Þjóðviljinn - 17.07.1982, Page 19

Þjóðviljinn - 17.07.1982, Page 19
Helgin 17,—18. júli 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 31 / Ymir strandar á Eldeyjardrangi Áhöfnin úr allri hættu Togarinn Ýmir frá Hafnarfirði strandaði um kl. eitt i fyrrinótt við Eld- eyjardrang út af Reykja- nesi. Ráðstafanir voru strax gerðar til björgunar og kom togarinn Vigri tilaðstoðarog tókÝmi itog, en hann hafði þá losnað af sker- inu. Einnig var þyrla Landhelgis- gæslunnar send með dælur sem teknar voru um borð i Ými, en gat hafði komið á skrokk skipsins og flæddi sjór inn i lestarnar. Fiórtán manna áhöfn var á Ými og voru ellefu mannanna teknir um borð i togskipið Heimi KE sem var kominn á slysstaðinn og siðan var hafist handa við að draga Ými að landi, i átt aö Kirkjuvogi. Skipið seig meir og meir eftir þvi sem miðaði i átt að Kirkjuvogi, en dæluútbúnaðurinn haföi engan veginn undan, þvi fiskur fór i dælurnar og þær stifl- uðust. Er skipin voru stödd út af Garðsskaga i gærmorgun var Ýmir farinn aö hallast það mikið að ekki var talið óhætt að láta mennina þrjá vera lengur um borö og voru þeir látnir yfirgefa skipið. Mjög vont veður var á þessum slóðum þegar slysiö gerðist og um hádegið i gær létu skipin reka út af Garðsskaga og ætluðu að freista þess að komast inn til Keflavikur eða Njarðvikur ef veður lægði. Ekki er vitað til að slys hafi orðið á rbönnum, en eig- andi togarans Ýmis er Stálskip hf. i Hafnarfirði. —áþj. Óttast um tríliu Fannst skammt frá Þormóðsskeri Meinleg villa varð i frétt um ár- legan umreikning tekjutrygging- ar ellilifseyrisþega i þriðjudags- blaðinu. Grunnellilifeyrir ein- staklings er 1.992 kr. á mánuði en Leiðrétting Óttast var um tveggja tonna trillu frá Keflavik, Arnarnes KE 111, með tveim mönnum innan- borðs í óveðrinu sem gekk yfir suð-vestur-horn landsins i fyrri- nótt. Gæsluvél Landhelgisgæslunnar var send til leitar og fann hún trilluna um tiuleytiö i gærmorgun skammt frá Þormóðsskeri. Slysavarnafélagið sendi þegar út tvo báta til að aðstoða Arnarnes og fundu þeir trilluna laust fyrir kl.13.30 i gær og fylgdu henni til hafnar á Akranesi. — áþj. ekki 3.586 kr. eins og skilja má af fréttinni. Grunnellilifeyrir hjóna er hins vegar 3.586 kr. á mánuði, eða 1.793 kr. á hvort um sig. Full tekjutrygging einstaklings er 2.121 kr. á mán. og 3.586 kr. fyrir hjón, en tekjutrygging getur skerst vegna ýmissa launaþátta, s.s. eftirlauna, arðs af hlutabréf- um, húsaleigutekjum o.s.frv. Undirritaður biður lesendur velvirðingar á þessum mistökum. — áþj. Ekki Pálmi í viðtali við Pálma Jónsson landbúnaðarráðherra á forsiðu Þjóðviljans i gær var sagt að hann gegndi embætti forsætisráð- herra i fjarveru Gunnars Thor- oddsen. Hið rétta er að Friðjón Þórðarson dómsmálaráðherra gegnir störfum forsætisráðherra. Deiliskipulagið norðan við Grafarvog Fagleg þekking nú hunsuð — segir Sigurður Harðarson formaður skipulagsnefndar. Til greina kemur að taka Keldnaland eignarnámi, segir Davíð Oddsson borgarstjóri Það kom fram i máli Daviðs