Þjóðviljinn - 06.04.1983, Page 7
I
Miðvikudagur 6. apríl 1983 J\JÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Blásið í blöðrur af miklum móð fyrir árshátíðina í Fellaskóla, en starfs\ ikunni þar lauk með miklu húllumhæi. (Ljósm. -eik-)
r Ihnl
ri
1>
L ■ g / v "1
Starfsvikur í grunnskólum:
Mikið starfað
og skrafað
í grunnskólum landsins er
víða sá háttur hafður á þegar
vora tekur að nemendur leggja
namsbækurnar til hliðar og ein-
beita sér í staðinn að verkefn-
um sem tengjast atvinnulífinu
beint. Þetta eru kallaðar starfs-
vikur og njóta almennt mikilla
vinsælda meðal jafnt kennara
sem nemenda.
I Víghólaskóla í Kópavogi var slík starfsvika
daganna 14. til 19. mars og í Fellaskóla í
Breiðholti III daganna 21. til 26. mars. Það eru 7.
og 8. bekkur í báðum skólunum sem verða
þeirrar náðar aðnjótandi að fá að glíma við
atvinnulífið og ýmislegt fleira skemmtilegt og í
lok vikunnar voru síðan haldnar árshátíðir með
viðeigandi pomp og pragt.
Meðfylgjandi myndir voru teknar í skólanum
þegar starfsvikurnar stóðu yfir en Ijósmyndari
okkar gerði sér ferð í báða skólana. Og það
verður ekki annað sagt en að nemendur hafi
sinnt þessu námi af jafnmikilli alvöru og öðru
námi - kannski jafnvel pínulítið meira. Til-
breytingin er að minnsta kosti kaerkomin. ast
Hver veit nema hér séu komnir framtíðarskipuleggjendur borgar og
byggðar. Alvörusvipurinn á þessum ungu drengjum í Víghólaskóla þar
sem þeir rýna í skipulag Kópavogs bendir a.m.k. til mikils áhuga í þá átt.
(Ljósm. -eik-)
■
. ■ ; v
Arni Waag, kennari í Víghólaskóla, spjallar við nemendur sem undirbjuggu verkefnið: „Helstu hundateg.
undir á íslandi.“ (Ljósm. -cik-)
Nemendur í Fellaskóla smíðuðu þessi tæki og vöktu þau mikla ánægju
mcðal þeirra sem smíðuðu og annarra nemenda. (Ljósm. -eik-)