Þjóðviljinn - 20.05.1983, Síða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 20. maí 1983
MOOVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyf-
ingar og þjóðfrelsis
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson.
Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson.
Auglýsingastjóri: Sigríður H. Sigurbjörnsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Blaðamenn: Auður Styrkársdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Helgi Ólafsson,
Lúðvík Geirsson, fylagnús H. Gíslason, Ólafúr Gíslason,
Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlöðversson.
íþróttafréttaritari: Víðir Sigurðsson.
Utlit og hönnun: Helga Garöarsdóttir, Guðjón Sveinbjörnsson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Atli Arason.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson.
Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Sæunn Óladóttir.
Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bílstjóri: Sigrún Bárðardóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmundsson,
Ólafur Björnsson.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir
Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar:
Siðumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prent.
Prentun: Blaðaprent h.f.
- Allir nema einn -
• Svavar Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins hóf
stjórnarmyndunartilraunir sínar með því að óska eftir svör-
um við fáeinum spurningum frá forystumönnum annarra
flokka. Þetta var nauðsynlegt til að leiða í ljós hvort finna
mætti umræðugrundvöll, sem gæfi tilefni til ítarlegri
viðræðna um stjórnarmyndun.
• Niðurstaðan er sú, að Sjálfstæðisflokkurinn einn hefur í
raun hafnað þátttöku í stjórnarmyndunarviðræðum undir
forystu Alþýðubandalagsins, en í viðræðum Svavars við full-
trúa annarra flokka hefur komið í ljós að í ýmsum efnum ber
ekki meira á milli en svo, að ástæða þykir til að kanna nánar,
hvort hugsanlegt sé að brúa bilið og skapa grundvöll til
stjórnarmyndunar.
• Ekki er þó vert að gera lítið úr því sem á milli ber, en
næstu dagar munu væntanlega leiða í ljós, hvort málum
þokar í samkomulagsátt, eða hvort einhverjir kjósa heldur
að halla sér að Sjálfstæðisflokknum og stefnu hans.
• í þeim könnunarviðræðum sem fram fóru í gær og fyrra- .
dag við fulltrúa Alþýðuflokksins, Framsóknarflokksins,
Samtaka um kvennalista og Bandalags jafnaðarmanna þá
lagði Alþýðubandalagið fram viöræðugrundvöll, sem hafður
veröur til hliðsjónar í áframhaldandi stjórnarmyndunarvið-
ræðum þessara flokka ásamt þeim gögnum sem fulltrúar
hinna flokkanna kunna að leggja fram.
• í þessum drögum að samstarfsgrundvelli, sem Alþýðu-
bandalagið hefur lagt fram er m.a. gert ráð fyrir frestun um
einn mánuð á öllum þeim verðlags- og launahækkunum sem
yfir vofa um næstu mánaðamót, „svo að tími gefist til samn-
ingaviðræðna við samtök launafólks um hvernig dregið verði
úr þeim miklu víxlhækkunum kaupgjalds og verðlags sem
framundan eru.“
• Síðan segir: - „Hafnir verði samningar verkalýðshreyf-
ingar og atvinnurekenda um launastefnu til tveggja ára sem
hafi þessa viömiðun:
Að verðbólga magnist ekki frekar en orðið er og verði
komin niður í 55 - 60% um næstu áramót og verði ekki
hærri en um 35% í lok ársins 1984.
Að kaupmáttur meðaliauna og lægri launa verði ekki á
neinu þriggja mánaða tímabili lægri en nemur falli
þjóðartekna frá árinu 1981 til 1983, og að kaupmáttur
launa aukist strax með hækkandi þjóðartekjum.
Að tryggð verði full atvinna.“
• Sú hugmynd að fresta verðlags- og launahækkunum nú
um einn mánuð í því skyni að skapa svigrúm tiJ samninga við
Muerkalýdsbreyíínguna um niðurfærsíu verð/ags á móti
eítthvað minni verjðbótum á laun, hún á ekkert skylt við þær
stórkostlegu kaupránshugmyndir, sem fjallað var um í
sljórnarmyndunarviðræðum Sjálfstæðisflokksins.
• Það sem tillögur Alþýðubandalagsins snúast um er að
tryggja kaupmátt meðallauna og lægri, en koma jafnframt í
veg fyrir þá óðaverðbólgu, sem hér tekur við á næstunni sitji
menn aðgerðarlausir.
• Meðan Steingrímur Hermannsson, formaður Framsókn-
arflokksins fór með umboð til stjórnarmyndunar, þá lét
hann duga aS kanna eingöngu stjórnarmyndun til hægri með
Sjálfstæðisflokknum. Svavar Gestsson, formaður Alþýðu-
bandalagsins hefur annan hátt á og beitir sér fyrir viðræðum
allra andstæðinga Sjálfstæðisflokksins.
