Þjóðviljinn - 05.10.1982, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 05.10.1982, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 5. október 1982 iþróttir Umsjón: Viðir Sigurðsson Enska knattspyrnan: Skallamark D’Avray skellti meisturunum Liverpool heldur þó forystunni í 1. deild Þar kom að því að Englandsmeistarar Liverpool töpuðu leik. Á laugar- dag sóttu þeir Ipswich heim á Portman Road og máttu þar þola sinn fyrsta ósigur á keppnistímabilinu. Leikurinn var jafn lengi vel en Ipswich lék betur í síðari hálfleik og sigurinn var verðskuldaður. Markið kom þó seint, aðeins fimm mínútum fyrir leikslok skallaði hinn suður-afríski Mich D’Avray glæsilega í mark og tryggði Ipswich sinn annan sigur í röð eftir herfilega byrjun í deildinni. Ipswich lék án Paul Mariner og Alan Bra/il en það kom ekki að sök. Úrslit í tveimur eftsu deildunum á Englandi á laugardag: 1. deild: Arsenal - West Ham 2-3 Birmingham-Watford 1-1 Everton- Brighton 2-2 Ipswich - Liverpool 1-0 Luton-Manch.United 1-1 Manch.City- Coventry 3-2 Nottingham For. - Stoke 1-0 Southampton — Notts County 1-0 Sunderland - Norwich 4-1 2-0 W.B.A.-Aston Villa 1-0 2. deild Barnsley - Fulham 4-3 Blackburn - Sheff ield Wed 2-3 Bolton-Crystal Palace 1-0 Carlisle-Wolves 0-2 Charlton - Derby County 1-1 Chelsea - Grimsby 5-2 Leeds - Cambridge 2-1 Middlesboro- Oldham 1-1 Q.P.R.-Burnley 3-2 Rotherham- Newcastle 1-5 Shrewsbury - Leicester 0-2 Justin Fashanu er í láni hjá Southam- pton frá Notting- ham Forest og hefur skorað sigurmörkin í báðum sigur- leikjum Southam- pton í 1. deildinni til þessa. Liverpool heldur þó forystunni því Watford og Manchester United geröu bæöi jafntefli. Watford stefndi þó í sigur í Birmingham eftir aö Luther Blissett haföi skorað snemma leiks en Kevin Summerfield, stuttu kominn frá nágrönnunum WBA, jafnaði skömmu fyrir leikslok eftir að hafa komið inná sem varamaður. Man.Utd náði einnig snemma forystu í Lutön með marki Ashley Grimes, en Ricky Hill náði að jafna með skaila um miðján síðari hálfleik. West Ham er komið í toppbar- áttuna og kemur það engum á óvart. Francois van der Elst, Paul Goddard og Alvin Martin skoruðu fyrir liðið á Highbury en Brian Tal- bot og Paul Davis fyrir Arsenal sem blandar sér í fallbaráttu með þessu áframhaldi. Swansea lifnaði við gegn Totten- ham eftir slaka leiki að undanförnu og Max Thompson og Bob Latch- ford skoruðu mörk velsku bikar- meistaranna gegn ensku bikar- meisturunum. Garry Birtles á hvergi heima nema hjá Nottingham Forest, þar skorar hann reglulega. Hann sá um sigurmarkið gegn Stoke eftir klukkustundar leik. Þrjá knetti þurfti til að ljúka leik Man.City og Coventry. Sá fyrsti sprakk, annar aflagaðist en sá þriðji entist út leikinn. Graham Baker, Tommy Caton og David Cross skoruðu fyrir City en Jim Melrose og Garry Thompson fyrir Coventry. Það var gífurleg barátta í leik nágrannanna WBA og Aston Villa 'og Nicky Cross tókst að skora t sigurmark WB A í síðari hálfleik og 'stöðvaði þar með fjögurra leikja sigurgöngu Evrópumeistaranna. Miklar sveiflur hjá Sunderland, síðast 0-8 tap gegn Watford og