Þjóðviljinn - 21.10.1982, Qupperneq 3
Breiðafjarðarferja:
Fimmtudagur 21. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
„Verkalýðshreyfingin og unga fólkið” verður aðalumræðuefni
Landsráðstefnu ÆNAB um næstu helgi
„Má ekki fara fram
* * II I
hjá neinum ungnm
sósíallsta
„Við höfum orðið vör við góðar
undirtektir fyrir þessa ráðstefnu,
enda hafa menn lagt á sig mikla
vinnu við að undirbúa hana og ég
tel að viðfangsefni hennar eigi ekki
að fara fram hjá neinum ungum
sósíalista; þetta er mál sem þarf að
ræða af alvöru um“, sagði Unnur
Kristjánsdóttir formaður Æsku-
lýðsnefndar Alþýðubandalagsins í
samtali í gær. Um helgina verður
haldin Landsráðstefna ÆNAB þar
sem aðal umræðuefnið verður
„Verkalýðshreyfingin og unga fólk-
ið“. Fjöimennur undirbúningshóp-
ur ungs fólks úr atvinnulífinu hefur
unnið að undirbúningi ráðstefn-
unnar og m.a. lagt fram atriði til
umræðu á Landsráðstefnunni.
Hefur ungt fólk einhverra sér-
hagsmuna að gæta í verkalýðs-
hreyfingunni, t.d. iðnnemar og far-
andverkafólk?
• Hvernig er hægt að auka virkni
ungs fólks í verkalýðshreyfing-
unni? Þarf að stofna sérstök
æskulýssamtök innan ASÍ líkt og
gert hefur verið í Danmörku og
Svíþjóð?
• Hvernig er hægt að auka stétt-
arvitund ungs fólks og upplýsa það
um stöðu sína og réttindi?
• Hvernig er verkalýðshreyfingin
í stakk búin til að takast á við hugs-
anlegt atvinnuleysi ungs fólks á Is-
landi?
Fleiri spurningar og umhugsunar-
efni verða reifuð, en á ráðstefnunni
mun m.a. Ásmundur Stefánsson
forseti ASÍ halda framsögu og
svara fyrirspurnum um þessi fram-
angreind atriði og fleiri sem tengj-
ast þessu umræðuefni.
Unnur Kristjánsdóttir vildi nota
tækifærið til að hvetja alla unga só-
síalista hvort sem þeir eru flokks-
bundnir í Alþýðubandalaginu eða
ekki til að koma og taka þátt í um-
ræðunum á ráðstefnunni. „Við ætl-
um m.a. að ræða drög að nýju
skipulagi fyrir Æskulýðsnefndina.
Eins er áríðandi að ungir sósíalistar
utan af landi komi á ráðstefnuna.
Við ætlum að reyna að styrkja þá í
ferðakostnaði á einhvern hátt og
eins ættu félögin úti á landi að
styrkja sína ungu félaga til að koma
suður til að ræða málin við okkur“,
sagði Unnur.
Landsráðstefnan verður haldin í
Iðnaðarmannahúsinu við Hallveig-
arstíg og hefst með setningu og
skýrslu fráfarandi Æskulýðsnefnd-
ar á laugardagsmorguninn kl. 9.30.
-Jg-
írsk-íslenska félagið
Forsata aðgöngumiða er hjá bókaverslununum Mál og
menning, Sigfús Eymundsson, Lárus Blöndal og í Háskóla-
bíói.
Verð miða aðeins kr. 100.-
Jafn réttur
menntunar
í efnahagskerfinu sé fram undan.
Eitt af því sem kreppan setur
mark sitt á er vísindastarfsemi. í
ljósi þessara staðreynda hefur félag
vinstri manna ákveðið að bjóða
fram lista til 1. des. kosninga undir
yfirskriftinni Vísindi og kreppa.
Ljósasta dæmið um áhrif krepp-
unnar á vísindastarf er sífellt
þrengri fjárhagur Háskólans, sem
hlýtur að leiða til þess að hann
verði ófær um að gegna hlutverki
sínu sem vísindastofnun. Þegar
Háskólanum er haldið í stöðugu
fjársvelti er það tilræði við sjálf-
stæða vísindastarfsemi í landinu
sem hlýtur að vera ein af forsend-
um sjálfstæðis þjóðarinnar.
