Þjóðviljinn - 24.03.1983, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 24.03.1983, Blaðsíða 8
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 24. mars 1983 Hvernig hagar þú undirbúningi fermingarinnar? Spjallað við Önnu Jóhannesdóttur T v íburarnir Stefán Hafþór og Sigurður Heiðar ásamt föður sínum, Stefáni Sigurðssyni, og fósturmóður, Önnu Jóhannesdóttur, sem heldur á syni þeirra hjóna, Birgi Hrannari Stefánssyni. Fyrir aftan standa börn Önnu, þau Stefán Teitsson og Ingunn Ingþórsdóttir. - (Ljósm. - eik -). TvíburarnirStefán Hafþórog Siguröur Heiðar eiga aö fermast um páskana eins og svo margir jafnaldrar þeirra. Þeir búa hjá föður sínum, Stefáni Sigurðssyni, og konu hans Önnu Jóhannesdóttur að Birkigrund 66 í Kópavogi ásamt þremur hálfsystkinum. „Þetta verður bara lítil veisla,“ segir Anna um fermingartilstand- ið. „Við ætlum að hafa hérna kaffi- boð og það verður boðið nánustu ættingjum og vinum strákanna. Ég hef ekki reiknað út hversu mikið þetta kostar, en við stillum þessu eins mikið í hóf og hægt er.“ Þrjár fjölskyldur standa að þeim Stefáni Hafþóri og Sigurði Heiðari og verður nánustu ættingjum úr þeim öllum boðið. Anna ætlar að baka sjálf en segist njóta dyggilegs stuðnings vina og kunningja við baksturinn. Allt í allt munu um 30- 40 manns gleðjast með tvíburunum yfir þessum merka áfanga í lífi þeirra. „Nei, við leggjum ekki út í mikinn kostnað í sambandi við föt eða gjafir,“ segir Anna. Hún segist munu kaupa handa þeim skó en spariföt eigi þeir fyrir. Gjöfum verður einnig stillt í hóf. Allt er þetta gert í samráði við tvíburana og eru þeir ánægðir með framgang mála að sögn Ónnu, fósturmóður þeirra. Við óskum þeim að sjálf- sögðu allra heilla. ast

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.