Þjóðviljinn - 06.04.1983, Blaðsíða 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 6. apríl 1983
Bridge
Hérmanni-Ólali haföi gengið mjög vel í
síðustu (at Ijórum) umferð undankeppn -
innar i Biarritz Eða allt fram að síðustu
setu við Garrozzo-Dupont. Nú voru aðeins
tvær setur (4 spil) eftir í móiinu: Nokkrar
(2-3) mínútur voru liðnar af setunni er við
mættumPólverjunum Kudla og Milde. Set-
an var í jafnvægi, gott spil til hvors pars, en
aftur glötuðum við tækifærinu. Fyrra spil.
ur:
Norður
S A1053
H 43
T KD74
L KG5'
Austur
S 72
H 109752
T AG86
L 64
Suður
S K6
H A
T 1095
L AD109832
Með hjálp annarlegrar útgáfu af pass-kerfi,
runnu Pólverjarnir í 6-lauf, spiluð í noröur.
Vestur gaf spaðameldingu og útspilið var
S-7. Milde spilaði spilið mjög hratt og stað-
an var brátt þessi:
Norður
S 105
H -
T KD74
L 5
Vestur
S D8
H DG6
T ‘32
L -
Suður
S -
H -
T 1095
L A1093
Hann spilaði nú tígli úr borði og stakk upp
kóng. (Ath að norður er sagnhati) Eftir
nokkurt gauf afréð ég að gefa slaginn, þó
skiptingin væri síður en svo augljós. Eins
gott! 100 i A/V gaf 272/334.
Skák
Austur
S -
H 1097
T AG86
L -
N/S á, N gefi
Vestur
S DG984
H KGD86
T 32
L 7
Verðlaunahafarnir ■ teiknimyndasamkeppninni: Frá vinstri: Stefán Þór Bjarnason Barnaskólanum á Eyrarbakka sem hlaut 1. verðlaun,
reiðhjól sem Fálkinn gaf, Einar Tómasson Digranesskóla í Kópavogi hlaut 2. verðlaun, þrjú bindi af bókinni Landið þitt, Inga Sólveig
Steingrímsdóttir Fossvogsskóla í Reykjavík en hún hlaut Casio tölvu fyrir 3. - 5. sætið. I 6. - 10. sæti höfnuðu Kristján Þór Finnsson,
Kópavogsskóla, Margrét Valdimarsdóttir, Snælandsskóla Kópavogi, Pétur Björnsson Dalvíkurskóla og Þorsteinn Karlsson Laugalands-
skóla. Þau fengu í verðlaun íþróttabúning.
Tveir verðlaunahafar gátu ekki mætt til að veita verðlaunum sínum viðtöku, Guðrún Sveinbjörnsdóttir Grunnskólanum á Suðureyri og
Svana Bjarnadóttir Grunnskólanum á Eskifirði. Þær höfnuðu í 3. - 5. sæti. Ljósm.: - eik.
Teiknimyndasamkeppni Umferöarráðs ög
_______menntamálaráðuneytisins:__
400 myndir frá
3 7 skólum bárust
Tíu 11 ára nemendur hlutu verðlaun
400 teikningar bárust í
teiknimyndasamkcppni þá sem
menntamálaráðuneytið og Um-
ferðarráð efndu til meðal 11 ára
skólancmenda um umferðat mál.
Myndefni þau sem börnin sendu
inn tengdust þrem atriðum í um-
ferðinni, Vetrarfærð, Aðgát í
umferðinni og Notkun reiðhjóla.
Ncmendur frá 37 skólum sendu
inn myndir og skar dómnefnd,
sem skipuð var Ásu Björk
Snorradóttur myndlistarkenn-
ara, Guðmundi Þorsteinssyni
námsstjóra, Óla H. Þórðarsyni
framkvæmdastjóra Umferðar -
ráðs,Ómari Ragnarssyni frétta-
manni, Þóri Sigurðssyni náms-
stjóra, úr um ágæti þeirra.
Síðastliðinn mánudag voru svo
verðlaun afhent við athöfn sem
menntamálaráðherra, Ingvar
Gíslason, gekkst fyrir í ráðherra-
bústaðnum. Voru veitt 10 verð-
laun, en þar sem tveir verðlauna-
hafar gátu ekki mætt í afhending-
una varð að senda þeim verð-
launin.
1. verðlaun hreppti Stefán Þór
Bjarr.ason, Barnaskólanum á
Eyrarbakka, en hann vakti með
mynd sinni athygli á undirrót
slysa á reiðhjóli sem að hans mati
felst oft í glannaskap. 2. verðlaun
komu í hlut Einars Tómassonar
úr Digranesskóla í Kópavogi sem
teiknaði mynd tengda vetraró-
færð og ýmsum hættum sem þá
skapast 3,- 5. verðlaun komu í
hlut Guðrúnar Sveinbjörnsdótt-
ur, Grunnskólanum á Akureyri,
Ingu Sólveigar Steingrímsdóttur,
Fossvogsskóla Reykjavík, - og
Svönu Bjarnadóttur Grunnskól-
anum á Eskifirði. 6. - 10. verð-
laun hlutu svo Kristján Þór
Finnsson, Kópavogsskóla, Mar-
grét Dögg Halldórsdóttir,
Hvassaleitisskóla Reykjavík,
Margrét Valdimarsdóttir Snæ-
landsskóla Kópavogi, Pétur
Björnsson Grunnskóla Dalvíkur
og Þorsteinn Karlsson, Lauga-
landsskóla í Holtum Rangárvall-
asýslu.
Þetta er í þriðja sinn sem slík
keppni er haldin, en áður fór hún
fram 1976 og 1978.
- hól.
