Þjóðviljinn - 21.10.1982, Page 4
4 SíÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 21. október 1982
MOOVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs*
hreyfingar og þjóðfrelsis.
Utgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson.
Umsjónarmaöur Sunnudagsblaðs: Guöjón Friöriksson.
Auglýsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttir.
Afgreiöslustjóri: Baldiir Jónasson.
Blaöamenn:.ÁIfheiöur Ingadóttir, HelgiÓlafsson, LúövikGeirsson, Magnús
H. Gíslason, Ólafur Gislason, Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson,
Þórunn Siguröardóttir, Valþór Hlöðversson.
íþróttafréttaritari: Víöir Sigurösson.
Útlit og hönnun: Andrea Jónsdóttir, Guðjón Sveinbjörnsson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Elísson.
Handrita- og prófarkalestur: Elias Mar, Gísli Sigurösson, Guömundur Andri
Thorsson.
Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Sigríöur H. Sigurbjörnsdóttir.
Skrifstofa: Guörún Guövaröardóttir, Jóhannes Harðarson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Símavarsla: Sigríöur Kristjánsdóttir, Sæunn Óladóttir.
Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bílstjóri: Sigrún Bárðardóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmundsson.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síðumúla 6 Reykjavik, simi 8 13 33
Umbrot og setning: Prent.
Prentun: Blaðaprent h.f.
Pað munar um
1200 milj'
• Svo sem venja er var frumvarp til fjárlaga fyrsta málið
sem lagt var fram á Alþingi á þessu hausti. Samkvæmt frum-
varpinu er gert ráð fyrir, að ríkissjóður verði rekinn halla-
laus á næsta ári, og yrði það þá fjórða árið í röð, sem við
Islendingar byggjum við hallalausan ríkisbúskap. Bæði 1980
og 1981 var nokkur tekjuafgangur hjá ríkissjóði og horfur
eru á, að tekjur og gjöld muni standast á nú í ár.
• Ef við berum þetta saman við ástand mála í þessum efnum
hjá öðrum ríkjum, þá kemur í ljós, að þessu er víðast ólíkt
farið og mjög víða botnlaus halli á ríkisrekstrinum hin síðari
ár.
• Þannig er hallinn í ríkisbúskap 15 stærstu iðnríkja Vestur-
landa talinn nema 4% af sameiginlegri þjóðarframleiðslu
þeirra, svo sem fram kom í viðtali við Ragnar Arnalds
fjármálaráðherra hér í Þjóðviljanum um síðustu helgi. Verð-
mæti þjóðarframleiðslu okkar íslendinga er talið munu
nema um 30 miljörðum króna á þessu ári, og væri ríkissjóður
rekinn hér með álíka halla og algengast er hjá þessum 15
helstu iðnríkjum, - þá ætti hallinn á okkar ríkisbúskap að
nema á þessu ári um 1200 miljónum króna.
• I öllum þeim efnahagserfiðleikum, sem nú steðja að okkar
þjóðarbúskap vegna slæmra viðskiptakjara, minnkandi afla
og okurvaxta á erlendum lánum, þá er hinn hallalausi ríkis-
búskapur tvímælalaust einn allra mikilvægasti árangurinn í
stjórn okkar efnahagsmála.
• Hallalaus ríkisbúskapur og næg atvinna eru jákvæð
auðkenni sem valda því, að ísland er þrátt fyrir allt betur á
vegi statt í efnahagsmálum, heldur en mjög mörg okkar
nágrannaríkja.
• Samanburðurinn við iðnríkin 15, hin helstu á Vestur-
löndum, verður líka skýrari ef minnt er á, að þótt við inn-
heimtum t.d. ekki eina einustu krónu í tekjuskatta, hvorki
frá fyrirtækjum eða einstaklingum, þá yrði hallinn hjá ríkis-
sjóði samt ekki meiri en svarar þeim fjórum prósentum af
þjóðarframleiðslu, sem fara í hallarekstur á ríkisbúskap
iðnríkjanna fimmtán. - Fjögur prósent af þjóðarframleiðslu
okkar í ár eru talin nema um 1200 miljónum króna og gert er
ráð fyrir, að allar tekjur ríkissjóðs af tekjusköttum nemi
sömu upphæð.
• Af þessu sjá menn best, hvílíkur gífurlegur munur er á
þeim árangri sem hér hefur náðst við stjórn ríkisfjármálanna
á síðustu árum og hins vegar því vandræðaástandi sem víða
annars staðar ríkir í þessum efnum.
• En sú var reyndar tíð, og það fyrir ekki löngu, að hér ríkti
álíka öngþveiti í ríkisfjármálum og það sem nú er uppi hjá
ýmsum okkar nágrannaríkja. í fjármálatíð Matthíasar Á.
Mathiesen 1974-’78 komst hallinn á fjárlögum eitt árið upp í
3,9% af þjóðarframleiðslu, en það samsvarar á núverandi
verðlagi nær 1200 miljónum króna eða hærri upphæð en
nemur öllum tekjum ríkissjóðs af tekjusköttum.
