Þjóðviljinn - 19.03.1983, Síða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 19.-20. mars 1983
Hér
í Skráargatinu birtist nýiega vísa í tilefni
af ummælum Stefáns Jónssonar í sjón-
varpi þar sem hann hélt því fram að
greind alþingismanna væri langt fyrir of-
an meðallag. Vísan var svona:
Alþingi telur áskipað
úrvalsliði greindu
en hitt má kalla hógvœrð að
halda þessu leyndu.
Það var Sigurdór Sigurdórsson blaða-
maður sem orti þetta en Stefán var ekki
lengi að svara þessu enda hagyrðingur
með ágætum eins og alþjóð er kunnugt.
Svar hans var á þessa leið:
Á alþingi þó ekki greindir vceru
allir jafnt, ég efalítið tel
að þaðan koma Ijósin logaskœru”
en lýsa bara misjafnlega vel.
Spegillinn
„samviska þjóðarinnar” er nú væntan-
legur á markaðinn eftir langan svefn.
Ýmis af helstu séníum landsins bæði
skríbentar og teiknarar hafa lagt nótt við
nýtan dag að undanförnu við að móta
blaðið og er það væntanlegt á markað-
inn innan tíðar. Utgefendur kalla sig Fé-
lag áhugamanna um alvarleg málefni en
það er leynifélag. Starfsmenn blaðsins
eru hins vegar Úlfar Þormóðsson og
Hjörleifur Sveinbjörnsson og eru þeir
ekki gjaldgengir í leynifélagið.
Sjálfstœðis-
flokkurinn
mun trúlega einn flokka merkja við nöfn
á kjörskrá í næstu kosningum. Heyrst
hefur að Alþýðubandalagið í Reykjavík
og Framsókn muni nú láta af merking-
um - en lengra er síðan Alþýðuflokkur-
inn hætti þessu. Venjan er sú að hringt
sé til kjósenda í samræmi við þessar
merkingar á kjördag. Það er eftir öðru
að Sjálfstæðisflokkurinn skuli einn
verða eftir í þessu efni.
A rfleiðsluskráin
nýbirta, þar sem maður ánafnar húseign
sína Sameiningarflokki alþýðu, Sósíalista-
flokknum hefur vakið mikla athygli.
Segir í skránni, að ef flokkurinn verði
Iagður niður eða klofni skuli menningar-
og fræðslustofnun sú sem á að verða
starfrækt í húseigninni, vera undir
stjórn og á vegum þess flokks sem skipar
sér í hina alþjóðlegu fylkingu marxísk-
lenínskra flokka. En því láni hefur nú
enginn flokkur eða flokksbrot að heilsa.
Gerir erfðaskráin þá ráð fyrir því að
stofnunin skuli starfa undir stjórn sem
valin sé af „formönnum Reykjavíkur-
deilda vináttufélaga íslands og sósíal-
ísku landanna”.
Slík vináttufélög eru til í landinu á
milli íslands og Sovétríkjanna formaður
ívar Jónsson, við Pólland formaður
Haukur Helgason, við Tékkóslóvakíu
formaður Jón Hannesson, við Kúbu for-
maður Ingibjörg Haraldsdóttir, við
Austur-Þýskaland Örn Erlendsson, við
Albaníu Þorvaldur Þorvaldsson og við
Kína Arnþór Helgason eftir því sem við
best vitum. Annars hlýtur þetta mál að
vera sérstaklega viðkvæmt bæði lög-
fræðilega og ekki síður pólitískt ef við
þekkjum Framsóknarflokkinn nógu vel.
Leiðtogi Sjálfræðisflokksins lætur móðan mása
Alíslenskur
flokkur rífur
þjóðina
uppúr feninu
Við Sjálfræðismenn erum álíslenskir
og stöndum upp úr feninu, sagði
leiðtogi Sjálfræðisflokksins í viðtali
við Morgnablaðið en blaðið leitaði til
hans til að fjalla um hugsjónir
Sjálfræðisstefnunnar í komandi
kosningabaráttu:
- Það er munur heldur en hinir flokkarnir
sem eru allir einsog hundar á sundi - og það
óþjóðlegir útlendir hundar. Þannig hafa þeir
allir fengið stefnuskrár sínar frá útlöndum
allt frá Sovétríkjunum til Frakklands. Það er
eitthvað annað en við.
- En kæri leiðtogi, er ekki kristindómurinn
alþjóðlegur? Og er ekki kristindómurinn einn
af hornsteinum Sjálfræðisstefnunnar?
