Þjóðviljinn - 20.05.1983, Qupperneq 3
Föstudagur 20. maí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Getum
lært af
þeim
segir forstjóri Haf-
rannsóknarstofnunar
Norskir fiskiræktarfrömuðir
hafa náð þeim merka árangri eftir
áratuga tilraunir og rannsóknir að
láta 50-70% þorskseiða lifa af
kviðpokaskciðið, scm er margfalt
betri árangur en áður hafði náðst.
Til samanburðar má geta þess að
við náttúrulegar aðstæður er talið
að um helmingur þorskseiða nái að
vaxa til viðhalds stofninum hverju
sinni.
Þessar fréttir hljóta að vekja
mikla athygli hérlendis og spurn-
ingu um stöðu okkar í fiskeldismál-
um og möguleika á frekari þróun í
þeim efnum í næstu framtíð.
Á síðasta alþingi var samþykkt
ályktun þess efnis að gerð yrði út-
tekt á þorskeldismálum hérlendis.
Að sögn Jóns Jónssonar forstjóra
Hafrannsóknastofnunar hefur
stofnunin ráðið mann til að gera
fræðilega úttekt á stöðu þessara
Aðstæður aðrar í Noregi en hér,
segir Jón Jónsson, forstjóri Haf-
rannsóknastofnunar.
mála erlendis. „Norðmenn hafa
ákaflega langa reynslu í fiskirækt
og hafa vissulega náð góðum ár-
angri og við eigum margt eftir að
læra af þeim. Hins vegar eru allar
aðstæður aðrar hér en þar. Þeir
með sína skerjagarða en við með
óvarða ströndina.
Við þurfum að kanna þessi mál
og athuga hvað er skynsamlegt
áður en farið verður út í stórar og
kostnaðarsamar framkvæmdir",
sagði Jón. Hann sagði einnig að
mikilvægt væri að við hefðum
augun opin og fylgdumst vel með
þróun þessara mála, „svo við vökn-
um ekki upp við þann vonda draum
að aðrar þjóðir séu farnar að fram-
leiða fisk á miklu ódýrari máta en
við getum tekið hann úr sjó.“
-Ig-
Ágætur fundur AB um skólamálin:
Viimubrögðln fordæmd
„Þetta var mjög gagnlegur fund-
ur“, sagði Þorbjörn Broddason,
fulltrúi í fræðsluráði um opinn
fund, sem Alþýðubandalagið í
Reykjavík gekkst fyrir á miðviku-
dagskvöld um fræðsluskrifstofuna í
Reykjavík og samning um breyt-
ingu á henni.
Milli 40 og 50 manns sátu fund-
inn, flestir kennarar og skólafólk.
Þorbjörn Broddason, sem var
frummælandi á fundinum ásamt
Rögnu Ólafsdóttur kennara, sagði
að allir hefðu verið á einu máli um
að vinnubrögð í þessu stóra máli
hefðu verið til mikils vansa. „Það
er jafnframt uggur í mönnum um
áframhaldið, þegar svona er staðið
að málum“, sagði Þorbjörn.
„Þessi fundur treysti okkur Al-
þýðubandalagsmenn í því að okkur
beri að gæta hagsmuna þeirra
hópa, sem þarna hafa gróflega ver-
ið sniðgehgnir af borgarstjórnar-
meirihlutanum", sagði Þorbjörn
ennfremur. „Umræður á fundinum
og viðtöl við fundarmenn voru
einnig gott vegarnesti fyrir mál-
isvara okkar í borgarstjórn í þessu
máli“, sagði hann. Samkomulags-
drögin urn nýskipan fræðslumála
voru lögð fyrir borgarstjórn í gær-
kvöldi og er frétt um þann fund
annars staðar í blaðinu í dag.
- ÁI
Sóldýrkandi - Ljósm. - Atli
Kaup ríkissjóðs á húsi Jóns Þorsteinssonar
Þjóðleikhúsið iær
húsið næstu 10 ár
„Við ákváðum að kaupa þetta
hús vegna þarfa Stjórnarráðsins
fyrst og fremst en jafnframt hefur
verið ákveðið að afhenda
Þjóðleikhúsinu þetta húsnæði til af-
nota næstu 10 árin og er áformað
að þar verði sett upp Ieiksvið“,
sagði Ragnar Arnalds fjármálaráð-
herra í samtali við Þjóðviljinn í gær
er hann var inntur eftir því hvað
ríkissjóður hygðist gera við
íþróttahús Jóns Þorsteinssonar við
Lindargötu í Reykjavík.
