Þjóðviljinn - 24.03.1983, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 24.03.1983, Blaðsíða 17
BLAÐAUKI Fimmtudagur 24. mars 1983 - ÞJÓÐVILJINN 21 SÍÐA Tryggvi: En þá sálma skildi ekki nokkur maður. Einar: Föðurmorðinginn varð að peysukraga. vilja að halda áfram að vera Guðs barn. Á slíkri örlagastund hlýtur eitthvað sérstakt að verða að ske með mig, eitthvað áþreifanlegt. Ég hafði heyrt talað um, að menn gætu séð eða fundið návist heilags anda, og nú bað ég þess heitt og innilega, þar sem ég þrammaði þarna við vinstri hlið móður minnar, að ég yrði þeirrar náðar aðnjótandi... Segir nú ekki af ferðum mínum, fyrr en ég krýp við gráturnar, biðjandi þess, að yfir mig mætti koma heilagur andi. Og nú fer presturinn að lesa yfir mér. Ég var í hvítri skyrtu með stífuðum flibba, sem fyrr segir. Allt í einu finnst mér eins og gerst hafði á mér krafta- verk. Mér finnst ég vera kominn í þykka ullarpeysu með kraga upp í háls, sem brotið var niður á. Um mig fór þessi þægilega tilfinning, sem fylgir ullarpeysu og að finna Matthías: Saknaði kraftaverkanna. kragann falla þétt að hálsinum. í þessari mynd kom heilagi andinn yfir mig á fermingardaginn." Vil ekki vera öðruvísi Verðandi höfðingi í útgerð í Vestmannaeyjum á semsagt þá minningu einna sterkasta frá ferm- ingunni, að hann óskaði þess að vera ekki jafn sallafínn og hann í raun var og ekki eins áberandi. Þarna er lifandi kominn þessi ótti aldurskeiðsins við að vera öðruvísi, skera sig úr, gera eitthvað sem vek- ur of mikla eftirtekt. En oftar gerist það, bæði í endurminningum og bókmenntum, að við rekumst á þessa samanburðaráráttu unglinga, en með öðrum formerkjum. Á þeim blaðsíðum segir gjarna frá dreng sem er öðrum fátækari, á ekki alminnileg föt, á ekki von í neinu tildragelsi. í hópi fermingar- barna vaknar fyrst til sterks lífs vit- undin um stéttaskiptingu, um að vera settur hjá í lífsins veislu. Skelfing var ég lítilfjörlegur Þetta efni er m.a. á dagskrá í fyrsta bindi endurminninga Tryggva Emilssonar, Fátækt fólk. Tryggvi hefur verið á Bægisá í þrjá daga og gengið þar til spurninga og staðið sig vel - en samt kvíðir hann fyrir „eins og dæmdur maður“. Fatalaus og fylgdarlaus verður hann að leggja í þessa mannraun: „Ekki var ég laus allra mála þó ég slyppi sæmilega við spurningarnar, nú var eftir að standast ferminguna og kveið ég fyrir þeim degi eins og dæmdur maður en ekki var það vegna guðsorðanna, og þess sem mundi mæta mér í eilífðinni heldur voru veraldlegir smámunir að velkjast fyrir mér. Sjaldan hefir fá- tæktin þjakað mig meir en dagana fyrir ferminguna, ég átti nefnilega engin föt til að vera í þegar ég gengi fram fyrir sjálfan guðdóminn í kirkjunni. En þessu bjargaði faðir minn við á síðustu stundu og keypti föt á fornsölu, voru það stuttbuxur gráar og grá treyja, fylgdi þessu skyrta með lausum kraga og bindi, ekki var ég ánægður innra með mér, þar sem vani var að nota svört föt við svona athöfn en nú varð að tjalda því sem til var og tók nú ráðs- konan til óspilltra málanna að breyta fötunum sem voru alltof stór. Á Gili var fenginn lánaður tvinni sem ég sótti þangað, nál var til. Ekki var þessi fátæka kona búin þeim þægindum að eiga saumavél en straujárn var hitað í eldi og fötin urðu að fermingarfötum. Svo kom fermingardagurinn eins og tröll úr náttmyrkri, mér ægði við svo mikilfenglegum degi, fötin, sem ráðskonan hafði vakað yfir og seinast pressað með járni, voru enn of stór, of víð og ermarnar of langar, mig dreymdi hræðilega drauma og hrökk upp með andfæl- um, klukkan var fjögur að morgni og ég fór að tína á mig spjarirnar, Sjá næstu sídu FERMINGARGJÖFIN sem slær í gegn... Stórkostlegt ferðakassettuhljómtæki frá Tækið er með 2 fullkomnum kassettu- tækjum — en þú borgar bara fyrir annað. 2 fullkomin kassettutæki mm (UNINC hM MH/ LW hH2 ~~ sunto <" lOC SCHt ^±rx|:r;n MW kHz <»bwi«/e*TT T fWf—fhófH Útvarpstæki með FA, langbylgju, miðbylgju, stuttbylgju. Verð með öllu kr. 8.410.- Útborg. kr. 2.500.- Eftirstöðvar á 3 mánuðum. Sláið saman í gjöf sem slær C gegn. Einar Farestveit Bergstaðastræti 10 a sími: 16995 w/// LLL blaðið sem vitnaðerí Siminn er Er ekki tilvalið að gerast áskrifandi? 81333 eins og heima í rúmi. Það eina sem gæti & vantað er bangsinn. Rúmiö þitt nri i ofi iffír Ixri im Rúmið þitt, sængin og koddinn eru illflytjanleg á ferðalögum. Samt getur farið bráðvel um þig. Keyptu þér Gefjunar svefnpoka, með eða án kodda. Innra byrðið er bómull svipuð og í sængurverinu þínutieima. Ytra byrðið er sterkt polyesterefni. Fylling er DACRON HOLLOFIL . Hollofil þræðirnir eru stuttir, krumpaðir, holir og fisléttir. Milli ytra og innra byrðis er því mestmegnis loft, það ágæta einangrunarefni. Hollofil er lyktarlaust, ofnæmisprófað og auðhreinsað. Þér líður vel í Gefjunar svefnpoka, næstum TÓMSTUNDAHUSIÐ Lauqavegi STÓRMARKAÐURINN Skemmuvegi og Kaupfélögin um land allt SPORTVAL Laugavegi ÚTILlF Glæsibæ TORGIÐ Austurstræti DÓMUS Laugavegi fíFE IIJNAR Chollofil) SVEFNPOKAR:

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.