Þjóðviljinn - 24.09.1982, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 24.09.1982, Blaðsíða 3
Útvarpsávarp Vigdísar forseta í gær: Föstudagur 24. september 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3 „Kristján Eldjárn — dáður vinur vor allra” Góðir íslendingar. Vér höfum í dag kvatt dr. Krist- ján Eldjárn, fyrrverandi forseta ís- lands, með virðingu og einlægu þakklæti fyrir störf hans í þágu þjóðar vorrar. Fámenn þjóð, eins og vér íslend- ingar erum, á einatt bágt með að sjá á bak sérhverjum einstaklingi | er ekki hefur lokið því ævistarfi sem vonað var að honum mundi í auðnast. Vér vitum öll að dr. Krist-! ján, hefði honum veist líf og heilsa, | átti margt eftir að segja oss og gefa. , Dr. Kristján Eldjárn var maður vits og þekkingar sem mat til jafns hönd og huga í menningu vorri. Engan hef ég þekkt sem hefur búið • yfir ríkara skilningi á því að þjóð- j menningu vorri er ekki skipt eftir 1 stéttum - því, hvar eða hvernig vér leggjum hönd á plóginn. Ólík störf manna skapa eina heild. Dugnaður hvers og eins á sínu sviði er sama nauðsyn - sem myndar þjóðarstolt og þjóðarmenningu. Vér íslendingar teljumst dug- mikið fólk. Sérhæfni dr. Kristjáns Eldjárns var að Ijúka upp dyrum til víðtækara skilnings vor nútíma- manna á fortíðinni. Þess verður oss ávallt unun að minnast. Hann tjáði sig betur á íslenska tungu með fleygri hugsun en nokkru sinni verði þakkað til fullnustu. Oss verður ávallt unun að lesa lýsingar hans á fornminjum vorum sem hann átti svo drjúgan þátt í að leita uppi. Og ég hef þá trú að hann hafi haft yndi af að fara mjúkum hönd- um um móðurmoldina er hann var að leita sannindanna um fortíð vora. Enginn sem lesið hefur lýs- ingu hans á fundi verktækja „Hannyrðakonu úr heiðnum sið” að Daðastöðum í Núpasveit mun ; nokkru sinni gleyma þeirri fortíð ! sem dr. Kristján Eldjárn óskaði að vér mættum muna né hlýjunni til þeirra muna sem hann dró fram í dagsljósið í bók sinni „Hundrað ár í Þjóðminjasafni”. Þótt Kristján Eldjárn, dáður vin- ur vor allra, hafi fallið frá miklu fyrr en skyldi skulum vér ekki gleyma því að hann var gæfumað- ur. Hann var prýddur þeim gáfum og sjálfsaga að hann vann af einurð að gæfu sini, - þeirri gæfu að kunna að gefa og laða fram hið besta er býr í hverjum þeim sem á vegi hans varð, og verða óumdeilanlegur fulltrúi heillar þjóðar. Hann átti góða og trausta konu og bjó við barnalán umkringdur ástsæld allra sem fengu að kynnast honum, - ástsæld vor íslendinga allra. Ég veit mig mæla fyrir munn allra fslendinga þegar ég að Krist- jáni Eldjárn gengnum votta nán- ustu fjölskyldu hans og ætt- mönnúm öllum dýpstu santúð. Vér vitum, íslensk þjóð, að aldrei fyrn- ist ntinningin um góðan dreng meðan þjóð vor lifir. Vér tregum mætan mann, fyrrverandi forseta íslands, sem var og verður oss leiðarljós til þjóðareiningar og þjóðarheilla. Leiðréttlng í minningarorðum um dr. Krist- ján Eldjárn eftir Ólaf Jóhann Sig- ur'ðsson sem birtust í Þjóðviljanum í gær brenglaðist sögn ein, og hafði höfundur þó beðið ritstjórn að sjá til þess, að hún kæmist heil á húfi gegnum prentsmiðjuna. Rétt er upphaf þeirrar setningar þannig: - Þá fer bezt á því að drúpa einungis höfði... Þjóðviljinn harmar þau leiðu mistök, sem þarna urðu, og biður velvirðingar á þeim. Tekið skal fram, að síðasta próf- örk að greininni var ekki lesin af prófarkalesurum blaðsins og villan því ekki á þeirra ábyrgð, heldur rit- stjórnar. Kista dr. Kristjáns borin úr kirkju. Þeir sem báru kistuna voru, taldir f.v.: Hannes Pétursson skáld, Bjarni Vilhjálmsson þjóðskjalavörður, Guðmundur Magnússon háskólarektor, Þór Magnússon þjóðminjavörður, Andrés Björnsson útvarpsstjóri, Jón Helgason forseti sameinaðs þings, Logi Einarsson forseti hæstaréttar og Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra. Ljósm.: gel. Viröuleg ogfjölmenn útför dr. Kristjáns Eldjárns Útför dr. Kristjáns Eldjárns, fyrrv. forseta íslands, var gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í gær og var niikið fjölmenni við hana. Meðal viðstaddra voru forseti íslands, ráðherrar, þingmenn og sendiherrar erlendra ríkja. Auk þeirra sem viðstaddir voru, má ætla að meiri hluti þjóðarinnar hafi fylgst með útförinni í útvarpi og sjónvarpi, en fiestar stofnanir og fyrirtæki gáfu frí frá vinnu meðan hún fór fram. Fánar blöktu í hálfa stöng um allt land, og hvarvetna mátti finna hvílík ítök hinn látni forseti hafði meðal þjóðarinnar. Fyrir útförina lék Lúðrasveit Reykjavíkur sorgarlög en athöfn- in hófst á sorgargöngulagi úr 3. sinfóníu Beethovens sem Mar- teinn H. Friðriksson dómorgan- isti lék. Þeir sálmar sem fluttir voru við athöfnina voru Á hend- ur fel þú honum, Hærra minn guð til þín, Heyr himnasmiður (eftir Kolbein Tumason) og Allt eins og blómstrið eina. Sr. Þórir Step- hensen dómkirkjuprestur las úr ritningunni og sr. Ólafur Skúla- son dómprófastur flutti bæn. Biskupinn yfir íslandi herra Pét- ur Sigurgeirsson jarðsöng. Á undan ræðu hans lék Guðný Guðmundsdóttir einleik á fiðlu, Máríuvers eftir Pál ísólfsson, en eftir ræðu hans var sungið ísland ögrum skorið. Þeir sem báru kistuna úr kirkju voru Gunnar Thoroddsen forsæt- isráðherra, Jón Helgason forseti sameinaðs alþingis, Bjarni Vil- hjálmsson þjóðskjalavörður, Guðmundur Magnússon háskól- arektor, Hannes Pétursson skáld, Þór Magnússon þjóðminj- avörður, Andrés Björnsson út- varpsstjóri og Logi Einarsson Fyrir altari; kistan sveipuð íslenska fánanum. Mikill fjöldi blómakransa barst vegna útfararinnar. Ljósm.: gel. Líkfylgdin ekur suður Fríkirkjuveg. Skátar standa heiðursvörð. Ljósm.: gel. forseti hæstaréttar. Flutt var Fyrir kirkjudyrum var þjóð- Jarðsett var í Fossvogskirkju- Chaconne um stef úr Þorlákstíð- söngurinn leikinn, en lögreglan garði. um eftir Pál fsólfsson. og skátar stóðu heiðursvörð. — GFr

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.