- Sjálfræðisflokkurinn er sómi sverð og
skjöldur hinnar íslensku þjóðar, ekki síst
heildsala. Við erum sannir fslendingar.
- Nú hefur þú sjálfur staðið fyrir
innflutningi á ýmsum erlendum varningi?
- Það er í samræmi við sj álfræðisstefnuna
að einstaklingurinn standi á sínum eigin
þjóðlegufótum. Þaðerþessvegna sem
sjálfsbjargarviðleitni einsog innflutningur er
um fram allt alíslensk. Sem slíkur hefi ég
enda flutt inn vín frá útlöndum.
Björgunarstarfsemi
leiðtogans
- Ertu ekki hræddur um afleiðingarnar
þessar víninnflutnings?
- Ég hefi séð hörmulegar afleiðingar
víndrykkju. Þess vegna hefi ég staðið einsog
stytta við áfengisvarnarstöðvar og skorað á
fólk sem hefur drukkið af víninu sem ég flyt
inn að þurrka sig upp. Ég hefi einnig í
samræmi við sjálfræðisstefnuna pínt út
stuðning frá ríki og bæ fyrir áfengisvarnir.
Það er nauðsynlegt að samfélagið komi til
móts við þessa vesalings menn, sem hafa
drukkið of mikið af innfluttum vínum.
- En hefurðu ekki einnig komið til hjálpar í
sambandi við bankamálin?
- Sjálfræðisflokkurinnersverðog
skjöldur þjóðarinnar. Það er þess vegna sem
alþingi hefur trúað mér fyrir formennsku í
Sjávarútvegsbankaráðinu. Þar hefi ég beitt
mér fyrir því að sérstök deild var stofnuð í
bankanum til að ávaxta peninga þeirra sem
eru orðnir öreigar vegna ofneyslu áfengis.
Allt er þetta í samræmi við hugsjónir okkar.
Bæjarstjórnin
tómstundagaman
- Nú ertu einnig forseti í bæjarstjórninni,
hefurðu ekki mikið að gera?
- Svo er ég líka fyrrverandi framámaður í
íþróttahreyfingunni og ég er líka frímúrari.
En þar eru engar stúlkur, skal ég segja þér.
Þú mátt ekki gleyma hver ég er. Ég er
upprunninn úríslenskumatvinnuvegum.
Ef ég mætti segj a við Iesendur blaðsins í
trúnaði þá er bæjarstjórnin eiginlega bara
tómstundagaman. Mér hefur alltaf verið illa
við það þegar einhverj um skemmtilegum leik
er flautað af. Þess vegna hef ég haldið áfram
þarna í bæjarstjórninni. Annars þarf ég
ekkert að gera þar þarna fremur en aðrir
Sjálfræðismenn, við höfum einhvern
glæsilegasta fulltrúa sjálfstæðra manna þarna
við stjórnvöldinn - og hann sér um þetta. En
við fáum smá laun fyrir að rétta upp hendur.
Verslunarbransinn
tómstundagaman
- Kemur þú ekki líka nálægt einhverjum
fyrirtækjum?
- Það getur nú varla heitið. Ég er í
stj órnum nokkurra fy rirtæk j a einsog t. d.
Hafskips og Tollvörugeymslunnar. En það er
bara tómstundagaman - þetta er nú bara til
að hitta fólk í samræmi við hugsjónir
sjálfræðisstefnunnar. Ég vil út af þessu einnig
taka skýrt fram og skorinort að öll þessi störf
sem þú hefur verið að nefna - eru
trúnaðarstörf sem flokkurinn og strákarnir í
honum hafa treyst mér til í samræmi við
valddreifingarhugmyndir
sjálfræðisstefnunnar. Endaer
sjálfræðisstefnan sverð og skjöldur
einstaklingsins.
Verslunarráðið bara
tómstundagaman
- En nú ertu einnig í stjórn Verslunarráðs
íslands, er það ekki tímafrekt?
- Sussum nei, það er bara
tómstundagaman. Við stórkaupmenn eigum
hugsjónir sem falla að verulegu leyti saman
við hugsjónir sjálfræðisstefnunnar og við
erum að semja stefnu út fyrir flokkinn upp úr
feninu. Ég hlýt að skora á alla sjálfstæða
sjálfræðismenn að hvar í kaupmennsku sem
þeir standa að ganga til liðs við okkur í
Hafskipi, nei Tollvörugeymslunni, nei
Sjávarútvegsbankaráðinu, nei
bæjarstjórninni, nei víninnflutningnum, nei
vínbjörguninni, nei heildsölunni, nei
Verslunarráðinu, nei Val, nei
Verslunarráðinu, nei Sjálfræðisflokknum
(var ég ekki klár ha?)
