Þjóðviljinn - 20.05.1983, Side 6

Þjóðviljinn - 20.05.1983, Side 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 20. maí 1983 ...... »IX—(A Tölvuspil og leiktæki Bamaverndarráö íslands boðaði til málþings um tölvuspil og leiktækjasali mánudaginn 16. maí síðastliðinn. Til þingsins var boðið fólki með sérstaka reynslu og þekkingu á þessum málum og var markmiðið að efla skoðanaskipti og fá fram tillögur um hvert og þá hvernig rétt væri að bregðast við tölvuspilum og leiktækjasölum. Höfð skyldu í huga viðbrögð barna og unglinga, foreldra og verkalýðssamtaka og sveitarstjórna og löggjafans. Fjögur framsöguerindi voru flutt á málþinginu og að þeim loknum tók við starf í umræðuhópum, sem skiluðu síðan áliti. Bernharður Guðmundsson, fréttafulltrúi, tók saman í stuttu máli þá sameiginlegu þætti, sem fram komu í umræðuhópunum. Málþinginu var ekki ætlað að álykta um málið, heldur fyrst og fremst efla skoðanaskipti millum fólks. Hin sameiginlega niðurstaða málþingsins birtist hér annars stað- ar á síðunni. Framsöguerindin fluttu Þórólfur Þórlindsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Islands, Guðríður Ragnarsdóttir, sálfræðingur, Edda Ólafsdóttir, starfskona Útideildar í Reykjavík, og Mikael Karlsson, lektor í heimspeki við Háskóla ís- lands. Öll fjöllúðu þau um málið frá nokkuð ólíkum hliðum og verð- ur gerð grein fyrir erindum þriggj'a hinna síðastnefndu hér á eftir. Leiktækjakassar styrkja ákveðiö atferli Guðríður Ragnarsdóttir ræddi Bernharður Guðmundsson, fréttafulltrúi, og Björn Líndal, formaður barnaverndarráðs íslands hlýða á framsöguerindi. Bernharður tók saman meginniðurstöður málþingsins, sem hér birtast. (Ljósm. - eik) Niðurstöður málþingsins: Tvöfalt siðgæði varðandi leiktœkin I. Núverandi aóstæður Við lifum dögun nýrrar aldar, tölvualdar, þar sem atvinnulíf sem einkalíf tölvuvæðist og skapar margþætta möguleika til aukins frítíma og athafna í frítím- anum. Hvernig skal best stjórna þeim frítíma og hver skal gera það. Leiktækjasalirnir eru komnir og virðast vera einskonar klak- stöðvar góðs og ills. Þeir eru af hinu góða, þegar þeir eyða tölvu- ótta, veita útrás fyrir árásarhvöt og tengja jafnvel kynslóðirnar. Hinsvegar er og augljóst að tækin eru dýr í notkun, færa eigendum sínum skjótfenginn gróða og hafa stuðlað að auðgunarbrotum ung- linga. Félagsleg á hrif þeirra virð- ast oft vera'mjög neikvæð. Sá aldur sem sækir leiktækja- salina mest, 12-15 ára, er fiktald- urinn sem er að leita að sjálfum sér, leita eftir samveru og hefur mikla þörf fyrir leikinn. Krafa foreldranna við þær aðstæður hlýtur að vera, að það tómstund- atilboð sem býðst sé ekki- fíkn- myndandi. Hinsvegar er og íjóst að ákveðið hlutfall unglinga kær- ir sig ekkert um skipulagt æsku- lýðsstarf og virðist lenda úti í kuldanum hvað sem að er gert. Tvöfalt siðgæði ríkir í þeim málum sem varða leiktækin, á- kveðin refsilöggjöf er fyrir hendi varðandi áhættu- og fjárhættuspil en ekki farið eftir henní, t.d eru fjárhættuspilakassar Rauða krossins reknir með sérstakri heimild dómsmálaráðuneytisins. II. Meginatriði Það virðist augljóst að tölvu- leiktækin, sjopputækin, hafa ver- ið skipulögð þannig með lögmál- um námssálarfræðinnar, að leikmaðurinn ánetjist sem fyrst og sem lengst. Því er nauðsyníegt ineð sömu aðferðum að afhjúpa þessi lögmál og kenna fólki að skilja þau til þess að tækin þjóni manninum en hann verði ekki þræll þeirra. Ekki væri óeðlilegt að sækja þyrfti um leyfi fyrir hvert einstakt leiktæki og þannig tryggt að þau séu vinsamleg leikmanninum en niðurlægi hann ekki. Mikil þörf er á rannsóknum á áhrifum tölvu- leiktækjanna í íslensku umhverfi sem hefur slíkan sérleik áð er- lendar rannsóknir koma ekki að fullu gagni. Uppgötva þarf hve- nær prógröm leiktækjanna eru skaðleg og hvenær uppbyggileg, h vernig þau valda árráttu, ástríðu og jafnvel fíkn sem þá veldur því að dómgreind viðkomandi breytist svo og hegðun hans. III. Útfærsla Ekki er eðlilegt að leiktækin séu í höndum gróðamanna á ein- angruðum stöðum heldur séu þau á félagsmiðstöðvum og bóka- söfnum í örvandi umhverfi. Þátt- tökugjaldið sé samræmt, og fari eftir tímalengd notkunar. Gróðinn af leiktækjunum sé nýtt- ur til annars tómstundastarfs. Reglugerð sú sem nú liggur fyrir borgarstjórn og þrengir ákvæðin verulega um rekstur leiktækjasala virðist horfa til bóta, sérstaklega þar sem hún gerir ráð fyrir skyndisviptingu leyfis, ef ekici er vel að staðið. Þörf er á fleiri tilboðum til skapandi tómstundastarfs sem eru til reiðu allan daginn, en vel- gengni leiktækjasalanna lýsir ein- mitt vanrækslu í þeim málum. Unglingum verði gefinn meiri kostur á að skipuleggja tóm- stundastarf sitt og sköpuð verði aðstaða fyrir meiri samveru for- eldra og barna í leikjum.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.