Þjóðviljinn - 19.03.1983, Qupperneq 22
22 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 19.-20. mars 1983
Á mánudagskvöldið rennur upp stóra stundin í
íslenskum körfuknattleik. Valur og Keflavík
mætast í úrslitaleik úrvalsdeildarinnar í
Laugardalshöllinni og hefst leikurinn kl. 20.30.
Sú skemmtilega staða hefur komið upp að tvö lið
eru hnífjöfn og efstfyrir síðasta leik deildarinnar
og nýjir meistarar verða krýndir. Spurningin er:
verða það hinir reyndu Valsmenn eða nýliðarnir
úr Keflavík sem eru að leika í fyrsta skipti í
úrvalsdeildinni. íþróttafréttaritarar Þjóðviljans,
Víðir Sigurðsson í Reykjavík og Guðmundur
Stefán Maríasson í Keflavík, heilsuðu uppá
leikmenn liðanna á dögunum og ræddu við þá
um úrslitaleikinn:
Við eigum
sterkari
5 manna
kjarna...
Nýliðar Keflvíkinga voru góm-
aðir í lok æfingar á fimmtudags-
kvöldið og „pumpaðir" um
viðureignina gegn Valsmönnum.
Brad Miley, þjálfari og
leikmaður, varð fyrir svörum
ásamt Axel Nikulássyni, Þor-
steini Bjarnasyni, Jóni Kr. Gísla-
syni og Birni Víkingi Skúlasyni
fyrirliða.
- Brad, hvað viltu segja um
Valsliðið?
„Keflavík og Valur eru tvö
bestu liðin á lslandi í dag og ég
virði andstæðinga okkar, sem ég
þekki mjög vel þar sem ég hef
leikið með þeim. Valsmönnum
hefur farið fram með árunum,
eins og raunar allir gera, en hvert
lið er ekki betra en þeir íslend-
ingar eru sem með því leika. Er-
lendu leikmennirnir hafa ekki allt
að segja þegar aðeins einn er í
hverju liði. Valur er lið sem spilar
af hörku og gengur eins langt og
dómarar leyfa, og þá er þeim
hættara við villuvandræðum en
okkur vegna skapsins."
- Hvað með leikinn á mánu-
dae?
„Við getum ráðið gangi leiksins
og við getum unnið öll íslensk lið
með því að keyra á fullu allan
tímann. Við höfum nokkrum
sinnum misst niður einbeitni þeg-
ar við höfum hægt á og jafnvei
tapað leikjum á því. í hverjum
leik kemur að þeim kafla þegar
annað liðið þarf að setja allt á
fullt til að sigra. Valsmenn voru
fyrri til að gefa í á þriðjudaginn í
bikarleiknum en nú látum við þá
ekki komast upp með það.“
- Axel var fljótur til svara þegar
hann var spurður um úrslita-
leikinn:
„Það er alveg ákveðið að við
ætlum okkur ekkert annað en
sigur. Ég tel liðin mjög áþekk að
getu; þeir hafa aðeins meiri
breidd en við höfum sterkari
fimm manna kjarna."
- Nú hefur vítanýtingin verið
slök hjá ykkur í nokkrum
leikjum. Hver er ástæðan?
„Það hefur einfaldlega orsakast
af taugatrekkingi og við höfum
tapað leikjum á þessu, t.d. gegn
ÍR og Val, en við ætlum okkur
ekki að missa af íslandsmeistara-
titlinum vegna vítaskota. Ég vil
benda á að þar sem við erum úr
leik í bikarnum erum við ekki
undir eins miklu álagi og ella og
það hjálpar okkur mikið.“
Þeir félagar Jón Kr. Gíslason
og Þorsteinn Bjarnason voru al-
veg sammála og sögðu m.a.:
„Þessi leikur leggst mjög vel í
okkur og þótt við höfum tapað
bikarleiknum finnum við ekkert
fyrir því þar sem liðsandinn er
stórkostlegur. Nái spilið að
smella saman, munum við sigra.
