Þjóðviljinn - 24.09.1982, Blaðsíða 2
t
síoan
2 SIÐA— ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 24. scptcmbcr 1982
Isfirðingur
með eigið
leikrit
Það cru líklega ckki margir
húsasmiðir á landinu scm fást við
að skrifa leikrit. Einn cr þó á Isa-
Firði Jón Steinar Ragnarsson, en
Litla lcikfélagið ætlar að hefja
æfingar á farsa eftir hann innan
skamms.
í ísfirska fréttablaðinu segir að
leikklúbburinn fórtil Danmerkur
í leikför s.l. vor. Þá segir einnig í
Jón Stcinar leikritahöfundur og
húsasmiður á ísafirði.
sama blaði að Litli leikklúbbur-
inn fái mjög lofsamleg ummæli í
Svenska dagbladet, en gagnrýn-
andi blaðsins var hér á landi í vor í
tilefni af þingi norræna leiklist-
arsambandsins. Þykir það mikl-
um tíðindum sæta að 3000 manna
fiskveiðibær við Norður-íshafið
skuli geta státað af mennningar-
starfsemi í þeim gæöaflokki og
þarna var á ferðinni.
Útvarp
Austurland
Bókaútgáfa á
nítjándu öld
Frá postillu
til prédikana
Bókaútgáfa á íslandi ar ekki
sérlega fjölskrúðug framan af
nítjándu öldinni a.m.k. Það þótti
því ekki svo lítill viðburður þegar
út komu í Viðey, árið 1821,
Helgidagaprédikanir eftir sr.
Árna Helgason, dómkirkjuprest.
Voru þá rúm 100 ár liðin frá því
að Jón biskup Vídalín gaf út
Húspostillu sína, þá bragðmiklu
bók.
Á þessum bókum var þó sá
munur, að prédikanir Vídalíns
voru ekki fluttar af prédikunar-
stól heldur ætlaðar Islendingum
til lesturs í heimahúsum en pré-
dikanir sr.Árna voru stólræður.
Innihald bókanna var og ólíkt að
því leyti, að Vídalín var harðsvfr-’
aður hreintrúarmaður, sem ógn-
aði löndum sínum ákaft með and-’
skotanum og öllu hans fylgifé, en
sr. Árni aðhylltist hinsvegar
upplýsingarstefnuna í sínum boð-
skap.
Og nú rættist loksins úr með
geymslustað fyrir stiftsbókasfnið
og biskupsskjalasafnið því veittar
voru 420 spesíur til þess að setja
upp hillur fyrir þau á dómkirkju-
loflinu.
- mhg.
Ragnheiður við störf sín.
Ragnheiður Jónsdóttir hlaut nýlega verðlaun
á alþjóðlegum grafikbiennal í Noregi
Tómstundaiðja
Molina
ofursti í
framboð
Antonio Tejero Molina, liðsfor-
inginn í spánska varðliðinu sem
gerði vopnaða valdaránstilraun í
spánska þinginu í febrúar 1981 og
var dæmdur í 30 ára fangelsi fyrir
vikið, hefur ákveðið að bjóða sig
fram til þings í næstu kosningum
á Spáni fyrir flokk sem hann hef-
ur nýlega stofnað ásamt með öðr-
um öfgamönnum til hægri,
„Spánska samstöðuflokkinn“.
Tejero birti opinbera yfirlýsingu
um þessi áform sín í blaðinu „Di-
ario 16“ nýverið, og lét þess jafn-
framt getið að hann myndi segja
sig úr varðliðinu „Guardia civil“.
Þar sem endánlegur dómur
fyrir hæstarétti er ekki fallinn í
máli liðsforingjans hefur hann
enn ekki misst borgararéttindi
sín, og því mun formlega séð ekk-
ert vera því til fyrirstöðu að
hermaðurinn sem eitt sinn ógnaði
öllum þingheimi með vopni sínu
gangi á ný í þingsal sem lýðræðis-
lega kjörinn fulltrúi.
Hefur fyrst og
fremst kynningargildi
„Verðlaunaveitingar af þessu
tagi hafa fyrst og fremst kynning-
argildi fyrir listamanninn. Oft er
það svo að verk eftir viðkomandi
fá sérstakt rými á næstu sýningu
og getur það skipt miklu máli
fyrir listamanninn“, sagði Ragn-
heiður Jónsdóttir, grafiklista-
maður en hún fékk nú nýlega
verðlaun á alþjóðlegum gralikbi-
cnnal í Fredrikstaö í Noregi.
Þetta er í þriðja skipti sem hún
hlýtur alþjóðlega viðurkenningu
fyrir grafíkverk sín. 1976 hlaut
hún verðlaun í Þýskalandi og
1978 á Spáni, hvort tveggja á alþ-
jóðlegum bicnnal.
„Því miður veit ég ekki nógu
mikið um þessi verðlaun í Nor-
egi, því það segir ekkert nánar í
verðlaunaskjalinu. Væntanlega
fæ ég nánari fregnir lljótlega.
hvað þetta þýðir. En það kemur
hins vegar frani í bréfi sem ég
fékk með verðlaunaskjalinu að
dómnefndin er skipuö ntönnum
frá Noregi, Spáni, Sovétríkjun-
um, Colombíu og Japan", sagði
Ragnheiður. Við spurðum hana
Annað verka Ragnheiðar, sem sýnt var í Noregi.
hvað hún væri að fást við í augna-
blikinu:
„Ég er að vinna verk fyrir sér-
staka möppu sem verður seld í 80
eintökum til ágóða fyrir alþjóð-
legt þíng myndlistarmanna, sem
haldið verður í Finnlandi næsta
sumar. Valdir voru 5 listamenn
frá Norðurlöndunum til að gera 5
grafikverk, sem síðan verða sett í
þessa möppu og hún seld til að
standa straum af kostnaði. Ég er
kornin nokkuð langt á veg nteð
þetta og vonast til að geta sent
þetta út fljótlega," sagði Ragn-
heiður.
Á nýloknum aðalfundi Sam-
bands sveitarfélaga í Austur-
landskjördæmi, sern haldin var á
Egilsstöðum um s.l. mánaðarmót
voru gerðar ýmsar samþykktir og
meðal annars eftirfarandi:
Landshlutaútvarp
á Austurlandi
Aðalfundur S.S.A., haldinn á
Egilsstöðum í ágúst 1982, fagnar
stofnun deildar Ríkisútvarps á
Akureyri.
Aöalfundurinn telur, að út-
varp Akureyri sé fyrsta skrefið á
þeirri leið að landshlutaútvarp
verði í hverjum landsfjórðungi.
Fundurinn felur stjórn sam-
bandsins að hefja viðræður við
yfirstjórn Ríkisútvarpsins, þ.m.t.
yfirvöld mennta- og fjármáía, um
stofnun landshlutaútvarps á
Austurlandi.
Úr „Austurlandi"
9. september
Pappírspot
„Pappírspot“ gæti þessi tóm-
stundaiðja kallast, en hún er
mjög vinsæl um þessar mundir.
Hún felst í því að gera myntsur í
pappír með oddhvassri nál.
Pappírinn er klipptur til og
þetta er notað sem borðskraut,
bréfsefni, hillublúnda, lampa-
skermur og jafnvel gluggatjöld.
Einfaldara getur það tæplega ver-
ið - aðeins að stinga í gegnum
pappírinn og búa þannig til myn-
stur. Pappírinn þarf að vera frem-
ur þykkur og þéttur.
Hér sjáum við hillublúndu sem
svona er gerð og mynstrið fylgir
ef einhver vill reyna.