Þjóðviljinn - 14.04.1983, Síða 7
Fimmtudagur 14. aprfl 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Rauði krossinn
fékk ágóðann!
Franska kvikmyndavikan, sem hefur verið árviss viðburður í
Reykjavík um noickurra ára skeið, er mörgum tilhlökkunarefni og
menningardeild franska sendiráðsins, en hún gengst fyrir
kvikmyndavikunni, til mikilssóma.
Franska sendiráðið hefur jafnan verið svo rausnarlegt að færa
Rauða krossi íslands að gjöf ágóðann af þessunt
kvikmyndasýningum og fyrir skömmu barst Rauða krossinum
ávísun að upphæð kr. 10.579.30 sem var hagnaður af síðustu
frönsku kvikmyndaviku.
Bókagjöf
til Háskólabókasafns
í febrúar síðast liðnum barst Háskólasafni vegleg bókagjöf frú
útgáfufyrirtækinu Blackwell Scientific Publications í Oxford. Var
hér um að ræða um 700 bindi vísindarita sem fyrirtækið hefur gefið
út, þar af um 200 bindi tímarita. Jafnframt fól gjöfin í sér áskrift á
13 vísindaleg tímarit, svo og fyrirheit um allmargar bækur sem
koma út síðar á þessu ári.
Forgöngu um gjöf þess hafði Per Saugman, stjórnarformaður og
forstjóri Blackwell Scientific Publications, en hann er einlægur
aðdáandi íslands ogíslenskrar menningar. Ergjöfin veitt ítilefni af
heimsókn forseta íslands, frú Vigdísar Finnbogadóttur, til Oxford í
febrúarmánuði 1982.
Aðalfundur Menningar-
samtaka Norðlendinga
Nú er um það bil hálft ár frá því fyrsti aðalfundur
Menningarsamtaka Norðlendinga var haldinn. Starfsemi
samtakanna hefur verið þó nokkur á þessum tíma, en mætti vera
nteiri. Staríið hefur fram að þessu aðallega legið í fyrirgreiðslu fyrir
hin ýmsu félagasamtök.
Stjórn samtakanna hefur komið saman sex sinnum frá aðalfundi
og hefur þar margt borið á góma. Mennigarsamtökin höfðu
frumkvæði að stofnun félags rithöfunda á Norðurlandi, og er allt
útlit fyrir að það muni verða virkur félagsskapur. Eins höfum við
haldið fund með formönnum leikfélaga þar sem þeirra mál voru
tekin fyrir, er nú verið að undirbúa stofnun samtaka leikfélaga á
Norðurlandi. Verður stofnfundur væntanlega haldinn í
máímánuði.
Aðalfundur Vinnumála-
sambands samvinnufélaganna
Þann 17. marssl. var haldinn aðalfundur Vinnumálasambands
samvinnufélaganna.
Sérmál fundarins þessu sinni var „Samstarf stjórnenda og
starfsmanna í samvinnuhreyfingunni". Var starfað í
umræðuhópum og urðu fjörugar umræður um þennan mikilvæga
þátt í rekstri fyrirtækja.
í stjórn Vinnumálasambandsins eru nú þessir menn:
Hallgrímur Sigurðsson framkvæmdastjóri, Reykjavík,
formaður, Ólafur Sverrisson kaupfélagsstjóri, Borgarnesi,
varaformaður, Árni Benediktsson framkvæmdastjóri, Reykjavík,
Árni S. Jóhannsson, kaupfélagsstjóri, Blönduósi, Gísli Haraldsson
kaupfélagsstjóri, Norðfirði, Jón Álfreðsson kaupfélagsstjóri
Hólmavík, Matthías Gíslason kaupfélagsstjóri, Vík.
Framkvæmdastjóri Vinnumálasambandsinser Júlíus Kr.
Valdimarsson.