nú 4- 1 sigur á Norwich. Gary Rowell 2, Ally McCoist og John Cooke skoruðu fyrir Sunderland en Dave Bennett eina mark Nowich sem á erfiðan vetur framundan. Justin Fashanu skoraði sigur- mark Southampton gegn Notts Co- unty en í lið Southampton vantaði þá Steve Moran og Mark Wright sem eru í höndum sænskra yfir- valda eftir að hafa fengið á sig nauðgunarákæru þar í landi eftir Evrópuleik Southampton í Norr- köping síðasta miðvikudag. Svíar vilja einnig koma höndum yfir Ste- ve Williams og Peter Wells af sömu ástæðu. Adrian Heath og Billy Wright skoruðu fyrir E.verton en Mick Ro- binson og Jimmy Case fyrir Brig- hton. Fyrstu mörk Robinson og Case á keppnistímabilinu en þeir eru vanir að vera drjúgir upp við mark andstæðinganna. Keegan skoraði 4! Kevin Keegan, fyrrum fyrirliði enska landsliðsins, skoraði fjögur mörk þegar Newcastle sigraði Rot- herham5-l á útivelli í2. deildinni. Terry McDermott lék sinn fyrsta leik fyrir Newcastle eftir söluna frá Liverpool og átti stóran þátt í sigr- inum. Lincoln City er í efsta sæti 3. Staðan: 1. deild: Liverpool............8 5 2 19-7 17 Manch.United........8 5 2 1 14-6 17 Watford.............8 5 1 2 20-6 16 WestHam.............8 5 1 2 18-8 16 W.B.A...............8 5 0 3 16-9 15 Manch.City.........8 5 0 3 10-10 15 Tottenham..........8 4 1 3 17-11 13 StokeCity..........8 4 1 3 17-14 13 ' Aston Villa.......8 4 0 4 12-12 12 Nott.Forest........8 4 0 4 14-16 12 Brighton...........8 3 2 3 8-19 11 LutonTown..........8 2 4 2 21-19 10 CoventryCity.......8 3 14 10-11 10 SwanseaCity........8 3 14 10-12 10 Sunderland.........8 3 1 4 11-16 10 IpswichTown.........8 2 3 3 14-11 9 Everton.............8 2 2 4 14-13 8 Arsenal..............8 2 2 4 8-9 8 NottsCounty..........8 2 2 4 6-16 8 Southampton..........8 21 54-187 NorwichCity........8 1 3 4 11-17 6 Birmingham...........8 1 2 5 4-19 4 2. deild: Wolves..............8 6 2 0 14-1 20 GrimsbyTown.........8 6 1 1 19-9 19 Sheffield Wed.....8 6 0 2 21-13 18 Q-P.R..............9 5 2 2 12-8 17 Fulham............8 4 2 2 17-12 14 LeedsUnited.........7 4 2 1 11-8 14 Chelsea.............8 3 3 2 12-8 12 Barnsley............7 3 3 1 11-9 12 Crystal Palace......8 3 3 2 11-9 12 Newcastle.........8 3 2 3 13-11 11 Leicester...........8 3 14 14-9 10 Oldham..............8 2 4 2 9-10 10 Carlisle..........8 3 14 15-19 10 Shrewsbury..........8 3 0 5 7-11 9 Blackburn...........8 3 0 5 12-17 9 Rotherham...........8 2 3 3 10-15 9 Charlton............8 2 2 4 10-16 8 Burnley............7 2 14 12-12 7 Bolton...............8 2 1 5 7-13 7 Cambridge............9 1 2 6 9-16 5 DerbyCounty..........7 1 2 4 6-13 5 Middlesboro..........8 0 3 5 7-21 3 Slegist í Firðinum Keppni í 1. deild kvenna í handknatteleik hófst um helgina og voru fjórir leikir á dagskrá. Nýliðar Þórs frá Akureyri léku syðra við Fram og FH og máttu þola stórtöp í báðum leikjum, 25-11 gegn Fram og 24-12 gegn Íslandsmeisturum FH. Valur sigraði KR 13-9 og Haukar og Víkingur gerðu jafntefli, 13-13, í miklum slagsmálaleik í Hafnar- firði.