Þjóðviljinn - 06.04.1983, Page 9
Miðvikudagur 6. apríl 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
SÁÁ svarar gagnrýni:
Vonum að þetta bitni
ekki á söfnuninni
170 bíða nú eftir meðferð og biðlistinn lengist stöðugt
Meðferðarheimili SÁÁ að Sogni.
. Forráðamenn SÁÁ (Samtaka
áhugafólks um áfengisvandamálið)
boðuðu nýlega fréttafólk á sinn
fund vegna þeirrar neikvæðu um-
fjöllunar, sem söfnun þeirra fyrir
nýrri sjúkrastöð hefur hlotið í
mörgum fjölmiðlum. Gagnrýnin
hefur einkum verið þrenns konar: í
fyrsta lagi að Frjálsu framtaki var
falin fjársöfnunin gegn ákveðnu
gjaldi, í öðru lagi að Sue Ellen í
Dallas-þáttunum skyldi vera köll-
uð til landsins og í þriðja lagi að
fólk hefði sýnt dálitla frekju í sím-
hringingum þegar það hefur verið
að kynna gjafabréfin.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for-
maður SÁÁ, Hendrik Berndsen,
varaformaður SÁÁ, Árni Reynis-
son og Þórarinn Tyrfingsson, lækn-
ir að Silungapolli, útskýrðu
sjónarmið SÁÁ á fundinum og
kom fram í máli þeirra, að þessi
neikvæði fréttaflutningur væri far-.
inn að skapa söfnuninni ákveðið
mótlæti á Reykjavíkursvæðinu, en
ekki úti á landsbyggðinni. Söfnun-
in hefði annars gengið mjög vel, og
miklu betur en SÁÁ-fólk hefði
þorað að vona. Þörfin fyrir nýja
sjúkrastöð væri mjög brýn og mætti
marka hana m.a. af því, að SÁÁ
hefur til meðferðar hvorki meira
né minna en 400 manns á degi
hverjum, þar af um 100 í hinni
eiginlegu meðferð. Ef sjúkra-
stöðvar SÁÁ nyti ekki við væru
aðeins 15 rúm í landinu handa fólki
í afvötnun.
Vilhjálmur Vilhjálmsson sagði
m.a. að kostnaður við þessa söfnun
væri síst meiri en við sambærilegar
safnanir. Það væfi hins vegar oft
feimnismál hjá aðstandendum
safnana, en SÁÁ-fólk hefði ákveð-
ið áð leggja spilin á borðið og luma
ekki á upplýsingum um þessi efni.
Kostnaður við svo umfangsmiklar
safnanir væri alltaf á bilinu 15-20
prósent.
Hendrik Berndsen útskýrði til-
gang farar SÁÁ fólks vestur um
haf, en hann var með í þeirri för.
SÁÁ verður með skemmtiþátt í
sjónvarpihu hinn 9. apríl nk. í til-
efni söfnunarinnar og það var rætt
á fundi hjá SÁÁ hvernig haga
skyldi þeim þætti. Var ákveðið að
hafa yfir honum létt yfirbragð, þar
sem nóg væri af vandamálunum
hvunndags, og kom til tals að fá
þekkta „stjörnu" til að koma fram í
þættinum. Sue Ellen hefði þar ver-
ið nefnd í hálfkæringi og áður en
varði var það komið í blöðin eins
og um alvöru væri að ræða. Það
hefði hins vegar aldrei staðið til,
SÁÁ fólkið fór vestur til þess m.a.
að hafá samband við íslendinga og
bjóða þeim að styrkja söfnunina.
Þá komst fólkið einnig í samband
við svipuð samtök og SÁÁ fyrir
vestan og fékk til liðs við sig mann,
þekktan mjög, til að koma fram á
skemmtun SÁÁ. Nafni þessa
manns er hins vegar haldið leyndu
enn sem komið er, en það er hins
vegar ekki Sue Ellen.
Tilgangurinn með hringingunum
var sá að minna fólk á gjafabréfið
og um leið að leita eftir stuðningi.
Ekki væru allir jafn liðlegir í hring-
ingum og æskilegt væri og sögðu
forráðamenn SÁÁ að þetta hefðu
verið slæm mistök og væri hring-
ingum nú hætt.
Að lokum létu þeir Árni, Hend-
rik, Vilhjálmur og Þórarinn í ljós
þá einlægu ósk að fólk léti ekki
hina neikvæðu umfjöllun ráða af-
stöðu sinni um það hvort það
styddi þessa söfnun. Þörfin væri
mj ög brýn fy rir nýj a sj úkrastöð, en
þess má geta að 170 einstaklingar
bíða nú eftir því að komast í með-
ferð hjá SÁA og biðlistinn lengist
stöðugt.
ast
Kveðja_____________________
Guðrún Þorsteinsdóttir
Fædd: 28. júlí 1931
Dáin: 28. mars 1983
Samferðamaður er horfjnn sjón-
um, minning ein er eftir. En minn-
ingunni er samfara þakklæti fyrir
þann auð og lífsfyllingu, sem sam-
ferðamaðurinn veitti okkur með
persónu sinni og viðmóti.
Til þessa verður mér hugsað,
þegar ég nú í fáum orðum vil minn-
ast vinkonu okkar og starfsfélaga,
Guðrúnar Þorsteinsdóttur.
