Þjóðviljinn - 14.12.1982, Qupperneq 9
Þriðjudagur 14. desember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
Foreldrafélög grunnskóla Kópavogs:
Átelja að námsgagna-
stofnun sé fjársvelt
Sól hf.
Þverholti 19. sími 91-26300
Fomritafélagið færist nú í aukana
Hið íslenska fornritafélag var
stofnað árið 1928. Það er
sjálfseignarstofnun og tilgangur
þess er „að láta gera vandaða út-
gáfu allra helstu íslenskra fornrita
og endurnýja hana eftir þörfum“,
eins og segir í lögum félagsins.
Sá sem frumkvæðið átti að stofn-
un félagsins var Jón Ásbjörnsson,
hæstaréttardómari. Var hann og
forseti þess um áratuga skeið.
Fyrsta ritið, sem út kom á vegum
félagsins, var Egils saga. Sigurður
Nordal gafhana út 1933, en Sigurð-
ur var fyrsti útgáfustjóri félagsins.
Eftir hann kom Einar Ól. Sveins-
son, prófessor, en núverandi út-
gáfustjóri er dr. Jakob Bene-
diktsson.
Hingað til hefur félagið gefið út
18 bindi íslenskra fornrita og eru
Danakonungasögur, sem nú voru
að koma út, hið síðasta þeirra.
Stærstur hlutinn er íslendinga-
sögur, 13 bindi, en þar að auki
Heimskringla í 3 bindum og
Orkneyingasaga í einu bindi. Fé-
lagið hefur aukið mjög starfsemi
sína hin síðari árin. Árið 1979 gaf
það út sérstaka hátíðarútgáfu af
Heimskringlu í tilefni 800 ára af-
mælis Snorra Sturlusonar. Jafn-
framt hefur verið unnið að því að
ljósprenta þau bindi útgáfunnar,
sem uppseld voru, en ýmis þeirra
höfðu verið ófáanleg árum saman.
Síðustu 3 árin hafa öll 17 bindi út-
gáfunnar verið fáanleg hjá bóka-
sölum en þau eru:
Íslendingabók-Landnámabók,
Egils saga Skalla-Grímssonar,
Borgfirðinga sögur, Eyrbyggja
saga, Laxdæla saga, Vestfirðinga
sögur, Grettis saga, Vatnsdæla
saga, Eyfirðinga sögur, Ljósvetn-
inga saga, Austfirðinga sögur,
Brennu-Njáls saga, Kjalnesinga
saga, Heimskringla 1.2. og 3.
bindi og Orkneyinga saga.
Verið er nú að vinna að undir-
búningi margra nýrra binda, sem
væntanlega koma út á næstu árum.
í undirbúningi eru tvö önnur bindi
Konungasagna, og verða útgef-
endur þeirra dr. Bjarni Einarsson
og dr. Ólafur Halldórsson. Þá er
langt komið útgáfu síðasta bindis-
ins af íslendingasögum, sem þeir
sjá um Þórhallur Vilmundarson,
prófessor og Bjarni Vilhjálmsson,
þjóðskjalavörður. í framhaldi af
þessu er m.a. stefnt að útgáfu
Eddu-kvæða og Snorra Eddu, svo
og Biskupasagna.
Forseti Hins íslenska fornritafé-
lags er nú Jóhannes Nordal, en
aðrir í stjórn félagsins eru Andrés
Björnsson, Baldvin Tryggvason,
Jónas Kristjánsson
Möller.
og Óttarr Aðalumboð fyrir útgáfubækur
félagsins hefur Bókaverslun Sig-
fúsar Eymundssonar haft frá upp-
hafi. - mhg
Gjöfin
sem gefur arð
Sodastream tækið er tilvalin
jólagjöf fyrir alla fjölskylduna
Gerið sjálf gosdrykkina og
sparið meira en helming.
„Stjórnir foreldrafélaga grunn-
skóla Kópavogs átelja harðlega
það fjársvelti sem Námsgagna-
stofnunin býr við og leyfa sér jafn-
framt að vísa til 1. og 2. gr. laga um
Námsgagnastofnun þar sem segir
m.a. að hlutverk stofnunarinnar sé
að sjá grunnskólum fyrir sem best-
urn og fullkomnustum náms- og
kennslugögnum", segir m.a. í á-
lyktun sem foreldrafélög grunn-
skóla Kópavogs samþykktu ný-
lega.
Félögin vænta þess að fjár-
veitingavaldið sjái sóma sinn í byí
að endurskoða fjárveitingu til
Námsgagnastofnunar þannig að
eðlilegt starf geti farið fram í
skólum landsins í samræmi við lög
og reglugerðir.“
Fáar námsbækur
fyrir nema
meö sérþarfir
Vegna umræðna um Námsgagn-
astofnun ríkisins að undanförnu
vill stjórn Landssamtakanna
Þroskahjálpar benda á að útgáfa
námsgagna fyrir nemendur með
sérþarfir hefur verið hornreka frá
upphafi í íslensku skólakcrfi og er
enn. Síðan segir í frétt frá saintök-
unum:
Óttast stjórnin að réttur um-
ræddra nemenda muni enn verða
fyrir borð borinn verði fjárlaga-
frumvarpið 1983 óbreytt að lög-
um og sá niðurskurður sem þar
kemur fram á fjárlagatillöguni
Námsigagnastofnunar að veruleika.
Stjórn Landssamtakanna Þrosk-
ahjálpar leggur áherslu á að hafist
verði handa um útgáfu á náms-
gögnum fyrir nemendur með sér-
þarfir hið allra fyrsta og tekur því
eindregið undir þá kröfu að Náms-
gagnastofnun ríkisins verði gert
kleift að sinna því hlutverki, sem
henni er ætlað.“
S AMHJ ÁLPARPLAT AN
fíímhjólp
HVERFISGÖTU 42 R.
verdur til sölu í kaffistofu Samhjálpar á
Hverfisgötu 42 kl. 14—18 alla virka daga til
jóla. Sendum ípóstkröfu um allt land.
Sími 11000
a.g«‘
öO-íT'*
A.NNE MAKIB ANTONSEN
Ljósmyndir Hallgríms Ein-
arssonar Akureyri
í upphafi í nýrrar aldar
Þjóðskáldið séra Matthías Jochumsson sat
um árabil á friðarstóli á Akureyri eftir að
hann lét af embætti þarsem sóknarprestur.
Akureyringar kunnu líka að meta hann og
kusu hann fyrsta heiðursborgara Akureyr-
ar.
Myndin sýnir höfund þjóðsöngs okkar ís-
lendinga þar sem hann situr lengst til hægri
í heimsókn hjá syni sínum Steingrími lækni
og fjölskyldu hans.
Bókaútgáfan Hagall Bþrugötu 11
Myndin eraðeins eittsýnishorn affjölmörg-
um Akureyrarmyndum í bókinni Akureyri
1895 - 1930, bókinni þar sem saga höfuð-
staðar Norðurlands í byrjun tuttugustu aldar
birtist í listáfallegum myndum á hverrisíðu.
Myndperlur Hallgríms Einarssonar eiga er-
indi inn á hvert heimili, þar sem menn unna
fögru handverki - fallegum myndum - góðri
bók - og sögu forfeðranna, fólksins sem
lagði grunn að velferð okkar í dag.
101 Reykjavík, sími 17450.