______________- VS Grótta á toppinn Nýliðar Gróttu tóku forystuna í 2. deild karla í handknattleik á sunnudag er þeir sigruðu Breiðablik 22-21 að Varmá. Önnur úrslit um helgina: KA- Haukar 25-23, Þór Ve,- Afturelding 20-20 og Ármann- HK 20-20. Staðan í 2. deild: Grótta.......2 2 0 0 51-44 4 Afturelding..3 1 2 0 52-51 4 ÞórVe.......4 12 1 81-85 4 Breiðablik...3 1 1 1 62-59 3 HK...........3 1 1 1 59-57 3 Ármann.......3 0 3 0 55-r55 3 KA...........3 1 1 1 64-65 3 Haukar.......3 0 0 3 57-65 0 deiidar með 18 stig. Oxford hefur 17, Cardiff lóogSouthend 15. Tor- quay 17, Wimbledon og Scunt- horpe 16 hvort eru efst í 4. deild en Bristol City, 1. deildarlið fyrir, þremur árum, er í þriðja neðsta j sæti með aðeins fimm stig. Blökkumennirnir Luther Blis-' sett hjá Watford og Brian Stein, Luton, eru markahæstir í 1. deild með 8 mörk hvor en Bob Latch- ford, Swansea, kemur næstur með 6. Jóhannes skoraði Jóhannes Eðvaldsson skoraði: mark fyrir Motherwell í skosku úrvalsdeildinni á laugardag, en það dugði ekki til því Aberdeen sigraði 2 - 1. Motherwell er neðst deildinni með eitt stig en Celtic er á toppnum með 9 stig. -VS Lítill varnarieikur og mark á mínútu Það hefur oft sést betri varnarleikur í Laugardalshöllinni en á laugarag- inn þegar Fram og FH léku þar í 1. dcild karla í handknattleik. Mikið skorað, nánast mark á mínútu, og að auki vörðu markmenn liðanna, sérstaklega Sverrir í FH-markinu ágætlega. Þegar upp var staðið úr stórskotahríðinni skildu níu mörk liðin að, FH sigraði með 34 mörkum gegn 25. Framarar héldu í við FH-inga framan af og sýndu þá sitt besta til þessa á íslandsmótinu.Vendipunkt- urinn í leiknum var þegar staðan breyttist úr 9:8 fyrir Fram í 13:9 fyrirFH. Allt jafnvægi hvarfúrleik Framara og þeir voru aldrei líklegir til afreka eftir það. í hálfleik var staðan 17:12, FH í hag en síðari hálfleikurinn var ansi sveiflukenn- dur framan af. 20:13, 20:17, og 25:17 og FH komst í 27:18 en eftir það var iífinu tekið með ró og yngri mönnum gefið tækifæri á að spreyta sig. Þeir skiluðu sínu, níu marka munurinn hélst til leiksloka, 35:24. Sigur í léttara lagi hjá FH en framan af gerðu menn sig seka um ýmis mistök, bæði í vörn og sókn, og þurftu virkilega að hafa fyrir hlutunum til að ná afgerandi for- ystu. Kristján Arason skoraði nokkur falleg mörk og var marka- hæstur að vanda með 8 mörk. Hann var þó tekinn úr umferð lengst af og sat síðan á bekknum góða stund í síðari hálfleik. Guð jón Guðmundsson vakti nokkra athygli og er góður liðsauki fyrir Hafnarfjarðarliðið. Hann skoraði 6 mörk, Guðmundur Magnússon og Pálmi Jónsson 5 hvor. i Framarar virðast ekki getað haldið einbeitingu heilan hálfleik, hvað þá meira, en þó sjást æ meiri bata merki á liðinu með hverjum leik. Sóknin er einum of ráðleysis- leg en því ætti að vera hægt að < kippa í lag því skytturnar eru fyrir hendi. Hannes Leifsson, Erlendur Davíðsson og Hermann Björnsson voru bestu menn liðsins en Hannes og Dagur Jónasson skoruðu 5 mörk hvor, Hermann og Egill Jó- hannesson 4 hvor. - VS Valur Ingimundarsun, Njarðvík, teygir sig lengra en Doug Kitzinger Framari. Mynd: -eik Þriðjudagur 5. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 íþróttir Umsjón: VíöirSigurðssQn Þróttarar hrundu í síðari hálfleik Þróttarar mega taka sig verulega á ef þeir eiga að ftomast í hóp þeirra tjögurra liða sem munu berjast um íslandsmeistaratitilinn í handknattlcik. Tveir tapleikir í röð gegn hættulegum keppinautum, KR, og Val og það með slíkum mun, 10 og 9 mörkum, að stefnir í.vandræði. Á laugardaginn, stuttu eftir slæman dag gegn KR-ingum féll allur leikur liðsins saman eftir allgóðan fyrri hálfleik. Það er greinilegt að rnikil blóðtaka var að missa Sigurð Sveinsson og bróðir lians Guðmund Sveins- son kemur hvergi nærri til með að fylla hans skarð, hefur þess utan leikið illa meiddur í tveim síðustu leikjum, en komist furðanlega vel frá hlutverki sínu. Leikur Þróttar á laugardaginn einkenndist af slakri markvörslu, engri ógnun í hornum og línu og lánlausum sóknaraðgerðum. Fyrri hálfleikur var þó þokkalega leikinn af Þróttara hálfu. Valsmenn skoruðu þrjú fyrstu mörkin, en Þróttarar voru fljótir að jafna. Síðan einkenndist seinni partur hálfleiksins af mikilli baráttu, staðan í liléi jöfn 9:9. I síðari hálfleik hrundi leikur Þróttar. Þeir áttu fyrsta orðið með marki Ólafs H. Jónssonar, síðan jafnaðist staðan en þegar leikar stóðu 12:12 skoruðu Valsmenn fjögur mörk í röð og gerðu beinlínis út um leikinn. Lokatölur urðu 23:14. Valsmenn misstu Brynjar Harðarson út af undir lok seinni hálfleiks illa meiddan á fæti, en óbrotinn, en við það kom Þorbjörn Guðmundsson, sem átti ágætan leik, nieira inn í myndina. Theódór Guðfinnsson átti stórgóðan leik og er orðinn geysilega sterkur hornanraður og í markinu varði Einar Þorvarðarson geysilega vel. Það var eftirtektarvert að eftir að Valsmenn náðu hinu mikla forskoti sínu slökuðu þeir aldrei á og létu Þróttara ekki komast upp með neinn moðreyk. Mörk Vals: Theódór 7, Þorbjörn 4, Jákob 3, Júlíus 3, Brynjar 2, Jón Pétur 2, Gunnar og Þorbjörn Jensen eitt rnark hvor. Mörk Þróttar: Guðmundur Sveinsson 5 (misnotaði þrjú vítaköst), Konráð 5, Páll 3, Gísli og Ólafur H. Jónsson eitt mark hvor. - hól. Staðan: Staðan í 1. deild karla í hand- knattleik eftir léiki helgarinnar: Markhæstir: FH .... KR.... Valur Víkingur Þróttur. Stjarnan Fram.... ÍR... ...4 ....4 ....4 ...3 ...3 106-83 6 85-67 6 81-68 6 82-78 6 72-82 4 79-83 2 58-80 0 45-67 0 Kristján Arason, FH.............31 Eyjólfur Bragason, Stjörnu.......30 Anders Dahl Nlelsen, KR..........19 Pálmi Jónsson, FH...............19 Alfreð Gíslason, KR..............18 GuðmundurSveinsson, Þrótti.......18 ÓttarMathiesen, FH...............18 Fram og ÍR leika í Laugardals- höllinni í kvöld kl. 20. Sá nýi skor- aði 42 stig Leikur Fram og Njarðvíkur í úrvalsdeildinni í körfuknattleik á laugardaginn leiddi í ljós að bæði þessi lið, scm voru í tveimur efstu sætum deildarinnar í fyrra, eiga nokkuð í land með að ná sama styrk- leika og þá. Bæði söknuðu góðra leikmanna, einkum Frainarar, og það voru íslandsmeistarar Njarðvíkur sem sýndu heilsteyptari leik og sigruðu nokkuð örugglega með 80 stigum gegn 71. Fram komst fljótlega í 12-4 en Njarðvíkingar jöfnuðu og komust yfir, inest 25-20, en í hálflcik