• Ýmsir hafa haft á orði að ekki sé unnt að nvynda ríkis-
stjórn fjögurra flokka eða fleiri. Og víst er slíkt ekki e/nfall
mál. Fráleitt væri þó að útiloka þann möguleika með öllu án
vandlegrar skoðunar. Hvort sem mönnum líkar betur eða
ver, þá verður ekki gengið fram hjá þeirri staðreynd að
flokkunum á Alþingi hefur íjölgað, og sú fjölgun hlýtur að
hafa sín áhrif á stjórnarmyndunartilraunir nú.
• Einnig má minna á þann möguleika að tveir eða fleiri
flokkar myndi minnihlutastjórn, sem aðrir taki að sér að
verja falli fyrst um sinn.
• Eitt er víst að allsherjarsundrung, sem ríkir innan Sjálf-
stæðisflokksins gerir það vart fýsilegt fyrir einn né neinn að
binda trúss sitt við það hró, - svo ekki sé minnst á málefnin.
k.
klippt
Vofa
gengur laus
Morgunblaðið heldur áfram að
skrifa af þeirri hreinskilni og ein-
lægni að vekur hroll með áhuga-
mönnum um raunverulegt frelsi.
Það var nefnilega svo lítið að
marka öll hin orðin um mannrétt-
indin, lýðræðið, þingræðið; nema
mannréttindamenn séu komnir í
frí á Mogganum? Og enn ríkir
ísöldin í skrifum Moggans, sem
hóf skeið sitt um leið og forseti
Islands fékk Svavari Gestssyni
umboð til stjórnarmyndunar í
hendur á dögunum. Trúlega má
tímasetja endalok þessarar
myrku aldar þegar Svavar hefur
skilað umboðinu, nema hann hafi
þá myndað ríkisstjórn.
En víst er að vofa gengur laus í
Mogganum, kommúnistagrýlan
hefur verið vakin af dásvefni,
Stalín stingur sér niður í stílvopn
þeirra, Lenín bruggar þeim gör-
ótta drykki, Marchais er orðinn
Alþýðubandalagsmaður og Svav-
ar Gestsson er trúlega sonur Nik-
ítu Krjústjoffs.
„Skilgreina með
réttum hœtti“
Það eru góðir menn í Finnlandi
og Frans, segir Staksteinar í
Mogga gærdagsins: „Þar styrkja
forsetar landsins stöðu sína jafnt
út á við sem inn á við með því að
skilgreina kommúnistaflokka
með réttum hætti og treysta for-
ystumönnum þeirra ekki fyrir
fjöreggjum lýðræðisins“.
Jamm, þeir hafa sjálfsagt þurft
að fara á námskeið hjá Natö til að
komast að því, að flokkur sem
heitir Kommúnistaflokkur sé
kommúnistaflokkur. Hitt er svo
annað mál, hvort forystumenn
þessara flokka fengju ekki „fjör-
egg lýðræðisins", þ.e. umboð til
stjórnarmyndunar, ef sú yrði út-
koman út úrþingkosningum. Það
er að sjálfsögðu mikill heiður
fyrir hvurn sem er að vera kallað-
ur kommúnisti í Morgunblaðinú,
en skilgreiningin verður ekki
réttari fyrir það. Kommúnista-
flokkar í Vestur-Evrópu eru
margir í nánum tengslum við
Kommúnistaflokk Ráðstjórnar-
ríkjanna og verja stefnu og starfs-
hætti þar í löndum af þrótti, slíkir
flokkar hafa „alræði öreiganna" á
stefnuskrá sinni og ýmsan þann
vulgaribus sem Alþýðubandalag-
ið hefur aldreí haft neitt af að
segja.
Hins vegar vita allir hvaða blað
á Islandi starfar í anda gamallar
konungsstjórnar; vér aleinir
vitum!
Eins og Karl Marx orðaði það; við höfum engu að tapa nema hlekkj-
unurn.
Að koma á
þjóðfélagsgerð
sósíalismans
í leiðaranum í gær kveður við
sama tón um þá ógn og skelfing
sem Alþýðubandalagið er í
Mogganum. Þar er m.a. helst
hneykslast á því að Alþýðu-
bandalagið flaggi „því megin-
markmiði, að koma hér á þjóðfé-
lagsgerð sósíalismans“. Þetta er
vissulega satt og rétt og Alþýðu-
bandalagsmenn mjög stoltir af
þessu markmiði sínu. En hvaðan
úr ósköpunum úr lýðræðisbók-
menntun heimsins ætli Mogginn
fái þarmeð tilefni til aðgefa út sér-
stakar viðvaranir um að gjalda
varhug við stjórnarforystu Al-
þýðubandalagsins?
Ætli þeir viti ekki á Mogganum
að t.d. flestir krataflokkar í álf-
unni hafa sams konar markmið?
O, sancta simplicitas!
