Þjóðviljinn - 06.04.1983, Síða 12
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 6. apríl 1983
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið Reykjaneskjördæmi
Aðalkosningaskrifstofa í Hafnarfirði
Alþýðubandalagið í Reykjaneskjördæmi hefur opnað aðalkosningaskrif-
stofu sína í kjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar í Skáianum, Strand-
götu 41, Hafnarfirði.
Síminn er 52020
Kosningastjóri er Sigríður Þorsteinsdóttir.
Félagar og stuðningsmenn, lítið við á skrifstofunni.
Ávallt heitt á könnunni.
Aiþýðubandalagið
Árshátíð Alþýðubandalagsins
í Borgarnesi og nágrenni
Verður haldin í félagsheimilinu Valafelli 16. apríl n.k.
Nánar auglýst síðar. -f Nefndin.
Alþýðubandalagið á Suðurlandi
Kosningaskrifstofa
Kosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins í Suðurlandskjördæmi hefur ver-
ið opnuð að Kirkjuvegi 7, Selfossi. Kosningastjóri er Sigurður Björgvins-
son. Skrifstofan er opin frá 2-10 alla daga nema föstudaginn langa og
páskadag. Símarnir eru 99-2327 og 99-1002.
Félagar, lítið inn og leggið hönd á plóginn.
Alþýðubandalagið.
Hólmfríður Sigurðardóttir pínó-
leikari og Kolbeinn Bjarnason
flautuleikari: Spila 3 íslensk verk.
Háskólatónleikar:
Alþýðubandalagið í Norðurlands-
kjördæmi eystra
Alþýðubandalagið í Norðurlandskjördæmi eystra hefur opnað kosninga-
skrifstofu að Eiðsvallagötu 18, Akureyri og verður hún opin fyrst um sinn
frá kl. 13.00 og frameftir kvöldi. Kosningastjóri er Heimir Ingimarsson og
starfsmenn Geirlaug Sigurjónsdóttir og HelgiHaraldsson. Allt stuðnings-
fólk Alþýðubandalagsins er hvatt til að hafa samband við skrifstofuna og
helst að lítainn. Starfiðer komið í fullangangogalltaf er heitt ákönnunni.
Símar skrifstofunnar eru 96-21875 og 25875.
Kosningastjórnin
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Kosningaskrifstofa
Alþýðubandalagsins í Reykjavík er að Hverfisgötu 105. Hún er opin frá
9-22 mánudaga til föstudaga. en 10—19 á laugardögum og 13-19 á sunnu-
dögum. ; ......
Símarnireru: Kristján Valdimarsson: 17i504og 17500, Arthúr Mort.hens.
18977 og 17500 og Hafsteinn Eggertsson: 17500. •
Sjálfboðaliðar
Sjálfboðaliðar til ýmissa starfa fjrám að kjördegi, með bíla eða án, - látið
skrá ykkur til starfa sem fyrst í síma 17500.
Fram með kokkabækurnar!
Sendið okkur kleinur, lummur og pönnukökur í kosningamiðstöðina
handa sístarfandi sjálfboðaliðum.
Þið sem heima sitjið á morgnana!
Stuðningsmenn, þið sem hafið frían tíma að morgni, svo ekki sé nú talað
um ef þið hafið bíl til umráða, látið skrá ykkur til morgunverka í síma
17500 strax.
Kosningasjóður
Þótt kostnaði við kosningarnar verði haldið í lágmarki kosta þær þó sitt.
Kosningasjóð þarf því að efla strax. Tekið er á móti framlögum í sjóðinn
að Hverfisgötu 105.
Ertu á kjörskrá?
Kosningastjórn Alþýðubandalagsins í Reykjavík vekur athygli kjósenda á
því að kjörskrá liggur frammi á Manntalsskrifstofu Reykjavíkurborgar,
Skúlatúni 2. Allir stuðningsmenn flokksins eru hvattir til að kanna hvort
þeir eru á kjörskrá og athuga jafnframt hvort vinir eða ættingjar, sem
styðja flokkinn séu þar líka. Þeir sem ekki eru á kjörskrá eru hvattir til að
láta kosningaskrifstofuna að Hverfisgötu 105 símar 11432 og 19792 vita,
þannig að kæra megi viðkomandi inn á kjörskrá. Kærufrestur rennur út 8.
apríl n.k.
