Þjóðviljinn - 24.03.1983, Blaðsíða 4
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 24. mars 1983
BLAÐAUKI
/ spurningatíma
í Bústaðakirkju
hjá séra Ólafi
Skúlasyni
Leiðir
trú
alltaf
til
Undir lok spurningatíma í Bústaðakirkju spurði eitt
fermingarbarnið að því, hvort trú leiddi ekki yfirleitt alltaf til góðs,
eða var kannski spurt af því, hvort það væri ekki sama á hvaða guð
menn tryðu? Séra Ólafur Skúlason vildi ekki skrifa undir það, sem
ekki var von - og meðal annars minnti hann á þær ógöngur sem
hópur manna kom sér í. Með trú réttri - að þeirra eigin dómi -
framdi hópurinn sjálfsmorð suður í Guyana.
Annaö spumingabarn spurði um
merkingu orðsins amen. Og satt að
segja voru það þessar spurningar
sem minntu gamlan hund úr
blaðamannahópi á það, að sitthvað
breytist frá því hann sjálfur var tán-
ingur. Við spurðum séra Eirík þar
suður með sjó áreiðanlega aldrei
að neinu öðru en því, hvenær við
ættum að mæta næst, og hvort við
ættum virkilega að læra allan sálm-
inn! Annað sem kom dálítið á óvart
eftir öll þessi ár: börnin voru innt
eftir kirkjusókn - en það var ekki
gert í minni sókn fyrir röskum
fjörutíu árum.
Um hvað
spyrja þau?
Jú, þau spyrja um ýmislegt,
sagði séra Ólafur að tímanum lokn-
um, og ekki barasta um það sem
kalla mætti trúfræðilegt, heldur um
ýmislegt sem lýtur að almennri
hegðun - heima og í skóla. Og
áherslur eru síbreytilegar - þegar
ég byrjaði hér, þá var eins og
spenna færðist í hópinn þegar
minnst var á sjötta boðorðið: Þú
skalt ekki drýgja hór. Nú virðist
alit sem snýr að því boði orðið ofur
hversdagslegt og kannski meiri
áhugi á að fjalla um annað boðorð:
Þú skalt ekki stela.
En eins og að líkum lætur hafa
prestar eins og svo margir sem
reyna að laða unglinga til „virkni“
eða umhugsunar, við ramman reip
að draga, og kannski eru börnin,
þegar öllu er á botninn hvolft,
hvergi nærri eins feimin við þann
fullorðna, leiðbeinandann, og þau
eru hvort við annað...
Genesaret
og Reykjavík
Þetta var reyndar líflegur tími
sem hófst á lestri úr Mattheusar-
guðspjalli um þau tíðindi þegar
Jesús kom að máli við nokkra fiski-
menn og bauð þeim að fylgja sér.
Þaðan var svo stutt í útlistun: ferm-
ingin er ekki fólgin í því að börnin
eru kölluð upp að altarinu heldur
er hún „viljayfirlýsing ykkar um að
marka lífsstefnu ykkar í samræmi
við óskir Jesú...“ Og bæn fylgir
sem reynir að tengja saman val á
lífsbraut við Genesaretvatn og það
sem gerist í Reykjavík samtímis.
Það er stutt til fermingar og höf-
uðáherslan er á upprifjun á nokkr-
um atriðum. Það er farið í einstök
atvik úr biblíusögum í tengslum við
setningar í trúarjátningunni og það
er reynt að hafa það í senn í huga að
„það að þekkja þessa hluti tilheyrir
því að vera sæmilega upplýstur ís-
lendingur" og svo það, að ferming-
arbarn á að geta gert sér og öðrum
grein fyrir því í hverju sérstaða
kristindóms er. Það er náttúrlega
erfitt, eins og flestir vita, en ein-
hvernveginn verða menn víst að
reyna að læsa slíka hluti í formúlu.
Það er líká vikið að eðli helgi-
sagna. Séra Ólafur minnir á kap-
ellu litla fyrir utan gömlu Róm -
hún á að vera reist yfir skófar Krists
- þar áttu þeir að hafa mæst Símon
Pétur á flótta undan ofsóknum
keisarans í Róm og Kristur sem
kvaðst á leið inn í borgina að láta
krossfesta sig aftur. (Samanber
skáldsögu Sienkewicz, Quo vadis).
Og haldið þið, að þetta skófar hafi
varðveist? Taka menn slíka hluti
bókstaflega? Nei, spurt er um spor
eftir dvöl hans í Íífi ykkar...
Ný tíðindi
og gömul
Og svo áfram, ný tíðindi og göm-
ul og útleggingar sem eiga sé æfa-
fornan uppruna, táknhyggja með
margra alda hefð að baki. Flest
höfum við kynnst þessum heimi,
sum hafa týnt honum aftur, önnur
hafnað honum og hugsað á öðrum
leiðum, enn aðrir virða fyrir sér
þann heim sem kallast kristið upp-
eldi svo sem úr fjarska og hugsa
kannski: ekki gera þau neitt verra á
meðan, krakkagreyin. Sumum
verður eins og þeim sem köstuðu
eitt sinn brauði sínu á vatnið og það
kom til þeirra aftur...
GOÐAR ^UPPSKRIFTIRr)
Súkkulaðidrykkir Krem fyrir tertur og kökur
^MEÐ MÓNU
TERTU
HJÚP
1
r
i
1 líter mjólk
100 jjr. tertu-hjúpur, dökkur
Hitað saman, gott að láta aðeins sjóða,
einnig má drýgja mjólkina með vatni, salt
eftir smekk.
2.
I líter mjólk
150 gr. tertu-hjúpur, dökkur
Hitað á sama hátt og no. 1, en þeyttur rjómi
borinn með, eða látinn í hvérn bolla.
Bræðið TERTU HJÚP við vægan hita og
hrærið stöðugt í á meðan. (Ekki er nauðsyn-
legt að nota vatnsbað).
SÚKKULÍKI
i
f v .V / '••../ i.U—
*-
1.
100 gr. smjör
100 gr. tertu-hjúpur brætt og kælt.
4. eggjarauður hrærðar út í, ein í einu og
60 gr. flórsykur, hrært vel, má þeyta.
2.
100.gr tertu-hjúpur
2 eggjarauður
2 matsk. rjómi
2 matsk. flórsykur
Eggjarauður og flórsykur þeytt saman,
bráðnum tertuhjúpi og rjóma bætt út í.
Súkkulaðibráð.
100 gr. tertu-hjúpur. Brætt varlega, hrært
stöðugt í, síðan er 1 matskeið af smjöri
(mjúku) hrært saman við (má vera meira),
látið volgt á kökuna.
Skreytikrem.
100 gr. tertu-hjúpur. Brætt við vægan hita,
síðan er 1/4 teskeið af vatni hrært vel
saman við. Síðan er þetta látið í sprautu
eða sprautupoka, og er þá tilbúið til skreyt-
inga, látið ekki bíða.
mona
SÆLGÆTISGERÐ
STAKKAHRAUNI 1 HAFNARFIRÐI
SfMI 50300 - 50302