Þjóðviljinn - 06.04.1983, Blaðsíða 1
Útgerðin
fær láns-
fjármagn
Á fundi ríkisstjórnarinnar í gær
var samþykkt að setja bráða-
birgðalög um ráðstafanir til styrkt-
ar fyrirtækjum í sjávarútvegi, sem
eiga í erfiðleikum um þessar mund-
ir.
Skv. bráðabirgðalögunum verð-
ur útvegað fé að upphæð 120 milj-
ónum króna, sem verður lánað
þessum fyrirtækjum. Fyrirtækin,
sem fá þessa fyrirgreiðslu eru um
40 talsins, um allt land.
Ekki er ákveðið hvort tekið
verður innlent eða erlent lán til að
fjármagna þessar ráðstafanir.
-eng.
SKÍÐAHELGI
Á þriðja hundrað manns leituðu í 18 klukkustundir
að týndu fólki í páskahretinu
Ragnar
Arnalds á
beinni línu
Ragnar Arnalds fjármála-
ráðherra verður á beinni línu
Þjóðviljans á morgun frá kl.
18-19.30 í síma 81333. Mun
hann þar svara spurningum
þeirra sem hringja og síðan
verða bæði spurningar og svör
birt í Þjóðviijanum. Verða
fyrstu svörin birt föstudaginn
8. apríl.
Ragnar mun svara spurn-
ingum um hvaðeina sem að
honum verður beint, en lík-
legt er að ferill hans í fjár-
málaráðuneytinu og stefna
Alþýðubandalagsins nú fyrir
þessar kosningar verði mörg-
um ofarlega í huga.
Síminn er 81333 og Ragnar
mun sitja við hann frá 18-
19.30 á morgun, fimmtudag.
april 1983
miðvikudagur
73. tölublað
48. árgangur
Hvað greiðir álverið - hvað greiða heimilin?
Allt að 18- faldur munur
Um hclgina verður
merkjasala til
styrktar húsa-
kaupasjóði Kvenna-
athvarfsins í
Reykjavík.
Á meðan álverið í Straumsvík
greiðir 13 aura á hverja kílóvatt-
stund sem það kaupir af rafmagni,
greiða heimilin í landinu allt upp í
245 aura fyrir hverja kílóvattstund.
Munurinn er liðlega 18 faldur.
1 umræðunni um hækkun orku-
verðs til álversins í Straumsvík er
yfirleitt borið saman verðið sem
álverið greiðir og það verð sem al-
menningsveitur - þ.e. rafveiturnar
- þurfa að greiða. Alla jafna er
samanburðurinn í einingunni mills
- þúsundasta hluta úr bandaríkj-
adal.
Enn meira áberandi verður
munurinn ef við berum saman það
verð sem íslensk heimili þurfa að
greiða og það sem álhringurinn
greioir. Hao er til ao mmnka þem
an mun nokkuð, sem þörf er
hækkun raforkuverðs til ísal c
þörf á að stemma stigu við hækkui
um Landsvirkjunar á raforku I
innlendra kaupenda.
Páskahelgin var einhver mesta
skíðahelgi sem um getur hérlendis.
Skíðastaðir víðs vegar um land
voru troðfullir en fyrir keppnis-
fólkið var Skíðamót Islands haldið
á ísafirði. Mikið hefur snjóað að
undanförnu þar vestra eins og efri
myndin ber með sér og ekki voru
menn að grfita fannfergið. Á neðri
myndinni rennir Guðrún Pálsdótt-
ir frá Siglufirði sér í mark í 3X5 km
boðgöngu kvenna en Guðrún hlaut
fjögur gull á mótinu. Nánar er
greint frá mótinu í máli og mynd-
um, svo og sagt frá öðrum íþrótta-
viðburðum helgarinnar á bls. 9,10,
11 og 12. - Myndir: -gsm.
Erfiður vetur
„Því er ekki að neita að þetta
heftir verið erfiður og óvenjulegur
vetur, veður oft mjög slæm“, sagði
Jóhannes Briem um hin tíðu útköll
leitarflokka í vetur. Ástæðan fyrir
þessum hrakningum ferðalanga er
því miður oftast sú, að menn hrein-
lega spá ekki í veður áður en þeir
leggja af stað. Það er allt í lagi að
halda á fjöll á vetrum, ef menn búa
sig vel, og gera sér grein fyrir öllum
aðstæðum, og eru ekki með neinn
asa.
Það hefur orðið mikið breyting á
síðustu árum. Öræfin hafa opnast á
vetrum fyrir almenningi, þar sem
segir Jóhannes
Briem hjá SVFÍ
1 „Það veit enginn hvað svona
leitir að týndu fólki kosta, það er
ekki mikið horft í það. Yfirleitt eru
það björgunarsveitirnar sem bera
þennan kostnað eða jafnvel ein-
stakir leitarmenn að einhverju
leyti“, sagði Jóhannes Briem hjá
Slysavarnafélaginu, en hann var
einn þeirra sem stjórnuðu umfangs-
mikilli leit að týndu fólki á Hellis-
heiði og við Bláfjöll um páska-
helgina.
Nærri 300 björgunarleitarmenn
af Suðurnesjum, höfuðborgar-
svæðinu og austan fjalls, leituðu
stanslaust í nærri 18 klukkustundir
frá því seint á laugardagskvöld
fram undir síðdegi á páskadag, að
tveimur ungum skátapiltum sem
lent höfðu í villu á Hellisheiði og
fólki í þremur jeppabifreiðum sem
stóðu fastar nokkuð vestan við Blá-
fjallaafleggjarann ofan við Helga-
fell. Allir ftindust heilir á húfi og
lítt þrekaðir.
ferðahópar þeysast um allar helg-
ar. Líklegast tekur nokkur ár fyrir
fólk að læra almennt að ferðast við
slíkar aðstæður. Þetta er líkt og var
þegar menn fóru að hópast á rjúpn-
aveiðar fyrir nokkrum árum. Þá
leið ekki sú helgi að ekki væri verið
að leita að týndum rjúpnaskyttum.
Þetta er liðin tíð. Þessir menn hafa
lært að ferðast á vetrum.
Finna sér strax skjól
Jóhannes sagði að frumatriðið
væri ef og þegar menn lentu í villu í
vitlausu veðri, að finna sér strax
skjól og setjst að óþreyttir, en gera
sig ekki örmagna í vonlausri
göngu. Óþreyttur maður gæti lifað
lengi í skafli eða skjóli þótt úti væri
versta veður og kuldi, eins og sýnt
hefði sig um helgina, en örmagna
maður væri fljótur að kólna og
þyldi ekki að liggja lengi úti.
-•g-
DJOÐVIUINN
Samtökin Ný sjónar-
míð, sem standa fyrir
söfnun til styrktar Alu-
suisse fá á síðu 5 stuðn-
ingsyfirlýsingu í Ijóði.
Sjá 5
Menn gá ekki að veðri
áður en lagt er al stað