„Þetta húsnæði er á reit Stjórn-
arráðsins og margvíslegir mögu-
leikar eru varðandi nýtingu þess.
Þjóðleikhúsmenn hafa lengi haft
augastað á húsinu en auk þess er
fyrir hendi sá möguleiki að byggja
ofan á það og eins við hliðina á því.
Með uppsetningu sviðs í þessu húsi
skapast möguleikar fyrir aukna
starfsemi Þjóðleikhússins, bæði til
æfinga svo og flutnings á leiksýn-
ingum svipuðum þeim sem hingað
til hafa verið settar upp á Litla
sviðinu í Þjóðleikhúskjallaran-
um“, sagði Ragnar ennfremur.
íþróttahús Jóns Þorsteinssonar,
sem svo hcfur verið nefnt, kostaði
ríkissjóð 12.6 miljónir króna en
lóðin sem um ræðir er 1400 fer-
metrar að stærð með margvíslegúm
byggingarmöguleikum. - v.
iðði.
SrÍkVsins 1 Garðeigendur,
sumarbústaðaeigendur
Skógrækt ríkisins selur plöntur á eftirtöldum stööum:
HVAMMI í SKORRADAL
Sími 93-7061
opiö virka daga, og um helgar eftir samkomulagi.
NORÐTUNGU í ÞVERÁRHLÍÐ
Sími um Síöumúla
opiö virka daga, nema föstudagskvöld
LAUGABREKKU VIÐ VARMAHLÍÐ, SKAGAFIRÐI
Sími 95-6165 (?
opiö virka daga, og um helgar eftir samkomulagi.
VÖGLUMí FNJÓSKADAL
Sími 96-23100
opiö virka daga, og um helgar frá kl. 14-16.
HALLORMSSTAÐ Á FLJÓTSDALSHÉRAÐI
Sími um Hallormsstað
opið virka daga, og um helgar eftir samkomulagi.
TUMASTÖÐUM í FLJÓTSHLÍÐ
Sími 99-8341
opiö mánudaga-laugardaga kl. 8-18.30.
Mismunandi er, hvaöa plöntur eru til á hverjum stað.
Hafið samband viö gróörarstöövarnar, þær veita upplýsingar um þaö og
benda yður á hvaö er til annars staöar, ef þær hafa ekki til þær plöntur, sem
yður henta.
Viö bjóöum einungis plöntur, sem ræktaöar eru í gróðrarstöðvum okkar, en
engar innfluttar plöntur. Viö bjóöum aöeins tegundir og kvæmi, sem
reynsla er komin á hérlendis.
VERÐIÐ HVERGI LÆGRA
Egill
en ekki
Friðrik
Eins og skýrt var frá í Þjóðviljan-
um í gær var sagt þar sem þeir sátu
saman Friðrik Sophusson, Birgir
ísleifur og Egill Jónsson alþingis-
menn að það yrði sprenging þegar
Geir legði fram ráðherralista sinn.
Fréttamönnum sem heyrðu þessi
ummæli heyrðist sem það væri
Egill sem hefði sagt þetta. Hann
þrætti fyrir það og bar það uppá
Friðrik Sophusson. Hvort það var
til að hiífa Agli eða af einhverjum
öðrum orsökum, þá þrætti Friðrik
ekki fyrir að hafa sagt þetta, þegar
hann var inntur eftir því.
Þjóðviljinn fékk hinsvegar
staðfestingu á því í gær að það var
Egill Jónsson en ekki Friðrik sem
lét þessi orð falla, þótt hann væri
ekki maður til að standa við orð sín
þegar hann var spurður að því, en
reyndi þess í stað að koma þessu
yfir á Friðrik. Skal Friðrik hér með
beðinn afsökunar á að honum
skyldi kennt um og má segja að
hann sé meiri maður að hlífa Agli.
- S.dór
Norðmenn ná
stórmerkum árangri
í þorskeldi