- lega. Ef rannsókn fer fram i málinu, hljótum við að fá um það tilkynningu. Við vorum búnir að kynna okkur lögin mjög gaumgæfilega og vor- um þess fullvissir, að þetta væri löglegt og raunar eina löglega leiðin. En nú verða menn bara að biða eftir niö- urstöðu rikissaksóknara.” Þetta sagði Björn Dag- bjartsson, forstöðumaður Rannsóknarstofnunar fisk- iðnaðarins og formaður Hringormanefndar um kæru þá, sem Samband dýra- verndunarfélaga hafa sent rikissaksóknara vegna af- skipta Hringormanefndar af selveiðum. — Mun þessi kæra breyta einhverju I sambandi við áð- ur útgefna auglýsingu ykkar um verðiaunaveitingar fyrir selskjamma? „Nei, hún mun ekki breyta neinu. Þarna er verið að kæra athæfi, sem er um garð gengið, og þvi myndi það engu breyta, þótt verðlauna- veitingunni yrði kippt til baka. Ég býst við, að verð- launaveitingin standi meðan peningar eru fyrir hendi.” — Er nefndin sammála i einu og öllu um þetta mál? „Já, hún hefur verið það.” — Hefur enginn imprað á þvi, að láta við svo búið standa? „Nei, það hefur enginn i nefndinni haft orð á þvi. Hitt er annað mál, að ég hef verið beðinn að athuga að ekki verði eytt meiru en upphaf- leg áætlun sagði til um, en i þetta á að verja um einni milljón króna.” — Er eitthvað sem þú vilt taka fram að lokum? „Það undrar mig dálitið, að enginn blaðamaður skuli hafa haft fyrir þvi að tala við þá aðila, sem við þetta vinna, t.d. fólk I frystihúsum. Ég fann ekki upp Hring- ormanefndina, en ég er eini maðurinn sem við er talaö.” — Það er ekki verið að mótmæla hringormi, heldur hinu hvort rétt sé að málum staðið. „Það hafa verið gerðar margar visindalegar rann- sóknir á þvi hversu mikil- vægur hlekkur selurinn er i sambandi við hringorminn og það sem hér er gert er byggtá slikum rannsóknum. En það er stundum eins og fólk hafi ekki hugmynd um hvað þetta kostar þjóðarbú- ið.” — ast Aðalslmi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt að ná i blaöamenn og aöra starfsmenn hlaðsins i þessum simum : Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbroí 8i285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt að ná i af- greiöslu blaðsins i sima 81663. Blaðaprent hefur sima 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663 Snarpar umræður um Ikarus vagnana Á fundi borgarstjórn- ar siðastliðinn fimmtu- dag urðu allsnarpar um- ræður um ákvörðun hins nýja meirihluta að setja þrjá Ikarusvagna SVR á söluskrá Innkaupastofn- unar Reykjavikurborg- ar. Allir þeir fulltrúar minnihlutans, sem tóku til máls um Ikarusmálið ádeildu þessa skipan mála harðlega. FVam hefur komið að litil reynsla hefur feng- ist fyrir notkun þessara vagna og bentu þeir sem tóku til máls á góða reynslu sem SVK hefur haft af þessum vögnum. Guðmundur Þ. Jónsson var einn þeirra sem tóku til máls og sagði að jafnvel þó borgarbúar hentu gaman að þessu máli þá væri teflt um mikla fjármuni. Hann sagði það lítið fjármálavit að setja þessa vagna á söluskrá eftir að söluaöilar heföu úthúðað þeim á alla enda og kanta i fjöl- miölum. Varpaði hann fram þeirri spurningu hvort meiningin hjá Sjálfstæðisflokknum væri ekki aö selja flokksgæðingum þessa vagna, einn eða fleiri á litlu verði. Guðmundur minnti á að SVR hefði fulla þörf fyrir þessa strætisvagna og mjög bagalegt væri ef þeir færúúr umferð. Guörún Agústsdóttir benti á að þó finna mætti galla á Ikarus- vögnunum, þá hefði reynslan með nýja strætisvagna frá Volvo - verksmiðjunum eigi verið ósvip- uð. Þannig hefði á sinum tima þurft að skipta um girkassa í 8 nýjum Volvo-vögnum, en af ein- hverjum ástæðum hefði þaö mál aldrei fengið neina umfjöllun i fjölmiölum. Meðfram umfjöllun Guðrúnar um Ikarus-málið spurðist hún nánar fyrir um heimsókn fyrrum yfirmanns strætisvagna I Kaup- mannahöfn sem kæmi hingað i boði borgarstjórnar til að vera til ráðgjafar um málefni SVR. Af hálfu Sjálfstæðisflokksins tók Sigurjón Fjeldsted til máls og sagöi hann að strætisvagnar frá A-Evrópu væri brotajárnsmatur og því fyrr sem borgin losnaði viö þessa vagna því betra. Var Sigur- jón ómyrkur i máli um farartæki frá löndum austan járntjalds. Þegar hann ræddi um það aö nú hafa Volvo-verksmiðjurnar feng- ið Ikarus til aö yfitáayggja vagna frá verksmiðjunum, sagði hann að það væri litiö að marka, þvi yfirbygging og annað slikt dót væri litill partur af hverjum bil. Aðrir sem tóku til máls um Ik- arus voru Guðrún Jónsdóttir og Kristján Benediktsson. Guðrún tók i sama streng og fulltrúar Alþbl. en Kristján bað menn um ð verja takmörkuðum tima orgarstjórnar i þarfari málefni. — hól. Ikarus-máliö er aö veröa aö hálfgeröum trúarbrögöum, sagöi Guörún Jónsdóttir fulltrúi Kvennaframboösins i borgarstjórnarumræöu sl. fimmtudag. I söngbók MFA eru 326 sönglióð og kvæði á 400 blaóslöum, bæöi gömul og ný. Með mörgum Ijóóanna fylgja nótur. Aóalsteinn Ásberg Sigurðsson valdi efniö, Sigurður Þórir myndskreytti. Meöal efnis: Verkalýðs- og baráttusöngvar, ættjaröar- söngvar, þjóðsöngvar Noróurlanda, jplensk þjóðlög, ástarsöngvar, vögguvlsur, öl- og dans- kvæói, söngvar um sjóinn og fiskirlió, söngvar leikritum... og allir hinir söngvarnir. Söngbók MFA HFA Menningar- og fræðslusamband alþýðu Grensásvegi 16 108 Reykjavík s. 84233 M BRIDGESTONE Fyrir malarvegi Nú eru fyrirliggjandi hjá hjólbaröasölum um land allt Bridgestone diagonal (ekki radial) hjólbaróar meó eóa án hvíts hrings. 25 ára reynsla Bridgestone á íslandi sannar öryggi og endingu. Gerió samanburö á veröi og gæöum. BRIDGESTONEá íslandi BÍLABORG HF. Smiöshöföa 23, sími 812 99.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.