Þjóðviljinn - 14.04.1983, Síða 4

Þjóðviljinn - 14.04.1983, Síða 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 14. apríl 1983 UOBVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyf- ingar og þjóðfrelsis Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastióri: Guðrún Guðmundsdóttir Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson. Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson. Auglýsingastjóri: Sigríður H. Sigurbjörnsdóttir. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Blaðamenn: Auður Styrkársdóttir, Álfheiöur Ingadóttir, Helgi Ólafsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Ólafur Gíslason, Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlöðversson. íþróttafréttaritari: Víðir Sigurðsson. Utlit og hönnun: Helga Garðarsdóttir, Guðjón Sveinbjörnsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Atli Arason. Handrita- og þrófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Auglýsingar: Ásláug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson. Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Sæunn Óladóttir. Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir. Bilstjóri: Sigrún Bárðardóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmundsson, Ólafur Björnsson. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir Útkeyrsla, afgreiðsia og auglýsingar: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333. Umbrot og setning: Prent. Prentun: Blaðaprent h.f. Nývakinn áhugi • Það er afar ánægjulegt hve stjórnmálaflokkarnir leggja mikla áherslu á húsnæðismálin fyrir þær kosning- ar sem eru í vændum. Kjósendur verða hinsvegar að gá að því að negla þá niður við loforð sín ef einhver von á að vera um efndir. Hvað ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að gera við milljarðagatið í sínum tillögum og ætlar hann að framkvæma áætlun sína á 5, 10 eða 15 árum? Hvað er svo gefandi fyrir áætlun Framsóknarflokksins þegar Ólafur Jóhannesson segir, að fyrst verði atvinnuvegirn- ir að koma og síðan húsbyggjendur? Þeir sem ætla að kaupa eldra húsnæði eiga svo ekki að fá neitt. • Nývakinn áhugi á húsnæðismálum var ekki fyrir hendi í vetur þegar fyrir Alþingi lá frumvarp frá ríkis- stjórninni um breytingar á húsnæðislögunum. Fram- sóknarmenn reyndust hafa lítinn áhuga á að koma því í gegn og stjórnarandstaðan stöðvaði það endanlega í neðri deild. Hvar var húsnæðismálaáhugi Sjálfstæðis- flokksins og Alþýðuflokksins þá? • í þessu frumvarpi voru ákvæði um 25% hækkun húsnæðislána til þeirra sem byggja eða kaupa í fyrsta sinn, tvöföldun á raungildi framlags til Byggingarsjóðs ríkisins, óskertar tekjur Byggingarsjóðs verkamanna, aukning á skuldabréfakaupum lífeyrissjóða af hús- byggingarsjóðunum, samræmd þátttöku banka í fjár- mögnun húsnæðismála, nýtt fyrirkomulag lánveitinga og afborgana, og skattfríðindi til þess að hvetja til sparnaðar í bönkum í þágu húsnæðismála. • Hvorki Sjálfstæðisflokkur né Alþýðuflokkur vildu taka þessi skref í húsnæðismálum fyrir kosningar. Batn- andi mönnum er best að lifa, en óneitanlega hefði verið meiri mannsbragur að því að láta verkin tala fyrir kosn- ingar, heldur en einungis að láta loforðin glymja í eyrum kjósenda eins og nú er gert. -ekh Framsóknarafstaðan • Peninga- og lánakerfið hefur ekki verið lagað að þörfum húsbyggjenda og þeirra sem eru að festa sér íbúðir eftir að verðtryggingarstefnan var tekin upp. Árið 1981 var ákveðið að efna til skuldbreytinga í bönk- unum til þess að lengja skammtímalán til húsnæðis- mála. í fyrrasumar