Þjóðviljinn - 24.03.1983, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 24.03.1983, Blaðsíða 13
BLAÐAUKI ' »» «'........ « , -",T/»T< rl7»Vf' í * ’l' 7? Fimmtudagur 24. mars 1983 IWÓÐVILJINN — SÍÐA 17 Vígamenn af ættflokki Txucarramae í Ameríku. Yfirleitt er það þannig að því meiri áhersla sem lögð er á karlmennskuna þeim mun meira mega konur þræla. í ærið mörgum samfélögum gera karlarnir lítið annað daginn út og daginn inn en að slúðra undir skuggsæium trjám. inguna til siða af þessu tagi og víst er að hér áður fyrr voru börnin tal- in fær um að sjá um sig sjálf að fermingunni afstaðinni og voru þá gjarnan látin vinna fyrir sér. Það sem skiptir máli er sem sé ekki líkamlegur þroski heldur hitt, hvað það er í stöðu fullorðinna sem álitið er hafa mest gildi. Ef her- mennska er talin aðal karlmennsk- unnar, mun manndómsvígslan fara síðar fram en vígsla í samfélagi, þar sem e.k. guðadansar eru hið eftir- sóknarverðasta í stöðu karlmanna. Hjá sléttuindíánum í Ameríku var hermennskan hið eina og sanna líf karlmanna og alla karlmenn fýsti að sanna styrk sinn í bardaga. Aðalinnihald manndómsvígslunn- ar var í samræmi við þetta særing- arathöfn, sem flytja átti heill í bar- dögum. Meðal frumbyggja Ástralíu áttu karlanir með sér sérstakan félags- skap og það var dauðasök ef kona komst að einhverju sem þeim fé- lagsskap tilhey rði - þ. e. a dauðasök fyrir konuna. Manndómsvígsla unglingsstráka var fólgin í því að afneita öllu sem dregur kynin hvort að öðru og þessu fylgdu ýmsir sær- ingasiðir, sem áttu að færa ungling- unum vernd gegn dularfullum kröftum kynlífsins. Vegna þess að manndómsvígsl- urnar snúast um félagslega stöðu fyrst og frmst er yfirleitt minni áhersla lögð á slíkar vígslur þegar um stúlkur er að ræða heldur en pilta. Félagsleg staða karla er nær undantekningarlaust meiri en staða kvenna og því beinist áhersl- an að piltunum og yígslu þeirra. Þó er ekki sjaldgæft að bæði piltar og stúlkur séu látin gangast undir sömu eða svipaða athöfn. í bresku Kólumbíu eru manndómsvígslurn- ar undirbúningur fyrir hin marg- háttuðu störf, sem fólk þarf að gegna. Piltarnir rúlla steinum niður bratta brekku og reyna að vera á undan steininum niður til að sýna þol sitt, stúlkurnar eru látnar bera vatn langar leiðir eða bera steina innan klæða til að sýna hversu auðvelt þær munu eiga með að eignast börn. í öðrum samfélögum er áherslan lögð á stúlkurnar og jafnvel engar vígslur hafðar fyrir piltana. Á sumum svæðum í Mið-Afríku t.d. er grannur vöxtur hreint ekki talin prýða konur. Það er nú öðru nær - því feitari sem konan er, þeim mun fegurri þykir hún. Þar er stúlkun- um haldið í sérstöku fitunarhúsi, jafnvel í nokkur ár, og látnar hlaupa í spik. Þær mega vart hreyfa sig og olíu er látlaust nuddað inn í kroppinn. Þær eru einnig upp- fræddar um skyldur sínar sem verðandi eiginkonur. Að öllu þessu loknu er stúlkukindin loks íeidd fram, sílspikuð og gljáandi, og eiginmannsefnin bjóða sig fram fullir aðdáunar. Engin þörf er hins vegar talin á því að fegra verðandi eiginmenn á svipaðan máta. Við látum svo þessari stuttu samantekt lokið en undirstrikum, að mannfræðingar eru allir sam- mála um að manndómsvígslur marki ekki líkamlég þáttaskil held- ur félagsleg og hafi þann tilgang að vígja ungmennin til hinna mismun- andi starfa og skyldna í samfé- laginu. Og það er einmitt tvennt, sem hefur mikil áhrif á skyldur fólks og störf- aldurinn og kynið. Þessi skipting ljær mannlífinu þann mikla blæbrigðamun sem við grein- um á yfirborði hinna ýmsu samfé- laga. ast tók saman Frjálst um Evrópu Fyrir ungt fólk innan 26 ára aldurs Flug til Luxemborgar og ótakmarkað ferðalag með lest í 30 daga um Evrópu. Kr. 8.700.- Brottfarir: Alla miðvikudaga frá miðjum mars. Pantið tímanlega - takmarkað sætamagn. Úrval er og verður URVAL ferðaskrifstofa unga fólksins við Austurvöll S26900 Umboðsmenn um allt land Er ekki tilvalid aö gerast áskrifandi? 81333 ono/. afslattur AF ÖLLUM ARMBANDSÚRUM TIL LOKA MARS CASIO tiit«ini fllfiRM CHRONOGRflPH Casio-úrin vekja athygli Hér eru aðeins tvær gerðir af Casio-úrum en Casio-umboðið Bankastræti hefur á boðstólum þrjátíu og sex gerðir af Casio, dömu- og herraúrum. Casio W-450. Kafara- úr (100 m). 5 ára raf- hlöðuending. Skeið- klukka. Vekjari. Niður- teljari. Náttljós. Stál- kassi. 1 árs ábyrgð og viðgerðaþjónusta. Casio F-85. Skeið- klukka. Vekjari. Nátt- Ijós. Niðurteljari. 5 ára rafhlöðuending. Fíb- erkassi og -ól. 1 árs á- byrgð og viðgerða- þjónusta. Casio, Bankastræti, sími 27510.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.