Þjóðviljinn - 03.12.1982, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 03.12.1982, Qupperneq 2
2 SÍDA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 3. desember 1982 síðan Leikið í Kiel Elín Guðmundsdóttir Dagana 7. og 13. nóvember hélt Elín Guðmundsdóttir semballeikari tónleika í kirkjum tveim í Kiel ásamt Christiane Godt sem einnig lék á sembal. Þarna voru flutt nokkur verk eftir Couperin og Bach-feðga þrjá, svo og Fingrarím eftir Gunnar Reyni Sveinsson og Convention eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Þetta var í fyrsta sinn sem ís- lensku verkin voru flutt á þýskri grund og var ekki annað að heyra en þau hljómuðu vel meðal verka hinna þýsku meistara. Að lokn- um flutningi Fingraríms, sem El- ín annaðist ein og sló af mikilli leikni, máttu áheyrendur ekki við bindast og létu hrifningu sína ó- spart í ljós, með lófataki en slíkt er ekki venjulegt í kirkjum þar. Elín hefur dvalist undanfarið ár ásamt fjölskyldu sinni í Kiel og er hún ein þeirra 18 íslendinga sem nú eru hér ýmist við nám eða störf; eru flestir þeirra tengdir Ki- elarháskóla með einhverjum hætti. Þeir hafa með sér samtök, íslendingafélag og starfar það með blóma. Koma allir saman nokkrum sinnum á starfsárinu og m.a. er árlega haldið þorrablót. Formaður Islendingafélagsins í Kiel er nú Karl Skírnisson. Listasafns- kort Listasafn Islands hefur undan- farin tuttugu ár gefið árlega út eftirprentanir af verkum ís- lenskra myndlistarmanna. Nú eru nýútkomin sex litprentuð kort á tvöfaldan karton pappír með eftirtöldum myndum: Heng- illinn, 1932 eftir Brynjólf Þórðar- son, Fiskibátur, 1958 eftir Gunn- laug Scheving, Gluggar 1975 eftir Hörð Ágústsson Súlur, 1929, eftir Jón Þorleifsson, Morgunn í Stykkishólmi, 1947, eftir Jón Þorleifsson, og í Vinnustofunni, 1950, eftir Valtý Pétursson. Einnig hafa verið gefin út þrjú nú litprentuð póstkort: Og skorið og skor, 1976 eftir Sigurð Örlygs- son, Höfuð horfir í Fiðrildi II, 1977 eftir Margréti Elíasdóttur, og í Þokunni III eftir Þórð Hall. Kortin eru til sölu í Listasafni ís- Iands ásamt u.þ.b. 40 eldri kortum. Frá ölstofunni á Hótel Sögu. Forráðamenn Gildis h.f. ásamt hótelstjóra Sögu. Talið frá v. Ármann Guðmundsson, Franyois Fons, Hólmfríður H. Brynjarsdóttir, Konráð Guðmundsson, Ólöf Wessman, Wilhelm Wessman og Ólafur E. Stefánsson. Breytingar á rekstri og innra útliti Sögu Ölstofa á enska vísu Salarkynni eru hin glæsilegustu á nýju ölstofunni. Nýstofnað fyrirtæki Gildi hf. hefur tekið við öllum veitinga- rekstri Hótel Sögu. Gildi hefur á leigu alla veitingaaðstöðu Hótel Sögu þ.e. Stjörnusal. Súlnasal, Lækjarhvamm, Átthagasal og önnur salarkynni á sjálfstæðum grundvelli auk þess að annast aila herbergisþjónustu hótelsins. Framkvæmdastjóri Gildis hf. er Wilhelm Wessman, skrifstofu- stjóri Ármann Guðmundsson, stjórnandi matreiðslu Fran- ?ois Fons en auk þeirra eru þær Hólmfríður Hrönn Brynjarsdótt- ir og Ólöf Wessman eigendur fyrirtækisins. Meðal þeirra nýjunga sem Gildi hefur bryddað uppá í veit- ingarekstri Hótel Sögu er inn- rétting sérstakrar „ölstofu" á enska vísu í Súlnasal. Auk allra venjulegra bar- drykkja verður á ölstoíúnni boðið uppá sérstakan „Gildismjöð" sem að sögn forráðamanna gefur bjórnum á ensku börunum ekk- ert eftir. Á barnum verður einnig boðið upp á ýmsa smárétti sem ekki hafa verið á boðstólnum á börum hérlendis. Innréttingar enska barsins eru hannaðar af Steinþóri Sigurðar- syni listmálara. Næstu vikur ætlar Gildi hf. að efna til nýstárlegra kynninga á veisluréttum í Súlnasal. Verða þá á hlaðborði ótal gómsætir jólaréttir með allskyns meðlæti. Gestum mun gefast tækifæri til að bragða á kræsing- unum og afla sér nánari upplýs- inga um tilbúning réttanna hjá matreiðslusveinum hússins, sem að sjálfsögðu vera á staðnum. Þá er einnig hægt að panta sér- staklega