Þjóðviljinn - 03.12.1982, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 03.12.1982, Blaðsíða 20
WÐVIUINN Föstudagur 3. desember 1982 Alþýðubandalagið á Vestfjörðum Forval hefst í dag Kjördæmisráð Alþýðubanda- lagsins á Vestfjörðum hefur ákveð- ið að efna til forvals vegna skipunar framboðslista flokksins í komandi alþingiskosningum. Kétt til þátttöku í forvalinu hafa allir félagsmenn í tlokksfélögum Al- þýðubandalagsins á Vestfjörðum, en félögin eru cllefu, og auk þcss stuðningsmenn flokksins í þeim byggðarlögum þar sem ekki er starfandi flokksfélag. Forvalið fer fram í tveimur um- ferðurn og hefst sú fyrri í dag, 3. des. og stendur til 9. des. Síðari umferðin fer svo væntanlega fram í janúarnránuði. í fyrri umferð forvalsins tilnefnir hver og einn sex einstaklinga, sem hann telur æskilegt að skipi'efri sæti listans, þó án röðunar. I síðari umferð verður svo raðað í þrjú efstu sætin. Pátttakendur í forvali Alþýðu- bandalagsins á Vestfjörðum geta snúið sér til kjörstjóra í sínu byggðarlagi, eða þess sem næstur er. Sjá skrá yfir þá á blaðsíðu 12. Þeir sem rétt eiga til þátttöku í forvalinu, en verða ekki heima forvalsdagana, geta einnig snúið sér til flokksskrifstofu Alþýðu- bandalagsins að Grettisgötu 3 í Reykjavík og tekið þar þátt í for- valinu vegna framboðslistans á Vestfjörðm. Sjá síðu 12 Viðræður borgar og ríkis um Keldur: Aðeins iyrir Sjálistæðis- menn! Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins höfnuðu í gærkvöldi tilmælum um að minnihluta borgarstjórnar, 9 af 21, verði veitt aðild að viðræðunefnd vegna Keldnamálsins. Sagði Albert Guð- mundsson Viff umræðurnar að til þess þyrftu minnihlutamenn að ganga í Sjálfstæðisflokkinn! Sigurjón Péturssoif sem flutti tillögu um skipun sérstakrar viðræöunefndar borgarstjórnar í stað þeirrar sem lagðist niður með kosningunum í vor, sagði að það væru ólýðræðisleg vinnubrögð og vont að skipa tvo borgarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins til þessara viðræðna ásamt borgarverkfræðingi. Með því væri verið að halda upplýsingum frá minnihlutanum. Ekkert væri við það að athuga að borgarstjóri setti embættis- mcnn sína til vcrka, en honum bæri að hafa í heiðri lýðræðislega vinnurcglu um hlutfallskosningar í borgarstjórn Reykjavíkur. Kristján Benediktsson tók undir orð Sigurjóns og sagði óeðli- legt að einn flokkur, einokaði upplýs- ingar í skjóli mcirihlutavalds. Fráleitt væri að halda 9 borgarfulltrúum minni- hlutans frá upplýsingum á þann hátt. Albert Guðmundsson hafði orð fyrir Sjálfstæðismönnum ásamt Markúsi Erni Antonssyni, sem klóraði í bakkann og sagði aö minnihlutinn fengi að sjá niðurstöðurnar á sínum tíma. Albert sagði fráleitt að minnihluti borgar- stjórnar færi að „ganga inn í flokksstarf- ið hjá okkur”. Sjálfstæðisflokkurinn væri að vinna að því aö samningar næðust um Keldur, „í því formi, sem Sjálfstæðisflokkurinn vildi leggja málið fram”. Þetta mál yrði að fara „réttu leiðina” á vegum „Sjálfstæðisflokksins og borgarstjóra Sjálfstæðisflokksins” og ef minnihlutinn vildi eitthvað af því vita þá skyidi hann bara ganga í Sjálf- stæðisflokkinn! Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum sínum: Ritstjórn 81382,81482 og 81527. umbrot 81285. Ijósmyndir81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími Kvöldsími 81333 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663 Vetrargamanið er byrjað - að minnsta kosti á Melavellinum. (Ljósm. Atli). í kjölfar verðbótaskerðingar Prófkjör Sjálf- stæðisflokksins á Vesturlandi: Landbúnaðarvörur hækka um 13-22% Nýtt verð á landbúnaðarvörum tók gildi 1. desember og er hækkun- in frá síðustu verðhækkun, sem var í september s.l. á bilinu 13-22%. Hins vegar hækkaði verðlags- grundvöllur landbúnaðarvaranna um tæp 11 %, en þar sem niður- greiðslur úr ríkissjóði hækkuðu ekki í krónutölu að þessu sinni fer stærri hluti grundvallarverðsins út í verðlagið. Mjólkurlítrinn hækkar nú úr 8.45 krónum í 