Þjóðviljinn - 24.03.1983, Side 11
BLAÐAUKI
‘i -
Fimmtudagur 24. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
I .1 •»>: '„V.vJ.rJ i.-.v, T"'.
ast utan þrjú. Eg spyr krakkana
hvort þessi þrjú verði fyrir ein-
hverjum óþægindum vegna þess
arna, en þau kveða svo ekki vera.
„Krökkum finnst ekkert asnalegt
að láta ferma sig“, segir Unrur og
hin taka undir. Það séu alltaf ein-
hverjir sem sleppi þessu og það sé
álitið þeirra mál. Það sé enginn
undir þrýstingi með þetta af hálfu
kunningjanna. Þeim ber saman um
að ansi margir láti fermast vegna
gjafanna. „Þetta er stór vertíð hjá
sumum - alltof stór“, segja þau.
- Finnst" ykkur að fermingin
mætti vera seinna á ferðinni?
Anna Þóra: „Nei, mér finnst
þetta ekkert of snemmt. Ég held að
við vitum alveg hvað við erum að
§era“' -
Jón Oskar: „Ég held að þetta sé
of snemmt. Það er fullt af fólki sem
sér eftir þessu seinna. Ég held að
maður þurfi að vera svona 16 eða
17 ára til að vita raunverulega hvað
fermingin er og vera fær um að
dæma“.
Ilmur: „Ég er sammála því að
þetta er einum of snemmt. Eg held
að það mætti miða markið við það
sem Jón Óskar sagði. Maður heyrir
stundum í krökkum í menntaskóla
sem dauðsjá eftir þessu“.
- Hér áður fyrr var fermingin
tákn um það að viðkomandi væri
orðin fullorðin manneskja. Finnst
ykkur þið vera fullorðin?
Jón Óskar: „Ég held að fólk
verði ekkert fullorðið við að ferm-
ast frekar en að maður stækki þeg-
ar hann á afmæli".
Anna Þóra: „Nei, ég held að það
sé nokkuð langt í það að við
verðum fullorðin".
Ilntur var sammála hinum.
- En hvað er að vera fullorðinn?
Nú upphófst vandasöm umræða.
Ilmur taldi, að fullorðið fólk væri
fólk sem væri bæði stærra en hún
Jón Óskar og Anna Þóra og þrosk-
aðra líkamlega. Jón Óskar taldi
hina fullorðnu mjög mismunandi -
sumir væru alltaf börn þótt ekki
vantaði stærðina eða þroskann.
Anna Þóra kvað þetta kannski
mest bundið við aldurinn og vildi
setja mörkin við tvítugsaldurinn.
llmur skaut því að að kannski
mætti setja mörkin við það þegar
fólk er orðið sjálfstætt og getur séð
um sig sjálft.
- Langar ykkur til að verða full-
orðin?
Neeei, kvað í þeirn öllum. „Ég er
Helgi Hjöryar
ræóir við Önnu
Þóru
Benediktsdóttur,
llmi Maríu
Stefánsdóttur og
Jón Óskar
Hallgrímsson um
ýmislegt varðandi
ferminguna.
Anna Þóra:„Ef
ástandið á að
lagast gegnum
trúnaþá erbetra
að allir trúiþví
sama.“
ánægð með mig eins og ég er“,
sagði Ilmur. „Nei, það er ekkert
spennandi að verða fullorðinn",
sagði Jón Óskar, en vildi ekki tjá
sig frekar um heimsvandann á
síðum Þjóðviljans. „Æ, þetta kem-
ur bara með tímanum", sagði Anna
Þóra.
- En hvað er best í heimi hér - og
hvað er verst? Hvað er eftirsókn-
arvert og hvað má helst missa sín?
Anna Þóra: „Það er best þegar
mér líður vel, og það er einna helst
í fríum. Stressið er verst, en það
kemur þegar ég hef mikið að gera“.
- Anna Þóra leggur stund á djass-
ballett með skólanum og er að auki
á 5. stigi í píanónámi og hefur því
mikið að gera. „Stríð og hörmung-
ar eru það alversta sem til er“, segir
hún.
Jón Óskar: „Jú, það er gott þeg-
ar manni líður vel. Kjarnorku-
sprengjan er auðvitað það versta
sem til er“.
Ilmur: „Það er best þegar mér
líður vel. Stríðið er það versta og
hvað margir eru vondir í
heiminum".
Og nú hefst umræða um það
hverju illskan í mannheimum sé að
kenna. „Það er trúleysi", segir Ilm-
ur. „Fólk sem er almennilega trúað
og fer eftir Biblíunni drepur ekki
aðra“.
Hún er umsvifalaust minnt á, að
kannski hafi grimmilegustu stríðin
verið háð einmitt vegna trúar-
bragða og var bent á íran sem
dæmi. „Kristið fólk tileinkar sér
það hugarfar að það sé betra að
vera drepinn en að drepa“, segir
Ilmur við því og stendur fast á gildi
trúarinnar. „Trúin leysir þennan
vanda“, segir hún, og kveður það
fólk, sem stendur í drápum, hreint
ekki trúað - sama hvað það segir
sjálft. „Ef við stöndum öll saman
urn að trúa, þá verða engin stríð“.
Jón Óskar var ekki sammála
þessu og kvað kannski erfitt að
koma á samstöðunni. „Ég held það
sé þá betra að allir trúi því sama“,
sagði Anna Þóra.
Hér er gripið á miklu máli og
hefur það staðið í fleirum en þess-
um íslensku unglingum, og víst er,
að ekki verða vandamál heimsins
leyst af þeim, sem eru að stíga
fyrstu sporin á krókóttri braut hins
mannlega lífs. En við óskum þeim
allra heilla á ferðalaginu.
ast/HHj
STEHEO DtSC PLAYER SYSTEM AT727 X'audkHechrwca
ö'^nr«CHA
Hljómborgarinn
frá Audio Technica er tæki meö hljómburö á viö 20-30
búsund króna hljómtækjasamstæöu en kostar aöeins 4.950 krónur.
Hljómborgarinn hefur næstum alla kosti hljómtækjasamstæðu þ.e.: Tveir
hraðastillar fyrir bæði litlar og stórar plötur, afspilun í steríó vandaðan Audio
Technica pickup meö demantsnál. Tengja má við hann tvö heyrnartól
(eitt sett fylgir), nota hann meö rafhlöðum. Síöast en ekki síst,
er hægt að tengja hann ferðakassettutæki,
eöa hljómtækjasamstæðu, og láta hann spila
gegnum baö. Annars ættir þú aö líta til okkar
og fá aö hlusta á hann. VJAPIS hf.
BRAUTARHOLTI 2 - SÍMI 27133