Einnig er sú hætta fyrir hendi að
þegar kreppuástand er í þjóðfé-
laginu verði farið að mæla gildi
menntunar eftir því hversu „arð-
bær“ hún er. Vinstri menn leggja
áherslu á jafnan rétt allrar mennt-
unar og að tryggja þurfi sem fjöl-
breyttasta vísinastarfsemi, óháð
markaðshagsmunum.
Félag vinstri manna hvetur alla
stúdenta til að mæta á framboðs-
fundinn og hlýða á hvað vinstri
menn hafa um þessi mál að segja".
B-lista vinstri manna skipa þess-
ir: Aðalsteinn Eyþórsson, Ása
Árnadóttir, Brynja Ásmundsdótt-
ir, Gunnlaugur Olafsson, Hilmar
Garðarson, Jóna Hálfdánardóttir,
Stefán Aðalsteinsson. Fundurinn í
kvöld hefst kl.20.00 og stendur til
miðnættis.
- v.
Hópur írskra
listamanna
frá
Comhalcas CeoicóiRÍ CiReann
írska þjóðlagafélaginu
Skemmtir í Háskólabíói
laugardaginn 23. okt. ’82
með hljóðfæraleik,
söng og dansi
kl. 14.00 og kl. 23.15
fyrri
í gær voru opnuð tilboð í smíði
Breiðafjarðarferjunnar, skv. út-
boðslýsingu samgönguráðuneytis-
ins. Lægsta tilboð var tæpar 27
miljónir króna, sem er svipuð upp-
hæð og lægsta tilboðið sem Fram-
kvæmdastofnun barst í smíði sömu
ferju skv. annarri útboðslýsingu og
teikningu.
5 tilboð bárust samgönguráðu-
neytinu í gær. Það var Stál hf. á
Seyðisfirði og Skipasmíðastöð
Njarðvíkur sem áttu lægsta tilboð-
ið, tæpar 27 miljónir króna. Skipa-
smíðastöð Marselíusar Bernharðs-
sonar á ísafirði átti hæsta tilboðið
sem var um 39 miljónir króna.
-ÁI
allrar
í kvöld fer fram kosning hátíðar-
nefndar 1. desember á almennum
stúdentafundi í aðalbyggingu Há-
skóla íslands kl. 20.00 - 24.00. Eru
tveir listar í kjöri, A-listi Vöku sem
vill ræða efnið fjölmiðlar og frelsi
og B-listi Félags vinstri manna með
efnið vísindi og krcppa. I frétt frá
vinstri mönnum segir:
„Mörgum verður um þessar
mundir tíðrætt um yfirvofandi
kreppu hér á landi. Öll sjáum við
þá efnahagslegu kreppu sem blasir
við á Vesturlöndum og lýsir sér í
samdrætti í framleiðslu og ekki
hvað síst gífurlegu atvinnuleysi.
ísland fer ekki varhluta af þess-
ari alþjóðlegu kreppu. Þegar eru
farin að sjást merki hennar, og allt
bendir til að stórfelldur samdráttur
Þessir koma fram:
Anthony Mc Auley
FIÐLA — BODHRAN
Kathleen Nesbitt
FIÐLA
Jimmy Mc Greevy
HARMONIKA
Deirdre Hodge
KONSERTINA
Diarmuid Kenny
FLAUTUR
Michael Kenny
BANJO
Eileen Curtin
SÖNGUR
Michael Ó Brien
SEKKJAPÍPA
Dansarar eru:
Mairead Coyle
OG
Gregory Casey
Verkakvennafélagið
Framtíðin Hafnarfirði
Tillögur stjórnar og trúnaðarmannaráðs
félagsins um stjórn og aðrar trúnaðarstöður
fyrir árið 1982 liggja frammi á skrifstofu
félagsins Strandgötu 11 frá og með fimmtu-
deginum 20. okt. til mánudagsins 25. okt. kl.
17.00. Öðrum tillögum ber að skila fyrir kl.
17.00 mánudaginn 25. okt., er þá framboðs-
frestur útrunninn. Tillögum þurfa að fylgja
meðmæli 20 fullgildra félagsmanna.
Verkakvennafélagið Framtíðin.
Svipuð
tilboð
og þau