Þjóðviljinn - 06.04.1983, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 06.04.1983, Qupperneq 10
Sælir eru miskunnsamir: flóttafólk, rauðakrossmaður, móðir Teresa.... Baltasar: það vel skal vanda sem skal lengi standa. (Ljósm. eik). 14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 6. apríl 1983 Sælir eru. • • Spjallað við Baltasar um 200 fermetra fresku sem hann gerir fyrir Víðistaða- kirkju. Baltasar hefur unnið að myndverki sem meira er að vöxtum en dæmi eru til hér á landi: um 200 fermetra veggmálverki fyrir Víðistaðakirkju sem er að rísa í Hafnarfirði. Vinnuteikningar að þessu verki eru til sýnis á kirkjulistarsýningunni á Kjarvalsstöðum. Líkan af Víðistaðakirkju, arkitekt er Óli Þórðarson. Drög að einum hluta myndarinnar: til vinstri eru syrgjendur og tunglið yfir þeim, til hægri eru hjartahreinir - nokkrir mestu listamenn aldanna. Þetta ber allt að með þeim hætti að listamaðurinn má vel við una, sagði Baltasar. Arkitektinn Óli Þórðarson og kona hans, innan- hússarkitektinn Lovísa Christian- sen, hafa frá upphafi haft samband við mig „á jafnréttisgrundvelli" eins og sagt er. Og ég valdi sjálfur viðfangsefnið - ég bý til myndaröð sem verður í fimm hlutum og fjallar um þann hluta Fjallræðunnar sem hefst á þeim frægu orðum - Sælir eru.... Nútími og biblíutími Hérna er til dæmis í fullri stærð sá hluti myndarinnar sem verður yst til hægri. Þemað er „sælir eru miskunnsamir". Þarna verður flóttafólk af ýmsum kynþáttum og rauðakrossmaður og móðir Teresa sem íulltrúar hinna miskunnsömu. A móti þessari mynd, yst til vinstri, mun koma mynd um „sælir eru þeir sem ofsóttir verða fyrir réttlætis sakir“. Þar er hermaður allra tíma að húðstrýkja Krist, sem er klædd- ur svipað og unglingar okkar tíma, þar er hermaður að ráða sak- lausum manni bana, þarna verður svertingi og gyðingur oggúlagturn. Og á bak við alla myndröðina verð- ur íslenskur fjallahringur. Með öðrum orðum: það er vísað til

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.