Oddssonar nýkjörins borgar- stjóra i Reykjavik að áætiað er að á hinu nýja by ggingarsvæði Reykvikinga norðan Grafarvogs megi úthluta 2 þús. lóðum. Þetta verður fyrirmyndarbyggð, sagði Ilavið viðuinræður i borgarstjórn á fim intudagskvöldið. Sam- kvæmt skipulagsforsögn munu 55% lóða á svæðinu að vera undir einbýlishús, 30% undir raðhús og 15% undir ibúðir i fjölbýlishúsum. Þriðja parti lóða mun.ef áætlanir hins nýja meirihluta ganga upp, verða úthlutað næsta vor. 1 umræðunum i borgarstjórn Reykjavikur siðastliðið fimmtu- dagskvöld réðist Sigurður Harð- arson harkalega á áætlanir Sjálf- stæðisflokksins. Hann kom m.a. inná þær hugmyndir sjálfstæðis- manna að taka Keldnaland þar sem tilraunastöð Háskólans er staðsett, eignanámi, og sagði þessar hugmyndir þannig settar fram að þær væru hrein storkun við þá aðila sem siðar gengu til samninga við Reykjavikurborg. hreint einsdæmi i vinnubrögðum hvernig gerð deiliskipulagsins norðan Grafarvogs væri komið fram. Þarna væri i raun 170 hekt- ara óskilgreint svæði. Gengið hefði verið algerlega framhjá allri umfjöllun um hið nýja bygg- ingasvæði og fagleg þekking hunsuð. Borgarskipulag Reykja- vikur væri ýtt til hliðar. Allar hugmyndir um uppbyggingu svæðisins væru m jög á reiki, hvar þjónustumiðstöðvum ætti að koma fyrir, hvernig vegakerfi yrði háttað o.s.frv. 1 lok máls sins óskaði Sigurður þess aðþetta væri byrjunin á slik- um vinnubrögðum og jafnframt endirinn á þeim. Sólrún Gisladóttir talaði fyrir hönd Kvennaframboðsins og lýsti furðu sinni á þvi að ekki hefði far- ið fram nein samkeppni um skipulagningu svæðis sem væri á stærð við Breiðholtið. Þess i stað hefðu verið tveir arkitektar, þeir Hilmar Ólafsson og Hrafnkell Thorlacius og sagði Sólrún að þar væri á ferðinni skýrt dæmi um pólitiskar mannaráðningar sjálf- stæðismanna. Gerður Steinþórsdóttir talaði fyrir hönd Framsóknarflokksins lýsti vanþóknun sinni á vinnu- brögðum meirihlutans. Fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins gekk fyrstur manna i pontu Páll Gislason. Hann talaði 110 minútur og var umfjöllun hans efnislega á þá leið, að sjálfstæðismenn ætl- uðu að láta hendur standa fram úr ermum. Þá tók borgarstjóri, Davið Oddsson, til máls og sagðist hann ekkert skilja i þvi hvað Kvenna- framboðið væri að gera i borgar- stjórn. 1 sambandi við Keldna- land sagði hann að væri óþolandi ef einhverjir einkaaðilar ætluðu að standa gegn eðlilegri þróun borgarinnar. Davið sagði að I menn væru með hinn undarleg- j asta fyrirslátt eins og þann að . ekki væri ráðlegt að byggja á I landi Keldna. Sagðist Davið hafa ekið upp að Keldum og ekki orðið var við neina slika hættu. —hól. Ekkí er ráð nema í tírna sé tekið Væntanlega hefði sumarhýran enst betur með skynsamlegri varðveislu. Þjónusta ráðgjafans í Útvegsbankanum stendur öllum viðskipamönnum hans til boða, og hún veitist þeim ókeypis. Nánari upplýsingar á öllum afgreiðslustöðum bankans. ÚTVEGSBANKINN Einmitt bankinn fyrir þig.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.