Fundum okkar bar fyrst saman
haustið 1964 er hún hóf kennslu í
Barnaskóla Garðahrepps (nú
Flataskóla) og áttum við þar sam-
leið allt til ársins 1982 er Guðrún
varð að láta af störfum sökum
heilsubrests.
Guðrún var afburða traustur
starfsmaður og gerði miklar kröfur
til sjálfrar sín. Kom það meðal ann-
ars fram í því, að hún var ötul vjð að
sækja námskeið, sem að notum
máttu verða í kennslunni, enda féll
slíkt vel að almennri fróðleiksþrá
hennar, en Guðrún var fróð í besta
máta, ekki síst hvað varðaði það
sem almennt er nefnt þjóðlegur
fróðleikur. Hún átti líka því láni að
fagna að vera vel vinnandi, röskur
listaskrifari og unnandi íslenskrar
tungu og var það ljóst af dagfari
hennar.
Þó að Guðrún væri alvörumaður
í eðli sínu og væri margt búin að
reyna af erfiðleikum, ekki síst
vegna þungbærra veikinda sinna og
móður sinnar, kunni hún einatt vel
að njóta góðra stunda, hafði afar
næmt skopskyn og lét vel að segja
frá hinum broslegu hliðum tilver-
unnar. Verður sá þáttur skap-
gerðar hennar ekki undan skilinn,
þegar nú er reynt að skapa augna-
bliksmynd að leiðarlokum.
Leið - vel á minnst. Guðrún
hafði eins og við fleiri gaman af að
ferðast og naut náttúrufegurðar af
ríkri innlifun. Hina hinstu ferð, er
við svo köllum - kannski af
skammsýni - ber oft bráðar að en
við vildum, en ferðin er farin og því
eðlilegt að þakklæti okkar fylgi ósk
um fararheill en samúðarkveðjur
þeim er um sárt eiga að binda.
Hallgrímur Sæmundsson
yfirkennari.
aUMFERÐAR
RÁÐ
Góð orð
duga skammt.
Gott fordæmi
skiptir mestu
máli
UTBOÐ
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í
eftirfarandi: RARIK - 83006 Aðveitustöð
Flúðum Hrunamannahreppi, byggingahluti.
Verkið felur í sér byggingu húss (71 m2),
byggingu undirstaða fyrir útirafbúnað og fyll-
ingu í grunn útivirkis ásamt fleiri tilheyrandi
verkum.
Verklok: 15. júlí 1983.
Opnunardagur: þriðjudagur 19. apríl 1983 kl.
14.00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagns-
veitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykja-
vík, fyrir opnunartíma, og verða þau opnuð
þar að viðstöddum þeim bjóðendum, er þess
óska. Útboðsgögn verða seld frá og með
miðvikudegi 6. apríl 1983 á skrifstofum Raf-
magnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, 105
Reykjavík og Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli.
Verð útboðsgagna: kr. 300,- hvert eintak.
Reykjavík 28.03.1983
Rafmagnsveitur ríkisins
Útboð
Laxárdalshreppur óskar eftir tilboðum í að
fullgera 2. áfanga grunnskóla í Búðardal.
Húsið sem er uppsteypt og glerjað er 725 m2.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Laxár-
dalshrepps í Búðardal, Verkfræði- og
teiknistofunni s.f. Kirkjubraut40, Akranesi og
undirrituðum gegn 1000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sömu stöðum föstu-
daginn 29. apríl 1983 kl. 11.30
ARKrTEKTASTOFAN SF
Borgartúni 17 sími 26833
ORMAR PÖR CUÐMUNDSSON
örnölfur HALL ARKITEKTAR FAl
Móðir mín, systir okkar og mágkona
Guörún Þorsteinsdóttir
kennari, Álftamýri 8
sem lést 28. mars verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 6. apríl kl. 13.30.
Þóra Björk Hjartardóttir
Bragi Þorsteinsson
Baldur Þorsteinsdóttir
Jóna Þorsteinsdóttir
Helgi Þorsteinsson
Maðurinn minn og faðir
Júlíus Baldvinsson
Reykjalundi
Fríða Sveinsdottir
Jóhanna A. Friðriksdóttir
Sigurjón Einarsson
Svanhildur Björgvinsdóttir
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 5. apríl.
Guðlaug Torfadóttir
Steinunn Júlíusdóttir
Eiginmaður fninn, faðir okkar og tengdafaðir,
Sigurmundur Gíslason
yfirtollvörður, Flókagötu 60,
sem-lést á Borgarspítalanum þriðjudaginn 29. mars verður
jarðsunginn frá Háteigskirkju fimmtudaginn 7. apríl kl.
13.30.
Sæunn Friðjónsdóttir Margrét R. Sigurmundsdóttir
Úlfur Sigurmundsson Sigríður Pétursdóttir
Stefán Sigurmundsson Halla Steingrímsdóttir
Sonur okkar og bróðir
Sveinn Gunnar Gylfason
Hamragarði 11 Keflavík
lést á gjörgæsludeild Landakotsspítala mánudaginn 4. apríl.
Gylfi Guðmundsson Guðrún Jónsdóttir
Gylfi Jón Gylfason
Bára Kolbrún Gylfadóttir