samþykkti ríkisstjórnin að ganga frá skuldbreytingu við húsbyggjendur á sama hátt og 1981. Tómas Arnason bankamálaráðherra tregðaðist lengi við, en þrátt fyrir loforð seint og síðar meir um að taka á málinu hefur hann enn ekki staðið við það. Fyrir þing- nefnd lýsti Jónas Haralz bankastjóri og einn af helstu leiðtogum Sjálfstæðisflokksins í efnahagsmálum yfir því að hann væri á móti því að bæta hag húsbyggjenda með skuldbreytingum og lengingu lána. Það er í sam- ræmi við þá afstöðu Ólafs Jóhannessonar sem fram kom í útvarpinu sl. laugardag, að atvinnulífið verði að hafa forgang í þjónustu bankanna og einstaklingarnir verði að bíða. Fað er þessi afstaða sem veldur því að margir húsbyggjendur og íbúðakaupendur eru nú að komast í þrot. —ekh Undarleg árátta • Undarleg er sú árátta forystu Framsóknar að strekkja yfir til íhaldsins. Hún hefur að vísu lengi verið hægri sinnaðri en stór hluti fylgismanna. Margir hefðu þó haldið að hún hefði eitthvað lært af óförunum þegar afturhaldið í Framsókn og Sjálfstæðisflokknum leggur saman. En löngunin verður skynseminni yfirsterkari með reglulegu millibili. Eftir samvinnu við Sjálfstæðis- flokkinn tapaði Framsóknarflokkurinn 39% af fylgi sínu 1934, 19.2% 1956 og 32.1% 1978. Og enn vill þó forysta Framsóknar með þá Ólaf Jóhannesson og Tóm- as Árnason í broddi fylkingar reyna á þolrif Framsókn- armanna með samvinnu við Sjálfstæðisflokkinn. —ekh Alþýðuflokkurinn sækir á Bandalag jafnaðar- manna í klóm einræðisherrans klippt Háð en ekki lof í skrafþætti Tímans í gær er haldið áfram málsvörn fyrir hina sérstæðu framgöngu Framsókn- armanna í álmálinu og þar með skothríð á Hjörleif Guttormsson iðnaðarráðherra. Skrafari kemur svo með svofelldan samanburð á álmálinu og landhelgismálinu: „í landhelgismálinu héldu þeir menn á málum sem höfðu bæði kjark og getu til að fylgja fram málstað íslendinga. Þá var staðið þétt gegn ofbeldinu og haldið fast á rétti okkar“. Óvart verður þessi sögulega til- vísun blaðamannsins til að stinga þá sem hann sjálfsagt síst vildi. Eða dettur nokkrum í hug, að saga Steingríms, Guðmundar G. Þórarinssonar og fleiri Framsókn- aroddvita i álmálinu sé í ætt við „kjark“ eða kunnáttu og ákveðni í því að „halda fast á rétti okkar“? Sumt lof er þess eðlis, að það hefur fyrr en varir snúist í háð. Þetta hafa menn vitað síðan á dögum Snorra Sturlusonar - þótt - það hafi farið fram hjá þeim á Tímanum. Hógvœrð og sannfœringar- kraftur Alþýðublaðið er óvenju skemmtilegt þessa daga. í leiðara blaðsins í gær má lesa svofellda setningu, sem er eitt besta fram- lag til sjálfsgagnrýni sem hingað til hefur sést í kosningabarátt- unni: „Alþýðuflokkurinn einn ber ekki ábyrgð á þeirri upplausn sem ríkir í íslensku þjóðfélagi". Sú lofsverða hógværð sem birt- ist með öðru í þessum orðum leiðarahöfundar er að sönnu nokkuð trufluð af glannalegum málflutningi á forsíðu blaðsins. Þar segir að Alþýðuflokkurinn sé að sækja á. Mun þar átt við það, að flokkurinn sé ekki í alveg eins mikilli útþurrkunarhættu vegna Vilmundarfársins og skoðana- kannanir bentu til fyrir nokkru. Og verður Vöggur litlu feginn. Þessum uppslætti blaðsins fylg- ir ágæt mynd af Kjartani Jóhanns- syni þar sem hann steytir hnef- ann framan í starfsfólk Álafoss. Blaðið segir að formaðurinn hafi talað af miklum sannfæringar- krafti „eins og myndin sýnir“. Aukabúgrein íhaldsins Svarthöfði Vísis hefur, ein og minnst hefur verið á í þessum pistl- um, tekið það að sér að bera fram hreinræktaðan áróður fyrir Sjálfstæðisflokknum í þessum