Þjóðviljinn - 14.12.1982, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 14.12.1982, Qupperneq 1
UQÐVIUINN Eg get ekki lengur orða bundist yfir þessu stanslausa níði um manninn segir Magnús Guðmundsson kennari um æðsta mann Sovétríkjanna Júrí Andropov. Sjá 6 Mdesember 1982 þriðjudagur 47. árgangur | 284. tölublað Orkuverð til álversins og almenningsveitna Munurlnn áfram fimmfaldur samkvæmt tíllögu Guðmundar Þetta línurit sýnir svo skýrt sem verða má, hvernig munurinn á ork- uverði til álversins annars vegar og almenningsrafveitna í landinu hins vegar hefur vaxið frá því álverið tók til starfa árið 1969. í byrjun þurftu almenningsraf- veiturnar að greiða um 80% hærra verð fyrir orkuna heldur en álver- ið. Nú er munurinn hins vegar kominn upp í 460%! - Eðlilegur munur þarna á milli er 50% að dómi sérfróðra manna. Neðri línan sýnir hvernig orku- verðið tii álversins hefur þróast á þrettán árum, og varla færst úr stað. En efri línan sýnir, hvernig orkuverð til almenningsraf- veitnanna hefur þotið up á sama tíma. Litla strikalínan, í horninu niðri til hœgri, sýnir hvernig orkuverð til álversins œtti að hœkka samkvœmt frœgri tillögu GuðmundarG. Þórar- inssonar, sem Framsóknarflokkur- inn hefurtekið ábyrgð á, úr6.5 mill á kílówattstund í 7.8 mill. ■ ■ i ■ ■ k i i ■ "1.1 III 69 1970 71 72 73 74 75 76 77 78 79 1980 81 82 83 US/ mill/ kwh 30- 20- Til almenningsveitna 10- 6,5 mill LANDSVIRKJUN meðalheildsöluverð á raforku 36,4 mill Til ísal Komið er fram frumvarp um að fasteignaskattar hækki hvergi meira en um 65% ámilli ára 1983,enfast- eignamat á höf- uðborgarsvæð- inu hækkaði 1. des. s.l. um 78% Um helgina var víða skreytt og föndrað fyrir jólin. A Barna- heimilinu Osi komu saman börn, foreldrar og starfsfólk til að skreyta. Fjárveitinganefnd skilar af sér Fjárlög koma til annarrar umræðu í dag - Hækkun á rekstrar- og útgjaldaliðum nemur 145 miljónum króna, sagði Geir Gunnarsson formaður fjárveitinganefndar ai- þingis í stuttu viðtali við Þjóðviljann í gær. Fjárlögin verða til annarrar um- ræðu í sameinuðu þingi í dag. Eins- og áður sagði eru frávikin frá þvi fjárlögin voru lögð fram orðin 145 miljónir, en fjárveitinganefnd hef- ur haft frumvarpið til umfjöllunar i nokkrar vikur. Gera má ráð fyrii að fjárlögin verði afgreidd á alþingi fyrir jólin en í dag hefst önnur um- ræða. Geir Gunnarsson sagði að meðal óafgreiddra mála frá nefndinni væru B-hluta fyrirtæki í fjárlögum t.d. Háskóli íslands og Lánasjóður íslenskra námsmanna. Þau ættu að koma til afgreiðslu í vikunni. -óg Geir Gunnarsson formaður fjár- veitinganefndar alþingis. Alþýðubandalagið Ný fram- kvæmdastjóm Á fyrsta fundi nýkjörinnar mið- stjórnar Alþýðubandalagsins var kjörið í framkvæmdastjórn flokks- ins. Hana skipa nú auk Svavars Gestssonar formanns Alþýðu- bandalagsins, Kjartans Ólafssonar varaformanns, Guðrúnar Helga- dóttur ritara og Tryggva Þórs Aðalsteinssonar gjaldkera, sem eru sjálfkjörin, þau Adda Bára Sig- fúsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Pétur Reimarsson. Lúðvík Jóseps- son, Rannveig Traustadóttir og Úlfar Þormóðsson. Varamenn eru 1. Margrét Björnsdóttir, 2. Ólafur Ólafsson og 3. Vilborg Harðar- dóttir. Framkvæmdastjórn skiptir sjálf með sér verkum. Fulltrúi Alþýðubandalagsins í ;Reykjavík, formaður verka- lýðsmálaráðs, formaður þing- flokks, framkvæmdastjóri Alþýðu- bandalagsins og fulltrúi Æskulýðs- nefndar Alþýðubandalagsins sitja einnig fundi framkvæmdastjórnar. - ekh Bráðabirgðalögin úr nefnd Bráðabirgðalögin voru afgreidd úr fjárhags- og viðskiptanefnd efri deildar alþingis í gær. Meirihluti ncfndarinnar leggur til að bráða- birgðalögin verði samþykkt en mcirihlutann mynda aðilar að ríkisstjórn. Minnihluti ncfndarinn- ar hefur ekki lagt fram álit. Með meirihlutaáliti fylgir greinagerð með sérfræðiáliti Sigurðar Líndals um vafaatriði í lagatúlkun. í áliti Sigurðar segir, að ef lögin l'alli, verði felld í atkvæðagreiðslu á alþingi, eigi Kauplagsnefnd að reikna út verðbætur að nýju. Verð- bætur á laun greiddust þá síðan launþegum frá þeim degi sem lögin ganga úr gildi. Verðbótaskerðing- unni sem þegar er orðin verður hins vegar ekki haggað. Sigurður segist og telja að um gildistíma verðbótaskerðingarinn- ar sé rétt að orða ákvæði þannig að taki af öll tvímæli. Bráðabirgðalög- in verða væntanlega tekin til ann- arrar umræðu í efri deild nú í vik- unni.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.