Það er minni pressa á okkur en
Valsmönnum, t.d. telja fáir að <
við getum unnið þar sem við
erum á fyrsta ári í úrvals-
deildinni. Við byrjuðum keppn-
istímabilið með því hugarfari
að halda okkur í deildinni og
tókum einn leik í einu, og þetta
hefur 'gengið upp.
Valsmenn hafa verið okkur
erfiðir en við ætlum að sigra þá
tvisvar í íslandsmótinu. Við lent-
um í því að missa Tim Higgins í
vetur og lékum tvo leiki áður en
Brad Miley kom. Þessum leikjum
töpuðum við og vega þeir þungt
nú.“
Ríkharður Hrafnkels-
son: „Keflvísku áhorf-
endurnir skapa alltaf
skemmtilega stemmn-
ingu.“
- Björn Víkingur, fyrirliði: Nú
hefur verið talað um að ÍBK sé lið
léttleika og hraða en Valur lið
leikreynslu og ógnunar.
Valsmenn leika ekki mjög
kerfisbundið og ég tel að við höf-
um náð þeirri leikreynslu sem
muni duga til sigurs. Þeir eru há-
vaxnir og sterkir undir körfunni
og það er þeirra styrkur hve lengi
þeir hafa leikið saman. Valsmenn
unnu síðasta leik á góðri hittni og
hraðaupphlaupum og við munum
reyna að koma í veg fyrir að það
endurtaki sig á mánudaginn.
- Þið hafið átt ótrúlegri vel-
gengni að fagna á heimavelli og
eigið dygga stuðningsmenn.
Já, það er rétt, og þessi vetur
hefur verið mjög ánægjulegur
vegna þess hversu vel hópurinn
hefur haldið saman í blíðu ög
stríðu.
Áhorfendur og stuðningsmenn
okkar eru margra stiga virði. Þeir
hafa stutt vel við okkur í vetur og
við eigum hluta af velgengni okk-
ar þeim að þakka. Það er því von-
andi að þeir fjölmenni í Laugar-
dalshöllina á mánudagskvöldið
og hafi ánægju af!
gsm
Valsmenn
hafa
þrisvar
unnið
Leikir Vals og Keflavíkur í
vetur hafa verið jafnið og tví-
sýnir, með einni undantekn-
ingu. Úrslit þeirra hafa orðið
þessi:
Úrvalsdeildin:
Keflav.-Valur...... 89-87
Valur-Keflav.......100-61
Keflav.-Valur...... 87-88
Bikarkeppnin:
Valur-Keflav........95-88
Brad Miley: „Valsmönnum
er hættara við villuvand-
ræðum vegna skapsins."
Tim Dwyer: „Svipaður og
bikarleikurinn, harður og
tvísýnn."
Við skulum s
keflvísku tvö
Torfi Magnússon, Ríkharður
Hrafnkelsson og Tim Dwyer hafa
verið þrír af litríkustu leik-
mönnum Vals í vetur, og reyndar
undanfarín ár. Undirritaður brá
sér inná umráðasvæði Vals-
manna sl. fimmtudag og ræddi
við þá þremenninga, rétt áður en
æfing hjá þeim hófst.
- Torfi, hvernig undirbúið þið
ykkur nú síðustu dagana fyrir
þennan úrslitaleik á íslandsmót-
inu?
„Við æfum á hverjum degi fram
að leiknum, en áður voru æfingar
fjórum sinnum í viku. Annars
hefur undirbúningurinn staðið í
allan vetur, við höfum allan
tímann stefnt á að sigra tvöfalt,
bæði deild og bikar.“
- Hefur komið þér á óvart
hvernig keppni í úrvalsdeildinni
hefur þróast í vetur?
„Já, ég get ekki sagt annað. Val-
ur og Keflavík hafa skorið sig
nokkuð úr en deildin hefur ekki
verið nærri því eins ójöfn og for-
ysta þessara tveggja liða gefur til
kynna. Stigataflan gefur nokkuð
falska mynd af gangi mála, allir
leikir hafa verið erfiðir og engir
auðunnir, nema helst gegn IR
fyrri partinn í vetur. Það má
aldrei slaka á í úrvalsdeildinni og
allir leikir verða að vera teknir
alvarlega".