heim fyrir jólin einstaka rétti eða heilar máltíðir. Kynningar þessar verða haldn- ar föstudagana 3., 10 og 17 des- ember og hefjast kl. 19.00 og standa til kl. 22.00 Þau voru rekin úr skóla Okkur hinum til hugarhægðar sem einhvern tímann vorum rek- in úr skóla, er gaman að vita til þess að við eigum „Þjáningabræður/systur“ sem hafa aldeilis spjarað sig í lífinu þrátt fyrir torsótta skólagöngu. Bandaríski leikarinn John Barrymore fæddur 1882 var rek- inn úr Georgetown Academy in Washington þegar hann var 16 ára. Á afmælisdegi borgarinnar sá einn stjórnarmanna skólans til Barrymores þar sem hann skemmti sér á ósiðlegan hátt að dómi stjórnarmannsins. Pólski anarkistinn Alexander Berkman var rekinn úr mennta- skólanum í Vilnius, Lithuania vegna ritgerðar sem hann skrifaði um Guð. Hann var sagður hættu- legur samnemum sínum vegna guðleysis og öfgafullra skoðana. Franska leikkonan Sarah Bernhardt var í þrígang rekin úr klausturskóla þegar hún var 16. ára. Ástæðan var sú að hún gerði grín af biskupi staðarins, henti lurk í riddaraliðsmann og með hermanni hafði hún átt ljúfar stundir langt fram eftir nóttu. Listmálarinn kunni Salvador Dali var líka éitt sinn rekinn úr skóla. Það var þegar hann stund- aði nám við listaskólann í San Fernando í Madrid. Ástæðan var sú að hann neitaði einum prófess- ori skólans að gagnrýna mynd- verk sín. Líklegt forsetaefni Bandaríkj- anna, Edward Kennedy var á sín- um tíma rekinn frá Harvard há- skóla þegar í ljós kom að hann hafði látið frænda sinn taka spænsku prófið sitt í sinn stað. Jafnvel Trotsky sjálfur var rek- inn úr miðskóla í Odessa á ung- lingsárum, þegar hann stóð fyrir því eitt sinn að láta bekkinn sýna andúð sína á umsjónarkennaran- um með því að ýlfra að honum. Dauða- valdurinn Áfengi drepur árlega fleira fólk en eiturlyf. Athuganir og rarmsóknir sem gerðar voru í Englandi og Wales á síðasta ári sýna að dauðsföll af völdum á- fengiseitrunar hafa fjórfaldast á síðustu 10 árum. En þetta segir því miður ekki alla söguna. Fjölmargir alkohól- istar fremja sjálfsmorð og því flokkast þau dauðsföll ekki undir áfengiseitrun. Og tíðni sjálfs- morða hefur stóraukist á síðustu árum. Enn fleiri dauðsföll væri hægt að rekja beint til áfengis- drykkju, sem venjulega eru lát- in falla undir slys. Það sem er þó kannski einna alvarlegast, er hversu sjálfsmorð ungs fólks hafa aukist gífurlega á síðustu árum. Stærsti aldurshóp- urinn sem fremur sjálfsmorð á Bretlandseyjum þessa dagana, er fólk á aldrinum 25-34 ára. Hversu mörg þessara sjálfsmorða má rekja til atvinnuleysis og ör- birgðar sem eru afleiðingar efna- hagsstefnu Thatcherstjórnar- innarer hins vegar látið ósvarað í síðasta tölublaði Ecor.omist þaðan sem fróðleikur þessa pistils er fenginn. 1971 72 73 74 75 76 77 78 79 80 ö! Dauðsföll vegna eiturlyfjanotkunar á neðsta línuriti, þá er það alkóhól- ið á línuritinu í miðið og efst sjálfsmorðin. Allt er nú keypt... Hauskúpi sænska heimspek- ingsins Emanuel Svedenborg var seld á uppboði í Sotheby Parke í London fyrir 5 árum fyrir rúmar 50 þús. kr. íslenskar á núvirði. Það var sænskur prófessor félagi í konunglegu sænsku vísindaaka- demíunni sem fjárfesti í kúpunni. Eiginhandrit Sóru Jósephínu Hale af hinu vinsæla kvæði „Mar- ía átti lítið Iamb“, var boðið til sölu á sömu uppboðsstofu fyrir nokkrum árum. Þar að auki var boðið í kaupbæti ullarreifi af lambinu umrædda sem flest börn hins vestræna heims hafa sjálf- sagt einhvern tímann sungið um. Því miður vildi enginn fjárfesta í þessum kjörgripum. Fölsku augnhárin reyndust gullnáma fyrir Sid Luft fyrrver- andi eiginmann leikkonunnar Ju- dy Garland. Sid hélt uppboð í Be- very Hills á nokkrum eigum og persónulegum munum leikkon- unnar þ.á m. augnhárunum föl- sku sem seldust á 2225 kr. ísl.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.