Þjóðviljinn - 19.05.1983, Síða 6

Þjóðviljinn - 19.05.1983, Síða 6
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 19. maí 1983 BLAÐAUKI — Kryddjurtir 7 krús og dollu! Varla gefur nokkur ræktun jafn mikið í aðra hönd eins og kryddjurtarækt. Liturþeirra og lögun gleður augað, ilmanin nefið ogbragðið góminn. Auk þess krefst kryddjurtaræktin engra stærri landsvæða. Hversásem hefur yfir að ráða gluggakistu eða svalakassa getur fyrirhafnarlítið komið sér upp allvænum kryddjurtargarði. Peirsem einu sinni hafa komist yfir byrjunarörðugleikana munu spyrja sjálfa sig að því, hversvegna þeir hafi komist af án kryddjurtanna í öll þessi ár. Og það er von að þeir spyrji því að þær bæta meltinguna oggera menn léttari í lund og sælli meðsitt. Skyldi þaðannarsekki hafa haft neikvæð áhrif á þjóðargeð íslendinga að vera alltaf önnum kafnir innan í sér við að melta sauðkindur ogsiginn þorsk? Þannig hefst inngangur Hafstcins Hafliðasonar, garðyrkjumanns, að greininni „Kryddjurtir í krús og dollu", sem birt var í Þjóðviljanum vorið 1980. Allt er þar enn í góðu gildi og þar sem kryddjurtatíminn heilist nú yfir fengum viö leyfi Hafsteins til að endurprenta hér skrif hans um nokkrar kryddjurtir. Engefum honum orðiö aftur: Nú skal vinda sér að því að gefa nokkrar leiðbeiningar um ræktun kryddjurtanna og tegundaval. Fyrst ber jaröveginn á góma. Yfirleitt eru kryddjurtir ekki kröfuharðarum mold. Venjuleg pottamold úr búð eða góð garðmold duga flestum þeirra vel, þó ber að geta þess að sé moldin of feit getur það rýrt bragðgæðin. Til eru þeir, sem telja að ekkert gagni nema leirkennd rofabarðsmold íblönduð mulinni eggjaskurn og veðruðum lambaspörðum. Ekki get ég rengt þá og útivistin er holl! Hvað ílát varðar kemur margt til álita. Bestheldégaðsé aðleyfa hugarfluginu að ráða. Ég hef séð salvíu vaxa vel í aflögðum spariskó! - Allar dollur duga sé þess gætt að hafa þær ekki of litlar og vökva ekki of mikiðef frárennsliðerekki ílagi. Flestareru kryddjurtirnar sólelskar og launa vel staðarval í samræmi við það. Vökvun heldur minnaen meira. Úrsveipjurtaættinni fáum við anís, dillu, kerfil ogsteinselju. Þær er allar hægt að rækta í viðráðanlegum ílátum en þurfa gott loftrými og endast ekki vel innanhúss. Steinseljuna (Petrosclinum sativum v. crispum) þarfvarla að kynna. Hún er þetta hrokkna græna sem allar smurbrauðstofur með sjálfsvirðingu dengja af skyldurækni ofan á allt mæjónesið. En kannski eru hér fáir sem vita að steinseljan er í þeim hópi plantna sem hvað auðugastar eru á járn, kalk og fosfór ásamt A- og Q- vítamínum. Ekki er heldurónýtt að vita til þess, að steinseljan fælir burt flugur og rækti maður hana með káli og rófum dregur hún úr ásókn kálflugunnar og bætir bragð káljurtanna. Hver planta þarf nokkuð stóran pott með leirkenndri mold. Steinseljan og dillan eru afar kalkelskar. 