• Hvaða einkunn halda menn, að Morgunblaðið og tals-
menn flokkseigendafélagsins í Sjálfstæðisflokknum hefðu
gefið Ragnari Arnalds fyrir þvílíka fjármálastjórn?
• Á ríkisstjórnarárum Geirs Hallgrímssonar hlóðust upp
óhemju skuldir við Seðlabankann, því Matthías þáverandi
fjármálaráðherra var alltaf að gefa út innistæðulausar ávís-
anir. Þessi skuld ríkissjóðs komst þá upp í 5,2% af allri
þjóðarframleiðslunni, eða nær 1600 miljónir króna á núver-"
andi verðlagi. Þessi skuld hefur nú verið greidd niður að
mestu og sýnir það ásamt öðru góða stjórn ríkisfjármála á
síðustu árum. Og sé litið á fjárlagafrumvarpið fyrir næsta ár,
þá kemur í Ijós, að þótt þar sé gert ráð fyrir nokkrum
lántökum ríkissjóðs, þá er samt við það miðað að meira
verði greitt niður af gömlum lánum en svarar nýjum lán-
tökum og heildarskuldastaðan þannig enn bætt.
• Hvernig væri að efna til skoðanankönnunar og spyrja
þjóðina hvor hafi reynst betri fjármálaráðherra Ragnar
Arnalds eða Matthías?!
-k.
Þægilegt rabb og engar óþægilegar spurningar fyrir borgar
stjórann.
klippt
Góð formúla
Tveir spyrlar, einn situr fyrir
svörum í tæpan klukkutíma, tvær
til þrjár mínútur á hvert svar,
svörin verða að vera á reiðum
höndum - bein útsending. Þetta
er góð formúla fyrir nýjan sjón-
varpsþátt sem hlotið hefur nafnið
„Á hraðbergi" og hóf göngu sína
s.l. þriðjudagskvöld. Hún er hins
vegar ekki ný og þeim að góðu
kunn sem fylgst hafa með viðtals-
og fréttaskýringaþáttum í erlend-
um sjónvarpsstöðvum.
íslenska útgáfan reyndist sorg-
leg í þeim samanburði. Þar var þó
ekki við fyrsta fórnarlambið, Da-
víð Oddsson, borgarstjóra, að
sakast enda fór hann áreynslu-
laust í gegnum þáttinn. En slíkt er
bara ekki tilgangurinn með slík-
um þáttum, heldur gefur formúl-
an tækifæri til að kryfja mál til
mergjar,- reyna á hæfiíeika þess
sem fyrir svörum situr,- fylgja
spurningum eftir af festu,- skapa
spennu. Ekkert af þessum tæki-
færum nýttist í fyrsta þættinum og
sýnist ástæðan fyrst og fremst sú
að spyrlarnir voru illa heima í
þeim málaflokki sem til umræðu
var, - borgarmálunum.
Reyndar var greinilegt að þeir
félagarnir Ingvi Hrafn og Halldór
Halldórsson höfðu eytt löngum
tíma fyrir framan vídeóið og stú-
derað yfirlýsingar Davíðs fyrir
síðustu kosningar. En það var
líka allt og sumt! Árangurinn var
sá að borgarstjóri komst upp með
beinar falsanir og útúrsnúninga
sem stjórnendur höfðu engin tök
á að verja sjónvarpsáhorfendur
fyrir. Skulu hér nefnd nokkur lítil
dæmi.
Galna hug-
myndin
Rauðavatnssvæðið og Graf-
arvogur voru til umræðu og um
byggð við Rauðavatn sagði borg-
arstjóri m.a. að það væri „galin“
hugmynd og að ekki kæmi til
mála að byggja þar. Einmitt það
já, - og ekki meira um það. Enda
vissu spyrlarnir minnst um það að
Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú
lagt fram tillögu í skipulagsnefnd
þar sem segir um Grafarvogs-
skipulagið m.a. að það feli ekki í
sér að ákvörðun hafi verið tekin
um að fella úr aðalskipulagi
byggð við Norðlingaholt og
Rauðavatn!
Grjótaþorpið
Húsalengjan við Aðalstræti
vafðist fyrir borgarstjóra, þegar
Grjótaþorpið var til umræðu.
Skipulag þorpsins var óraunhæft
að hans mati þar sem ekki hafði
verið tekið tillit til Morgunblaðs-
hallarinnar. Það væri því ekki
hægt að framkvæma það þar sem
auka þyrfti nýtingu m.a. á Aðal-
stræti 8 og Aðalstræti 4. Þetta var
marg endurtekið og tekið sem
góð og gild vara því miður, því
staðreyndin er sú að húsaröðin
meðfram Aðalstræti var öll
undanskilin þegar skipulagið var
samþykkt. Áðalstrætið var látið
fylgja kvosinni inn í skipulags-
samkeppni þannig að það stend-
ur ekki í veginum fyrir fram-
kvæmd á skipulagi þorpsins
sjálfs! Hvað skyldi það vera þá?
