Þjóðviljinn - 09.12.1982, Page 4
4 SIÐÁ — Jólablað Þjóðviljans Í982
Það var í september 1966 sem ég kom í
fyrsta skipti til Rómaborgar. Þettavará
þeim tíma þegar menn trúðu á
óstöðvandi framfarir og hagvöxt og
bítlarnir sungu um hina endalausu
jarðaberjaakraæskunnarog ég hafði
tekið lestina frá Kaupmannahöfn á vit
Ævintýrsins mikla. Þegar lestin steypti
sér niður suðurhlíðar Alpafjallanna og
ilmurinn af vínberjauppskerunni fyllti
vitin í gegnum opinn lestargluggann fór
um mig hrollkennd sælutilfinning: ég
vissi í rauninni ekki hvað ég átti í
vændum, en hvað svo sem það var, þá
skyldi það verða stórkostlegt.
Rómaborg verkaði á mig eins og áfengi.
Strax fyrsta daginn var ég staddur við
Spönsku tröppurnar og ég sá fyrir mér mikið
leiksvið þar sem mörkin virtust óljós á milli
draums og veruleika. Þröngar og krókóttar
götur gamla bæjarins, og veðraðir okkurgulir
húsveggirnir drógu mig að sér með ómót-
stæðilegu aðdráttarafli völundarhússins og
leiddu mig að furðum veraldar: Fontana di
Trevi, Panþeon og Piazza Navona, torginu
þar sem mætist í senn stórbrotin saga og
iðandi mannlíf og þar sem gosbrunnarnir
ausa uppsprettuvatninu af örlæti sínu eins og
til að undirstrika þá snilld, sem hér hefur
verið lögð í hvern stein, þannig að ekki getur
að líta glæstara leiksvið í víðri veröld. Það var
á þessu torgi sem ég endaði fyrsta dag minn í
Róm á lítilli en þéttsetinni krá þar sem
baunadiskurinn kostaði hundrað lírur og hið
Vatnsmelónusalinn
á Piazza Navona -
vatnslitamynd
eftir A. Pinelli
PIAZZA NA/ONA
gullna hvítvín frá Frascati var veitt af slíku
örlæti að ofreynd skilningarvitin urðu er yfir
leið óminnishegranum að bráð.
„Roma o morte!“ - Rómaborg eða
dauðann sjálfan! - hrópaði Garibaldi þegar
hann var aö frelsa Ítalíu undan erlendu
valdi. Eftir lóáramisnáinkynniafRóm-
aborg þykist ég reynslunni ríkari: Rómaborg
verður ekki sigruð, en hún er jafn heillandi til
hólmgöngu og dauðinn sjálfur.
Stadio di
Domiziano
Piazza Navona er aflangt torg í hjarta
gömlu Rómar, um 230 metra langt og 53 m á
breidd. Pað á sér sögu allt aftur til 1. aldar
eftir Krist, þegar Dómitíanus keisari lét reisa
íþróttaleikvang á Campo Marzio, svæði því
Loftmynd tekin yfir Piazza Navona eins og
það lítur út í dag.
LEIKSVIÐ
lífsins
í hjarta
Rómaborgar
í2000 ár
Eftir
Olaf Gíslason
sem afmarkast af Feneyjatorgi, Corso og
Piazza del Popolo annars vegar og Tíber hins
vegar og var helgað stríðsguðnum Mars.
Þetta svæði byggðist á dögum Ágústusar
keisara og státaði af mörgum frægum byg-
gingum og minnisvörðum eins og grafhýsi
Ágústusar, baðhúsum Nerós, Panþeon og
leikhúsum þeirra Marcellusar og Domitían-
usar.
íþróttaleikvangur Domitíanusar var
reistur á rústum annars, sem Ágústus lét
byggja úr tré. Var hann byggður úr marmara
og báru bogagöng uppi áhorfendapalla, sem
rúmuðu um 20 þúsund áhorfendur. Þar fóru
fram íþróttaleikir þeir, sem Rómverjar tóku
upp eftir Grikkjum og kallaðir voru agones.
Bygging þessi, sem þótti eitt af sjö furðuverk-
um Rómar fyrir sakir íbúrðar og skrauts,
eyðilagðist einhvern tímann á fyrri hluta mið-
alda og mun marmarinn að talsverðu leyti
hafa verið nýttur í annað, en á miðöldum
gekk staður þessi undir nafninu Campo Ag-
ones. Rústirnar grófust þá í gróður og fokj-
arðveg og það var ekki fyrr en á 15. öld að
farið var að byggja í kringum torgið á nýjan
leik: kirkjur heilagrar Agnesar og Katarínar
og heilags Giacomo af Spáni. Voru byggingar
þessar reistar á rústum áhorfendapalla Dom-
itíanusar þannig að form torgsins hélt up-
prunalegri mynd sinni. Það var hins vegar
ekki fyrr en með endurreisnarpáfanum Six-
tusi IV (1471-84) sem torgið tók á sig núver-
andi mynd: forhliðum kirknanna var snúið
inn að torginu og það hætti að vera bakgarður
en varð sú miðstöð mannlífs, sem það hefur
verið síðan. Það var á þessum tíma, sem tor-
gið fékk sitt núverandi nafn, Piazza Navona,
sem dregið er af formlíkingu við stórt skip:
navona. Það var einnig á þessum tíma, sem
helsti útimarkaður borgarinnar var fluttur af
íþróttaleikvangur Domitíanusar keisara eins
og hann leit út á 1. öld. Pallarnir, sem voru úr
marmara tóku 20 þúsund áhorfendur. Nær
sést hringleikahús Domitíanusar þar sem flutt
voru Ijóð og tónlist. Fjær er grafhýsi Ágústus-
ar kcisara. Líkan eftir Gismondi.