Kosningastjórn.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
stendur nú yfir vegna komandi alþingiskosninga. í Reykjavík er kosið í
Miðbæj arskólanum.
Þjónusta Alþýðubandalagsins vegna utankjörstaðaatkvæðagreiðslu er að
Hverfisgötu 105. Umsjónarmaður hennar er Gunnar Gunnarsson. Starfs-
menn hennar munu veita aðstoð við kjörsákærur, milligöngu um atkvæða-
sendingar og frekari upplýsingar.
Símar 11432 og 19792
Stuðningsmenn G-listans athugið
Kjósið sem fyrst ef þið verðið ekki heima á kjördag.
Kannið hvort stuðningsmenn, sem þið þekkið meðal námsmanna, sjó-
manna, ferðafólks, sjúklinga, verði að heiman á kjördag - og látið okkur
vita.
Ef þið eruð í vafa um hvort einhver stuðningsmaður er á kjörskrá - hringið
og við athugum málið.
Alþýðubandalagið utankjörfundarskrifstofa
Hverfisgötu 105
Alþýðubandalagið í Vestmannaeyjum
Fyrst um sinn verður kosningaskrifstofan opin að Bárugötu 9 milli kl. 17
og 19. Sími 1570. Kaffi á könnunni. - Kosningastjórn.
Alþýðubandalagsfélagar
Greiðið félagsgjöldin
Stjórn Alþýðubandalagsins'í Reykjavík minnir þá sem enn skulda gjald-
fallin félagsgjöld á útsenda gíróseðla. Stöndum í skilum með félagsgjöldin
og eflum þannig starf félagsins. - Stjórn ABR
Alþýðubandalagsfélögin Suðurnesjum
Kosningaskrifstofan í Keflavík
Kosningaskrifstofa Alþýðubandalagsfélaganna á Suðurnesjum verður
að Hafnargötu 17 Keflavík. Opið alla daga frá kl. 14-21.00.
Síminn er 1827
Starfsmaður skrifstofunnar er Brynjólfur Sigurðsson.
Kjörskrá liggur frammi og öll aðstoð veitt við kjörskrárkærur og utan-
kj örfundaatkvæðagreiðslu.
Félagar og stuðningsmenn lítið við á skrifstofunni.
Kjördæmisráð AB
á Austurlandi
Kosningamiðstöðin í Neskaupstað er að Egilsbraut 11, sími 7571. Opið
daglega frá kl. 13 til 19 og 20 til 22 og um helgar frá 14-17.
Kosningaskrifstofan á Egilsstöðum er að Tjarnarlöndum 14, sími 1676.
Opin daglega frá kl. 20 til 23.30.
Kosningaskrifstofan á Höfn er að Miðgarði, símar 8129 og 8426. Opin á
kvöldin og um helgar.
Á næstunni verða kosningaskrifstofur opnaðar á fleiri stöðum. Hafið
samband við kosningaskrifstofurnar og véitið upplýsingar um stuðnings-
menn er verða fjarstaddir á kjördag 23. aprfl. Tekið á móti framlögum í
kosningasjóð.
Kosningastjórn G - listans.
Alþýðubandalagið
í Kópavogi
Kosningaskrifstofa
Kosningaskrifstofa G-listans í Kópavogi hefur verið opnuð í Þinghól,
Hamraborg 11. Kosningastjóri er Friðgeir Baldursson. Skrifstofan verður
fyrst um sinn opin frá kl. 14 til 18. Allt stuðningsfólk Alþýðubandalagsins
er hvatt til að hafa samband og helst að líta inn. Aðalsími skrifstofunnar er
41746.
Kosningastjórn.
Akranes - Akranes
„Það sem við viljum er friður á jörð“. Friðarvaka í Rein á Akranesi
laugardagskvöld 9. apríl. Hefst vakan kl. 22.