var staðan jöfn, 37-37. Upphafsmínútur síðari hálfieiks gerðu síðan útslagið, Njarðvík komst í 49-43 og síðan 59-49 og þar með var grunnurinn lagður. Framarar minnkuðu muninn í 73-68 þegar stutt var eftir en nær komust þeir ekki og níu stigum munaði í lokin. Njarðvikingar hafa niisst landsliðsmiðherjann Jónas Jóhanncsson en nýi Kaninn, Alex Gilbert, er öfiugur miðherji og ótrúlega snöggur. Ilann skoraði drjúgt, 32 stig, en auk hans áttu Árni Lárusson og Gunnar Þorvarðarson bestan leik. Valur Ingimundarson átti ágæta kafia. Árni skoraði 15 stig, Valur 14 og Gunnar 12. Framarar söknuðu Símonar Ólafssonar illilcga en hann tognaði á fæti á æfingu og verður frá keppni fyrst um sinn. Að auki vantar þá Viðar Þorkelsson og Guðstein Ingimarsson og breiddin því lítil. Þeirra nýi Kani, Doug Kitzinger, var allt í öllu í sóknarleiknum og skoraði bróðurpart stiganna, eða 42. Þorvaldur Geirsson lék ágætlega og skoraði 14 en Ömar Þráinsson kom næstur með 7. -VS. 52 stig Johnson dugðu ekki á ÍBK Keflvíkingar fara vel af stað á þeirra fyrsta keppnistímabili í úrvals- deildinni í körfuknattleik. Á föstudagskvöldið fengu þeir KR-inga í heimsókn suður í Keflavík og sigruðu þá sannfærandi ineð 111 stigum gegn 94. í hálflcik var staðan 56-42 ÍBK í hag. Keflvíkingar héldu sínu striki í síöari hálfleik og voru tvívegis 22 stigum yfir, 91-69 og 101-79. KR saxaði aðeins á forystu þeirra undir lokin en öruggur sigur Keflvíkinga var staðreynd. Tim Higgins 30, Jón Kr. Gíslason 23, Þorsteinn Bjarnason 20 og Axel Nikulásson 16 skoruðu mest fyrir Keflavík en Stu Johnson 52, Páll Kolbeinsson 14 og Jón Sigurðsson fyrir KR sem er með ungt lið og blandar sér tæplega í toppbaráttuna í vetur. "“VS* Ragnar Hermannsson, hinn efnilegi hornamaður úr KR, lyftir sér inn í teiginn og skorar án þess að Einar Þorvarðarson, landsliðsmarkvörður úr Val, fái nokkruni vörnum við komið ■ leik liðanna í gærkvöldi. Mynd: -gel Góð liðsheild hjá V esturb æj arliðinu KR vann sannfærandi sigur á Val, 21 - 16, í 1. deild karla í handknattleik í gærkvöldi. Leikurinn var jafn frainan af en um miðbik síðari hálfieiks sigl- du KR-ingar framúr og eftir það höfðu þeir leikinn í hendi i sér. Valsmenn urðu því síðastir Tim Dwyer er byrjaður að láta að sér kveða í úrvalsdcildinni á ný- Öruggur sigur hjá Val Valsmenn sigruðu ÍR-inga nokkur örugglega, 82:68, í úr- valsdeildinni í körfuknattleik á sunnudagskvöldið. Leikurinn var jafn framan af en síðan komust Valsmenn framúr og höfðu tíu stig yfir í hálfieik, 39-29. I síðari hálfleiknum komst sigur Valsmanna aldrei í verulega hættu og fjórtán stig skildu liðin að í leikslok. Tim Dwyer er kom- inn til Valsmanna á ný og var stig- ahæstur með 27 stig. Ríkharður Hrafnkelsson skoraði 18 og Torfi Magnússon 12. Hjá ÍR bar mest á Kristni Jörundssyni sem skoraði 17 stig en Ragnar Torfason kom næstur með 14. -VS liða í deildinni til að tapa leik og nú eru fjögur lið jöfn með 6 stig, ekki ólíklegt að það verði ein- mitt þau tjögur sem berjist um íslandsmeistaratitilinn í vor. Leikurinn var hnífjafn fram í síð- ari hálfleik en í leikhléi voru