Kannski bílastæðahúsin sem
Sjálfstæðisflokkurinn á eftir að
finna stað í gamla bænum? Gam-
an hefði verið að fá svör við því!
Gamla skipu-
lagið
Þegar borgarstjóri var spurður
að því í sjónvarpinu hverju hann
svaraði gagnrýni um óvönduð
vinnubrögð, þ.e. litla eða enga
efnislega umfjöllun fagmanna
um Grafarvogssvæðið svaraði
hann því til að það þyrfti enga
þess háttar vinnu. Skipulag hefði
verið unnið að þessu svæði árið
1977 af Þróunarstofnun Reykja-
víkur, sem væri forveri Borgar-
skipulags. Þá vinnu þyrfti ekki að
endurtaka auk þess sem þáver-
andi forstöðumaður Þróunar-
stofnunar, Hilmar Ólafsson, væri
sami maður og sá sem nú væri að
vinna að skipulagi Grafarvogs.
Greinargóð svör, ekki satt? Jú,
ef maður veit ekki betur. Og
spyrlarnir vissu greinilega ekki að
gamla skipulagið hans Hilmars
Ólafssonar gerði ráð fyrir 15 þús-
und manna byggð eða tvöfalt
meira en nú er stefnt að. Hér er
því um allt annað skipulag að
ræða, og forvinna Þróunarstofn-
unar var ekki bitastæðari en svo
að engin leið var að fá skipu-
lagið frá 1977 staðfest hvað sem
Sjálfstæðisflokkurinn reyndi.
Það vantaði enda öll kort og
greinargerð líka! Þetta var líka
ein ástæða þess að vinstri menn
fóru í endurskoðun á aðalskipu-
laginu og það er á þeirra forvinnu
sem nú er byggt, ekki neinu frá
eldri tíma. Það hefði þess vegna
verið gaman að fá svör við því af
hverju Sjálfstæðismenn treystu
sér ekki til að taka upp gamla
skipulagið frá Þróunarstofnun og
Hilmari Ólafssyni.
Lóðafalsið
Það ætti að vera ástæðulaust að
deila um fjölda úthlutaðra lóða,
þar sem upplýsingar þar um eru
skjalfestar og aðgengilegar öll-
um. í sjónvarpsþættinum marg
endurtók Davíð Oddsson að
vinstri meirihlutinn hefði að
meðaltali úthlutað 325-350 lóð
um á ári og allir hlytu að sjá að
úthlutun 700 lóða á ári, sem hann
stefndi að myndi fara mun nær
því að metta lóðaeftirspurnina.
Og hvað skyldi svo vera
athugavert við þetta? Jú, meðal-
fjöldi lóða var ekki 325 í tíð
vinstri manna og heldur ekki 350.
í þcssari tölu Davíðs Oddssonar
eru nefnilega ekki með allar þær
lóðir sem Verkamannabústaðirn-
ir fengu úthlutað á þessu árabili,
heldur ekki lóðir til byggingasam-
vinnufélaga eða starfsmannafé-
laga. Og hcldur ekki til bygginga
fyrir aldraða, hvað þá lóðir í
einkaeign sem gerðar voru bygg-
ingarhæfar.
Þá hljóta menn að spyrja, - eru
Verkamannabústaðirnir með í
þessum 700 lóðum, eða eiga lóðir
til þeirra að koma þar til viðbót-
ar? Á kannski að hætta úthlutun
til Verkamannabústaða? Sú
spurning hlýtur að vera áleitin
þar sem upplýst er að einungis
15% íbúða við Grafarvog eiga að
vera í fjölbýlishúsum. Það dugir
skammt til þess að anna þörf
Verkamannabústaða fyrir lóðir
næstu árin, hvað þá þörf bygg-
ingasam vinnufélaga.
Engar
spurningar,
engin svör
Já, þær voru ýmsar spruning-
arnar sem vöknuðu undir þessum
þætti, en því miður ekki hjá spyrl-
unum sjálfum. Það þýðir nefni-
lega lítið að kynna sér aðeins eina
hlið á málum, til þess að fá ein-
hverja heildarmynd. Það hefði
ekki verið úr vegi fyrir þá fél-
agana að kynna sér líka mál-
flutning pólitískra andstæðinga
Davíðs Oddssonar og spyrja út
frá þeim.
Reyndar er það verðugt um-
fjöllunarefni að loknum slíkum
þætti hversu lítt og illa sjónvarpið
sinnir því sem kalla má borgar-
mál. Þar mættu fréttamenn taka
sér kollega sína á útvarpinu til
fyrirmyndar. Það kæmi kannski í
veg fyrir að þeir stæðu á gati í jafn
veigamiklum málum og þeim sem
hér hafa verið nefnd.
-ÁI
°9 skorið