Þjóðviljinn - 06.04.1983, Síða 10
Sælir eru miskunnsamir: flóttafólk, rauðakrossmaður, móðir Teresa....
Baltasar: það vel skal vanda sem skal lengi standa. (Ljósm. eik).
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 6. apríl 1983
Sælir eru.
• •
Spjallað við Baltasar um
200 fermetra fresku sem
hann gerir fyrir Víðistaða-
kirkju.
Baltasar hefur unnið að myndverki sem meira er að vöxtum en
dæmi eru til hér á landi: um 200 fermetra veggmálverki fyrir
Víðistaðakirkju sem er að rísa í Hafnarfirði. Vinnuteikningar að
þessu verki eru til sýnis á kirkjulistarsýningunni á Kjarvalsstöðum.
Líkan af Víðistaðakirkju, arkitekt er Óli Þórðarson.
Drög að einum hluta myndarinnar: til vinstri eru syrgjendur og tunglið yfir þeim, til hægri eru hjartahreinir - nokkrir mestu listamenn aldanna.
Þetta ber allt að með þeim hætti
að listamaðurinn má vel við una,
sagði Baltasar. Arkitektinn Óli
Þórðarson og kona hans, innan-
hússarkitektinn Lovísa Christian-
sen, hafa frá upphafi haft samband
við mig „á jafnréttisgrundvelli"
eins og sagt er. Og ég valdi sjálfur
viðfangsefnið - ég bý til myndaröð
sem verður í fimm hlutum og fjallar
um þann hluta Fjallræðunnar sem
hefst á þeim frægu orðum - Sælir
eru....
Nútími og
biblíutími
Hérna er til dæmis í fullri stærð
sá hluti myndarinnar sem verður
yst til hægri. Þemað er „sælir eru
miskunnsamir". Þarna verður
flóttafólk af ýmsum kynþáttum og
rauðakrossmaður og móðir Teresa
sem íulltrúar hinna miskunnsömu.
A móti þessari mynd, yst til vinstri,
mun koma mynd um „sælir eru þeir
sem ofsóttir verða fyrir réttlætis
sakir“. Þar er hermaður allra tíma
að húðstrýkja Krist, sem er klædd-
ur svipað og unglingar okkar tíma,
þar er hermaður að ráða sak-
lausum manni bana, þarna verður
svertingi og gyðingur oggúlagturn.
Og á bak við alla myndröðina verð-
ur íslenskur fjallahringur. Með
öðrum orðum: það er vísað til