Karpov að tafli - 120
Þegar 19. einvígisskák Kortsnojs og
Kárpovs hófst í Tschaikovskí-höllinni í
Moskvu áttu fáir von á mótspyrnu frá hendi
Kortsnojs. Staðan 3:0, Karpov i vil og 15
skákum hafði lokið með jafntefli. Venjan
hefur orðið sú þegar þannig hefur staðið á
að sá keppandi sem undir hefur verið lypp-
ast niður og sættist á jafntefli i síðustu
skákunum. En ekki Kortsnoj. Svo
harðskeyttur vígahundur er hann, að þeg-
ar þessar 6 skákir sem hann hafði til að
jafna upp þriggja vinninga forskot and-
stæðingsins hófust þá fyrst fór hann að
berjast fyrir lífi sinu.19. skákin var kynngi
mögnuð viðureign, en þegar henni lauk
meö sigri Kortsnojs hundskammaði Karp-
ov aðstoðarmenn sina fyrir lélegar bið-
stöðurannsóknir;
Kortsnoj - Karpov
Undarleg staða sem kom upp eftir
heiftarleg mistök Karpovs í 48. leik þar sem
hann missti af raktri jafnteflisleið. „Hvað er
að þeim Furman og Geller?" spurði Karp-
ov Robert Byrne eftir skákina, en Byrne
fylgist með eínviginu sem skákdálkahöf-
undur „The New York Times". Hér er Karp-
ov lentur í kröppum dansi, en eygir þó
veika jafnteflisvon. Kortsnoj lék...
63. Kc3! Kgl
64. Dd1 + Kg2
65. Dd3! Dc5+
66. Kb3 Db6+
67. Kc2 Dc6+
68. Kd2 Dh6+
69. De3 Dh4
70. Hb8l Df6
71. Hb6 Df5
72. Hb2! Kh2
73. Dh6+ Kg1
74. Db6+ Kh2
75. Db8! Kh3
76. Dh8+ Kg4
77. Hb4+ Kf3
78. Dh1 + Kf2
7S. Hb2!
-Svartur gafst upp. Geysilega erfitt
endatafl sem Kortsnoj tefldi af hreinni
snilld. Staðan: Karpov 3 - Kortsnoj 1.
í hlut tómthúsmanna kom einn bæjarfulltrúi af sex.
Einveldi lýkur
Þann 27. nóv. 1846 var gefin út
„Reglugerð um stjórn bæjarmál-
efna í kaupstaðnum Reykjavík“.
Mátti kalla þá reglugerð
grundvallar-lög bæjarins næstu
25 ár. Meginefni reglugerðarinn-
ar var þetta:
Stjórn bæjarmálefna skulu
bæjarfógeti og bæjarfulltrúar
hafa á hendi, undir stjórn stipt-
amtmanns og amtmannsins í
Suðuramtinu. Til þeirra má
skjóta úrskurðum bæjarfulltrúa
ef ástæða þykir til, en æðsta úr-
skurðarvald um öll bæjarmálefni
hefur kansellíið.
Bæjarfulltrúar skulu vera 6,
þar af 5 kjörnir af „kosninga-
bærum“ mönnum en tómthús-
menn kjósi 1. Kosningairéttur er í
fyrsta lagi bundinn því, að ein-
staklingurinn hafi borgararétt í
bænum og í öðru lagi að hann eigi
timbur- eða steinhús í bænum,
búi þar sjálfur og sé fullveðja.
Réttur til vals á fulltrúa tómthús-
manna er háður því, að viðkom-
andi greiði a.m.k. 2 dali til bæjar-
ins. Kjörgengir til bæjarstjórnar,
(fimm manna hlutans), eru þeir
einir, sem eiga timbur- eða
steinhús í bænum, minnstóOO rd.
að virðingarverði eða greiði
a.m.k. 4 rd. í fátækraútsvar. Full-
trúi tómthúsmanna er óháður
efnahagslegum skilyrðum. Kjör
tímabil er 6 ár og skal kosið fyrsta
virkan dag eftir nýár. í byrjun
hversárskjósafulltrúar sérfor-
nann úr flokki sínum.Boðar hann
til funda, stjórnar þeim og annast
bókun.
Bæjarfógeti á ekki setu á
bæjarstjórnarfundum en ber
undir bæjarstjórn þau mál, sem
snerta eignir, tekjur og gjöld
bæjarins og eru ákvarðanir hans
um bæjarmál háðar samþykki
fulltrúanna. Rísi ágreiningur
milli bæjarfógeta og bæjarfull-
trúa skal amtmaður úrskurða. -
Var hér með úr gildi fellt það ein-
veldi, sem bæjarfógeti hafði áður
haft um málefni bæjarins. -mhg
Lögin um
málefni
aldraðra:
Samstarfs-
nefndin
fullskipuð
í samræmi við nýju lögin um
málefni aldraðra hefur
heilbrigðis- og tryggingaráðu-
neytið skipað í sérstaka sam-
starfsnefnd en verkefni hennar
eru m.a. að hafa frumkvæði að
stefnumótun og annast áætlana-
gerð um málefni aldraðra, vera
tengiliður milli þeirra aðila sem
að málum þeirra starfa, annast
stjórn framkvæmdasjóðs aldr-
aðra, skera úr um ágreiningsmál
og vera ráðherra og ríkisstjórn til
ráðuneytis um málefni aldraðra.
Formaður nefndarinnar er
AlmarGrímsson, lyfjafræðingur,
tilnefndur af ráðuneytinu, séra
Sigurður H. Guðmundsson er til-
nefndur af Öldrunarráði íslands
og Ingibjörg Rafnar lögfræðingur
er tilnefnd af Sambandi ísl.
sveitarfélaga. Eru þau skipuð í
nefndina til næstu fjögurra ára.