Fjölbreytt dagskrá, súkkulaði, rjómi og meðlæti. Aðgangur öllum heim-
ill. - Friðarnefndin.
Alþýðubandalagið Vesturlandi
G-listinn - Aðalskrifstofa
Kosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins í Vesturlandskjördæmi verður í
félagsheimilinu Rein á Akranesi.
Skrifstofan verður opin frá kl. 14.00 til 20.00.
Símar skrifstofunnar eru (93) 1630 og 2996. - Kosningastjórn.
Opið hús í kosningamiðstöð
Alþýðubandalagið á Seltjarnarnesi og 1. deild Alþýðubandalagsins í
Reykjavík gangast fyrir opnu húsi í kosningamiðstöð Álþýðubandalagsins
að Hverfisgötu 105, fimmtudaginn 7. apríl kl. 20.30.
Gestir kvöldsins: Elsa Kristjánsdóttir og Svava Jakobsdóttir. - Nánar
auglýst síðar. - Undirbúningsnefndin.
Bara-flokkurinn frá Akureyri heldur hljómleika á Borginni í kvöld,
flmmtudaginn 7. aprfl, á meðan stjörnur messa á Broadway. Þar mun
löngu uppselt, en BARA-flokkur ætti að vera góð sárabót hvar sem er í
stjörnukerfinu...
Samleikur
á píanó
og
flautu
í dag, miðvikudaginn 6. aprfl,
hefjast háskólatónleikar að nýju
eftir páskahlé, og verða sérhvern
miðvikudagihádeginukl. 12:30 og
í Norræna húsinu.
Á tónleikunum í dag (6. apríl)
flytja þau Kolbeinn Bjarnason
flautuleikari og Hólmfríður Sig-
urðardóttir píanóleikari þrjú ís-
lensk verk, Vier Stiicke eftir John
Speight og tvö verk eftir Leif Þór-
arinsson, Per Voi og Sonata per
Manuela.
Kolbeinn Bjarnason nam flautu-
leik hjá Jósef Magnússyni, Manú-
elu Wiesler og í Basel. Hann stund-
ar nám í bókmenntum og
heimspeki við Háskóla íslands.
Hólmfríður Sigurðardóttir er ís-
firðingur. Hún lærði píanóleik hjá
Ragnari H. Ragnar og í Munchen
og útskrifaðist úr Tónlistarháskól-
anum þar fyrir tveimur árum.
Tónleikarnir hefjast kl. 12:30
eins og áður sagði, og eru öllum
opnir.
Pétur Jónasson
gítarleikari
Hljómleikar
á Suðurlandi
Næstu daga mun Pétur Jónasson
gítarleikari kynna hljóðfæri sitt í
skólum á Suðurlandi og er ferð
þessi styrkt af Menntamálaráðu-
neytinu.
Miðvikudaginn 6. apríl
heimsækir Pétur Kirkjubæjar-
klaustur, fimmtudaginn 7. apríl
Vík í Mýrdál og föstudaginn 8. apr-
íl Hellu og Hvolsvöll.
Á kvöldin mun Pétur halda opin-
bera tónleika á viðkomustöðum
sínum og flytja þá efnisskrá sem
spannar öll helstu tímabil í sögu
gítarsins, frá endurreisnartímanum
til vorra daga. Tónleikarnir á
Kirkjubæjarklaustri verða í kapell-
unni klukkan 21.00, f kirkjunni í
Vík klukkan 20.30 og áformáð er
að hann haldi tónleika á Hellu á
föstudagskvöldið.
Bloom-
field
látinn
Jimmy Bloomfield, einn virtasti
stjórinn í ensku knattspyrnunni,
lést í fyrradag, 49 ára að aldri.
Hann lék á sínum tíma með enska
landsliðinu undir 23 ára, Arsenal,
West Ham, Birmingham, Plymo-
uth og Brentford. Undir hans
stjórn koms Orient upp í 2. deild
fyrir rúmum áratug en hann gerðist
síðan stjóri hjá Leicester. Hann
fór til Orient að nýju en hætti þar
fyrir tveimur árum vegna veikinda.