Nýtt fréttablað
-Eystra horn
Nýtt fréttablað kom út í Höfn á Hornafirði um síðustu helgi,
Eystra-Horn. Að útgáfunni standa tólf einstaklingar oger ætlunin
að blaðið komi út vikulega. Ritstjóri erHalldórTjörvi Einarsson,
en prentun er í höndum Prentsmiðju Hornafjarðar.
„1 öllu fréttaflóðinu sem yfir okkur dynur á hverjum degi er ekki
rúm fýrir „okkar“ fréttir", segir m.a. í forystugrein hins nýja blaðs,
og jafnfranrt aö Eystra-horninu sé ætlað að bæta úr því.
Vinningar í
IOGT-drætti
Dregiðhefur veriðí happdrætti l.O.G.T. til eflingar barnastarfi.
Eftirtalin númer hlutu vinning:
Skíðaferðfyrirtvo aðeigin vali að verðmæti kr. 27.000.-4576.
18 vinningarskíðaútbúnaður á kr. 3000,- hver 143,439,522,
3544,3890,4574,5552,7322,8496,9199,9344,9510,9674,12090,
12339,13187.13269,13652.
✓
Aburðarverði og
vegleysum mótmælt
Á aðalfundi Búnaðarfélags Dyrhólahrepps, sem haldinn var í
Ketilsstaðaskóla 30. mars sl. voru cftirfarandi tillögur samþykktar í
einu hljóði:
1. Aðalfundurinn...skorar áríkisstjórnina að útvegafé til reksturs
Áburðarverksmiðjunnar eins og annarra ríkisfyrirtækja sem rekin
eru með tapi, því ef það áburðarverð, sem kynnt hefur verið, kæmi
á áburð í vor, væri hætta á að það kæmi mjög illa við bændur og gæti
valdið röskun á hinum hefðbundnu búgreinum. Telur fundurinn að
ríkið verði að laga hallarekstur verksmiðjunnar svo að áburður
hækki ekki til bænda umfram almennar verðhækkanir í landinu.
2. Aðalfundurinn...skorar á samgönguráðuneytið að hlutast til
um að aukin verði fjárveiting til uppbyggingar vega í Mýrdal. Telur
fundurinn núverandi ástand vega algerlega óviðunandi, þegar
tekið er tillit til þess, að þetta er eina samgönguleið íbúa á
Suðausturlandi og einnig mikið notuð af Austfirðingum, m.a. við
þungaflutninga. -mhg
Neytendasamtökin
mótmæla einkasölu
Þursaflokkur
á Austurlandi
Þursamir eru nú í hljómleikaferð
um landið. Þeir hafa nú skemmt
Norðlendingum og næstir á dagskrá
eru Austfirðingar: í kvöld (finrmtu-
dagskvöld) verða Þursamir á Egils-
stöðum, á Seyðisfirði á föstudag,
Reyðarfirði laugardag og á Höfn í
Hornafirði á sunnudag. Hljóm-
leikamir hefjast kl. 21 á öllum
stöðum.
Efnisskrá Þursanna er nýtt efni,
sem væntanlega kemur út á hljóm-
plötu í sumar, en í bland leika þeir
eldra efni sitt. Þursamir munu síðan
halda hljómleika í Reykjavík eftir
miðjan apríl.
Skáldskapur
áttunda
áratugarins
Út er komin hjá IÐUNNI bókin
Nýgræðingar í Ijóðagerð 1970-
1981, en það er ljóðasafn sem
Eysteinn Þorvaldsson cand. mag.
hefur tekið saman. Bókin hefur að
geyma úrval ljóða eftir ung skáld
sem fram komu á fyrrgreindu tíma-
bili. í henni eru ljóð eftir 36 höf-
unda og aftast skrá um allar þær
Ijóðabækur ungra skálda frá þessu
skeiði sem til náðist.
Eysteipn Þorvaldsson hefur
sarnið inngangsritgerð sem hann
nefnir „Skáldskapurinn í lífinu" og
gerir þar grein fyrir megineinkenn-
urn ljóðanna. Safninu sjálfu skiptir
hann í átta kafla eftir viðfangsefn-
um: Vegir ljóðsins, Samskipti,
Dagsins önn, Veruleiki nútímans,
Sjónarmið, Ádrepur, Ættjörð og
náttúra og Landamæri eru tilbún-
ingur. - Af skáldunum 36 eru 14
konur.
