Þjóðviljinn - 19.03.1983, Side 3
Helgin 19.-20. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Viðbrögð Alusuisse við nýrri tillögu iðnaðarráðherra:
Hafnar alfarið
hækkun raf orkuverðs
Muller hættir við
í skeyti sem Hjörleifi Guttorms-
syni iðnaðarráðherra barst fyrir
nokkru greindi dr. Múller formað-
ur framkvæmdastjórnar Alusuisse
frá því að hann yrði hér á landi
dagana 22.-25. mars næstkom-
andi.
Með vísan til þess sendi iðnaðar-
ráðherra skeyti til Alusuisse mið-
vikudaginn 16. marssl. oggerði um
það tillögu að haldinn yrði fundur
milli aðila til að leiða í ljós hvort
unnt væri að ná samkomulagi um
verulega hækkun til álversins. Er í
skeyti ráðuneytisins vísað til þess
sem áður hafði komið fram sem
lágmarkskrafa af íslands hálfu, það
er byrjunarhækkun í 12.5 mill eða
um það bil tvöföldun orkuverðsins.
Er látið í ljós af ráðuneytisins hálfu
að samþykki við slíkri sanngirnis-
kröfu myndi auðvelda aðilum að
ljúka samningum um önnur atriði.
í svari-Alusuisse sem barst iðn-
aðarráðuneytinu síðdegis í gær og
sem Ragnar Halldórsson forstjóri
fsal sendi ásamt skeyti iðnáðar-
ráðuneytisins umsvifalaust til
fjölmiðla, er tekið fram, að dr.
Múller hafi ákveðið að fresta fyrir-
hugaðri för sinni til íslands í næstu
viku. í skeytinu segir meðal annars
að Alusuisse sé ekki reiðubúið að
fallast á byrjunarhækkun raforku-
verðs og að breyting á raforkuverði
komi ekki til greina nema sem hluti
af víðtækara samkomulagi, meðal
annars um stækkun álversins.
Hefur
það
bjargað
þér
JTf
ux
FERÐAR
íslandsferð
reykjaviK, narch 1*,
aLusuisse zuerlch
in your teLex of feoruary 1^ you aovised tnat you iceLand from 22nd marcn untiL thé 25th. vouLo oc ir.
we therefore proposo tnjt this opportunity oc oetween tne parties. for j v.cet ir,.:
the purpose of tnis meetinij .vouLd ae to estaulisn agreenent concerninn a sícnificant increase in tnc to the existlng facicities of isaL is attainaoLe. fi .vhotner ar. powér prícvr
hjörLelfur guttornsson minister for industry
zuerlch, 1» mar 33 ' aco z 1
mlnistec for industry
mr njoenleifur guttormsson
a) we are not wiLLing to agree to an inltiaL increase in
power price as proposed Qy you as we consider that a
cnange in power price nas to oe a part of a wlder
agreement incLuding i.a. some expar.sion of the isaLsmeLter.
ö) vve cannot sit down to negotiate anything witn you except
on the understanding that your onesided tax.Levy referred to
in your teLex of feoruary 11 öe settLed as proposed oy us
on novemoer 10 or in some other mutuaLLy acceptaoLe way.
regards
dr mueLLer/k woLfensoerger
Sýnishorn úr skeytum iðnaðarráðhcrra og Alusuisse sem Ragnar Hall-
dórsson forstjóri Isal sendi m.a. sjónvarpinu í gær.
Þá segir einnig að samningavið-
ræður komi ekki til greina nema að
samkomulag hafi tekist um með-
ferð á viðbótarskattálagningu ís-
lenskra stjórnvalda á ísal. Er í því
sambandi og um afstöðu Alusuisse
almennt til samningaviðræðna vís-
að til tillögu fyrirtækisins frá 10.
nóvember síðastliðnum.
í viðtali við Þjóðviljann í gær-
kveldi sagði Hjörleifur Guttorms-
son iðnaðarráðherra að samkvæmt
þessari orðsendingu frá Alusuisse
sé fyrirtækið ekki reiðubúið til að
fallast á neina leiðréttingu á raforku-
verði nema fyrirfram hafi verið
skrifað upp á kröfu Alusuisse um
stækkun bræðslunnar og fleiri
hagsbætur til handa auðhringnum.
Þessi afstaða hafi raunar legið skýrt
fyrir áður þótt ýmsir hafi ekki vilj-
að taka hana gilda. Alusuisse ætli
sér augljóslega að reyna að endur-
taka leikinn frá 1975 þegar samn-
ingar voru endurskoðaðir og öll
raforkuverðshækkunin sem um var
samið til Landsvirkjunar, var
greidd úr ríkissjóði auk fleiri atriða
Alusuisse í hag svo sem um stækk-
un bræðslunnar. Þá benti Hjör-
leifur á að það væri alrangt sem
sjónvarpið greindi frá við upphaf
og lok frétta í gærkveldi að tillaga
ráðuneytisins nú hafi verið um
viðræðufund „eftir að orkuverð
hafi verið tvöfaldað“ eins og sagði í
fréttinni. Tilgangur fundarins hafi
einmitt átt að vera að ræða um
slíka byrjunarhækkun en sam-
kvæmt ofangreindu er Alusuisse
ekki reiðubúið til viðræðna um það
efni.
TILBOÐ
Páskaegg
Nóa páskaegg Leyft Okkar
verð verð
nr. 2 40.- 31.40
nr. 3 79.- 62.00
nr. 4 130.- 102.00
nr. 5 189.- 148.30
nr. 6 336.- 263.60
Mónu páskaegg
nr. 2 60.- 46.60
nr. 4 120.- 93.15
nr. 6 160.- 125.50
nr. 8 210.- 164.70
nr. 10 315.- 247.00
MATVÖRUBÚÐIR
KRON
~|Q KAUPFÉLAG REYKJAVÍKUR 0G NÁGRENNIS
Kjörskrá
Kjörskrá til Alþingiskosninga er fram eiga aö
fara 23. apríl n.k. liggurframmi, almenningitil
sýnis, á Manntalsskrifstofu Reykjavíkurborg-
ar, Skúlatúni 2, II hæö alla virka daga frá 22.
mars til 8. apríl n.k. þó ekki á laugardögum.
Kærur vegna kjörskrárinnar skulu hafa borist
skrifstofu borgarstjóra eigi síöar en 8. apríl
n.k.
Menn eru hvattir til aö kynna sér, hvort nöfn
þeirra séu á kjörskrá.
Reykjavík 19.mars 1983
Borgarstjórinn í Reykjavík
PASKAR198
KIRKJULIST
Sýningin hefst í dag,
laugardaginn 19/3, 1983, kl. 15
Sýningartími næstu daga
kl. 14-22.
Verið velkomin.