- Hvað með keppinauta ykkar,
Kcflvíkinga. Attirðu von á þeim
svona sterkum?
„Ég vissi að þeir væru með gott
lið, þeir slógu okkur útúr bikam-
um í fyrra, en ég bjóst alls ekki
við að þeir myndu standa sig eins
vel og raun ber vitni. Þeir Ientu
snemma í vandræðum með sinn
Bandaríkjamann og þurftu að
skipta en þeim tókst að rífa sig
uppúr því og ná sér á strik á ný.“
- Ríkharður, nú ert þú að flytja
heim til Stykkishólms á ný þegar
keppnistímabilinu lýkur. Verða
þessir lokaleikir ekki nokkuð sér-
stakir fyrir þig?
„Maður ætti nú ekki að fullyrða
að þetta séu síðustu leikir mínir
með Val, ég er ekki nema 25 ára
og allt getur skeð í framtíðinni!
En það er rétt, ég stend á tíma-
mótum og við endum keppnis-
tímabilið með tveimur stór-
leikjum. Ég er vel undir þá búinn
og það yrði gaman að enda með
tveimur góðum sigrum.“
- Ertu smeykur við kefivísku
áhorfcndurna sem án efa verða
fjölmennir og háværir í Höllinni?
„Nei, alls ekki, ég er orðinn van-
ur þeim og þeir skapa alltaf
skemmtilega stemmningu. Það er
allt öðruvísi að leika í Höllinni en
suður í Keflavík og ég kann alltaf
best við Laugardalshöllina."
- Hafa Kcflvíkingar virkilega
verið ykkar erfiðustu and-
stæðingar í vetur?
„Það er ekkert vafamál, þó svo
okkur hafi gengið verr á móti
Njarðvíkingum og tapað þrívegis
gegn þeim. Við höfum mætt bet-
ur undirbúnir til leiks gegn Kefl-
víkingum en öðrum, og náð að
sigra þá þrisvar, en ég tel að það
hafi kostað okkur sex stig í vetur
að slaka einum of á gegn
Nj arðvíkingunum. “
- Tim Dwyer, hvernig leik mega
körfuknattleiksunnendur reikna
með að sjá á mánudagskvöldið?
„Hann verður svipaður og bikar
leikurinn á dögunum, harður og
tvísýnn. Við hefðum getað leikið.
betur þá og á mánudag leggjum
við meira uppúr vörninni. Slæm
varnarmistök færðu Keflvíking-
um auðveld stig og þessa dagana
leggjum við aðaláherslu á varnar-
leikinn á okkar æfingum. Bak-
verðirnir, Jón og Rikki, léku frá-
bærlega í bikarleiknum og ég,
Kristján og Torfi verðum að
standa þeim jafnfætis í þessum
þýðingarmikla leik.
- Hverjir eru helstu styrkleikar
Keflvíkinga?
„Þeir eru með heilsteypt lið og
leika hver fyrir annan svo það er
alltaf erfitt að leika gegn þeim.
Það er alltaf auðveldara að brjóta
niður lið sem byggist upp á einum
manni, ef honum mistekst hrynur
allt. Ef einn Keflvíkingur á slak-
an dag bæta hinir það upp.“
- En veikleikar?
„Engir, í raun og veru, nema
helst hve breiddin er takmörkuð,
þá vantar sterka skiptimenn þeg-
ar á reynir.“
- Nú hcfur þú leikið hér á landi
áður. Er íslenskur körfuknatt-
leikur í framför eða afturför?
„Margt hefur breyst, KR og
Njarðvík eru ekki lengur jafn
sterk og þau voru en í heild hefur
leikmönnum farið fram og leikur
þeirra er allur skynsamari. Fram-
farirnar eru fyrir hendi hjá þeim,
en því miður hefur dómgæslunni
hrakað. Dómara í úrvalsdeildinni
skortir meiri stöðugleika, þeir
dæma ágætlega á köflum en detta