7 'W /w / Piparmyntan Myntureru til af mörgu tagi. Bragðbest er piparmyntan (Menthapiperita). Húner bastarður milli tveggja annarra tegunda og ekki er hægt að fá hana hreina uppaf fræi. Til eru tvö afbrigði af piparmyntunni og hefur ánnað rauð blöð. Það er þetta rauða afbrigði sem ég mæli með. Bæði er að menn geta verið vissir um að hafa fengið rétta tegund og eins hitt að sú rauðleita breiðist ekki jafnört út. Gróðrastöðin Mörk í Blesugróf hefur hana á sínum plöntulista og getur fólk keypt hana þar. Flestum nægir að kaupa eina plöntu og gróðursetja í vítt ílát. Myntan fyllir fljótt upp í! Notið myntuna með lambakjöti og í hrásalöt. Hún gefur rabbarbarasultu dæmalaust gott bragð. Myntan er góð tejurt, fersk sem þurrkuð. Graslaukinn þekkja allir. Honum má sá í pott eða þá að fá hnaus hjá grannanum eðatengdamömmu! Hinsvegareru það ekki margir sem vita að hægt er að setja nokkur hvítlauksrif niður í pott og klippa blöðin eftir hendinni saman við hrásalatið. Bragðið er mildara en af lauknum sjálfum en lyktin leynir sér ekki eftir á! Dilla (Aenthum graveolens) tengist helst við skelfisk og sænskar súrgúrkur. Dillan passar vel með rey ktum mat og lífgar svo sannarlega upp á soðna ýsu. Hafið 5 sm bil á milli plantna og látið plönturnar standa óhreyfðar þangað til fræið er farið að þroskast í sveipunum eigi að nota þá. Sé hún ræktuð vegna blaðanna má setja þéttar og sá þá oftar yfir sumarið. Blöðin eru klippt eða söxuð yfir mat. Eggert Ólafsson segir um dillu: „Fræið dreifir útvortis meinsemdum hiksta og klígju, temprar holds frygð“. Bden1 AL-GROÐURHÚS og sólreitir fyrir heimagaröa Allskonar slöngutengi, úðarar, slöngur, slöngustatív, slönguvagnar. Margvísleg garð- yrkjuáhöld, þar sem m.a. að einu skafti fellur I GARÐSHORNINU hjjá okkur kennir margra grasa fjöldi áhalda. Kant- og limgerðisklippur, raf- knúnar handsláttuvélar, Stiga-mótorsláttu- vélar með Briggs og Stratton mótor. AKURVIK HF. Akureyri ,a12 s INN Gunnar Ásgeirsson hf. Suóurlandsbraut 16 Sími 9135200 Sólreitirair eru af nýrri gerö, meö plastgleri (óbrjótanlegt) og innbyggöum, sjálf- virkum opnunar- og lokunarbúnaöi, sem vinnur á sólarorkunni. Stærö 120 X 92 X 38. Edcn garöhúsin eru nú fyrirliggjandi, en við höfum yfir 10 ára reynslu i þjónustu við ræktunarfólk. Engin gróðurhús hafa náð sömu útbreiöslu hérlendis. Þau lengja ræktunartímann og tryggja árangur. Sem fyrr bjóðum við lægsta verð, ásamt frá- bærri hönnun Eden álgróðurhúsa. Sterkbyggð og traust hús. Sýningarhús á staðnum Kynnisbækur sendar ókeypis KLIF HF. Grandagaröi 13 Reykjavík — Sími 23300 Stæröir: 3,17X3,78 (10x12fet) m/gleri, kr. 22.200 2,55X3,78 ( 8x 12fet) m/gleri, kr. 15.980 2,55x3,17 (8xi0fet) meö/gleri,kr. 14.420 Vegghús: 1,91X3,78 ( 6xl2fet)m/gleri,kr. 13.560 Ýmsir fylgihlutir fyrirliggjandi: Hillur, sjálfvirkir gluggaopnarar, borö, rakamælar, rafmagnsblásarar o.fl. o.fl. GARDENA gerir garðinn frægan NÚ ER TÍMI garðræktar og voranna í GARÐSHORNINU hjá okkur kennir margra grasa

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.