KR- ingaryfir, 10-9. Aldrei hafði mun- að meiru en tveimur mörkum en þegar KR breytti stöðunni úr 13 - 12 í 16 - 12 voru úrslitin nánast korriin á hreint. Valur minnkaði muninn að vísu í 18 - 15 en KR svaraði með þremur, 21 - 15, en Steindór Gunnarsson átti síðasta orðið fyrir Val með snyrtilegu marki af línunni. Þetta var sigur liðsheildarinnar hjá KR og til niarks uni það skoruðu allir útispilararnir. Anders Dahl stjórnaði spilinu, Al- freð Gíslason alltaf ógnandi í sókn- inni, Ragnar Hermannsson skoraði lagleg mörk úr horninu, Jóhannes Stefánsson virkur á lín- unni, Friðrik Þorbjörnsson sterkur í vörninni, Jens Einarsson góður í markinu í síðari hálfleik og aðrir stóðu vel fyrir sínu. Alfreð skoraði 5 mörk, Haukur Geirmundsson 4 og Ragnar þrjú. Vörnin var sterkasti þátturinn í leik Vals og í sókninni lék Jón Pét- ur Jónsson ntjög vel. Einar Þorvar- ðarson sótti sig í markinu í síðari hálfleik og Gunnar Lúðvíksson var frískur. Jón Pétur skoraði 6 niörk, Gunnar 4 og Þorbjörn Guðmunds- son 2. Valur ætti að komast í fjög- urra liða úrslitin en sem stendur næði það tæplega frekari áfanga. -VS Spiimingm: Skor- ar ÍR tíu mörk?! Stjarnan úr Garðabæ þurfti ekki að hafa mikið fyrir hlutununi gegn ÍR í 1. deild karla í Laugardalshöll- inni á sunnudagskvöldið. Fyrir- fram heíði mátt búast við jafnari leik milli nýliðanna tveggja sem hvorugir höfðu hlotið stig í deildinni en Stjarnan tók forystuna þegar í upphafi og vann stórsigur, 23:14, og munurinn hefði hæglega getað orðið meiri. Stjarnan var komin í 7:2 um miðj- an fyrri hálfleik og síðan 9:3 en í hálfleik stóð 9:5. IR-ingar voru síð- an kafsigldir í byrjun síðari hálf- leiks, staðan orðin 15:6 og síðan 19:9, en þá fengu þeir yngri eld- skírnina og ÍR náði að laga stöðuna örlítið en lengi vel leit út fyrir að liðinu tækist ekki einu sinni að skora 10 mörk, hvað þá meira. Létt hjá Stjörnunni og liðið alla burði til að halda sæti sínu í deildinni. Góður varnarleikur og markvarsla Brynjars Kvaran eru undirstaðan og laglegir hlutir sjást í sókninni. Eyjólfur Bragason skoraði flest mörk, 9, Ólafur Lár- usson og Magnús Teitsson 3 hvor en þessir voru bestir ásamt Brynj- ari. Þá vakti ungur nýliði, Sigurjón Guðmundsson, nokkra athygli. Lið ÍR á ekkert erindi í 1. deild og best að hafa sem fæst orð urn frammistöðu þess. Sóknarleikur- inn hefur lagast örlítið við endur- komu Þórarins Tyrfingssonar er skor liðsins í leiknum segir sína sögu. Björn Björnsson og Guðjón markvörður Hauksson voru skárst- ir en Björn skoraði 6 mörk, Guð- jón Marteinsson, Einar Valdimars- son og Þórarinn tvö hver. - VS Víkingar að koma tU íslandsmeistarar Víkings í hand- knattleik eru að koma til á ný eftir rólega byrjun í 1. dcildinni og á föstudagskvöldið sigruðu þeir KR með 22 mörkum gegn 18 í ágætum leik. í hálfleik var staðan 10:9, Vík- ingi í hag. Víkingar komust í 18:13 og 20:15 í síðari hálfleiknum og sigurinn var öruggur. Sigurður Gunnarsson 7 og Þorbergur Aðalsteinsson 6 voru markahæstir Víkinga en Anders Dahl 6 og Haukur Ottesen 3 KR- inga. _ VS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.