/
Arangur Alþýðu-
bandalagsins
I leiðara Moggans er kvartað
undan því að Alþýðubandalagið
hafi komið í veg fyrir „nauðsyn-
legar framkvæmdir eins og bygg-
ingu nýrrar flugstöðvar og nýrra
eldsneytisgeyma" á Natóvellin-
um í Keflavík.
Slíkur er árangur Alþýðu-
bandalagsins í síðustu ríkisstjórn
m.a.. Það er einnig athyglisvert í
þessu sambandi að Sjálfstæðis-
flokkurinn í þjónkun sinni við
Nató og Bandaríkjastjórn getur
ekki þrátt fyrir stærð sína farið í
ríkisstjórn með öðrum flokki
heldur en Framsóknarflokknum,
einmitt vegna afstöðu sinnar til
utanríkismála.
Þórarinn Þórarinsson, sá öðl-
ingur miðjunnar þegar hann vill
það við hafa, hefur tekið upp
nýju línuna frá Pentagon. Hann
segir í leiðara í gær að afstaða
Alþýðubandalagsins til
þjóðfrelsismála útiloki það frá
stjórnarmyndun: „Hins vegar
kann svo að fara að sérviskumál
þess, eins og mótstaðan gegn
flugstöðinni, útiloki það frá
stjórnarmyndun“. Var ekki reisn
Þórarins meiri hér áður fyrr?
Réttur Alþýðu-
bandalagsins
Rauðvínspressan sú gula hefur
gengið í fótspor Stóru-Mömmu,
og veist að Svavari fyrir að hafa
þetta blessaða umboð til stjórn-
armyndunar (þó það sé reyndar
ekki kallað „fjöregg lýðræðisins“
einsog í Mogga sjálfum). Aftur-
haldspressan er greinilega miður
sín af hræðslu við að Svavari tak-
ist að mynda stjórn - og það er
greinilega mikið stríðnisvopn,
umboðið a tarna. Síðdegisblaðið
er nú ekki óháðara en svo að það
tekur af þunga þátt í „blokker-
ingu“ Morgunblaðsins.
Hins vegar segir í leiðara Al-
þýðublaðsins í gær: „Árásir
Morgunblaðsins á Alþýðubanda-
lagið vegna þess eins, að forseti
hefur afhent Svavari Gestssyni
umboð til stjórnarmyndunar, eru
í senn bæði furðulegar og lýsa ó-
lýðræðislegum þankagangi.
Áuðvitað er réttur Alþýðu-
bandalagsins til þessa hlutverks
jafnmikill og hvers annars flokks,
sem hlotið hefur fylgi kjósenda í
kosningum". Hvar er skáldið
Matthías að spinna dýrðaróð til
lýðræðisins um þessar mundir?
-óg
Morgunblaðs-
fárið komið
í Tímann
í ritstjórnargrein Starkaðs í
Tímanum í gær er spilað undir
með Morgunblaðinu: „Hin pín-
lega staðreynd er hins vegar sú,
að það vita allir nema Svavar
svarið við þeirri spurningu,sem
hann hefði átt að spyrja sjálfan
sig í upphafi stjórnarmyndunar-
tilrauna sinna. Sú spurning er:
Þýðir nokkuð að reyna? Og svar-
ið sem allir nema Svavar Gests-
vita er: nei".
Það virð’ist hafa farið framhjá
Tímanuni að Steingrímur Her-
mannsson er á daglegu tali við
Svavar í stjórnarmyndunarvið-
ræðunum!
Sprengingar
Mörg orð viturleg og fróðleg
eru látin falla í blöðum þessa dag-
ana um stjórnarmyndanir marg-
víslegar. En líklegt er þó, að þeir
hafi mest til síns máls, sem standa
í því að telja niður andúð þing-
manna Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknarflokksins á þeim
flokki sem þeir eru ekki í.
Þessi niðurtalning andúðarinn-
ar er svo langt komin, að ráðherr-
alistar eru á döfinni og heyrðu
liðsmenn tveggja dagblaða það f
gær, að upp úr varaformanni
Sjálfstæðisflokksins, Friðriki
Sóphussyni, hrukku ummælin
„það verður sprenging í þing-
flokknum þegar Geir leggur fram
ráðherralista sinn“.
Friðriksagði síðar í samtali við
blaðamann að það væru svo sem
engar fréttir þótt sprengingar
yrðu í þessum góða þingflokki.
Má vel vera. En hvernig ætlar
virðulegur flokkur að standa við
yfirlýsingar sínar um ábyrgð,
festu, lausnir, fraintíð, sem getur
ekki einu sinni hreyft sig um hálft
fet á stjórnarvegi vegna þess að
helstu atkvæðamenn flokksins
telja það öllu öðru brýnara að
sprengja hver annan í tætlur áður
en fitjað er upp á smáskitlegum
málum eins og framtíð íslensks
þjóðfélags?
-áb.