9.80 krónur sem er um 16% hækkun. Kílóið af smjöri hækkaði úr 90.70 krónum í 109.95 krónur. Venjulegur 45% ostur hækkaði úr 98.25 krónum kílóið í 111.50 krónur eða um 13.5%. Á fundi verðlagsráðs á miðviku- dag voru einnig samþykktar tals- verðar hækkanir á ýmsum vörum og þjónustu. Sem dæmi má nefna að öl hækkar um 13%, gos um 11%, fiskur út úr búð um 8%, unn- ar kjötvörur í samræmi við hækkun á landbúnaðarvörunum, og auk þess hækka farmgjöld í innanlands- flugi um 9%. Þá var samþykkt að heimila hækkun á útseldri vinnu um 7.72%, í samræmi við verðbót- ahækkanir 1. desember. -v. Hækkunin á matvælunum: Einhliöa ákvöröun sexmannanefndar Þurfti ekki að bera undir ríkisstjórn, segir Pálmi Jónsson landbúnaðarráðherra „Eftir að verðlagslöggjöfin féll úr gildi um síðustu áramót þarf ekki að bera svona hækkanir undir ríkisstjórnina”, sagði Pálmi Jóns- son landbúnaðarráðherra aðspurður hvers vegna ekki hafi verið lcitað staðfestingar ríkis- stjórnarinnar áður en nýtt verð á landbúnaðarvörum tók gildi. Svavar Gestsson félagsmálaráð- herra kvaðst hafa orðið undrandi þegar hann fletti blöðum í gær- morgun og sá að landbúnaðarvörur höfðu verið hækkaðar um 13-22%. Þessar hækkanir hefðu aldrei verið ræddar í ríkisstjórninni og skerðing á verðbótum væri nægjanleg þó ekki væri verið að stórhækka land- búnaðarvörurnar sama daginn. „Ríkisstjórnarfundur féll niður á þriðjudag og þess vegna var ekki hægt að bera þetta undir ráðherr- ana”, sagði Pálmi ennfremur. En hvers vegna voru þá ekki niðurgreiðslurnar auknar til sam- ræmis? „Það er rétt að ef niðurgreiðslur að þessu sinni hefðu verið auknar til samræmis þá hefði útsöluverð landbúnaðarvara hækkað svipað og grundvallarverðið sjálft, en það hækkaði um tæp 11%. Það var hins vegar afstaða bæði fjármálaráð- herra og viðskiptaráðherra, þegar ég ræddi við þá utan ríkisstjórnar, að ekki væri gert ráð fyrir auknum niðurgreiðslum á fjárlögum og því væri ekki hægt að hækka niður- greiðslurnar í samræmi við breytingar á grundvallarverðinu”. Pálmi Jónsson landbúnaðarráð- herra sagði að lokum að launaliður bóndans og aðrir launaliðir sem inn í grundvallarverðið koma, hefðu lotið sömu verðbótaskerðingu og laun annarra í þjóðfélaginu sam- kvæmt bráðabirgðalögunum. —v. Valdimar og Inga Jóna berjast um 2. sætið Aðeins sex manns hafa tilkynnt um þátttöku í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins á Vesturlandi dagana 15. og 16. janúar n.k. Þetta eru þau Friðjón Þórðarson, dómsmálaráð- herra, Inga Jóna Þórðardóttir, Akranesi, Kristjana Ágústsdóttir, Búðardal, Kristófer Þorleifsson, Ólafsvík, Sturla Böðvarsson, Stykkishólmi og Valdimar Indriða- son, Akranesi. Friðjón er að sjálfsögðu öruggur með 1. sætið á listanum, en ljóst er að þau Valdimar og Inga Jóna munu berjast um 2. sætið. Valdi- mar er mikill Gunnars/Friðjóns maður, en Inga Jóna aftur á móti frá flokkseigendafélaginu, enda einn af stjórunum á skrifstofu flokksins í Valhöll. -S.dór V erkamannabústaðir í Ártúnsholti: 126 íbúöir í staö 90 Borgarstjórn staðfesti í gær breyt- ingu á deiliskipulagi í Artúnsholti þannig aff stjórn Vcrkamannabústaða fær nú heimild til aff reisa þar 126 íbúffir í stað 90. Upphaflega sótti stjórnin um 120 íbúðir í Ártúnsholti, en fékk s.l. vetur vilyrði fyrir 90. Við síðustu úthlutun reyndist mun méiri þörf fyrir minni fbúðir en stærri og nýlega óskaði stiórn- in eftir því að minnka íbúðirnar í Ár- túnsholti og fjölga þeim uppí 140. Sætt- ist hún síðan á 126, sem meirihluti skip- ulagsnefndar samþykkti. Miklar umræður urðu í borgarstjórn- inni um þessi mál í gær vegna tillögu Kvennaframboðs gegn fjölguninni. Snerist umræðan um það hvort 126 íbúðir leystu stærri vanda en þær sköpuðu og hvort hagkvæmnissjónar- miðin ein réðu en félagslegi átturinn væri vanræktur. Tillaga Kvennafram- boðs fékk aðeins tvö atkvæði þeirra og eitt frá Bjarna P. Magnúsyni, Alþýðu- flokki. ,

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.