kosningum og sér þá von eina fyrir þjóðinni að veita honum hreinan meirihluta á þingi. í beinu framhaldi af þessari bar- áttu gerir Svarthöfði sitt besta til að láta svo líta út sem Vilmund- arflokkurinn muni einkum og sérílagi taka fylgi frá Alþýðu- bandalaginu. Það veit hver maður, að þegar ný framboð eru uppi munu þau reyta eitthvað af hverjum flokki. En hitt er mikill misskilningur hjá dálkahöfundum Dagblaðsvísisins að vinstrimenn séu svo skyni skroppnir að þeir átti sig ekki á því, að Vilmundarstefnan er, að svo miklu leyti sem hún gengur ekki í hring og er markleysa, einna helst í aukabúgrein frá Sjálf- stæðisflokknum. Skiptir þá ekki máli þótt Vilmundur fari já- kvæðum orðum um jöfnuð og blandað hagkerfi og fleira það, sem mjög margir skrifa upp á. Það sést líka á fréttaskýringu Morgunblaðsins um Vilmund í gær, að blaðinu stendur nokkur stuggur af því, að hann rói á sömu mið og frjálshyggjumenn svo- nefndir (Verslunarráð, Ungtyrk- ir íhaldsins og fleiri). Blaðið vitn- ar í stefnuskrá Vilmundar og segir svo: „Við fyrstu sýn er þetta stefna frjálshyggju, hlutur ríkisvaldsins á að vera sem minnstur og hinn þjóðkjörni handhafi fram- kvæmdavaldsins (forsætisráð- herra) á að leggja sig fram um að afsala sér sem mestu af valdi sínu“. Morgunblaðinu finnst að þarna séu á ferðinni freistingar fyrir óánægða Sjálfstæðismenn og flýtir sér að bæta því við, að úr því Vilmundi hafi láðst að fara lofsamlegum orðum um „ein- staklinga í atvinnurekstri" eða semja „sérstaka stuðningsyfirlýs- ingingu við frjálshyggju“ þá sé hann ekki einn af „okkar strákum“. En hann er það nú samt. Stutt gaman Það er ekki nýtt að menn verði fyrir vonbrigðum með stjórn- málaflokka. En venjulega tekur það nokkurn tíma fyrir von- brigðin að búa um sig og brjótast út. Vilmundarflokkurinn ætlar að slá öll met í þessu efni. Alllöngu fyrir fyrstu kosningarnar sem flokkurinn tekur þátt í hafa þegar kvistast úr honum stuðningsfélög hans á Reykjanesi. Einn hinna vonsviknu segir svo í Dag- blaðsvísinum í gær: „Boðskapurinn um valddreif- ingu reyndist einungis fortjald pólitísks loddaraleiks...Heilt kjördæmi, Reykjaneskjördæmi, hefur verið svipt mannréttindum til að þóknast duttlungum ein- ræðisherrans, Vilmundar Gylfa- sonar“. Það er margt manna bölið. Jamm það held ég. áb. og skoriö Droplaug í stuði Sannleiksástinni er viðbrugðið hjá Droplaugu á baksíðu Tímans einsog bændur vita. Gott ef það er ekki grunnt á rannsóknar- blaðamannsefni í þess.um vand- aða slúðrara. í gærkemsthún að þeirri niðurstöðu eftir vísinda- lega söguskoðun að Ingi R. Helga- son forstjóri í Brunabót hafi gert samningana við Alusuisse- hringinn sem alþjóð stynur undan árið 1975. Þetta á við engin rök að styðj- ast. Það voru þeir þrímenning- arnir, sem gerðu einnig samning- inn 1966, sem stóðu í endur- skoðun samningsins 1975. Og fýsir sjálfsagt engan að taka það afrek frá þeim. Mennirnir heita Jóhannes Nordal Seðlabanka- stjóri og stjórnarmaður í Landa- koti með meiru, Ingólfur Jónsson fyrrv. ráðherra Sjálfstæðisflokks- ins og Steingrímur Hermannsson formaður Framsóknarflokksins. Þetta var samninganefndin sem stóð að endurskoðunínni sem við erum enn að súpa seyðið af. -og 1975 sömdu þessir um endurskoðun Jóhannes Nordal Ingólfur Jónsson Steingrímur Hermannsson Þeir sömdu um nokkra raforkuverðshækkun til Landsvirkjunar, en með þeim hætti, að raforkuverðshækkunin yrði öll greidd úr ríkissjóði með lækkun á skattgreiðslu ísal. Með öðrum orðum:

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.