- Hvað telur þú sem leiðtogi
Sjálfræðisflokksins í Reykjavík að sé
brýnasta baráttumál flokksins í
kosningunum?
- í samræmi við hugsjónir
Sjálfræðisstefnunnar tel ég það vera eitt
brýnasta hagsmunamálið að sýna fram á
eindrægni, djörfungoghug, allir út á völlinn.
Ég er nú gamall V alsari og Geir Víkingur og
Ellert KR-ingur þannig að við vitum hvað við
erum að tala um þegar pólitíkin er annafs
vegar. Þessi ríkisstjórnin er og hefur verið í
feninu-Sjálfræðisflokkurinn í
stjórnarandstöðu hefur aldrei borið neina
ábyrgð.
- En komst þú ekkert nálægt þessari
ríkisstjórn í upphafi?
- Ég hef aldrei gert annað en það sem er í
samræmi við hugsjónir Sjálfræðisstefnunnar.
Það er ekki rétt að ég hafi komið nálægt
ríkisstjórninni. Að vísu var hún mynduð
afþví ég studdi Gunnar Thor. til að mynda
hana, og ég er stoltur af því að hafa stutt hana
í upphafi en því fer fjarri að ég hafi nokkurn
tímastutt hana.
Að vísu má segj a að ég hafi skrifað bréf þar
sem ég hét því að verj a hana vantrausti en
staðreyndin er sú, að aldrei reyndi á þennan
stuðning minn í alvöru. Hver segir aðég hafi
nokkurn tíma stutt þessa ríkisstjórn? Er það
einhver í flokkseigendafélaginu? Var það
Geir? Eða hver var það? Var Mogginn að
ljúga því í þig? Trúðu aldrei þessum úr
fiokkseigendafélaginu. Ég studdi þessa
ríkisstjórn bara í upphafi en ég hef aldrei stutt
hana.
- Við hvað ertu ósáttur í stefnu
ríkisstjórnarinnar?
- Mér finnst nú hart ef þú minnist ekkert á
að ég er þingmaður og ræðismaður og
ýmislegtfleira. Ríkisstjórnin?
Ég vil taka það skýrt fram, að ég er
andvígurpeningastefnu þessarar
ríkisstjórnar. Ég haf aldrei verið sáttur við
peningastefnu þessarar ríkisstjórnar. Það var
bara tómstundagaman. Svo eru þeir allir til
vinstri ættaðir frá Sovétríkjunum. En við
sjálfræðismenn erum sómi sverð og skjöldur
einstaklingsins.
- Nú er stundum talað um, sérstaklega af
pólitískum andstæðingum, að þú sért einsog
Pétur Þríhross eða Bör Börsson?
- Hverjir eru það? Eru þeir í
Sjálfræðisflokknum? Eru þeir í
flokkseigendafélaginu?
- Hvað viltu segja um Milton Friedmann?
- Ég hef nú ekki fylgst lengi með því
hverjir eru í þessum bresku fótboltaliðum.
- Hver er helsti leiðtogi þinn í pólitíkinni?
- Ragnaríálinuernúformaður
Verslunarráðsins og hann er einn þeirra
manna í Sjálfræðisflokknum sem sannlega
getur kallast álíslenskur.
- Hvað heldur þú um pólitíska framtíð
Geirs Hallgrímssonar?
- Hann á glæsta framtíð að baki.
- Viltu segjaeitthvað nýtt ílokin?
- Já mérlangartil að segja,aðvið
Sjálfræðismenn göngum sameinaðir til sigurs
í komandi kosningabaráttu. Með djörfung
langar mér til að við vinnum þessa kosningu
með hreinum meirihluta. Mér langar til að
sjá okkur sigra þessa útlendu flokka með
álíslenskum Sjálfræðisflokki,
grundvölluðum á kristnu siðgæði. Það þarf
að rífa þessa þjóð upp úr feninu.
Sjálfræðisflokkurinnersómi þessarar
þjóðar, sverð og skjöldur. Vantar þér
nokkuðlán vinur... Þórgísl.
TVÆR VELARIEINNI
ALDA: þvottavél og þurrkari
+ *
OTRULEGA GOTT VERD
— 3000 VELAR I NOTKUN — TEKUR
HEITT OG KALT VATN — 800 SNÚN-
INGA VINDUHRAÐI — FULLKOMINN
ÞURRKARI — 14 ÞVOTTAKERFI —
INNBYGGÐ HJÓL UNDIR VÉLINNI.
Vörumarkaðurinn hf.
ARMÚLA1.A SÍMI: 86117