„Markmið ljóðasafnsins er að
sýna heildarsvip og megineinkenni
bestu ljóða nýrra skálda á næst-
liðnum áratug", segir Eysteinn
Þorvaldsson í inngangi. „...Ég
vænti þess að þetta ljóðasafn sýni
fram á að engu þarf að kvíða um
framtíð íslenskrar ljóðagerðar.
Áttundi áratugurinn þarf síst að
bera kinnroða vegna framlags síns
til Ijóðlistarinnar".
Nýgræðingar í Ijóðagcrð er 203
bls.
Tónleikar
í cíag
í dag, 14. apríl verða tónleikar í
Bókasafni Kópavogs. Flytjendur
eru nemendur við nám í Tónlistar-
skóla Kópavogs. Þeir eru:
Hilmar Þórðarson, trompet, Jó-
hann Moravec, klarinett, Þórunn
Guðmundsdóttir, flauta, Nicholas
Hall, tenor.
Þau munu flytja verk eftir Ililm-
ar Þórðarson, Jóhann Moravec
o.tl. Allir eru velkomnir meðan
húsrúm leyfir og er aðgangur
ókeypis.
Vegna frétta um fyrirhugaða
einkasölu á eggjum hafa Neyt-
endasamtökin sent frá sér frétt þar
sem segir:
„Neytendasamtökin lýsa yfir
undrun sinni á þeim fréttunr, að
Framleiðsluráð landbúnaðarins
hafi núverið heimilað, að komið
verði á einkasölu á eggjum. Komi
til þess, að landbúnaðarráðuneytið
gefi út reglur unr fyrirkomulag á
eggjasölu eða eggjadreifingu, sem
þýða í raun einokun eða fram-
leiðSjustýringu gegn hagsmunum
neytenda, munu Neytendasam-
tökin ekki sitja aðgerðarlaus held-
ur berjast gegn slíkunt reglunt af
öllu afli.
Flestar aðrar landbúnaðaraf-
urðir sem framleiddar eru innan-
lands, eru háðar einokunarsölu og
framleiðslustjórnun, sem tekur
fyrst og fremst mið af hagsmunum
framleiðenda, en tæpast af hags-
munum neytenda. Verði um tutt-
ugu ára gömlum lögurn um Fram-
leiðsluráð landbúnaðarins beitt nú,
til þess að auka enn á einokun í
verslun með landbúnaðarafurðir, í
andstöðu við hagsmuni neytenda,
þýðir það einfaldlega að þessi lög
verður að nema úr gildi.
Framboð, verðlag og gæðí
ýnrissra landbúnaðarafurða er að-
finnsluvert, og rnörg -af þeim
vandamálum sem þar er við að etja
rná rekja beint til einokunar og ein-
hliða sjónarmiða við framleiðslu-
stjórnun. Það er því tímaskekkja
nú, að ögra hagsmunum neytenda
með umræddum einokunaráform-
um í eggjasölu og stefna þannig í
öfuga átt við eðlileg samskipti fólks
í nútíma þjóðfélagi."
Hefur þaö
bjargað þér
jr
Móðir mín og amma
Sigríður Gísladóttir
lést þriðjudaginn 12. apríl á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund.
Guðmundur Valgeirsson
Sigurkarl F. Ólafsson
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og systir,
Þorbjörg Friöriksdóttir
hjúkrunarkennari
Stigahlíð 37,
lést á Landspítalanum að kvöldi 12. apríl.
Sigurður Kr. Árnason
Sigurður Páll Sigurðsson Þórhallur Sigurðsson
Árni Þór Sigurðsson Steinar Sigurðsson
Friðrik Sigurðsson Margrét H. Eydal
Ásta Friðriksdóttir